Helgarpósturinn


Helgarpósturinn - 31.10.1985, Qupperneq 19

Helgarpósturinn - 31.10.1985, Qupperneq 19
Blúsmeistarar til íslands Nú mun afrádid að blúsmeistar- arnir Junior Wells og Buddy Guy komi til Islands um midjan nóvemb- er og leiki hér eitt kvöld. í för med þeim verda gítaristarnir George Bazemore og Albert Allen, bassa- leikarinn Noel Nealy og trommar- inn Jerry Porter. Junior Wells og Buddy Guy hafa leikið saman um langt árabil og segja má að engin hljómsveit blús- ins sé fremri þeim um þessar mund- ir — nema B.B. King. Junior Wells fæddist árið 1934 í Memphis. Tólf ára fluttist hann til Chicago og kornungur var hann far- inn að blása í munnhörpu með Tampa Red og Johnny Jones. Á Memphisárunum hafði hann kynnst B.B. King og Howlin’ Wolf og Junior Parker kenndi honum að leika á munnhörpuna. Um tíma blés Junior í munnhörpuna í hljómsveit Muddy Waters og 1953 hljóðritaði hann fyrstu skífur sínar og þá léku ekki minni kappar undir hjá honum en Muddy Waters, Elmor James, Otis Spann og Willie Dixon. Buddy Guy fæddist árið 1937 í Louisiana. Hann kom til Chicago 1957 og lék þar m.a. með Sonny Boy Williamsson II. Þar hittust þeir Junior Wells og hafa leikið mikið saman síðan. Buddy Guy er einn af fremstu gítarleikurum blúsins um þessar mundir og hefur lært mikið af B.B. King — einnig sem söngvari; Junior Wells hefur að sjálfsögðu einnig lært af gömlu meisturunum en brætt þau áhrif í sérstæðan og persónulegan stíl bæði sem munn- hörpuleikari og söngvari og söngur hans á stundum í ætt við blúsbelj- arana og sálsöngvarana. Junior Wells og Buddy Guy eru um þessar mundir fremstir Chicago- blúsaranna — arftakar Muddy Waters. Þeir hafa bætt ýmsum nýj- um strengjum í blús sinn og tækni þeirra er óaðfinnanleg. Hljómplötur þeirra skipta tugum og meðal þeirra er hljóðritað hafa með þeim eru hvítir evrópublúsarar og rokkarar eins og Eric Clapton, Bill Wyman og Charles Watts, úr Rolling Stones. Það er kominn tími til að Islend- ingar fái að kynnast blúsnum einsog hann gerist bestur. Hingað hafa komið tvær blússveitir: The Missis- sippi Blues Band og The San Fran- cisco Blues Band — hvorutveggja Junior Wells og Buddy Guy: Það er kominn tími til að islendingar fái að kynnast blúsnum einsog hann gerist bestur. heldur slakar sveitir þó Sam Myers, munnhörpuleikari og söngvari, hafi bjargað andliti þeirrar fyrrnefndu. Blússveit þeirra Buddy Guys og Junior Wells er af öðrum toga — stjörnusveit á heimsmælikvarða. Þeir eru þekktir fyrir rosalega keyrslu og geggjaða sviðsframkomu og blús þeirra kryddaður sálará- hrifum. Það er Jazzvakning er býður þeim hingað og eru þetta lokin á afmælis- haldi félagsins. Blúsinn er faðir jass- ins og því á Jazzvakning skyldum við hann að gegna á tíu ára afmæl- inu. MYNDUST „7/1/7/“ hjá Björgu Þorsteinsdóttur I listum leiðir hvað af öðru, og tíðum reyn- ist vera jafn erfitt að finna uppruna listaverks og uppruna mannsins. Ættartölur málverka eru þvi miður sjaldgæfar, þótt næstum öruggt sé að málverk fæðist af málverki, líkt og maður fæðist af manni. En hvort tveggja nær þroska fyrir sakir erfða og áhrifa frá um- hverfinu. Þess vegna skiptir umhverfið svo miklu máli, og umhverfi er ekki aðeins fjöll, grös og vötn heldur öðru fremur menn og það landslag sem maðurinn býr til og lifir í: hið andlega umhverfi eða það sem við köll- um menningu. Verk Bjargar Þorsteinsdóttur sem eru til sýnis um þessar mundir í Gallerí Borg eru bæði inni- og útimyndir. Öðru fremur eru þær þó „inni“. Formin eru fljótt á litið úr jurtaríkinu, en