Helgarpósturinn - 12.09.1985, Side 18
Ljóöiö vörn gegn
afskræmingu
Þessa vikuna stendur yfir í Nor-
ræna húsinu fyrsta norræna Ijóðlist-
arhátíðin sem kviknaði fyrir frum-
kvæði forstjóra Norræna hússins,
Knut Ödegárd. En þar sem aðstand-
endur hátíðarinnar trúa á samleik
þjóðlegra bókmennta, norrænna
bókmennta og alþjóðlegra er hún
ekki einskorðuð við Norðurlönd
sem bókmenntasvæði heldur hefur
hingað verið boðið ýmsum af
fremstu Ijóðskáldum annarra landa
og tungumálasvæða. Margir vilja
ætla að ljóðið og listin hljóti að víkja
fyrir máii hinna hörðu staðreynda
meðan hyldýpið milli hins sveltandi
suðurs og hins auðuga norðurs níst-
ir æ sárar vitund okkar, að orðið í
ljóði sé leið til varnar manneskjunni
á tima þegar flest miðar að því að af-
skræma manninn, að ljóðið sé
meira en draumur og flótti. Því
þetta þing sem lýkur annað kvöld.
Dagskrá síðustu ljóðakvöldanna í
Norræna húsinu er sem hér segir:
Fimmtudagur 12. sept. kl. 20.30:
Upplesarar: Einar Már Guðmunds-
son, David Gascoyne, Britta
Marakatt, Áse-Marie Nesse, Peter
Sandelin, Þorsteinn frá Hamri.
Tónlist: Laufey Sigurðardóttir fiðlu-
leikari.
Föstudagur 13. sept. kl. 20.30:
Upplesarar: Lars Forssell, Uffe
Harder, Lars Huldén, Matthías
Johannessen, Mimmo Morina,
James Tate.
Tónlist: Ásdís Valdimarsdóttir lág-
fiðluleikari.
Englendingurinn David Gascoyne er einn
þátttakenda í Ijóðlistarhátiðinni sem nú
stendur yfir í Norræna húsinu. Hann er
talinn eitt merkasta Ijóðskáld samtimans
á enska tungu og á millistríðsárunum var
hann t.a.m. einn örfárra enskra skálda
sem ortu gjaldgengan skáldskap að hætti
súrrealista. Hann er meðal upplesara á
dagskránni á fimmtudagskvöld.
Erró gerir mynd af Laxness
Um helgina opnar Erró myndlist-
arsýningu í Norræna húsinu en
nokkur ár eru liðin síðan hann sýndi
hér síðast. Sýningin samanstendur
aðallega af þremur myndasyrpum;
stúlkurnar frá Marokkó, Ijósmyndir
frá Kína og þúsund og tvær nætur
en sú syrpa er framhald af þúsund
og einni nótt sem listamaðurinn hef-
ur þegar málað. Öll verkin á sýning-
unni eru unnin á síðastliðnum árum
og eru til sölu nema málverk af Hall-
dóri Laxness sem Erró lofaði Davíð
borgarstjóra að mála fyrir Reykja-
víkurborg síðast þegar hann var
staddur hér á landi. I því skyni hélt
hann af stað með mörg hundruð
ljósmyndir af Laxness í farteski
sínu en þegar til kastanna kom not-
aði hann aðeins tvær þeirra sem fyr-
irmyndir. Mynd sem upphaflega átti
að vera mjög flókin varð á endanum
mjög einföld, að sögn listamanns-
ins. En þótt hugmyndin hafi verið
einföld var útfærslan aftur á móti
flókin og myndin tók langan tíma í
vinnslu. Erró hefur sem kunnugt er
lengi haft aðalbækistöðvar sínar í
París en dvelur auk þess í Thailandi
tvo mánuði á veturna en á Spáni á
sumrin.
Gunnar Kvaran sellóleikari.
Tónlistarfélagið
þenur strengina
Vetrarstarf Tónlistarfélagsins er
nú að hefjast. í vetur býður félagið
upp á átta áskriftartónleika fyrir
styrktarfélaga. Nú sem fyrr verður
reynt að vanda sem frekast er unnt
val þeirra tónleika sem fyrirhugaðir
eru. I nokkrum tilvikum er um að
ræða samvinnu við Sinfóníuhljóm-
sveit íslands um ráðningu lista-
manna.
Auk hinna átta áskriftartónleika
mun Tónlistarfélagið standa fyrir
þrennum kirkjutónleikum í tilefni af
Ári tónlistarinnar og 300 ára afmæli
Bach og Hándel. Fyrstu tónleikarnir
verða haldnir nk. sunnudag 15.
september kl. 20.30 í Bústaðakirkju
þar sem Gunnar Kvaran sellóleikari
leikur þrjár einleikssvítur eftir
Bach.
Hægt verður að kaupa miða á ein-
staka tónleika eins og sl. vetur en
þar sem fjöldi miða er takmarkaður
er öruggara fyrir tónlistarunnendur
að tryggja sér miða með því að ger-
ast styrktarfélagar í Tónlistarfélag-
inu með því að hringja til skrifstofu
félagsins í síma 17765 og láta skrá
sig í félagið. Gjald fyrir þrenna tón-
leika er kr. 850 en miðar á einstaka
tónleika kosta kr. 350.
KVIKMYNDIR
Allsráðandi ofbeldi a la Cimino
eftir Sigmund Erni Rúnarsson
Bíóhöllin: Ár drekans (Year of the Dragon).
★★★
Bandarísk, árgerd 1985.
Framleidandi: Dino de Laurentiis.
