Helgarpósturinn - 24.10.1985, Blaðsíða 2
FRETTAPOSTUR
I
Flugfreyjur í verkfall
Verkfall flugfreyja hófst í fyrrinótt. Gífurleg harka var
hlaupin i deiluna og farþegar Flugleiða voru strandaglópar
í Bandaríkjunum og víða um Bvrópu. í gær undirbjó sam-
gönguráðherra framlagningu lagafrumvarps er vísaði
kjaradeilu flugfreyja og Flugleiða til Kjaradóms, þó hann
kvæðist slíkri úthlutun stjórnvalda í kjarasamningum and-
vígur.
Nýtt BSRB?
Tillögur um gagngera uppstokkun á skipulagi Bandalags
starfsmanna ríkis og bæja settu stærstan svip á fyrsta dag
33. þings bandalagsins í fyrradag. Meðal annars komu fram
tvær grundvallarbreytingar á skipulagi samtakanna og að-
ildarfélögum þeirra; önnur um starfsgreinafélög sem menn
sögðu að þýddi grundvallarbreytingu á BSRB, „nýtt BSRB
gæti þar með verið í uppsiglingu". Þá virðist ljóst að Kenn-
arasamband íslands gangi úr BSRB um áramót.
Löggæslan undir sama þak?
Norskt ráðgjafarfyrirtæki, sem hefur unnið að tillögum
um nýskipan löggæslu á Stór-Reykjavíkursvæðinu, leggur
til að löggæsla á höfuðborgarsvæðinu verði sett undir eitt
þak. Þetta mundi þýða að embætti lögreglustjóra í Reykja-
vík yrði lagt niður, en þess í stað stofnað embætti lögreglu-
stjóra á Stór-Reykjavíkursvæðinu. Löggæsla í Reykjavík,
Hafnarfirði, Kópavogi, Seltjarnarnesi, Garðabæ og Mosfells-
sveit félli undir hið nýja embætti.
Án kvenna í einn dag
Áskorun til kvenna um að leggja niður vinnu í dag virtist
hljóta góðar undirtektir, en nú eru liðin tíu ár frá kvenna-
frídeginum svonefnda. Kvennaáratug lýkur svo um næstu
áramót. í dag verða ýmsar uppákomur í tilefni dagsins, svo
sem útifundur á Lækjartorgi, og konur hafa fengið lykla-
völd að Seðlabankanum; þar er opnuð sýning kvenna í dag
undir kjörorðunum; Konan — Vinnan — Kjörin.
Aftakaveður á Vestfjörðum
Mikið vatnsveður og hvassviðri gekk yfir vestanvert
landið og Vestfirði í fyrradag og olli meöal annars skriðuföll-
um á Bildudal og yfirgaf fólk hús sín af ótta við fleiri. Menn
voru varaðir við að vera á ferli á vegum og úrkoma var með
því mesta sem menn muna.
Undirbúa borgarstjórnarkosningar
Ellefu af tólf borgarfulltrúm Sjálfstæðisflokksins hafa
ákveðið prófkjörsþátttöku fyrir næstu borgarstjórnarkosn-
ingar. Prófkjörið sem verður takmarkað við flokksbundna
sjálfstæðismenn verður haldið 24. og 25. nóvember. Þá hef-
ur verið ákveðið að efna til forvals innan Alþýðubandalags-
ins um framboðslista, sem líklega fer fram um mánaðamót-
in janúar—febrúar.
Vilja hækkun á gasolíu
Olíufélögin hafa farið fram á að fá að hækka verð á hverj-
um lítra á gasolíu um 80 aura, úr LL,10 kr. í 11,90 kr. Þetta
yrði hækkun um 7.2%, og stafar af hækkandi verði á erlend-
um mörkuðum. Er talið óhjákvæmilegt að samsvarandi
hækkun verði hér.
Hálparstöð fyrir unglinga
Rauði kross íslands ætlar að opna hjálparstöð fyrir ungl-
inga í Reykjavík eftir næstu mánaðamót. Hjálparstöðin er
ætluð unglingum sem ekki eiga vísan samastað og hafa orð-
ið fíkniefnaneyslu að bráð. Er ráðgert að innan veggja stöðv-
arinnar verði unglingunum veitt eins konar „fyrsta hjálp.“
Amerikanar versla á íslandi
Bandarikjamenn eru farnir að koma til íslands, gagngert
í verslunarferðir. Þetta er nýlunda hjá Flugleiðum sem ku
hafa fengið góðar undirtektir. Fyrsti hópurinn kom til
landsins um síðustu helgi, og þegar hafa 700 farþegar verið
bókaðir í helgar-verslunarferðir, þar sem m.a. er boðið upp
á tískusýningar á ullarfatnaði.
