Helgarpósturinn


Helgarpósturinn - 19.06.1986, Qupperneq 23

Helgarpósturinn - 19.06.1986, Qupperneq 23
LISTAPOSTURINN Listasafn ASÍ: Umdeild ráðning forstöðumanns — Eru nöfn umsækjenda einkamál forystumanna ASÍ og stjórnar safnsins? Sólveig Georgsdóttir. „Efþetta á ad heita einhver ólýö- rœdislegur skandall, þá skyldu blaöamenn nú passa sig. Pá skyldu þeir aldeilis passa sig," sagöi Björn Th. Björnsson listfræðingur í samtali viö HP. Hann situr í stjórn Listasafns ASI en ráöning þjóð- háttafrœöings í stööu forstööu- manns safnsins hefur vakiö mikla óánœgju og gremju meöal listfrœö- inga og listamanna því þar var þjóöháttafrœöingur tekinn fram yfir mikils metinn listfrœöing, Halldór Björn Runólfsson. Að sögn Tryggva Þórs Aðalsteinssonar, sem situr í stjórn listasafnsins, óskuöu um- sœkjendur almennt ekki nafnleynd- ar og þrátt fyrir ítrekaöar tilraunir blaöamanns fengust nöfn umsœkj- endanna ellefu ekki upp gefin, en vitaö er aö fólk meö ólíkustu mennt- un aö baki sótti um stööuna, enda ekki tekiö fram í auglýsingu um hana aö listfrœöimenntun vœri áskilin. „Sólveig Georgsdóttir, sem ráðin var í stöðuna, er á sinn hátt afskap- lega hæf sem þjóðháttafræðingur og safnakennari en hún er líka virkur þátttakandi í menningarpólitísku starfi friðarhreyfingarinnar og Al- þýðusambandsins og hefur því haft æskilega stöðu fyrir þá sem réðu hana. Listfræðingurinn hefur hins vegar aldrei tekið að sér að messa í pólitískum guðsþjónustum," sagði Gunnar Kvaran listfræðingur í samtali við HP. Bera Nordal list- fræðingur sagði það fráleitt að svo hæfur listfræðingur sem hér um ræddi þyrfti að víkja fyrir þjóðhátta- fræðingi með takmarkaða kunnáttu í listasögu við ráðningu forstöðu- manns safns sem hingað til hefði gefið sig út fyrir að vera listasafn. í sama streng tók Ólafur Kvaran, formaður Félags íslenskra list- fræðinga, og sagði að túlka mætti þessa stöðuveitingu á þá lund að í framtíðinni ætti í safninu að fara fram önnur starfsemi en verið hefði og félli undir hefðbundna starfsemi listasafns. Það hlyti að vera í þágu safnsins að listfræðingur skipaði þessa stöðu. Listfræðingafélagið hefði hins vegar ekki enn fundað til að taka afstöðu til málsins en það yrði gert við fyrsta tækifæri. Samkvæmt nýjum reglum um Listasafn ASÍ fer ráðning forstöðu- manns þannig fram að stjórn safns- ins, sem samanstendur af tveimur fulltrúum ASÍ, tveimur listfræðing- um og forstöðumanni safnsins, fer yfir umsóknir og gerir tillögu um forstöðumann en síðan fer nefnd manna, sem miðstjórn ASÍ tilnefnir yfir tillögurnar og ræður í starfið. í nefndinni áttu að þessu sinni sæti Asmundur Stefánsson, forseti ASI, Þórður Ólafsson og Jón Agnar Egg- ertsson. Að sögn Tryggva Þórs Aðal- steinssonar, sem á sæti í stjórn safns- ins, var álit safnstjórnar og nefndar- innar samhljóða. „Það er svo margt sem kemur til greina þegar kostir, sem taldir eru nauðsynlegir for- stöðumanni, eru metnir," sagði hann. „í fyrsta lagi verður forstöðu- maðurinn að hafa áhuga á viðfangs- efninu, að auki innsýn í lista- og menningarlíf og ekki síst að geta verið góður framkvæmdastjóri, því þetta starf er að hluta til fram- kvæmdastjórastarf." Tryggvi sagði að það hefði ekki verið ætlunin að útiloka