Helgarpósturinn - 31.10.1985, Síða 10
HP
HELGARPÓSTURINN
Ritstjórar:
Ingólfur Margeirsson og
Halldór Halldórsson
Blaðamenn: Edda
Andrésdóttir, Jóhanna
Sveinsdóttir og Sigmundur
Ernir Rúnarsson
Ljósmyndir: Jim Smart
Handrit og prófarkir:
Magnea Matthlasdóttir
Útgefandi: Goðgá h/f
Framkvæmdastjóri:
Hákon Hákonarson
Auglýsingar:
Steinþór Ólafsson
Innheimta:
Garðar Jensson
Afgreiðsla: Guðrún Hásler
Ritstjórn og auglýsingar eru
að Ármúla 36, Reykjavík, sfmi
8-15-11. Afgreiðsla og skrifstofa
eru að Ármúla 36.
Sími 8-15-11
Setning og umbrot:
Leturval s/f
Prentun: Blaðaprent h/f
Belju breytt í naut
Að undanförnu hefur mikið
verið rætt um kanakjötið svo-
nefnda, innflutning bandaríska
hersins á kjöti til hermanna
sinna í Keflavík. Aftur á móti
hefur lítið farið fyrir umræðu
um kjötvörur sem eru á íslensk-
um markaði.
I dag birtir Helgarpósturinn
ítarlega grein um nautakjöts-
markaðinn á Islandi. I Ijós kem-
ur m.a. að ekki er aðeins á boð-
stólum ótiltekið magn af smygl-
uðu nautakjöti, heldur flokkar
Framleiðsluráð landbúnaðarins
íslenskt nautgripakjöt í hvorki
meira né minna en sextán
gæðaflokka og átta verðflokka,
en þegar hinn almenni neyt-
andi fer út í búð til að kaupa
hakkið sitt, eða gúllasið og
mörbráðið, er það allt saman
selt sem ótilgreint nauta- og
nautgripakjöt. Verðið er enn-
fremur afar mismunandi.
Alvarlegasta ásökunin kem-
ur frá nafngreindum kjötvöru-
kaupmanni og sláturhússtjóra
sem báðir fullyrða að mikið
magn af kýrkjöti sé selt sem
nautakjöt og sérstaklega í
Reykjavík. Ástæðurnar fyrir
grandaleysi neytandans eru
margar að dómi þessara
manna. Þekkingarleysi neyt-
andans er mikið og kaupmenn
misnota sér það óspart, engin
hefð er fyrir góðu nautakjöti
þannig að neytandinn er óvan-
ur gæðakjöti, upplýsingar frá
ábyrgum aðilum eru ílágmarki,
en fyrst og fremst er náttúru-
lega um að ræða fégræðgi
kaupmanna sem hreinlega
selja falsaða vöru.
Umfang hinnar fölsuðu vöru
er geysilega mikið. Af niður-
stöðum greinarhöfundar má
ætla að íslendingar leggi sér ár-
lega til munns um 500 tonn af
kýrkjöti sem þeir hafa keypt
sem nautakjöt. Málið setur ekki
aðeins neytandann í klemmu,
heldur ennfremur framleiðend-
ur vörunnar, því eftirspurnin
eftir kýrkjöti hjá kaupmönnum
er meiri en eftir nautakjöti. Það
borgar sig einfaldlega að selja
falsaða vöru. Bændurnir fá kýr-
kjötið staðgreitt og því aldrei
neitt kýrkjöt fyrirliggjandi á lag-
erum sláturhúsanna. Aftur á
móti fylla skrokkar ungnaut-
anna frystigeymslur slátur-
húsanna.
Ábyrgir aðilar sem Helgar-
pósturinn hafði samband við
vísuðu málinu að mestu frá sér.
Neytendasamtökin sögðu slíkt
eftirlit of kostnaðarsamt og um-
fangsmikið, Búnaðarfélag ís-
lands sagði þetta ekki í sínum
verkahring og Rannsóknar-
stofnun landbúnaðarins sagð-
ist hafa áhuga á málinu en eng-
inn hefði tekið frumkvæðið. En
einhver verður að taka frum-
kvæðið. Meðan hundurinn seg-
ir ekki ég, kötturinn segir ekki
ég og svínið segir ekki ég,
halda Islendingar áfram að
borða kýrkjöt sem nautakjöt.
