Helgarpósturinn - 24.10.1985, Blaðsíða 17
LISTAP
Trúðurinn Ruben
er kominn
til landsins
Trúðurinn Ruben: Hann neitar að
taka þátt í samkeppni þjóðfélagsins og
heldur þess vegna mannlegri reisn.
Ruben Madsen: „Pabbi var norskur
prestur. Ég sem trúður næ til fleiri með
keimlíkan boðskap."
„Trúöurinn brýtur múra“
Sýnir í Norræna húsinu og
fyrirhugar yfirreið um allt landið á
næsta ári
Vitið þið hvað trúður er?
Já, segið þið kanrtski, það er
skrýtni kallinn í víða, köflótta jakk-
anum og stuttu buxunum með litla
hattinn, rauða kúlunefið og í stóru
skónum. Mikið rétt, en samkvœmt
Ruben Madsen, öðru nafni trúðnum
Ruben (Clown Ruben) sem staddur
er hérlendis þessa dagana, er trúð-
urinn meir en svo. Hann er hinn já-
kvœði heimspekingur sem þykir
vœnt um mennina og reynir að
mynda samband þeirra á milli,
hann er heiðarlegur og trúir á hið
góða í manninum. Eða eins og trúð-
urinn Ruben orðar það viö HP:
,,Trúður er barn í fullorðinsgervi."
Ruben Madsen veit hvað hann
syngur. Hann er búinn að vera at-
vinnutrúður síðan 1972 og hefur
ferðast um heim allan sem trúður-
inn Ruben. íslendingar muna ef til
vill eftir honum á Listahátíð 1982.
Og nú ætlar hann að halda eina sýn-
ingu, á sunnudaginn kemur, kl.
15.00 í Norræna húsinu. Annars er
Ruben ekki kominn hingað til lands
gagngert til að skemmta fullorðnum
og börnum í 50 mínútur á sunnu-
daginn. Hann er að undirbúa langa,
stranga og áhugaverða ferð um allt
ísland á næsta ári, nánar tiltekið í
októbermánuði. Þá hyggst trúður-
inn Ruben ferðast kringum ísland
með viðkomu á stærri stöðum sem
smærri með sýningar, fyrirlestra og
sirkusskóla þar sem íslensk börn
geta lært undirstöðuatriði trúðar-
starfans og sýnt á sviðnu í ekta bún-
ingum. Eða eins og Ruben orðar
það: ,,Ég vil ekki bara koma, sýna
og hverfa aftur. Ég vil undirbúa
heimsóknina vel og boða komu
mína með góðum fyrirvara, láta
börnin taka þátt í að búa til plaköt
og teikningar, vinna síðan með
þeim og leyfa þeim að taka þátt í
sýningunum og skilja eitthvað eftir
sem þau geta unnið úr áfram.“
Ruben talar af reynslunni. Hann
hefur ferðast um öll Norðurlönd
með samskonar dagskrá og hún hef-
ur alls staðar gefist vel. Hann er líka
hátt metinn utan Skandinavíu. Árið
1981 var hann heiðursgestur við
Rússneska Sirkusskólann og hlaut
þar verðlaun fyrir listir sínar. Hann
hefur ennfremur haldið fjölda fyrir-
lestra um fag sitt, og þó einkum um
tungumál líkamans; ,,hin fínu blæ-
brigði sem sjást ekki en áhorfand-
inn finnur fyrir," eins og hann orðar
það við HR
TRÚÐUR ÁORKAR
MEIRU EN PRESTUR
Ruben Madsen er strákslegur
maður á fertugsaldri. Hann talar
hratt og ákveðið en hlýlega og aug-
un tindra af áhuga: „Trúðurinn verð-
ur að vera jákvæður. Honum verður
að þykja vænt um fólk. Hann má
ekki vera neikvæður eða fullur af
árásarkennd. Það kemur t.d. oft fyr-
ir að unglingarnir sem sitja í salnum
eru líflegir og með læti. Ég má ekki
fara í baklás út af þvi og segja þeim
að þegja, heldur hugsa um galsann
sem jákvæðan lífskraft sem krakk-
arnir eiga erfitt með að beisla.
Þannig öðlast ég sjálfur kraft til að
finna strauma þeirra og ná ungling-
unum á mitt band."