í flestum tilvikum hefur jurt- unum verið breytt í klæði eða efni af ein- hverri tegund og þá tengt húsbúnaði. Á sýningarskránni er mynd sem líklega hefur hlotið sömu örlög og málverk það sem Kandinsky þekki ekki þegar abstraktlistin hófst í vinnustofu hans, en þá var það á hvolfi. Abstrakt staða þess vakti í brjósti hans hrifningu líkt og hann stæði andspænis guð- dóminum eða hann hefði orðið fyrir dul- rænni reynslu. Björg hefur kosið að láta málverk sitt vera á hvolfi, snúa öfugt, og sú staða gerir það kunnuglegt en um leið fram- andi. Við könnumst við formin, hálfpartinn, en vitum samt ekki hvað þetta er. En ef við snúum málverkinu við, líklega í þá stöðu sem það hefur verið í þegar það var málað, þá er auðsætt að myndin er af stórum púða hjá litlum púða. Og báðir eru röndóttir. Um leið erum við komin að aðferð Baselitz, þótt ekki verði sagt um Björgu að hún fylgi „Schlechte Bilder stíl“ eða Slæmramynda- stíl. Nei, Björg er afar ráðsett og hún rasar ekki að neinu. Jafnvel ást hennar á málverk- inu er í ætt við skynsemistrú, hagkvæmni. Af þessum ástæðum skiptir niðurröðunin hana jafn miklu máli og blöndun litanna. Samningin eða kompósisjónin er jafn hlut- kennd og hún er hljómræn. Augað ber litina eins og fingur snerta nótur píanósins þannig „að siðfágun sálarinnar næst með því að láta fínu tóna hennar sjálfrar titra" eins og Kandinsky sagði. Björg notar ýmsar aðferðir til að láta tóna sálarinnar í áhorfandanum titra. Ein aðferð- in er sú að beita mætti vindsins. Það er ekki að ástæðulausu að fjórar myndir hennar heita / blœnum. Sú sem er númer 8 er lang best. Hin sterklegu form eru fengin með hörðum rauðum dráttum. Drættirnir eru rofnir til þess að auka belgingu efnisins, hina listrænu sveiflu. Þennan leik klæða og þvotts sem hangir til þerris þekkja þeir vel sem hafa komið til Lissabon. Utan á flestum húsum eru leiksýn- ingar af þessu tagi. Og golan af Tagusfljótinu er eins og af guði gerð til að gera leikinn jafn listrænan og sængurföt og hvers kyns flíkur eru færar um að engjast á sviði undir glugg- um. Fjarri fer samt að ég ætli að líkja saman raunveruleika laka í Lissabon og eðli listar á íslandi. Hinn vil ég benda á: hið alþjóðlega sem er í blænum. Og úr því við töluðum í upphafi um upp- runa listaverka, þá er ekki úr vegi að bera saman í huganum teikningarnar sem núna eru í Borg og bréfhengslin sem sýnd voru í Norræna húsinu: bréfteppin. Því að svo virð- ist vera sem þau hafi setið fyrir, eða þau séu fyrirsætur teikninganna. Listaverkin æxlast þannig. Og þá er lista- verkið oftast listrænna en fyrirsætan. Lista- verkin og fyrirsæturnar eru aftur á móti jafn litrík. Mér liggur við að segja að í litinn sé kominn einhver síðbúinn meyjareldur, rauð- ur og blóðheitur. Og það er hann jafnvel í mýkt púðanna. Kannski af því að þeir eru loksins komnir á hvolf í stofunni. Það fer vel á því og allt í lagi meðan þeir fara ekki að fljúga út um glugga, með vængi í stíl við þá sem eru á hlutum og mönnum Jóhönnu Bogadóttur. „Björg er afar skyn- söm og hún rasar ekki að neinu. Jafnvel ást hennar á málverkinu er í aett við skyn- semistrú, hag- kvæmni," segir Guðbergur Bergsson ma. ( umfjöllun sinni. BARNABÖKMENNTIR Frank og Jói Um eða yfir 30 bækur hafa komið út hér- lendis um Frank og Jóa, og á einni bókar- kápu er hlaðið á þær lofi að mati útgefanda: „Allar sögurnar um Frank og Jóa eru við- burðaríkar og spennandi frá upphafi til enda. Þeir þeysa á mótorhjólum, aka í bílum, fljúga í flugvélum og þeysa um í hraðbátum í eltingaleik sínum við harðvítuga bófa og bófaflokka. Og er barátta þeirra tvísýn, og ógnir úr öllum áttum bíða þeirra stundum við hvert fótmál...