Helgarpósturinn - 31.10.1985, Blaðsíða 22
eftir Sigfinn Schiöth
fiWmm
HELGARDAGSKRÁVEIFAN
Föstudagurinn
1. nóvember
19.15 ö dáfinni.
19.25 Norsk æska. Prúð, skilst mér . . .
19.50 Táknmálið.
20.00 Smámálið.
20.40 Þingsjá. Palli einn í heiminum, í galla-
buxum.
20.55 Kastljós. Þáttur með mistökum, vand-
ræðaþögnum og yfirliði í sjónvarps-
sal.
21.25 í þjónustu föðurlandsins. Norskur
gaman(?)þáttur um utanríkisþjónustu
landsins og starfsmenn hennar. Þýð-
andi: Arne Treholt.
22.05 Derrick. Entschúldingen Sie bitte,
aber ich glaube du bist der mörd-
erer.. .! — Ach so!
23.00 Kóngur íríki sínu. (The King of Marvin
Garden) ★★★ Bandarísk bíómynd frá
'72. Aðalleikarar Jack Nicholson,
Bruce Dern, Ellen Burstyn og Julia
Anne Robinson. Sennilega besta
mynd á endasleppum ferli Bobs Rafa-
elsonar. Samleikur Dern og Nicholson
í hlutverkum bræðranna er hreinasta
þrusa.
00.45 Fréttir í dagskrárlok: Sprenging í Bil-
bao og þríburafæðing á Fjarðar-
heiði. . .
Laugardagurinn
2. nóvember
16.00 Móðurmálið — Framburður (Skeiðar-
ár?).
16.10 Við feðgarnir: Bjarni Felixson og Gísli
Felix Bjarnason fara yfir valda kafla úr
þeim leikjum danska handboltaliðsins
Ribe, sem Gísli hefur fengið að vera
með í.
18.30 Enska knattspyrnan: Arsenal — Ribe.
19.20 Baddnaebbni.
19.50 Fréttaágrip á táknmáli.
20.00 Fréttaágrip á Hávamáli.
20.25 Aulasýningar.
20.35 Staupasteinn (Cheers). Fræðsluþátt-
ur á vegum SÁÁ.
21.10 Fastirliðir„einsog venjulega". Forsýn-
ing á endursýndum skemmtiþætti
sem verður frumsýndur samtímis í til-
efni af lokum kvennaáratugar.
21.40 Harry og Walther halda til Nýju Jór-
víkur (Harry and Walther Go to New
York). ★★ Bandarísk bíómynd frá '76.
Leikstjórn: Mark Rydell. Aðalleikarar:
James Caan, Elliott Gold, Diane
Keaton, Michael Caine og Charles
Dunring. Ein af þessum myndum sem
litu svo vel út á pappírnum. En þrátt
fyrir einvalalið riðar verkið, í þessu til-
viki á slöppu handriti. Leikmynd hins-
vegar frábær og svo er einnig um
flesta aldamótakæki Golds ogCaans í
rullum Harry og Walthers, en . . .
23.40 Fjárveitingar fást ekki til lengri dag-
skrár, bæ.
Sunnudagurinn
3. nóvember
16.00 Síðdegislúrinn. Séra Ólafur zzzzvæfir.
16.10 Hestarnir mínir. Séra Ólafur skellir sér
á bak.
16.25 Áfangasigrar. Séra Ólafur skeiðar í
mark. Nei, annars, einhver nýr
fræðsluþáttur um sjúkdóma . . .
17.20 Á framabraut. Séra Ólafur sendur á
Evrópumót hestamanna . . . hí vonna
ræd forever.
18.15 Stundin okkar. Séra Ólafur tekur við
Evrópubikarnum fyrir hönd okkar ís-
lendinga . . .
19.45 Fréttaágrip á hestamannamáli.
20.00 Fréttir: Helgi E miðar mækinum á séra
Ólaf.
20.40 Sjónvarp síðustu viku. Helstu mistök
rifjuð upp.
20.55 Sinfóníetta. Tónverk eftir Karólínu
Eiríksdóttur. Aðalsteinn Ingólfsson
kynnir hana og verkið.
21.25 Verdi. Séra Emil Björnsson ræöir viö
tónskáldið!