listfræðing frá ráðningunni en menn hefðu vilj- að gefa sem flestum tækifæri til að sækja um starfið og þess vegna ekki tekið fram að listasögumenntun væri áskilin. Að auki sætu í stjórn- inni tveir mikils metnir listfræðing- ar og því væri safnið ekki á flæði- skeri statt á því sviði. Tryggvi vildi ekki kannast við að pólitískar skoð- anir hefðu ráðið einhverju um ráðn- inguna, hann hefði ekki heyrt þær gagnrýnisraddir um þessa ráðn- ingu, enda hefðu umsækjendur ekki verið spurðir um stjórnmála- skoðanir sínar. „Maður sem lærir listasögu þarf ekkert að vera ágætur framkvæmdastjóri," sagði Björn Th. Björnsson, og bætti því við að safn- fræðingur þyrfti heldur ekkert endi- lega að vera góður framkvæmda- stjóri, en það væri trúnaðarmál hvernig atkvæði hefðu fallið í stjórn safnsins. Aðspurður um hvort skil- yrði þau sem Ragnar í Smára hefði sett fyrir veglegri stofngjöf sinni til safnsins hefðu með þessari ráðn- ingu verið brotin sagði Björn að Ragnar hefði einungis sett þau skil- yrði að tveir listfræðingar sætu í stjórn safnsins og það hefði alla tíð verið uppfyllt. HP hafði samband við fjölmarga listamenn vegna þessa máls og lýstu þeir allir yfir furðu sinni á þessari ráðningu. „Þetta er gjörsamlega óskiljanlegt," sagði Daði Guð- björnsson, formaður Félags ís- lenskra myndlistarmanna. Daði sagði að það léki enginn vafi á því að skref hefði nú verið stigið aftur á bak í þeirri eðlilegu þróun að list- fræðingar væru ráðnir sem for- stöðumenn listasafna. í sama streng tók Steinunn Þórarinsdóttir, for- maður Myndhöggvarafélagsins: „Ég hefði haldið að það hefði verið hyggilegra að ráða listfræðing í stöðuna, því safnið er að mörgu leyti misheppnað, t.d. hvað aðsókn varð- ar, og ekki hefur tekist að gera safn- ið að því sem það hefði getað orðið." Sólveig Georgsdóttir, nýráð- inn forstöðumaður, sagðist í sam- tali við HP vilja taka það fram að í listráði stjórnar safnsins sætu tveir virtir listfræðingar. „Ég er með list- fræðimenntun, þótt hún sé ekki mín aðalgrein, og stjórn safnsins og mið- stjórn ASÍ, sem höfðu með þetta mál að gera, hafa greinilega talið aðra þætti en listfræðimenntunm líka hafa skipt máli.“ Sólveig sagðist hafa verið virk í friðarhreyfingunni og tekiðþátt í skipulagningu Friðar- páska í Norræna húsinu á sínum tíma ásamt fólki úr öllu litrófi stjórn- málanna en flokkapólitík hefði hún aldrei komið nálægt. Því ekki verið neinn fótur fyrir því að hér væri um pólitíska ráðningu að ræða. Hlutverk Listasafns ASÍ er eink- um að reka sýningarsal safnsins á Grensásvegi, standa fyrir sýningum á vinnustöðumog stofnunum.vinna að listkynningarstarfi og bókaút- gáfu. Mrún TONLIST * Hlutur Islendinga of lítill Nú er Listahátíð í Reykjavík lokið í níunda sinn, að vísu ekki skakkafallalaust, en flestu tókst að bjarga á síðustu stundu eins og alltaf á íslandi. Á tónlistarsviðinu var þetta metn- aðarfull hátið að því leyti, að hvert stórstirn- ið af öðru og hvert öðru skærara tyllti sér hér sem snöggvast á flugi sínu milli stórborga og Listahátíða, svona rétt eins og krían. Sá er munurinn, að krían kemur alltaf aftur og set- ur þess vegna varanlegt svipmót á land og þjóð, en stjörnurnar koma fæstar aftur. Við getum þó huggað okkur við það