Helgarpósturinn - 24.10.1985, Síða 10
HP
HELGARPÓSTURINN
Ritstjórar:
Ingólfur Margeirsson og
Halldór Halldórsson
Blaðamenn: Edda
Andrésdóttir, Jóhanna
Sveinsdóttir og Sigmundur
Ernir Rúnarsson
Ljósmyndir: Jim Smart
Handrit og prófarkir:
Magnea Matthiasdóttir
Útgefandi: Goðgá h/f
Framkvæmdastjóri:
Hákon Hákonarson
Auglýsingar:
Steinþór Ölafsson
Innheimta:
Garðar Jensson
Afgreiðsla: Guðrún Hásler
Ritstjórn og auglýsingar eru
að Ármúla 36, Reykjavik, sfmi
8-15-11. Afgreiösla og skrifstofa
eru að Ármúla 36.
Sími 8-15-11
Setning og umbrot:
Leturval s/f
Prentun: Blaðaprent h/f
Ekta trúðar
og óekta
Það er ekki á hverjum degi
sem Helgarpósturinn tekur við-
tal við ekta trúð. [ þessu tölu-
blaði birtist viðtal við sænska
trúðinn Ruben Madsen. Þar
koma fram lífsviðhorf og heim-
spekilegar útleggingar á starfi
trúðsins. Trúðurinn segir m.a.:
„Þegar ég fer í trúðsgervið er
ég manneskjan Ruben meðöll-
um sínum göllum og kostum.
Og þá líður mér best, því þá get
ég og má sýna hina mannlegu
hlið mína án þess að þurfa að
skammast mín fyrir það eða
óttast að það verði notað gegn
mér. Þess vegna trúi ég líka á
trúðinn, því hann er ekta og
getur talað mál sem allir skilja.
Hann getur brotið múra."
Þetta eru vissulega orð til
umhugsunar. í daglegu lífi eru
flest okkar í hlutverkum. Við
leikum ákveðinn sjónarleik og
setjum á okkur grímur. Til að
standast álag, streitu, vinnu-
kröfur og ábyrgð búum við til
manngerðir úr sjálfum okkur
sem kannski eru órafjarri þeim
sanna manni sem í okkur býr;
manneskjunni sjálfri. Ruben fer
í trúðsgervið til að ná fram
manneskjunni í sjálfum sér.
Hann setur á sig grímu til að
verða hann sjálfur. Við hin för-
um öfugt að.
(slenska þjóðfélagið gerir þá
kröfu að vera fullbúið menning-
arþjóðfélag með öllum nútíma
þægindum og þjónustu. 240
þúsund sálir eiga að axla þetta
þjóðfélag. Það útheimtir mikla
vinnu og ábyrgð á hvern ein-
stakling. Tekjustofn þjóðarinn-
ar er ennfremur einhæfur. Það
gefur því auga leið að það þarf
mikla samheldni og náunga-
kærleik til að einstaklingurinn
verði ekki undir. En einstakling-
ar verða undir á hverjum degi á
l'slandi. Kannski einfaldlega
vegna þess að þeir fá engan
tíma til að vera þeir sjálfir.
Helgarpósturinn tekur oft
viðtöl við óekta trúða. Þeir kalla
sig stjórnmálamenn, viðskipta-
jöfra, umsvifamenn og þar fram
eftir götunum. Allir eiga þeir
það sameiginlegt að þeir eru að
reyna að vera eitthvað annað
en þeir eru. Þeir fara í trúðs-
gervið til að fela manneskjuna í
sjálfum sér. Og stundum erum
við orðin svo samdauna sirk-
úsnum að við sjáum ekki leng-
ur grímu þessara ráðamanna.
En það má aldrei gerast; við
verðum alltaf að greina ekta
trúða frá óekta.
HELGARPÚSTURINN
síðasta blaði sögðum við frá
skipan nýrrar siðanefndar Blaða-
mannafélags íslands og fjallaði
klausan einkum um þann vanda, að
Hæstiréttur íslands taldi sér ófært
að skipa mann úr sínum röðum í
nefndina. Vegna misskilnings sam-
þykkti aðalfundur BÍ lagabreytingu
þess efnis, að Hæstiréttur skipaði
einn nefndarmanna, heimspeki-
deild Háskóla íslands einn, útgef-
endur einn og blaðamenn tvo. En
niðurstaðan varð sem sé sú, að
Hæstiréttur skipaði engan í siða:
nefndina. Þess í stað fór stjórn BÍ
þess á leit við Hrafn Bragason
borgardómara, að hann tæki óskip-
að sæti í nefndinni og féllst hann á
það. Skipan hans er háð því, að
málsaðilar samþykki setu hans.