Leikstjórn: Michael Cimino.
Handrit: Oliuer Stone og Cimino uppúr
skáldsögu Robert Daley.
Kvikmyndun: Alex Thomson. Tónlist:
David Mansfield. Adalleikarar: Mickey
Rourke, John Lone, Ariane, Carolina Kava,
Eddie Jones.
Af öllum öðrum varð það náttúrlega Dino
karlinn de Laurentiis sem fjármagnaði þessa
næstu mynd Ciminos á eftir hans stórkost-
lega vondu Heaven‘s Gate, verkinu sem
menn ætluðu að yrði síðasta skot þessa
brokkgenga leikstjóra. En Mikki er sem sagt
mættur again, í þetta sinn á ekki ósvipuðum
nótum og hann var í Hjartarbananum. Hér
segir hann þó ekki sögu þriggja vina, heldur
þríhyrnings, sem er myndaður af löggu, bóf-
um og fjölmiðli. Hvítri löggu, og hitt allt gult.
Við erum stödd í Kínahverfinu og ofbeldið er
allsráðandi a la Cimino.
Ár drekans er brokkgeng mynd að sama
skapi og leikstjórinn sem stendur að baki
henni. Hún er afskaplega vel gerð að mest-
um hluta, hefur að geyma fjári sterk atriði og
afbragðs leikstjórn, en það er eins og að-
standendur hennar nenni þessu ekki inn á
„Ár drekans er brokk-
geng mynd að sama
skapi og leikstjórinn
sem stendur að baki
henni," segir Sig-
mundur Ernir m.a. i
umsögn sinni um nýj-
ustu kvikmynd leik-
stjórans Michael
Cimino. Ljósmyndin
sýnir Mickey Rourke
og John Lone í aðal-
hlutverkum myndar-
innar.
milli, ellegar gleymi sér; til að mynda í of-
hlaðinni leikmynd, fíflalegum útúrdúrum frá
meginframvindu sögunnar og agalega leikn-
um smáskotum sem hvaða B-myndakóngur
gæti verið stoltur af. Þessi hroðvirknislegi
þáttur myndarinnar er mjög gremjulegur í
ljósi sterkra heildaráhrifa hennar.
Þetta er einkum margbrotin mynd með
kröftugum uppskiptum, vemmilega lýrísk
milli þess sem ógeðslegt ofbeldið kallar fram
grettu á andlit manns. Ár drekans er lengst
af vel skrifuð og samtölin oftast svo sennileg
að manni finnst þetta hljóti bara að vera
svona í þessum vonda heimi sem býður ekki
lengur upp á viðkvæði á borð við „Hlíðin
mín fríða“ heldur barasta „Fuck you“ og
„Let’s get the Hell out of here“. Nema hvað,
Mickey Rourke er ógetið. Hann er löggan.
Menn minnast hans kannski úr rullum
mynda á borð við „Body Heat“ og „Diner'*
og eftir fáa mánuði úr „Year of the Dragon".
Fantaleikari.
-SER.
Carpenter leit til himins og sjá...
Stjörnubíó: Adkomumadurinn (Starman).
★★
Bandarísk, árgerð 1985.
Framleiðandi: Larry J. Franco.
Leikstjórn: John Carpenter.
Handrit: Bruce A. Evans og Raynold
Gideon. Kvikmyndun: Donald M. Morgan.
Tónlist: Jack Nietzsche. Aðalleikarar: Jeff
Bryggjur, Karen Allen, Charles Martin
Smith, Richard Jaeckel, Robert Phalen.
Ef hægt er að kalla Michael Cimino (sjá
ofar) leikstjóra ofbeldisins þá er kollegi hans
Carpenter kóngur hinnar einu sönnu afþrey-
ingar. Maður minnist í fljótu bragði Kristínar,
Þokunnar, Hlutarins, Augna Láru Mars og
Öskudaganna (vond þýðing á Halloween, ég
veit); allt svona bommfadderí og bú-hú-
myndir! í þetta skiptið verður Jóni óvænt lit-
ið til himins. Og þið kannski sjáið þetta fyrir
ykkur: Skot 1; flugumferðarstjórar hersins
mæna á furðuhlut nálgast jörðu á tölvu-
skermum sínum. Skot 2; lítið og vinalegt hús
inni í miðju landi með sofandi konu og engi-
sprettuhljóðum alltíkring. Skot 3; myndavél-
in fylgir eftir furðuhlutnum sem hendist í átt
að jörðu og jú, var það ekki, lendir þarna
nærri konunni. Skot 4; og svo framvegis...
Starman er vandlega unnið verk, afþrey-
ingarkóngnum til mikils sóma. Hann fer þó
hvergi út af sporbraut formúlunnar, en
fyndnin bætir það bara upp, einkum og sérí-
lagi háttalag Jeff Bridges sem fer á kostum í
hlutverki aðkomumannsins utan úr geimi.
Þessi geðþekki leikari hefur mestmegnis
fengist við geðþekk hlutverk á ferli sínum og
leyst þau geðslega af hólmi, en aldrei fyrr
með öðrum eins stæl og í Starman. Þó ekki
væri nema vegna Bryggjunnar er farandi á
þessa mynd! En það er aðeins eitt sem á
vantar. Og þetta eina er töluvert atriði.
Handrit myndarinnar veldur engan veginn
lengd hennar. Senurnar eru orðnar æði ein-
hæfar þegar á líður og nær dregur þeim endi
sem maður var akkúrat búinn að ímynda sér
að yrði á þessari kvikmynd.
-SER.
18 HELGARPÓSTURINN