Fréttapunktar:
• Verðlagsráð hefur heimilað hækkanir á gjaldskrám leigu-
bíla um 10%, sérleyfisbíla að meðaltali um 10% og vöru-
flutningabila 13—17%.
• Mikil aðsókn er að öllum fjórum sýningunum sem nú
standa yfir á verkum Jóhannesar S. Kjarvals.
• 3 menn sluppu ómeiddir þegar lítilli flugvél hlekktist á
á flugvellinum við Hólmavik á Ströndum á mánudag.
• Menntamálaráðherra upplýsti á Alþingi í vikunni að 441
réttindalaus kennari væri við störf í landinu.
• 16. kirkjuþing var sett á Þingvöllum í fyrradag og stendur
til 31. október.
• Bætt verkmenntun — aukin hagsæld er yfirskrift 41. Iðn-
þings íslendinga sem hefst í dag.
• Mokveiði var á sildarmiðum í upphafi vikunnar og afli
orðinn tvö þúsund lestir.
• Talið er að allt að 10% tekna sé stungið undan skatti, sem
gæti þýtt að ríkið yrði af 3—4 milljörðum króna,
Andlát:
Sigurður S. Magnússon prófessor og forstöðumaður
Kvennadeildar Landsspítalans er látinn í Reykjavík.
24 ára gamall maður, Hafliði Gísli Gunnarsson til heimilis
að Kjalarlandi 25 í Reykjavík beið bana þegar hann varð
undir gaffli lyftara á sunnudagsmorgun.
HALF MILLJON A SIÐASTA MANUÐI
Eiríkur Jónssort safnstjóri á DV
hefur spilað í getraunum allt frá því
þetta lotterí nam land hérlendis fyr-
ir sirka sextán árum. Ákafi hans í
leikinn var ekkert ægilegur til að
byrja með, en ágerðist hinsvegar
jafnt og þétt með árunum: „Frá því
fyrir svona sjö árum hef ég svo haft
vægast sagt mikinn áhuga á
þessu.. .“
— Ertu kannski húkt á þessu?
„Það má næstum segja það, já.“
í hans huga magnar þátttakan í
getraunum upp hreint alveg sér-
staka spennu sem er orðin óaðskilj-
anlegur hluti af laugardögunum í lífi
hans. „Það er svo með höppum og
glöppum hvort þessi spenna varir
fram yfir helgi. Hún rétt hefur það
með ellefu réttum, en þegar maður
hefur tólf rétta magnast hún um all-
an helming. Þá er það nefnilega
orðin spurning hvort fleiri en maður
sjálfur hefur ratað á alla rétta og þar
með spurning um hvort maður fái
bara tugi þúsunda í vinning eða
hundruði þúsunda. Þetta er gangur-
inn í þessu.“
Hann er spurður að því hvað hann
hafi oft fengið tólf rétta og svarar því
til að bragði að hann hreinlega viti
það ekki lengur. Hinsvegar muni
hann að síðustu fjórar vikurnar hafi
gefið honum sex tólfur.. .
— Hvað hefur það gert í pening?
„Tæpa hálfa milljón."
— Skilar þessi sextán ára þátt-
taka í tippinu gróða eða tapi í þínu
tilviki?
„Þetta hefur staðið undir sér hjá
mér. Það er bara enginn vafi á því.
Afrakstur þessara síðustu vikna sem
ég nefndi, borgar upp mörg síðustu
ár, svo ég taki dæmi."
— Notarðu einhver kerfi?
„Já, og þau eru mín eigin í raun-
inni. Ég hef soðið nokkur saman
upp úr einum tuttugu kerfisbókum
FÉKK VÍRUS Á HIGHBURY
Óskar Guðmundsson í Sæbjörgu
á Grandagarði segir tvær ástæður
vera fyrir því að hann er jafn hug-
fanginn af getraunum og hann er;
„Önnur er ágóðavonin", viðurkenn-
ir hann fúslega, en hina segir hann
vera ofsalegan fótboltaáhuga. „Ég
fékk algjöran vírus fyrir enska bolt-
anum þegar ég fór á Highbury árið
72, þá fimmtán ára gutti, og síðan
hefur hann grasserað í mér svo um
munar."