En hvers vegna verður maður
trúður? Ruben svarar: „Pabbi minn
var norskur og prestur í Bergen.
Mamma mín sænsk. Sumir hafa sagt
við mig, Ruben þú hefðir átt að vera
prestur. Þá er ég vanur að svara: Ég
næ til miklu fleiri sem trúður. Ég bý
nú í Sundsvall í N-Svíþjóð. Einu sinni
fékk ég að koma fram í kirkju stað-
arins. Margir voru efins um slíka
framkvæmd, og sögðu að það væri
vafasamt að sleppa trúði í kirkjuna.
En sem betur fer gat ég sannfært
söfnuðinn að boðskapur prestsins
og míns væri mjög hliðstæður; að
boða kærleikann. Og viti menn,
kirkjan var sneisafull og hafði aldrei
annar eins fjöldi sést í kirkjunni,
hvorki fyrr né síðar, ekki einu sinni
þegar hún var vígð. Á sunnudaginn
var kíkti ég í nokkrar kirkjur í
Reykjavík. Þær voru allar hálftóm-
ar. Kannski vantar trúð til að boða
kærleikann."
En af hverju er trúðurinn svona
vinsæll. Af hverju „virka" loddara-
brögð hans? Ruben útskýrir: „Sá
sem er trúður verður að trúa á kóm-
ík. Trúðurinn á sér sögulegar hefðir.
Fíflið við konungshirðina var hið eina
sem gat sagt sannleikann. Flestir
menn forðast að segja sannleikann,
því hann er oft óþægilegur. Fíflið,
sem venjulega var bæði greint og
með góða athyglisgáfu, sagði hlut-
ina eins og þeir komu fyrir. Þetta er
hefðin sem trúðurinn byggir á. Þeir
geta sagt sannleikann og sýnt það
litla og brothætta sem býr í hverjum
manni. Þeir þurfa ekki að þykjast,
þeir geta hlegið, grátið og verið mis-
lukkaðir. Sjáðu t.d. sirkusinn. Þar
koma allir snillingarnir fram í röð;
sterkasti maður heims, flinkustu
loftfimleikamennirnir, færustu
hnífakastararnir, fífldjörfustu reið-
mennirnir og þar fram eftir götun-
um. Ahorfendur standa á öndinni.
Svo kemur trúðurinn og allir slappa
af og hlæja, vegna þess að trúðurinn
er eins og þeir, mannlegur og ekkert
öðrum fremri, jafnvel síðri. Hann er
ekkert betri en aðrir né reynir að
vera það. Trúðurinn neitar að taka
þátt í samkeppni þjóðfélagsins og
heldur þess vegna mannlegri reisn
því hann gerir hið eina rétta, hið
mannlega. Hins vegar endar enginn
trúður atriði sitt á því að misheppn-
ast. Endirinn er alltaf góður. En góð-
ur trúður þarf að ráða yfir mikilli
tækni. Hann þarf að gera hlutina
fullkomlega rétt svo þeir „virki".
Hann verður að ráða yfir þeirri
tækni að auðveldur hlutur verður
erfiður í höndum hans og öfugt."
AÐ KUNNA MIKIÐ EN
GERA LÍTIÐ
Oft er talað um þrenns konar að-
ferðafræði eða „skóla" trúða. í
fyrsta lagi þann rússneska sem legg-
ur lítjð upp úr ytri búningum en set-
ur áhersluna á hina mannlegu þætti
trúðsins. Þá er talað um evrópska
skólann sem reyndar greinist í und-
irhópa eftir þjóðlöndum og loks
þann ameríska sem gerir mikið úr
sviðinu sjálfu, búningum og stórum
leiktjöldum eins og brennandi hús-
um og bílum. Ruben segist sjálfur
byggja leik sinn á rússnesku hefð-
inni og hefur reyndar dvalið í Sovét-
ríkjunum bæði sem nemandi og fyr-
irlesari. „Ég er mikill aðdáandi rúss-
neska trúðsins Karandach," segir
hann. „Hann dó í fyrra og var stór-
kostlegasti trúður sem ég hef nokk-
urn tímann séð. Hann kom alltaf
fram sem venjulegur maður, eina
gervið var lítill hattur. Þótt hann
sýndist vera venjulegur, og gerði að-
eins það vanalega, réði hann yfir
vegna get ég ekki tekið áhættur en
ég get ekki heldur vaðið blint áfram
með eitthvað prögramm ef stemmn-
ingin i salnum er á móti því. Ég verð
þess vegna að finna andann, taka
snögga ákvörðun hvernig ég ætla
að koma atriðinu til skila og fram-
kvæma það innan fyrirfram ákveð-
ins ramma. Ég verð einfaldlega að
vita hvað ég ætla að gera. Æðsta
takmark mitt sem listamanns og
trúðs er að ná sambandi við áhorf-
endur. Takist mér það er sigurinn
unninn." Og Ruben heldur áfram:
„Sjáðu til, þú verður að virkja áhorf-
andann. Ef þú horfir á sjónvarp og
gengur út, breytir það engu, sjón-
varpsdagskráin heldur óbreytt
áfram. Ef þú gengur út úr salnum
hjá mér, gæti það breytt einhverju.
