Helgarpósturinn - 24.10.1985, Side 26
HELGARDAGSKRÁIN
Föstudagurinn
25. október
19.10 Döfin. Bima Hrólfs les áöur óbirt Ijóð.
19.25Sænskar fræöslumyndir um það
hvernig rólukeðjur og salerni eru búin
til. Ó,’ Svíar...!
19.40 „Bjarni fer á bókasafnið". Sóvott?
19.50 Hendur á lofti.
20.00 Hendur í skauti.
20.40 Þingsjá. Palli Magg lætur sig
dreyma...
20.55 Kastljós. Óli Sig með martröö. Um
Helga E.
21.25 Skonrokk. Sjaggadagga-sja-sja-
baggava.
22.00 Derrick. Fimmtugar húsmæður halda
framhjá í huganum. Sjarmörinn
stendur sig.
23.00 Leppurinn (The FrontjÁÁÁ Banda-
rísk gamanmynd (og alvöru) frá '76.
Leikstjórn: Martin Ritt. Aðalleikarar:
Woody Allen, Zero Mostel og Andrea
Marcovicci. Kaldastríðsfílingur a la
McCarthy. Hörkumynd, vel gerð og
leikin.
00.35 Klára úr glösunum og út á lífiö.
Laugardagurinn
26. október
16.00 Árni málræktar ber (aftur) fram.
16.10 Sport. Og hort Bjaddna. Gort fylgir
ekki, en kort af helstu gönguleiðum.
Síðasta sort, finnst sumum...
18.30 Enska knattspyrnan.
19.20 Á eftir bolta kemur barn. I þessu til-
viki, barnaefni neðan úr Feneyjum.
19.50 Táknmál.
20.00 Smámál, með jarðarberjafyllingu.
Nýtt frá M.S.
20.35 Staupasteinn, sjónvarpsraddir hlæja,
áhorfenda ekki.. .
21.05 Þjófur í Parfs. (Le Voleur) ★★★ Frönsk
bíómynd frá '67. Leikstjórn Louis
Malle. Aöalleikarar: Jean-Paul Bel-
mondo. Voðalega fínn leikstjóri með
voðalega fína mynd. Þéttur leikur
Jóns Ráls ásamt smellnu handriti gera
gæfumuninn.
23.05 Handagangur í öskjunni (High
Anxiety) ★★ Bandarísk gamanmynd
frá '77 eftir Mel Brooks með honum
og Madalene Kahn í aðalrullum.
Svona, svona-mynd að gæöum, þið
vitið. Geðveikislega fyndin, en fer of
geyst þannig að brosin veröa ansi
þreytileg hjá manni í lokin.
00.40 Dagskrárlok: Markús örn Antonsson
les Ijóð ef hann veröur upplagöur,
annars búið.
Sunnudagurinn
27. október.
17.00 Sunnudagslognmolla.
17.00 Feim, æ vonna livv for-eferr...
18.00 Stundin okkar. Vakin skal athygli á
ógeðslegum atriöum inn á milli, sem
— ekki eru ætluð börnum.
18.30 Fastir liöir — endurfluttir — eins og
venjulega.
19.50 Allir fingur upp til guðs.
20.00 Allir fingur upp í nös.. .
20.25 . . .slumman út.
20.40 Sjónvarp næstu viku. Oj.
20.55 Glugginn. Þáttur um pervisma, pukur
og fleira.
21.50 Verdi. Upplestur úr verkum þessa
rómaða þjóðskálds Færeyinga. Eða,
bíddu nú við, nei annars?
23.10 Höfum ekki efni á að sýna fleira, búið,
bless.
Fimmtudagurinn
24. október.
13.30 í dagsins önn.
14.00 Miðdegissagan: „Skref fyrir skref"
eftir Gerdu Antti. Guðrún Þórarins
þýddi skref fyrir skref.
14.30 Á frívaktinni. Þóra Marteinsdóttir
kynnir óskalög sjúklinga.
15.15 Suðurland í dag. Nokkur orð um það,
já.
