Helgarpósturinn - 19.06.1986, Blaðsíða 26
analhlanin
AÐALBLAÐIÐ 75. ÁRG. 7. TBL.
Flestir þingmenn hafa fengiö vinnu í sumar:
Þorsteinn Pálsson ljós-
myndari á Morgunblaðinu
Jón Helgason senni-
lega í prófarkir á
Tímanum.
Óvíst með mynda-
söguþýðingar Halidórs
Asgrímssonar.
Svavar afþakkar rit-
stjórastól Þjóðviljans.
Nú þykir fullljósl ad Þorsteinn
Pálsson, formadur Sjálfslœdis-
flokksins, fjármálarádherra og
fyrsti þingmaöur Sudurlands, kom-
ist ad sem Ijósmyndari á Morgun-
bladinu ísumar, ad minnsta kosti út
ágústmánud. Arni Johnsen, adal-
bladamadur Morgunbladsins, staö-
festi þetta í samtali við Aðalblaðið í
morgun.
Þar með eru allir þingmenn Sjálf-
stæðisflokksins komnir í sumar-
vinnu, en að sögn Friðriks Olafsson-
ar hjá atvinnumiðlun alþingis-
manna hefur gengið mjög misjafn-
Iega að útvega þingmönnum afleys-
ingastörf í sumar, eftir því hvar í
flokki þeir eru staddir. Þannig hefur
aðeins einum þingmanni Alþýðu-
bandalagsins verið boðið starf í
gegnum miðlunina. Það var Svavar
Gestsson, formaður þess. Honum
bauðst að gerast aðalritari Þjóðvilj-
ans á næstu mánuðum, en sagðist
„Eg er miður mín, hringdu í mig
eftir hádegi," sagði Davíð Oddsson
borgarstjóri snemma í morgun þeg-
ar fyrir lágu nákvæmar niðurstöður
sagnfrœðirannsóknar Snorra Þórð-
ar Sturlusonar sem fœra óyggjandi
rök fyrir því að Reykjavík uerði 202
ára 18. ágúst nœstkomandi, en ekki
réttra tveggja alda eins og hingað til
hefur verið haldið fram.
Blaðamaður hafði samband við
bara því miður hafa öðrum hnöpp-
um að hneppa.
Enn eru fimm framsóknarþing-
menn sumarvinnulausir og vafamál
með tvo til viðbótar, þá Jón Helga-
son, sem þreytir þessa dagana
hæfnispróf vegna hugsanlegs próf-
arkalesturs í Tímanum, og Halldór
Ásgrímsson sem hefur sótt um
myndasöguþýðingar á sama blaði,
borgarstjóra að umræddum tíma
liðnum, en hafði hann þá ekkert
frekar um málið að segja, kvaðst
ennþá vera jafn miður sín. Sam-
kvæmt heimildum blaðsins kallaði
hann á sinn fund í morgun formann
stjörnufræðinefndar Sjálfstæðis-
flokksins, Þorstein Sæmundsson, og
hefur hvorugur þeirra farið út af
skrifstofu borgarstjóra síðan. Þetta
staðfesti hreingerningakona á borg-
arskrifstofunum í símaviðtali við
en fengið mjög loðin og óljós svör.
Jón Baldvin Hannibalsson verður
við gluggahreinsun í sumar og
tveimur Alþýðuflokksþingmönnum
til hefur verið boðin bensínaf-
greiðsla hjá Olís, en að minnsta kosti
annar þeirra verður líklega að
hafnaþessu starfi vegna ofnæmis
fyrir tvisti. Enn sem komið er er
ekki hægt að birta nafn hans.
blaðið núna síðdegis. Hún sagðist
ekki geta heyrt betur en þeir væru
eitthvað að ræða um það að færa
tímatalið aftur um tvö ár, en vildi að
öðru leyti ekki tjá sig um málið.
„Þetta er bara eftir öllu öðru. Hér
er á ferðinni enn ein óreiðan af
hálfu meirihlutans," sagði Sigurjón
Pétursson, oddviti alþýðubanda-
lagsmanna í borgarstjórn, þegar
Aðalblaðið bar nýjustu upplýsingar
um aldur borgarinnar undir hann.
Þingmenn Bandalags jafnaðar-
manna verða á interrail í sumar og
kvennalistakonur allar heimavinn-
andi. Að sögn Friðriks Ólafssonar
hjá atvinnumiðluninni, er vonast til
að allir þeir þingmenn sem hafa
ekki þegar fengið eitthvað að gera í
sumar, verði komnir í vinnu um
næstu mánaðamót, í versta falli fisk-
vinnu. GGGBj.
Hann sagðist Iíkja þessu við Ölfus-
vatnsmálið og „sukkið hjá Granda,"
eins og hann komst að orði. Hann
kvaðst heldur ekki geta ímyndað
sér annað en þarna væru einhver
ættartengsl með í spilinu og helst
peningaóreiða.
Fundur í kvenfélaginu Hvöt hefur
verið boðaður í kvöld um þetta mál
í vestursal Kjarvalsstaða. Áðgangur
er ókeypis.
Hverfasamtök
Þingholtsins
hlynnt klámbúð í
hverfið:
„Þörf á nýjum
atvinnutæki-
færum hérna“
— segir í ályktun
félagsins, sjá
baksíðu, leiðara og
lesendasíðu
HM í slönguspili:
Bjarni Fel
knýr fram
24 beinar
útsendingar
— sjá bls. 5 og
viðtöl við íslenska
slönguspilara á
íþróttasíðum
Flugumferðarstjóra-
málið að leysast
upp í vitleysu:
Flogist á
í turninum
— sjá bls. 2:
,,Mönnum er alltaf
að lenda saman
hérna“
Nýr taugatitringur á
stjórnarheimilinu:
Forsætis-
rádherra
genginn
í félag
Grænfridunga
— sjá baksíðu,
dagbók og
myndasögur
-BMW.
Nýr ógnvaldur á fjöllum uppi:
/
Islenskt fjallalamb - villt og
galið - ræðst ítrekað á ferðamenn
— sjá baksíðu, síðan bls. 2, þarnæst 15, loks opnu og svo aftur baksíðu
Ljósmyndin sem fleytti
Þorsteini Pálssyni inn á
Ijósmyndadeild
Morgunblaðsins, tekin fyrir
nokkrum árum, en
formaðurinn ku samt engu
hafa gleymt. Takið sérstaklega
eftir myndbyggingunni.
Reykjavík — þetta vinsæla
myndefni Þorsteins — verður
202 ára gömul í sumar, segir
okkur svo fréttin hér að
neðan...
Nýjar og óyggjandi sagnfræðirannsóknir — Reykjavík varð 200 ára í hitteðfyrra
„MIÐUR MÍN“
— segir Davíð Oddsson sem íhugar í ljósi þessara upplýsinga að færa tímatalið aftur sem þessu
nemur. „Eftir öllu,“ segir Sigurjón Pétursson, oddviti Alþýðubandalagsins í borgarstjórn.
26 HELGARPÓSTURINN