Helgarpósturinn - 19.06.1986, Blaðsíða 29

Helgarpósturinn - 19.06.1986, Blaðsíða 29
Haraldur mjög mikilvægt að hafa stöðugt í huga.“ Gerður er ákveðin. „En svona þess fyrir utan reyni ég bara að láta mér líða vel, sætta mig við hlutina og vera kát.“ Og tekst þér alltafad uera sátt vid tilveruna? „Já, ég er sátt við lífið og ánægð í mínu starfi. Mér finnst gaman að vinna með góðu fólki. Ég nenni heldur ekki að setja einhvern leik á svið, — maðurinn er ekki amaba, — og ég reyni bara að vera ég sjálf og sætta mig við tilveruna. Já, það tekst bara nokkuð vel. Eigum við að segja svona í 97,5% tilvika." Gerður hlær. Haraldur Blöndal hœstaréttarlögmaöur: Hann hlær. ,,Ég hef nú verið alinn upp við það að menn eigi ekki að láta kúga sig. Ef maður er sannfærð- ur um að eitthvað sé rétt þá á maður ekki að láta kúga sig til að víkja frá þeirri sannfæringu. Þetta er einfald- ur hlutur og sem dæmi má taka að ég hefði aldrei látið Bandaríkja- menn kúga mig eins og kommarnir gerðu í atkvæðagreiðslu á Alþingi þegar þeir tóku afstöðu í hvalmál- inu." — Læturöu þá aldrei kúga þig? ,,Ég segi nú ekkert um það, en þetta er nokkuð sem ég vil gjarnan lifa eftir. En svona sem lögfræðingur þá hef ég það sem reglu að leggja það til mála sem ég tel réttast og reyni að lifa ekki á óhamingju ann- ars fólks." Ölafur leftir G. Pétur Matthíasson myndir Árni Bjarnasoni Þórður Björnsson, afmælisbarnið, tekur á móti ráðuneytisstjóranum í dómsmálaráðuneytinu, Þorsteini Geirsyni, og ráðherranum sjálfum, Jóni Helgasyni frá Seglbúð- um. Magnús horfir á Þórð alvarlegum augum meðan ráðherra kímir. Þórður Björnsson ríkissaksóknari varö sjötugur laugardaginn 14. júní síöastliöinn. Á árunum 1950 til 1962 var Þóröur borgarfulltrúi Framsóknarflokksins í Reykjavík. Hann gafekki kost á sér 1962 þar sem hann var nýoröinn sakadómari í Reykjavík en haföi á árunum frá 1941 veriö fulltrúi sakadómara. Áriö 1964 var hann skipaöuryfir- sakadómari og þvístarfisinnti hann til ársins 1973 er hann var skip- aöur ríkissaksóknari. Eftir 1962 haföi hann ekki afskipti af stjórn- málum heldur valdi leiö starfsframans. Þóröur Björnsson fœddist í Reykjavtk 14. júní 1916, sonur hjón- anna lngibjargar Ólafsdóttur Briem og Björns Þóröarsonar, lög- manns og forsœtisráöherra um hríö. Móöurafi Þóröar var Olafur Briem, bóndi á Álfgeirsstööum, alþingismaöur og fyrsti formaöur Framsóknarflokksins. Helgarpósturinn óskar Þóröi Björnssyni til hamingju á þessum tímamótum. Feðgarnir Sigurbjörn Þorbjörnsson rlkisskattstjóri og Markús Sigurbjörnsson skiptaráðandi í Reykjavík ræðast við og svo virðist sem þeir séu að segja hvor öðr- um gamansögur úr heimi skattanna, enda líklega af nógu að taka. Kristfn Matthíasdóttir, Rolf Johansen stórkaupmaður og Njörður Snæhólm rann- sóknarlögreglumaður. Skyldu þau vera að ræða um heimsmeistarakeppnina I knattspyrnu? Þóröur lœtur von bráöar afstörfum sem ríkissaksóknari fyrir ald- urs sakir. Helstu kandídatar í starfhans eru Hallvaröur Einvarösson rannsóknarlögreglustjóri, Bragi Steinarsson vararíkissaksóknari og Jónatan Sveinsson saksóknari. Þóröur tók á móti gestum á afmœlisdaginn ásamt konu sinni, Guð- finnu Guðmundsdóttur. Helgarpósturinn hefur alla tíö átt gott sam- starfviö Þórö Björnsson, enda var blaöamanni og Ijósmyndara tekiö opnum örmum þegar þeir mœttu óboönir í afmœlishófiö. Hér á síö- unni birtast myndir afnokkrum gestum sem heiöruöu Þórö sjötugan. Samkvœmt áreiöanlegum heimildum Helgarpóstsins var Ulfari Þormóössyni, galleríhaldara og stórvini Frímúrarareglunnar, ekki boöiö í þetta ágœta samkvœmi og eru þeir Þóröur Björnsson þó frœndur. Magnús Torfason hæstaréttardómari gýtur augunum til Sigurðar Llndal, lagapró- fessorsog forseta Bókmenntafélagsins, en til hliðar stendur María Guðmundsdótt- ir, kona Sigurðar og skrifstofustjóri. Liggur það ekki I augum uppi að Magnús og Sigurður eru að ræða einhverja interessant lagakróka, — eða kannski ýmsa van- kanta á íslenska skólakerfinu? Gamla kynslóðin og kynslóðin sem er aðeins yngri og búin að erfa landið; I bakgrunni Böðvar Bragason lögreglu- stjóri, en framar Eysteinn Jónsson, fyrr- verandi ráðherra og göngugarpur, og Gissur Bergsteinsson, fyrrverandi hæstaréttardómari. Þetta heitir víst að stinga saman nefjum... Benedikt Blöndal hæstaréttarlögmaður og Björn Sveinbjörnsson hæstaréttar- dómari. HELGARPÓSTURINN ÓBOÐINN í AFMÆLISHÓFI: ÞÓRDUR „FRÆNDI BJÖRNSSON RÍKíSSAKSÓKNARI SJÖTUGUR HELGARPÚSTURINN 29

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.