22.30 Ingiríður drottning. Hrottafengið og
hrikalega opinskátt viðtal við þessa
síðustu krónprinsessu okkar hérna á
skerinu.
23.15 Dagskrárlok, ef Ingiríður hefur ekkert
meira að segja. . . sem er ólíklegt.
Fimmtudagskvöldið
31. október
19.00 Réttir.
19.50 Dagleg einkamál Sigurðar Gé Tómas-
sonar.
20.00 Gagnslaust gaman? Já, alveg tví-
mælalaust!
20.30 Sinfóníuhljómsveit Reykjavíkur í Há-
skólabíói.
21.10 „Lífið er kapall". Birgir Svan Símonar
gengur upp.
21.35 Klassískt gaul af teipi.
22.25 Fimmtudagsumræðan. Stjórnarand-
staðan? Já, hún . .!
23.35 Píanótríó eftir Lúlla fann Bit.
24.00 Dagskrárlok, skulum við vona . . .
Föstudagurinn
þyrsti nóvember
7.00 i nafni guðs föður og allt það . . .
7.17 Morgunvaktin. Takmarkalaus svefn-
drykkja.
9.05 Morgunstund barnanna (sem eru far-
in í skólann).
9.45 Þingfréttir (dýranna í Hálsaskógi).
10.40 Sögusteinn. Haddú woodoo magnar
seið að norðan. Jónas ærist af myrk-
fælni (Rúvak).
11.10 Málefni aldraðra. Þórir Ess í yngingar-
aðgerð.
11.25 Morguntónleikar.
12.20 Fréttir á sínum staö með soðning-
unni.
14.00 Miðdegissagan. „Skref fyrir skref". 9.
lestur af 5.
14.30 Sveiflur. Sveri Páll í trjánum á Akur-
eyri.
16.20 Sinfónían í Björgvin að leika sér.
17.00 Útvarp barnanna (í Ólátagarði).
19.00 Útvarp Reykjavík, nú verða sagðar
fréttir...
19.50 Daglegt mál. Guðvarður Már flytur
þáttinn milli hæða á Skúlagötunni.
Endar úti á Kolbeinsskeri. . .
20.00 Lög unga fólksins (á Hlemmi). Vand-
ræðamál, skilst mér, en sem betur fer
komið í nefnd.
20.40 Kvöldvaka. Rokkurinn tekinn fram.
21.30 Atli Heimir bankar í veggi. Altso; nú-
tímatónlist.
22.25 Kvöldtónleikar.
22.55 Svipmynd. Jónas segir sjálfum sér að
vera hamingjusamur. Nordvision —
sænska sjónvarpið!
00.05 Jassþáttur — Jón M. Árnason dillar
sér.
*
Eg mœli meö
Rás 1, föstudagurinn 1. nóvember,
klukkan 20.40: Kvöldvaka, meðal
efnis: Hjónin í Kúvíkum, Þengill og
Þuríður, syngja saman „Smaladreng-
inn" eftir Skúla Halldórsson og
Steingrím Thorsteinsson.
01.00 Jón Emm þessi býður landsmönnum
góða nótt.
Laugardagurinn
2. nóvember
1 7.00 Óðinn, Þór og þessir strákar teknir
fram og tilbeðnir.
7.20 Morguntrimm. Jónína tilbiður sjálfa
sig.
9.30 Óskasjúkdómur lögmanna. Helga
Þonn Stephens kynnir.
11.00 Bókaþing. Gunnar Stefáns fitlar við
saurblöðin.
12.20 Fréttir í hádeginu.
13.50 Hér og nú. Fréttamenn niðrá bryggju,
uppum fjöll og útí veður og vind. En
því miður, enginn þeirra nær sam-
bandi við Skúlagötuna. Æ, æ .. .
15.00 Miðdegistónleikar. Af því bara.
15.40 Fjölmiðlun vikunnar. Um allt það sem
betur mátti fara en ekki vannst tími til.
15.50 íslenskt mál. Um allt það sem betur
mátti segja en ekki fannst hugsun
fyrir.
16.20 Listagrip. Sigrún Björns smjaðrar
fyrir listaliði.