Óskar og bróðir hans Birgir
mynda dúett sem tippar sameigin-
lega fyrir hverja helgi. „Maður er nú
illa kominn í gang þetta keppnis-
tímabilið, en hvað skal segja um ár-
angurinn af þessu? Ja, skoðum bara
árið í fyrra. Nettóhagnaður minn af
tippinu á því tímabili var eitthvað
rétt undir sexhundruð þúsundum,
skattfrjálsum auðvitað. Já, það
munar um þetta, maður."
— Hverju kostaðirðu til á móti?
„Sjöþúsund kall á viku, eitthvað
töíuvert á þriðja hundrað þúsund
allt leikárið. Maður notar enda kerfi
og þau í stærra lagi. Blessaður
vertu; litlu kerfin eru bara til þess
fallinn að pirra menn, þau ganga
svo sjaldan inn. Líkindalínurnar úr
móðurkerfunum eru að minnsta
kosti mjög sjaldan á þeim leikjum
sem eru til staðar í kerfinu hverju
sinni...“
— Erþetta vísgróði, sem þú hefur
afþessu árlega?
„Nei, ekki svo að hann sé kominn
inn á tekjuáætlun hjá mér. Þetta er
fyrir utan allt heimilisbókhald, enda
gengur á ýmsu í þessu. Heilladisirn-
ar mínar eru í þúsund mílna fjar-
lægð frá mér um þessar mundir, en
voru innan við hundrað fet í fyrra."
— Læturðu getraunirnar sitja fyr-
ir öðrum verkum sem þú þarft að
sinna?
BEST AÐ TIPPA A NOTTUNNI
Eiður Guðjohnsen múrari hefur
alla sína tíð haft gaman af tölum og
stærðfræði. Þegar íslensku getraun-
irnar byrjuðu árið 1969 féll hann
flatur fyrir þeim. Hann liggur enn,
spilar fyrir mörg þúsund krónur í
hverri viku, en fær líka ansi margar
þúsundir til baka sem vinninga.
— Af hverju er maðurinn að
þessu af þessum líka krafii?
„Krafturinn er nú misjafn. Hann
fer eftir því hvað maður getur ein-
beitt sér vel að þessu fyrir vinnunni.
Þegar lítið er að múra eins og und-
anfarnar vikur, tippar maður mikið,
annars varla svo heitið geti.“
— Hvenœr tíma sólarhrings líkar
þér best að tippa?
„Á nóttinni. Það er Ijóst. Ég man
sérstaklega eftir því þegar við vor-
um að leggja í gólfin í blokkunum
uppi í Breiðholti þegar það hverfi
var að rísa. Við notuðum sérstaka
aðferð við það, sem kostaði okkur
jafnan nokkra bið fram í myrkur og
stundum fram á syörtustu nótt. Og
kyrrðin maður. .. Þarna var sko
staður og stund til að tippa.“
— Hvað eyðirðu annars miklu fé í
þetta þegar mest lœtur?
„Þegar mikið er að múra fer ég
kannski með svona þrjúþúsund á
viku, annars sexþúsund og sjaldnast
yfir sjöþúsund."
— Kalla menn þetta ekki geðveiki
þegar þú snýrð bakinu í þá?
„Eflaust. Áhugi manna beinist
bara að svo misjöfnum sviðum af-
þreyingarinnar. Mönnum eins og
mér finnst gaman að tölum á meðan
aðrir hafa ímugust á þeim, verða
jafnvel vitlausir ef þeir reyna að
leggjw þær saiuaii, deiia eua mín-
usa. Ég get vel ímyndað mér að svo-
leiðis fólki finnist það vera geðveiki
að hafa intressu fyrir tölum.“
— Hvernig tilfinning er það Eiður,
að sjá sig fá tólf rétta í sjónvarpinu
á laugardögum?
„Hún er fín. Annars er spennan í
þessu ekkert endilega mest að leikj-
2 HELGARPÓSTURINN