Fjögurfréttir eru klukkan 16.00 á fimmtu-
dögum.
16.20 TVKSE: tónlisttveggjakynslóða Sig-
urðar Einars
17.00 BÚ: Baddnaúbartið.
17.40 Listagrip. Sigrún Björns að lyfta sér á
kreik.
19.00 Kvöldfréttirnar okkar landsmanna. . .
19.50 Daglegt mál. Zigurður Gé, zegir okkur
zoltið um zetningarfræði, zagnir og
zuzzu-zei...
20.00 Leikrit: „Ærsladraugurinn" eftir Noel
Coward.
21.45 Clara Wieck-Schumann fær sér Vick
og gólar svo.
22.30 Fimmtudagsumræðan. Rætt um
fimmtudaga.
23.00 Túlkun í tónlist. Röggi Sigurjóns
hugsar sig um í stutta stund, uns hann
hugsar sig aftur um.
24.00 Fréttir í dagskrárlok, dong, dong,
zzzzzzhhh.
Flöskudagurinn
25. október.
07.00 I nafni guös fööur, veöurfregna, frétta
o.s.frv.
07.15 Morgunvaktin. Spangólað í eyru
manna.
09.00 Morgunfréttir, ef eitthvað hefur þá
skeð!
09.05 Morgunstund barnanna (sem öll eru
farin ískólann um þetta leyti, sniðugt).
09.45 Þingfréttir. Athyglisverður þáttur,
ha...
10.40 „Ljáðu mér eyra" umsjón Málmfríður
meme-bitið-aftan-hægra Sigurðar-
dóttir- Rúvaksen.
11.10 Málefni aldraðra. Þórir Ess eldist og
segir frá.
11.20 Morguntónleikar. Nýr þáttur um
diskóæðið 76—79.
12.20 Fréttir af morðum, misþyrmingum og
magasárum.
14.00 Miðdegissagan Skref fyrir skref.
14.30 Upptaktur. Gvendur Ben á vitlausri
rás.
16.00 Fréttir: Sjötugur er í dag, Geirólfur. . .
16.20 Síðdegistónleikar. Nýr þáttur um
pönkæðið 79 — 81.
17.00 Helgarútvarp barnanna.
17.30 Ísland-A-Þýskaland í handbolta,
Sviss, ég þangað!
19.00 Reykjavíkurfréttir Kára Jónasar.
19.50 Daglegt mál. Guðvarður Már fer með
rétt mál.
20.00 Lög unga fólksins, sem fer með vit-
laust mál.
20.40 Kvöldvaka. Gamli baðstofufílingurinn
gefur sig ekki.
21.30 Atli Heimir kemur út frá tónskáldum.
22.25 Kvöldtónleikar! Atli Heimir fer heim
að sofa.
22.55 Svipmynd Jónasar Rúvaksen: Atli
Heimir heyrir útundansér.
00.05 Djassþáttur Tomma Einars: Atli
Heimir framúr og dillar sér, nær samt
taktinum ekki alveg.
01.00 Búið, allir að sofa: Atli Heimir líka.
Laugardagurinn
26. október.
07.00 Nú verða sagðar fréttir. ..
07.15 Þulur kynnir sér búddisma.
07.30 ísl. einsöngvarar og kórar þegja.
09.00 Fréttir lesnar í huganum.
09.30 Óskalög sjúklinga. Helga Þ.
Stephensen lögð inn.
11.00 Bókaþing: Lesiö á kjöl nýrra bóka, töff
afgreiðsla.
12.20 Kvöldfréttir í fyrra fallinu.
13.50 Hér og nú. Fræðsluþáttur um notkun
armbandsúra.
15.00 Miödegisfylling.
15.40 Fjölmiðlun vikunnar: Fallegasta fyrir-
sögnin valin.
15.50 íslensk mál; með kaffi og koníaki...
16.00 .. .hikk.
16.20 Ustagrip. Snobbað fyrir elítunni.
17.00 Leikrit fyrir krakkaskarann (sem er aö
horfa á voveiflegar víddeó-myndir um
þetta leyti með ömmu og afa).