17.00 „Ævintýraeyjan" eftir Enid Blyton.
Denni gaf út.
17.30 Einsöngur í útvarpssal. Robert Becker
fer hjá sér í stúdíói eitt...
19.00 Fréttir.
19.35 Stungið í stúf. Skemmtiþáttur sam-
kvæmt dagskrá.
20.00 Harmónikkuþáttur. Steini stóll þenur
Berta gömm.
20.30 Smásagan „Eitthvað illt í húsinu":
(Markús örn McCarthy les úr endur-
minningum sínum).
21.05 Tónleikar.
21.20 Vísnakvöld. Gísli Helgason flautar á
eftir skvísu.
22.30 Á ferð. Sveinn Einars á leið 4, Hagar-
Sund.
23.05 Danslög. Sveinn Einars stekkur út við
Glæsibæ.
00.05 Jón örn Marinósson velur sér plöt-
ur. . .
01.00 ... en nennir því ekki lengur.
Sunnudagurinn 3. nóvember
til dæmis
8.00 Morgunandakt. Séra Sváfnir Svein-
bjarnarson á sjötta kaleik messu-
vínsins.
8.35 Látt morgunlög. Þulur léttir á sér.
9.05 Morguntónleikar. Þulur hleypir í
brúnir.
10.25 Sagnaseiður. Þulur gufar upp.
11.00 Messa. Séra Sváfnir gufar upp.
12.20 Fréttir af séra Sváfni og þuli.
13.30 Rödd rússnesku byltingarinnar.
Kristján Árnason kynnir Majakovskí
skáld. Jón Múli byltir sér í svefni.
14.30 Píanótónleikar.
15.10 Englar lífs og dauða. Stefán-Aid Haf-
stein ræðir við íslenska hjúkku í
Eþíópíu.
16.20 Vísindi og fræði.
17.00 Með á nótunum. Páll Heiðar spyr, fátt
um svör.
19.00 Fréttatími.
19.35 Eyvindi Erlends hleypt að í dag-
skránni.
20.00 Stefnumót. Markús örn segir frá
fyrsta sjensinum í lífi sínu í opinskáu
unglingaþáttarviðtali.
21.00 Ljóð og lag. Hermann Ragnar
Stefánsson tjúttar.
21.30 „Saga Borgaraættarinnar".
22.25 íþróttir. Bein lýsing frá ríkisspítalanum
í Salzburg þar sem Ásgeir Sigur-
vinsson veröur skorinn upp vegna
gamalla meiðsla.
22.40 Svipir — Tíðarandinn 1914—1945.
23.20 Kontrabassi og selló.
00.05 Milli svefns og vöku. Hildur Eiríks-
dóttir mókir.
01.00 Og dettur út af.
Fimmtudagskvöldið
31. október
ef ekki vill betur.
20.00 Vinsældalisti stjórnenda rásar tvö.
21.00 Gestagangur. RagnheiSur lögga I
aukavinnunni, stendur sennilega í
húsbyggingu.
22.00 Rökkurtónar. Svavar Gests spilar SG-
hljómplötur.
23.00 Fbppgátan. Hver samdi lagið og hve-
nær og í hvernig nærbuxum var hann
þá? Og hversvegna ... ?
Föstudagurinn
fizzdi nóvember!
10.00 Morgunþáttur. Ásgeir hlær að Páli
sem hlær að sjálfum sér, en tækni-
maður rispar plötur.
12.00 Tveggja tíma löiis, Þorgeir býður á lín-
una.
14.00 Pósthólfið. Valdís les upp úr bréfum
sem hún og aðrir starfsmenn rásarinn-
ar hafa sent þættinum.
16.00 Jón Ólafsson.
18.00 Tveggja tíma dinner, í boði forsetans á
Bessastöðum.
20.00 Hljóðdósin. (Því miður, allir að horfa á
sjónvarpsfréttir!)
21.00 Djassspjall. Venni vinnur spjöll á
plötusafni sínu.
22.00 Rokkrásin, rokkrásin, rokkrásin, rokk-
rásin . . .
23.00 Næturvaktin. Viggi og Toggi vaka
frameftir, annars skilst mér að þetta sé
nú bara allt á teipi. ..!