TÆPITUNGULAUST
„Tillitsleysi“, ha?
eftir Halldór Halldórsson
LAUSNÁ
SKÁKÞRAUT
Embætti forseta Islands er hið
virðulegasta, sem stjórnskipan lýð-
veldisins gerir ráð fyrir. Þess vegna
nýtur forseti landsins ávallt fyllstu
virðingar þjóðarinnar hver svo sem
skoðun manna var á meðan kosið
var tii embættisins. Þetta er íslend-
ingum til sóma og mætti verða þeim
fyrirmynd í ýmsum öðrum efnum.
En stjórnskipan íslenzka lýðveld-
isins gerir ekki ráð fyrir því, að til-
teknir einstaklingar, tilteknir emb-
ættismenn, séu hafnir yfir gagn-
rýni.
Sama gildir að sjálfsögðu um for-
seta lýðveldisins.
A „frídegi" kvenna, 24. október,
urðu pólitísk tíðindi, sem skráð
munu verða í bækur sögunnar. For-
seti lýðveldisins ætlaði að láta drag-
ast úr hömlu að undirrita lög frá Al-'
þingi vegna þess að það var henni
óljúft á þessum degi.
Lögin.sem forsetinn átti að undir-
rita fjölluðu nefnilega um það, að
kjaradómur skyldi skipaður til þess
að skera úr í launadeilu kvenna-
stéttar og Flugleiða.
Undirskriftartregða forsetans hef-
ur sjálfsagt ráðizt að mestu af kyn-
ferði forsetans og þeirri óumdeilan-
legu staðreynd, að kvenforseti vor
er af mörgum talin dæmi um tákn-
rænan árangur kvenna í jafnréttis-
baráttu.
„Flugfreyjulögin" voru keyrð í
gegnum Alþingi með hraði og hefðu
sennilega náð í gegnum þingið
kvöldið fyrir „kvennafrídaginn“, ef
ekki væri fyrir þá grátbroslegu stað-
reynd, að jafnréttissinnaður þing-
maður, Jóhanna Sigurdardóttir, hélt
uppi málþófi. Þannig tókst ekki að
afgreiða lögin fyrr en um nóttina á
sjálfan kvennadaginn.
í blöðum, leiðurum þeirra og
svörum stjórnmálamanna, einkum
stjórnarandstæðinga, var það mál
manna, að það hefði verið „tillits-
leysi“ af hálfu ríkisstjórnar að ætlast
til þess af Vigdísi Finnbogadóttur að
undirrita þessi lög á „kvennafrídag-
inn“. Hafi svo verið getur hún þakk-
að það Jóhönnu Sigurðardóttur.
En stöldrum aðeins við þessa at-
hugasemd um tillitsleysi.
Hvaða tillitsleysi er verið að tala
um? Hefði það t.d. að sama skapi
verið tillitsleysi við dr. Kristján Eld-
járn heitinn, fyrrum forseta íslands,
að leggja fyrir hann lög á sjómenn á
sjálfan Sjómannadaginn (sem er þó
altént viðurkenndur frídagur)?
Hefði það verið tillitsleysi vegna
kynferðis hans og sjómannanna?
Auðvitað er þetta fásinna. Dæmið
er fáránlegt, en það er líka jafnfár-
ánlegt og þetta tal um „tillitsleysi".
Það kemur starfi forseta fslands
einfaldlega ekkert við hvort lög
varða konur eða karla. Og kynferði
forsetans skiptir nákvæmlega engu,
þegar vinna skal embættisverk.
„Umhugsunarfrestur" forsetans
er ósköp einfalt dæmi um mistök
æðsta embættismanns þjóðarinnar.
Þetta hefur Halldór Asgrímsson,
starfandi forsætisráðherra, væntan-
lega gert forsetanum Ijóst um leið
og hann skýrði henni frá því, að rík-
isstjórnin hótaði að segja af-sér, ef
ekki væri búið að undirrita lögin
fyrir kl. 14 eða 15:30, eftir því hvaða
heimildum skal trúað. Raunar er
þessi hótun einnig dæmi um mistök.