17.30 „Empire Brass Quintet" blæs.
19.00 Hádegisfréttir í seinna fallinu.
19.35 Elsku mamma. Einhver andskotans
kvennaþátturinn í viðbót...
20.35 Síðasta fimmtudagsleikrit endurflutt,
en Rás 1 hefur tekið nótis af því að
enginn hlustar á hana á fimmtudags-
kvöldum, utan dagskrárstjóri, afi
hans, tengdaamma og föðursystur
hans; Sóley á Þrastalæk þrátt fyrir
hlustaverk.
22.01 Tíufréttir, mínútu á eftir áætlun, þulur
fékk hiksta.
22.30 Á fe-herð. Sve-einn seg-ihr hvert hann
fó-óhr í fyrrha.
23.05 Svo létt danslög að þau haldast ekki
á fóninum.
00.05 Jón örn Marinós leitar að rásinni. . .
01.00 .. .finnur Næturvaktina, geðveikis-
lega ánægður...
Sunnudagarnir
27. október '85 og 6. mars '66.
08.00 Morgundandaladrakt. Séra Sváfnir
sofnar hægt undan eigin orðum.
Söfnuðurinn hrýtur með. Allir fara út-
sofnir heim.
08.35 Létt morgunlög. Jón Múli lagar vasa-
diskó sem hann fann á Skúlagötunni
fyrir utan Villta tryllta Villa á leið í vinn-
una...
09.05 Morguntónleikar: .. .Múlinn kemur
því í lag...
09.59 Og tekur síðasta hnikkinn fyrir tíu-
fréttir.
10.25 Sagnaseiður. Um notkun sagnarinnar
að segja.
11.00 Messu frestað þar eð Sváfnir sefur
ennþá...
12.20 Dóttir Sváfnis vekur séra pabba, seg-
ist hafa týnt vasadiskóinu sínu.
Sváfnir sussar, enda komnar fréttir.
13.30 Aldarminning Ezra Found.
14.30 Miðdegistónleikar.
15.10 Kjarval í mynd og minningu.
16.00 Fréttir.
16.20 Vísindi og fræði.
17.00 Með á nótunum.
18.00 Bókaspjall.
19.00 Kvöldfréttir.
19.35 Já, það er nú eiginlega miklu fyndn-
ara að lesa dagskrána bara svona
óbreytta.
20.00 Höfum hana venjulega næstu tíu
dálksentimetra, ókey:
21.30 Útvarpssagan: „Saga Borgarættar-
innar".
22.00 Fréttir.
22.25 íþróttir.
22.40 Betur sjá augu.
23.20 Kvöldtónleikar.
24.00 Fréttir.
00.05 Á milli svefns og vöku.
01.00 Dagskrárlok.
Fimmtudagurinn
24. krækiber.
10.00 Morgunþáttur.
12.00 Matarhlé.
14.00 í fullu fjöri.
15.00 Með síðdegiskaffinu.
17.00 Gullöldin.
18.00 Matarhlé, og dálksentimetrarnir
tíu aö baki. ..
20.00 Visædalisi ludend rása ö gidur.
21.00 Ragnheiöur, dóttir Davíðs Oddssonar
skilst mér, tekur á móti gestum á tíu
ára afmæli sínu í útvarpssal.
22.00 Nú má ég: Ellý Vilhjálms rífur mækinn
af Svabba beibe, sem neyðist til að
lúffa.
23.00 Kvöldsýn. Valdís gónir til dagskrár-
loka, gónir já...
Föstudagurinn
25. jarðarber.
10.00 Að morgni dags; séra Ásgeir Thomas
farandprestur frá Winnipeg flytur Pál
Thorsteins yfir hafið, je.
14.00 Valdís gáir oní pósthólfið eftir há-
degismat og verður bumbult.
16.00 Léttir sprettir. Jón Ólafsson ríöur út á
Klaka frá Kirkjubæ, tveggja vetra und-
an ísafold frá Bæ.
20.00 Eftir tveggja tíma þögn: Hljóðdósin
(Rásin alltaf jafn heillandi).