Laugardagurinn
2. nóvember
10.00 Morgunþáttur. Sigurður Blöndal
skógræktarstjóri plantar sér í stúdíó-
inu.
12.00 Hlé í að minnsta kosti tvo tíma, að því
er menn vona.
14.00 Laugardagur til lukku. Svavar Gests
að ærast af ánægju yfir eigin útliti.
16.00 Listapopp. Gunnar; aldrei þessu vant
listalaus. ..
17.00 Hringborðið, aliasfundur íhringorma-
nefnd.
18.00 Þögn.
20.00 Á svörtu nótunum. Pétur Botha Guð-
mundsson stjórnar.
21.00 Milli stríða. Jón Gröndal les upp úr
Víkurfréttum.
22.00 Bárujárn. Siggi Sverris þenur bad-
mintonspaðann.
23.00 Svifflugur.
24.00 Jón Axel Ólafsson segir til nafns
næstu þrjá tíma og leikur lög á milli ef
tími vinnst til.
Sunnudagurinn 3. nóvember
13.30 Óskalagaþáttur hlustenda.
15.00 DV.
16.00 Óskalagaþáttur stjórnenda.
18.00 Kartöflurnar yfir, ókey; bless.
ÚTVARP
eftir Sigmund Erni Rúnarsson
Gœlt við hlustendur
Nokkur síðustu ár hefur útvarpið verið
með fárra mínútna þætti í kringum kvöld-
fréttir um helgar, þar sem menn hafa verið
að gaspra að gamni sínu um það sem kunn-
ingjarnir sögðu þeim í síðustu viku og svo
framvegis. Það er í sjálfu sér sniðug hug-
mynd að skjóta svona skyndiþáttum fram-
an og aftan við kvöldfréttirnar, þó ekki
væri nema til þess að útvarpshlustendur
heyrðu eitthvað annað en frásagnir um
morð og mannréttindabrot úti í heimi og
árekstra innanlands. Þetta mildar menn,
gerir þeim góðlátlega grein fyrir því að það
er líka hægt að hafa gaman af þessari ver-
öld.
Það er jafn ljóst að ekki er sama hvaða og
hverskonar menn tala í þessum þáttum.
Það er sjálfsagt fáum lagið að skrifa nota-
legar frásagnir af hversdagsleikanum sem
allir skilja og geta þar af leiðandi brosað að.
Eflaust er það á valdi enn færri að geta sett
svoleiðis á blað og flutt það jafnframt í út-
varpi. Þráinn Bertelsson gat hvortveggja.
Þættirnir hans „Það var og..voru hrein
unun á að hlusta og er mikil eftirsjá að
þeim. Þráinn gerði í því að ljúga upp ein-
hverjum kunningjasögum, allar frásagnir
hans miðuðust við að félagar hans hefðu
verið söguhetjurnar en auðvitað var hann
Betur að Þráinn væri kominn á sinn gamla stað í
dagskránni í stað Eyvindar...
þar að tala um sjálfan sig og dagleg asna-
prik sín. Fólk fattaði þetta, fannst fyndið,
einfaldlega vegna þess aö það sjálft er að
gera álíka asnaprik allan liðlangan daginn.
Aheyrendur gátu svo auðveldlega sett sig í
spor sögumanns, en um það snýst málið í
þáttum sem þessum.
Upplestur og áherslur Þráins voru sí'ðan
til að kóróna allt saman. Maðurinn gældi
við hiustendur, fitlaði nánast áþreifanlega
við eyrti. þeirra. Og þó þetta síðastnefnda
sé kannski ofsagt, þá felst þó það sannleiks-
korn í meiningunni að áheyrendur slöpp-
uðu allir af undir þessari orðanna meðferð.
Það var svo notalegt aö láta þetta oröa-
gjálfur flæða yfir sig að maður náði ósjálf-
rátt að slaka á í þessu líka ansans amstri
dagsins. I reyndinni er það alveg æðislegt
að útvarpsefni geti haft þessi áhrif á mann.