Morgunbladid birti í liðinni viku
ítarlegan leiðara um þetta mál og
þau stjórnarfarslegu atriði, sem
koma til álita í því. Ég tek undir at-
hugasemdir Morgunblaðsins, bæði
um skyldur forseta, nauðsyn skýrari
stjórnarskrárákvæða og misskilning
Matthíasar Bjarnasonar samgöngu-
ráðherra að hóta afsögn.
En það er eitt, sem ég var ákaf-
lega ósáttur við í forystugrein Morg-
unblaðsins. Það var tæpitungan. Eg
er nefnilega á þeirri skoðun, að láti
maður í ljós álit stutt lagarökum og
lagatúlkunum með sæmilegri skyn-
semi, þá þjóni það engum tilgangi í
tjáningarfrjálsu landi að tala eins og
„Pravda". Forystugrein Morgun-
blaðsins var nefnilega einn af þess-
um skrýtnu ,,prövduleiðurum“
blaðsins, sem krefst þess af lesaran-
um, að hann lesi einna helzt á milli
línanna. Og þrátt fyrir vandaðan
leiðara þá vantaði líka niðurstöð-
una: að forsetinn gerði mistök.
En semsé: Vigdís Finnbogadóttir,
forseti íslands, fór út á hálan ís, einn-
ig samgönguráðherra og raunar öll
ríkisstjórnin, ef út í það er farið. Það
lá við slysi vegna afgreiðslu þessara
flugfreyjulaga, en vonandi hafa við-
komandi einstaklingar dregið ein-
hvern lærdóm af málinu.
17. 1. Rb4! Kxb6 2. Rc6 mát.
18. Dálítið virðist erfitt að komast
að svarta kónginum í horninu og
svartur er fjarri því að vera í leik-
þröng. Hann má að vísu hvorki
leika edlD (vegna 2. Hh2 mát), né
Kg2 (vegna Rf4 tvískák og mát),
en hann á næga aðra leiki og getur
borið fyrir fráskákina með Re4,
leiki hvítur riddaranum. Þar að
auki hótar hann Hb8+. En hvítur
á öflugan lykilleik:
1. Kxc5! og mátar nú í næsta leik
hvernig sem svartur fer að (1. -
Bxb4+ 2. Rxb4,1. - Bb6+ 2. Rxb6,
1. - Hc8 2. Rc7, 1. - Dh(g)6 2. Rf6,
1. - De3 2. Rxe3, 1. - f4 2. Rxf4).
:= í
-pJ «E bni H 4' cati i... . - L -
onustu
FRÁGANGUR INNFLUTNINGSSKJALA,
*
FRÁGANGUR ÚTFLUTNINGSSKJALA,
*
BANKAÞJÓNUSTA OG FERÐIR í TOLL,
$
UMSJÓN MEÐ ENDURSENDINGUM
TOLLAFGREIDDRA OG ÓTOLLAFGR. VARA,
í
VERÐÚTREIKNINGAR,
*
PÖKKUN OG UMSJÓN BÚSLÓÐA TIL FLUTNINGS,
#
TRANSIT VÖRUAFGREIÐSLA,
TELEXÞJÓNUSTA,
VÉLRITUNAR- OG LJÓSRITUNARÞJÓNUSTA,
*
ERLENDAR BRÉFASKRIFTIR, VIÐSKIPTABRÉF,
V
ÞAÐ BESTA
FRÁ ENGLANDI
UNICAN
ÞAÐ BESTA
FRÁ DANMÖRKU
TILBOÐSVERÐ Á BYRJENDASETTUM.
SENDUM j PÓSTKRÖFU. - KREDITKORTAÞJÓNUSTA.
-l/erslunin
/M4RK
Suðurlandsbraut 30, simi 35320.
BRUGGIÐ EKTA 0L
Ath! Kostnaður á flösku, 0,33 I, aðeins 8—9 krónur.
J
10 HELGARPÓSTURINN