21.00 Kringlan: Bein lýsing úr Bernhöfts-
bakarí.
22.00 Nýræktin: Þáttur um þurrkun canna-
bis-jurta.
23.00 Næturvaktin: Viggi og Toggi svífa um
á eyrnablöðkunum, enda gleymdist
að lofta út eftir síðasta þátt. Tækni-
maðurinn röflandi...
Laugardagurinn
26. bláber.
10.15 Sigurður Blöndal sefur yfir sig, en
mætir...
14.00 Laugardagur til lukku: Svavari Gests
starsýnt á sérkennilega plöntu úti í
glugga stúdíósins...
16.00 Listapopp: Gunni Sal lyktar af
henni...
17.00 Gunni Sal neitar að fara frá plöntunni.
Hló — Plantan neitar að fara frá Gunna.
20.00 Þau byrja saman, opinberlega.
21.00 Nýræktin: Gunnar Salvarsson sér
um þáttinn.
22.00 Bárujárn: Gunnar Salvarson fer um
þáttinn.
23.00 Svifflugur: Gunnar Salvarson lendir
eftir fjóra tíma. Rásin líka.
Sunnudagurinn
27. aðalbláber.
13.30 Kridd í tylveruna.
15.00 Tónlistarkrossfarinn.
16.00 Vinsædalisi ludend rása ö, uddsdu1
visæusdu ögi gid.
18.00 Átján, núll, núll (að staðartíma)...
-=+ öe end.
ÚTVARP
*
Utvarpsalþingi
Nokkur undanfarin ár hafa alþingis-
menn kvartað reglulega yfir því, að virðing
Alþingis fari þverrandi. Og senniiega er
það alveg rétt hjá þeim. En sú skýring, sem
alþingismenn hafa helzt nefnt er röng.
Skýring þeirra hefur helzt verið sú, að fjöl-
miðlarnir gefi alranga mynd af Alþingi.
Þeir segi frá smámálum, sem þeir blási upp,
en gleymi hinum mikilvægari málum, sem
þingheimur sé að fást við.
Sjálfsagt má gagnrýna fjölmiðlana fyrir
fréttaflutninginn, en að nota þetta atriði
sem skálkaskjól í svona alvarlegu máli er
della. í það heila tekið gefa fréttamenn
miklu fremur ranga mynd af störfum Al-
þingis með því að draga upp hálfgerða
glansmynd með dulúðugu ívafi af þessari
stofnun. Sumir þingmenn eru harðdugleg-
ir og skarpir, aðrir eru sleðar, enn aðrir eru
hvorugt, en hafa áhrif. Kastljósið beinist
óhjákvæmilega meira að mönnum skerp-
unnar og áhrifanna.
Trúnaðartraust stjórnmálamanna og al-
mennings er því miður lítið sem ekkert, og
er þar fyrst og fremst sjálfum þingmönnun-
um um að kenna. Um þetta má nefna
dæmi. í þessum útvarpspistli er nærtækt
að nefna eldhúsdagsumræðurnar á Al-
þingi á fimmtudag fyrir viku. Þar komu
eftir Halldór Halldórsson
þingmenn fram miililiðalaust — án milli-
göngu fréttamanna — og „máiefnaleg"
umræða þingmanna kom til landsmanna
beint af skepnunni.
Og hvílíkt karp! Stjórnarsinnar ábyrgðar-
fullir í tali, þar sem hvergi er vikið að þeim
vandamálum þessa samfélags, sem blasa
við heimilunum. Þeir voru allir í „stóra
samhenginu" en forðuðust „heitu“, við-
kvæmu málin. Og á móti kom svo stjórnar-
andstaðan útblásin yfir vandamálum litla
mannsins án þess að líta á stóru málin,
grundvallarmálin. Þetta er gróf lýsing, en
fer nokkuð nærri sanni. Hjá stjórnarand-
stöðunni komu fram tiliögur til úrbóta, en
þá ruku stjórnarsinnar í það að gera það
allt saman ákaflega tortryggilegt. o.s.frv.,
o.s.frv.