“ Ef marka má skyldleika fólks eftir stíl og frásagnaraðferð verður ekki betur séð, en höfundur þessaa sagna, Franklin W. Dixon, og Carolyn Keene, höfundur Nancy-bók- anna, séu af sömu ætt, jafnvel ein og sama persónan. Og víst eru uppsláttarrit ekki til mikils fróðleiks; Oxford Companion getur þeirra t.d. með tveimur línum, og gagnstætt flestum öðrum höfundum er ekki getið fæð- ingarárs þeirra og/eða dánarárs, rétt eins og þau hafi aldrei fæðzt. Því má svo bæta við, að eitt og sama fyrirtœki á höfundarréttinn. Sögurnar um Frank og Jóa hefjast yfirleitt í heimaborg þeirra í Bandaríkjunum, en af einhverjum ástæðum hafa fjölmargir glæpa- menn viðkomu þar, rétt eins og allir skúrkar Islands færu um Borgarnes eða Bíldudal, ellegar þyrptust til Hafnarfjarðar að stunda iðnaðarnjósnir, innbrot, fölsun o.s.frv. Þeir bræður ferðast síðan til annarra borga og ýmissa landa til að elta bófa, og einu sinni lá leið þeirra til íslands. Frank og Jói eru synir Fentons Hardýs leynilögreglumanns. Jói var „Ijóshærður, 17 ára piltur” og hafði dálæti á „hinni fjörmiklu og dökkhærðu Júlíu". Frank var hins vegar „dökkhærður, 18 ára“, og „hin liðuga, ljós- hærða Kalla var eftirlætisfélagi Franks". Því má svo bæta við, að annar bróðirinn var ör í lund, en hinn rólegur og íhugull og vill raun- ar víxlast í hita leiksins, hvernig hvor um sig er skapi farinn. Þeir bræður vinna ekki handtak, en fást sífellt við glæpamenn, sem einskis svífast. I einni sögu verða drengirnir og félagar þeirra fyrir mörgum líkamsárás- um: þeim er ógnað með hnífi og byssu, verða fyrir gaseitrun, einhver fitlar við flugvél þeirra, ósvífinn ökufantur neyðir bíl þeirra út af vegi, felld er á þá skipsbóma o.s.frv. Og þannig gengur lífið í öllum þessum sögum, en ævinlega sleppa þeir lítt sárir, blása ekki úr nös og berja reyndar á sér eldri mönnum. Þeir eru á sama báti og Nancy, nema hvað bófarnir eru harðleiknari og uppfinninga- samari við þá en stúlkurnar. Flestar sögurnar um Frank og Jóa eru illa þýddar. Hér skulu tekin dæmi úr Leyndar- málinu um hvalina, sem heitir á frummálinu Mystery of the whale tattoo. Þýðingin er orðfátæk og ber þess vitni, að þýðandi hefur ekki lagt sig fram um að finna orð við hæfi: „Frank leitaði æðislega um allt svæðið. . .“ og „Unga fólkið steig út himinlifandi eftir vel heppnaða reynslu...“ Of víða er notaður lýsingarháttur nútíðar og setningaskipan að öðru leyti sniðin að enskri fyrirmynd: „Þeir dreifðu sér... hrópandi á Jóa, leitandi með vasaljósum...“ eða: „Sid Sólo ók þegjandi til baka með Knocker við hlið sér, strjúkandi sér um annan vangann." Frank og Jóa-sögurnar eru sama marki brenndar og bækurnar um Nancy: æsilegar, hroðvirknislega samdar og þýddar, and- lausar og færa lesendum ekkert nema af- þreyingu stutta stund, og naumast það. Ég hygg að hér eigi við orð hins ágæta fræði- manns Símonar Jóh. Ágústssonar: „Flestir höfundar barnabóka vanmeta mjög skilning barnanna og löngun þeirra og getu til að læra. Mörg þessara rita örva í engu ímyndun né hugsun barna né fá þeim hæfileg við- fangsefni. Fegurð, göfgi eða mikilleika mannlegra örlaga er þar hvergi að finna. Börnin þroskast ekkert á lestri þeirra, heldur sljóvgast. Þær eru sem hálfvolgt te eða klígjugjörn sætsúpa. Þær draga úr löngun barnsins til að lesa og hugsa." HELGARPÓSTURINN 19

x

Helgarpósturinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.