Helgarpósturinn - 19.06.1986, Blaðsíða 2

Helgarpósturinn - 19.06.1986, Blaðsíða 2
UNDIR SOLINNI Skyndileg fylgispekt við Dani eftir Egil Helgason Því hefði ég aldrei trúað að óreyndu, og vaddla nokkur þjóðhollur samlandi minn, að það ætti fyrir íslendingum að liggja að halda með Dönum, og þá meina ég „halda með“ í hinum víðfeðmasta skilningi þess orðatil- tækis — nei, við höfum alltaf verið á móti Dönum, hvort sem keppt hefur verið í bjór- drykkju, pylsuáti eða fótbolta, enda er víst hængurinn sá að þeir hafa haft okkur undir í öllum þessum greinum. En tímarnir breyt- ast og mennirnir með, er haft á orði — það sauðmeinlausa íslenska lamb er alltíeinu orðið villidýrið „fjallalamb" og þær kynslóð- ir sem hugsuðu Dönum þegjandi þörfina fyr- ir aldalanga áþján hafa fyrir löngu safnast til feðra sinna og forfeðra ( sem allir með tölu höfðu ímugust á Dönum) og eftir sitja hnípn- ar kynslóðir sem halda sig hafa ekkert uppá Dani að klaga — nema þá helst dönsku- kennslu í íslenskum grunnskólum. Raunar finnst sumum það ærin sök. Þetta er sumsé allt gleymt og grafið, — ný- lendutíminn, einokunarverslunin, sjálfstæð- isbaráttan, sverð Islands, sómi þess og skjöldur; eða hvað sagði ekki íþróttafrétta- maður Vísis af öðru en ekki óskyldu tilefni: „einsog allir ættu að vita fara stjórnmál og íþróttir ekki saman“. Þó er ég ekki viss um að einn góðkunningi minn geti skrifað undir þessi ummæli íþróttafréttaritarans; sá trúir því nefnilega að íþróttir og stjórnmál fari ófrávíkjanlega saman, í öllum greinum og hliðargreinum, enda lætur hann ekkert tæki- færi ónotað til að halda með hinum víðlendu Ráðstjórnarríkjum (útúrdúr: hann heldur því fram að Belgar hafi unnið Sovétmenn á þremur rangstöðumöi kum og segir að það sé engin tilviljun að línuvörðurinn var bandarískurl.Og það veit þessi vinur minn að það er langt fyrir neðan virðingu þjóðholls Islendings að halda með Dönum og því til áréttingar er hann búinn að taka saman lista þar sem hann tilgreinir nokkrar góöar og gildar ástæður fyrir því að íslendingar geti ekki, megi ekki halda með Dönum. Við tök- um okkur það bessaleyfi að tilgreina fáeinar grundvallarástæður: 1. Danir seldu okkur maðkað mjöl. 2. Þeir léku okkur hart á alla lund fyrir þá sök sem er öllum sökum minni — að stela snæri. 3. Hvað segir ekki eitt þjóðskáldið: Ef þú étur ekki smér / eða það sem matur er / dug- ur allur drepst úr þér / danskur íslendingur. 4. Danir skiluðu okkur handritunum, að vísu — en bæði seint og illa. 5. Mátti ekki margt góðskáldið búa við sult og vosbúð í Höfn? 6. Og nútíma Hafnar-íslendingar — eru Danir ekki orðnir ósköp nískir á sósíalinn í seinni tíð? 7. Danir gáfu okkur ekkert stig í Euro- vision. 8. Þeir unnu okkur 14—2 í fótbolta skömmu eftir að nýlendutímanum lauk (geymt en ekki gleymt). 9. Þeir vilja ekki viðurkenna að við séum betri í handbolta en þeir. Það ber sumsé allt að sama brunni — við skuldum Dönum rauðan belg fyrir gráan, og hvað sem líður norrænni samvinnu eða nor- rænni samstöðu væri okkur miklu nær að halda með þrautpíndum og sárþjökuðum smáþjóðum, sem einsog við erum fórnar- lömb nýlendukúgunar herraþjóða; nefnum Alsírbúa, Norður-íra og Skota, en látum það samt eiga sig að fjalla nánar um vanda smá- þjóða. Þetta er sumsé í meginatriðum skoð- un hins ofstækisfulla og þjóðernissinnaða kunningja míns á þessari skyndilegu fylgi- spekt okkar við Dani. Annars er hægt að kætast yfir mörgu þeg- ar stendur yfir heimsmeistarakeppni í fót- bolta, og líka yfir hlutum sem ekki liggja al- veg í augum uppi. Áhugamenn um íslenska tungu og málrækt þykjast tildæmis hafa him- in höndum tekið þar sem er Bjarni Felixson, íþróttafréttamaður og mestur lýsandi sem nú er uppi. Á yfirstandandi heimsmeistaramóti hefur Bjarni aldeilis „tekið á honum stóra sínum“, verið „vel á verði", „haft sig allan við“, hann hefur verið „atkvæðamikill", „sig- urstranglegur" og „hlutskarpur“, hann er líka „sammála Búlgakoff dórnara" og hann veit að „úrslitin eru hvergi nærri ráðin“, að „það er næsta víst að Búlgakoff dómari hef- ur bætt við leiktímann", að „tíminn vinnur með Frökkum", að „það dugir ekki að deiia við dómarann", hann veit líka „allt um þann leik“ og hann veit ennfremur uppá hár hvað allir leikmennirnir fimmhundruð í heims- meistarakeppninni eru gamlir. Sumsé, gott. „Ekkert múður, segir Búlgakoff dómari." Samt, ég get ekki neitað því — ég myndi sakna hans Bjarna Felixsonar ef hann væri ekki á sínum stað í sjónvarpinu. Eg er ekki einn af þeim sem skrúfa niður hljóðið og ég er að hugsa um að senda Bjarna eintak af Samheitaorðabókinni nýju næst þegar ég eignast pening — svona í þakklætisskyni. . . Enginn virðist þó hafa skemmt sér jafnvel í heimsmeistarakeppninni og Helgi Hálfdan- arson Shakespeareþýðandi. Helgi er greini- lega enginn áhugamaður um fótbolta, en ekki afhuga því viðhorfi austantjaldsmanna að troða ungdómnum í íþróttafélög, jafnvel þótt hann hati íþróttir einsog pestina. Eða hvað segir ekki Helgi í ágætri grein sem heit- ir Áfram Bjarni! og birtist í Mogganum: „Því hefur verið haldið fram með þjósti, að fólki í hærri aldursflokkum sé knattspyrna í sjón- varpinu lítt bærileg plága. Ekki veit ég hvað er talið styðja þá kenningu. Og jafnvel þótt sönn reyndist, held ég að gamla fólkið sé fjandann ekkert of gott til að umbera þessa viðleitni til hollra áhrifa á vanræktan og rót- lausan æskulýð í eiturmenguðu þjóðfélagi hinna fullorðnu. Ekki kalla ég, sem á skammt í nírætt, til of mikils mælst, og skal ég þó játa, að sjálfur get ég naumast hugsað mér hundleiðinlegra sjónvarpsefni en knatt- spyrnu. Ég vil því eindregið skora á Ríkisút- varpið að slaka í engu á íþróttaáróðri sínum og láta einmitt knattspyrnu hafa forgang fyr- ir næstum hverju sem er.“ Og bittinú ... HAUKURí HORNI 17. JÚNÍ „Hann ætti nú að fá Fálkaorðuna þessi náungi sem fann upp nýju fánaregnhlífarnar..." 2 HELGARPÓSTURINN

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.