Það er engu líkara en að þessir menn
skipti litum eftir því hvort þeir eru í stjórn
eða stjórnarandstöðu. Og flestir virðast sjá
allt í hvítu og svörtu, bláu eða rauðu.
Ég er þeirrar skoðunar, að megnið af al-
þingismönnum skuldi íslenzkri þjóð afsök-
un. Þeir halda, að þeir séu að tala til þjóðar-
innar, en í raun og veru eru þeir bara að
karpa sín á milli, halda til streitu einhverju
þrasi, sem byrjaði í Kringlu Alþingishússins
í fyrra eða fyrir 10 árum.
Þessir þankar vöknuðu við útvarpsvið-
tækið í síðustu viku, þegar eldhúsdagur
var á þingi. Útvarp umræðna frá Alþingi er
nauðsyniegt fyrirbæri og mætti gera mun
meira af því að útvarpa frá Alþingi, þegar
stór mál eru á ferð.
En þá verða alþingismenn líka að taka
sig saman í andlitinu. Ef þeir gera það ekki
hygg ég, að heillavænlegast sé, að frétta-
mepn sjái um að greina hismið frá kjarnan-
um.
SJONVARP
Kynferöispólitík
Kynferðispólitík er góð tík sé rétt að
henni farið. Hún hnusar að öllu því sem á
einhvern hátt tengist karllegu og kvenlegu
kynferði, svo sem illa þefjandi kynhlut-
verkum, en innan þeirra hafa valdahlutföll-
in verið konum mjög í óhag. Fastir liðir eins
og venjulega.
Því var ánægjulegt að horfa á tvo rót-
tæka kynferðispólitíska þætti í sjónvarpinu
„Fastir liðir..." ættu að auðvelda mörgum karl-
manninum að endurmeta kúgunarhlutverk sitt.
um helgina. Á föstudagskvöld hóf hinn
dásamaði Derrick göngu sína á nýjan leik.
í þeim þætti tókst honum að afhjúpa fjöl-
lyndis- og drápseðli tiltekins hóps þýskra
karlmanna með hjálp gengilbeinu í vert-
húsi því er karlmennirnir sóttu.
Á iaugardagskvöld var svo sýndur fyrsti
þátturinn í framhaldsmyndaflokknum
Fastir liðir eins og venjulega þar sem hand-
ritshöfundarnir, Edda Björgvinsdóttir og
Helga Thorberg, snúa við marghötuðum
kynhlutverkum. Atburðarásin á sér stað í
smáborgaralegu mæðraveldi, þar eru
ábúðarmiklar forstýrur og kúgaðir hús-
feður. Fyrsti þáttur lofar góðu, mynda-
flokkurinn ætti að auðvelda mörgum karl-
manninum að endurmeta það kúgunar-
hlutverk sem hann hefur oft á tíðum hugs-
unarlaust með höndum, og að setja sig í
spor hins kúgaða — með bros á vör.
Mörg atriði kitluðu a.m.k. mínar hlátur-
taugar, en ég verð að viðurkenna þá beisku
staðreynd að stundum fylltist ég löngun
(því ætli konur almennt hefðu nokkuð á
móti því að hafa á að skipa einkaritara á
borð við þann sem Kristján Franklín leikur
og eiginmanni í líkingu við þann sem .ló-
hann Sigurðsson ber á borð fyrir sjón-
varpsáhorfendur ásamt nýbökuðum boll-
um? Svona er maður nú ómerkilegur.)
Bara ein aðfinnsla: allt í lagi með föður-
sýkisköstin (móðursýkisköst eru hvort eð
er óljós tilbúningur illgjarnra manna og
eiga sér enga læknisfræðilega stoð),enföð-
urlífsbólgur ganga ekki allskostar upp í
raunsæislegri ,,slap-stick“ uppfærslu Gísla
Rúnars. Af nógum skotheldum neðan-
þindarkvillum er að taka eins og blöðru-
hálskirtilbólgu, eistnaþembu, þvagrásar-
teppu, pungsigi......
26 HELGARPÓSTURINN