Fyrsta mál nýju nefndarinnar er
„Grindavíkurmál" Víkurfrétta og
munu ritstjórar biaðsins hafa fallist
á Hrafn sem einn nefndarmanna.
Þeir hafa verið kallaðir fyrir nefnd-
ina auk þess sem hún hefur fundað
um málið og er von á niðurstöðu á
næstunni...
ur útgáfufyrirtæki Anders
Hansen, Fjölnir, hafið útgáfu á
blaði, sem nefnist Vidskipta- og
tölvublaðið og virðist það miðast
við sama markað og Frjáls verslun
er á. Blaðið er vandað og líklegt til
þess að ná útbreiðslu.
Þá hefur Fjölnir yfirtekið útgáfu á
Fréttablaði iðnaðarins, sem Saga
útgáfan var með. Auglýsingastjóri
blaðsins er Sigríður Hanna Sigur-
björnsdóttir, fyrrum markaðs-
stjóri og yfirmaður söludeildar aug-
lýsinga hjá Frjálsu framtaki.. .
insæll maður í fararstjóra-
bransanum, Kjartan Pálsson,
blaðamaður á DV mun segja skilið
við blaðamennskuna um áramótin
og ráðast í fullt starf sem blaðafull-
trúi Samvinnuferða og ennfremur
fararstjóri á sumrin, enda þrælvin-
sæll...
(fk>t
I lóttinn frá forlögum virðist vera
orðinn áberandi. Við fréttum stöð-
ugt af rithöfundum sem gefa út
sínar bækur sjálfir. Nú ætlar Hafliði
Vilhelmsson af gefa sjálfur út nýja
skáldsögu eftir sig sem nefnist Beyg-
ur. Bókin fjallar um soriasissjúkling
í friðarbaráttu og ennfremur er
þeirri sígildu spurningu varpað,
fram: Hver ber ábyrgð á lífinu? Á
bókarkápu er nakin kona sem
stendur við tré og mun það vera
amma rithöfundarins. Og eins og
aðrir rithöfundar hefur Hafliði
stofnað um sig eigið forlag, sem
heitir Hlöðugil...
A
Lnnars mega þeir hjá Frjálsu
framtaki fara að vara sig því nú hef-
LAUSNÁ
SKÁKÞRAUT
Úr tefldu tafli
1. Dh6-Hg8
2. Hd8! og vinnur.
Letzen
1. Hc4! er eini leikurinn sem
ieiðir til máts í næsta leik,
hvernig sem svartur fer að.
Við öllum öðrum (líklegum)
hróksleikjum á svartur vörn
sem dregúr mátið um einn leik
að minnsta kosti.
Athugaðu það!
BÍLABORG HF.
INNHEIMTUBRÉF
SMIÐSHÖFÐA 23 - REVKJAVÍK
SiMI 81299
NAFNNR. 1108 ■ 9275
Dags.
Samkvæmt.bókuqn vorum Per er skuld yðar
ranskíivixill pr. 01 11.84, sera þer eruö
samþykkj
utgefandi af, en
krónur
Dráttarvextir .
Kostnaður
50.000,00
2.750,00
52,00
Samtals kr. 52.802,00
Það eru vinsamleg tilmæli vor, að þér greiðið skuld þessa hið allra fyrsta.
fytir annars veróur krafan
seld lögfræöingi.
Virðingarfyllst.
HAGPRENT H.-
K, j3
Helgarpósturinn hefur oftar en einu sinni fjallað um innheimtuokur lögfræðinga og
aðgangshörku þeirra við innheimtu. Þá höfum við skýrt frá þvi hvernig kröf ur á skuldara
hafa gengið kaupum og sölum á innheimtulögfraeðingamarkaðnum.
Meðfylgjandi bréf sýnir svart á hvítu hvernig stór fyrirtæki nota sér þetta, þegar geng-
ið er að skuldunautum. Innheimtubréfinu lýkur með orðunum „.. annars verður krafan
seld lögfræðingi."
Nú kynni mönnum að detta í hug, að um væri að ræða prentvillu, en svo er þó ekki,
því skömmu síðar stefndu lögfræðingarnir Árni Einarsson og Ólafur Thoroddsen
kröfunni.
Bílaborg seldi þeim með öðrum orðum kröfuna.
Jöfnuður
Þess eru ýmis dæmi (sem dæmin sanna)
að deilur séu í röðum jafnaðarmanna.
Venjulega endar svo allt í hnút,
ósættið lifir en flokkurinn jafnast út.
Niðri.
10 HELGARPÓSTURINN