Nema hvað, nú heyra þessir þættir Þráins
sögunni til. Annar maður með annan
hreim er kominn að hljóðnemanum og er
að reyna að flytja álíka efni og Þráinn forð-
um. Eyvindi Erlendssyni mistekst það
hrapallega. Að mínu viti er alveg hræðilegt
að hlusta á hvernig hann kemur efninu frá
sér. í stað þess að gæla við hlustendur, sem
sitja uppi í sóffa þegar þarna er komið í
dagskránni og drekka kaffið sitt eftir upp-
vask, fer hann á slíku hundavaði yfir mjúk-
an textann að liggur við öskri og hrópum.
Maður stressast allur upp, og siekkur á
þessu í besta falli, blótar manninum í ofan-
álag ef maður er til dæmis illa fyrir kallað-
ur.
Þetta gengur ekki, kannski um miðjan
dag þegar maður er spenntur hvort eö er,
en alls ekki þegar mann langar að setjast
niður heima og skilja að vinnu og hvíld
með ljúfu hjali úr viðtækinu.
SJÓNVARP
eftir Eddu Andrésdóttur
Opniði gluggann betur!
Maður er alltaf eitthvað að agnúast út í
takmarkaða framleiðslu Sjónvarps á inn-
lendu efni. A fyrstu dögum vetrar hefur þó
heldur ræst úr, samanber Fasta liði... og
Gluggann. í svipinn man ég ekki eftir fleiri
blönduðum þáttum á dagskrá Sjónvarps en
þeim síðarnefnda. Ekki þar með sagt að ís-
lenskir þættir þurfi endilega að vera bland-
aðir. Það er hreint ekkert síðra að búa til
stutta þætti um einstök efnisatriði. í fljótu
bragði dettur mér það sama í hug og ungl-
ingunum; þættir um íslenskar hljómsveitir
og tónlistarmenn. Eg hef til að mynda enn
ekki hitt þann sjónvarpsáhorfanda sem
ekki kunni að meta Bítlaþættina hér á dög-
unum, þó þeir hafi kannski ekki verið al-
veg af sama toga og um er rætt.
Nema hvað, hér var aðallega lagt upp til
að benda á eitt og annað í fyrrnefndum
Glugga sem betur hefði mátt fara. Annars
ágætir umsjónarmenn, Örnólfur Thorsson
og Arni Sigurjónsson báru það svolítið
með sér að þeir væru að stíga sín fyrstu
skref í þáttagerð, og ekkert ljótt um það að
segja. Samt hefði verið miklu skemmti-
iegra að hafa þá ögn hýrari á skjánum.
Einn áhangenda Helgarpóstsins hefur vel á
minnst bent á að það eigi að varða við lög
að vera fúll á sjónvarpsskermi. Það hafi
enginn maður rétt tii að mæta þannig inn
í stofu hjá manni. Nota bene; þetta á ríú ekki
við þá fyrrnefnda félaga.
Það hefði líka verið skemmtilegra að
þeir félagar hefðu verið víðsýnni í efnis-
vali. Þátturinn er sagður eiga að fjalla um
listir, menningarmál og fleira. Nú ætla ég
að afhjúpa menningarsneyði minn með því
að segja að það vantaði þetta „fleira". Það
þarf engan ramma að setja utan um
„fleirá', það getur náð yfir hvað sein er.
Það hefði veriö kjörið að nota það til að
létta annars fremur þunglamalegan þátt.
Það er ekki þar með sagt að menningar-
legt efni þurfi að vera þunglamalegt, síður
en svo. Og þá erum við nú aldeilis með rétt-
an miðil í höndunum, sem býður upp á tal
og mynd. En einmitt þetta aðal sjónvarps
var á engan máta notfært í Glugganum að
þessu sinni. í endurminningunni er þáttur-
inn eins og hann hafi verið ætlaður til
flutnings í útvarpi.
Kannski eru það smáatriði, en tæplega
var þeim Þóru Kristinsdóttur og Beru
Nordal greiði gerður með því fyrirkomu-
lagi sem haft var á þeirra innleggi í þáttinn
myndlega séð. Og einhvern veginn er eins
og upplestur ætli aldrei að gera sig í sjón-
varpi. Land míns föður var rúsínan i pylsu-
endanum, myndrænt og fjörlegt og gerði
baggamuninn.
Svo það mætti gjarnan opna Gluggann
betur. . .
22 HELGARPÓSTURINN