Ég nota ennfremur mikið líkams-
snertinguna. Ég er ekki „intelektú-
el“ trúður. Tungumál líkamans er
hins vegar þögult en alþjóðlegt og
þarfnast einskis tungumáls. Ég hef
séð stórkostlega hluti framkvæmda
með líkamanum. Einu sinni sá ég
heilt leikrit í Moskvu flutt með
hægri hendinni einni saman."
En skyldi trúðurinn, sem getur
leyft sér allt og ávalit er mannlegur,
aldrei verða taugastrekktur fyrir
sýningar?
„Ójú," svarar Ruben. „Stundum er
ég órólegur og með fiðrildi í magan-
um, stundum hreinlega nervös.
Einu sinni kom ég fram í sovéska
sjónvarpinu fyrir framan 270 millj-
ónir áhorfendur. Þá varð ég að halla
mér upp við vegg og styðja höndun-
um við súlu. Það leið hérumbil yfir
mig af taugaveiklun fyrir þáttinn.
Það er það versta sem ég hef lent í.“
ÉG ER TRÚÐURINN
' OG TRÚÐURINN
^ ERÉG
— Hver er munurinn á Ruben
Madsen og trúðnum Ruben?
„Ég er annar í gervinu; miklu
hægari persóna og með allt aðrar
hreyfingar. Samt er trúðurinn ég
sjálfur. Við getum sagt sem svo: Ég
er atvinnumaður, bisnessmaður og
manneskja. í daglegu lífi er ég aðal-
lega hinn praktíski maður sem þarf
að fara í banka, verslanir og ráðu-
neyti og standa í daglegum önnum
og hef kannski lítinn tíma til að sinna
manneskjunni í mér. Þegar ég fer í
trúðsgervið er ég hins vegar aðeins
manneskjan Ruben með öllum sín-
um göllum og kostum. Og þá líður
mér best, því þá get ég og má sýna
hina mannlegu hlið mína án þess að
þurfa að skammast mín fyrir það
eða óttast að það verði notað gegn
mér. Þess vegna trúi ég líka á trúð-
inn, því hann er ekta og hann getur
talað máli sem allir skilja. Hann get-
ur brotið múra.“
Og þeir sem hafa áhuga á að sjá
Ruben brjóta múra, eiga þess kost
að mæta í Norræna húsið kl. 15.00
á sunnudaginn. Og skiljið ekki
krakkana eftir heima!
-1M
geysilegri tækni og kunnáttu. Það er
einmitt galdurinn, maður á að
kunna mikið en gera lítið. Flestir
gera þveröfugt: Kunna lítið en þykj-
ast geta mikið. Þess vegna er ég at-
vinnutrúður. Aðeins atvinnumenn
vita hvað þeir eru að gera. Leik-
maðurinn veit ekki alveg hvað
hann er að gera. Hann gengur á
áhuganum og tilfinningunni sem er
gott í sjálfu sér, en hann vantar enn
tæknina og breiddina."
En skyldi Ruben þá aldrei „im-
próvísera?"
„Nei, en ég tek oft andann í saln-
um inn rétt áður en ég fer fram á
sviðið og haga mér eftir honum. En
dagskráin og atriðin eru öll þaulæfð,
ég „impróvísera" ekki á sviðinu. Ég
verð að vita að ég er að gefa; þess
HELGARPÓSTURINN 17
oi