að Kristján Jóhannsson kemur aftur í haust og vonandi sem oftast framvegis. Nú er sennilega flestum orðið ljóst, að tónninn í þessum pistli muni verða aðfinnsl- ur um hlut íslenskra tónlistarmanna á nýlið- inni listahátíð. Það er alveg rétt. Ég vil samt áður en iengra er haldið taka fram, að ég hef ekkert á móti stjórstjörnum á heimsmæli- kvarða og er eindregið fylgjandi því, að reynt sé að rjúfa einangrun okkar íslendinga og auðvitað er það ein af stórum stundum í lífi hvers og eins að komast í návígi við list manns eins og Claudio Arrau. En það má ekki gleyma að rækta eigin garð og hlutur ís- lenskra tónlistarmanna hefði mátt vera miklu stærri, það hefði ekki þurft að sleppa nema einni stjörnu. Það er nefnilega hægt að halda marga tónleika með íslenskum flytjendum og panta mörg ný verk fyrir það sem kostar að fá eina erlenda stjórstjörnu hingað. Listahátíðarstjórn tók þá stefnu að halda íslenskum flytjendum utan við hátíðina nema þeir flyttu íslenska tónlist og er mér kunnugt um, að nokkrum tillögum íslenskra tónlistarmanna í fremstu röð var hafnað á einmitt þessum forsendum. Kannski var í þessum hópi ungt fólk, sem gæti verið efni í stjórstjörnu, fengið þar stuðning og uppörv- un frá löndum sínum. íslendingum þykir nefnilega vænt um sitt fólk, það sýnir aðsókn og viðtökur gesta á tónleikum með íslenskri tónlist og á tónleikum Kristjáns Jóhannsson- ar og Sinfóníuhljómsveitar íslands. íslensk tónlist og íslenskt tónlistarfólk kemur okkur við. Einu sinni var Verdi nútímatónskáld, en ítalska þjóðin skildi að hann kom henni við, annars er ekki víst að tónlist hans væri eins mikil að vöxtum og hún er, eða að hún væri eins stór hluti af heimsmenningunni og hún er. Þessi ákvörðun gagnvart íslenskum flytj- endum var tekin á þeim forsendum (a.m.k. var það sagt eftir á), að í staðinn ætti að leggja áherslu á íslenska tónhöfunda, í því sambandi var bent á, að á hátíðinni væru flutt a.m.k. fimmtán íslensk verk á þremur tónleikum. Þetta er alveg rétt. Staðreyndin er samt sú, að frumkvæði Listahátíðar var ekkert í þessum efnum, og þessir tónleikar kostuðu ekki nema örlítið brot af heildar- kostnaði við tónlistaratriði hátíðarinnar. Þessir tónleikar hefðu orðið hvort eð var, nema sennilega ekki tónleikar The New Music Consort, þar sem aðrir aðilar hafa til þessa ekki haft fjárhagslegt bolmagn til að fá hópinn hingað. Það voru kennarar Tónlist- arskólans i Reykjavík sem efndu til tónleik- anna með verkum Jóns Nordals og lagði Listahátíð lítið af mörkum til þeirra. Á tón- leikum Guðna Franzsonar voru frumflutt fimm íslensk verk, ekkert þeirra varð til að tilstuðlan Listahátíðar. Öll tónskáldin á þeim tónleikum, nema eitt, eru enn í námi, þannig að ekki er hægt að segja að hlutur íslenskra tónskálda starfandi á Islandi hafi verið stór. Hvað með menn eins og Þorkel Sigurbjörns- son og Atla Heimi Sveinsson, sem hafa starf- að hér á landi í meira en tvo áratugi og hafa Kristján Jóhannsson: „Islendingum þykir nefni- lega vænt um sitt fólk, það sýnir aðsókn og við- tökur gesta á tónleikum með íslenskri tónlist á tón- leikum Kristjáns Jóhannssonar og Sinfóníuhljóm- sveitar Islands.'' eftir Karólínu Eiríksdóttur samið samtals hátt í 200 verk, sem eru flutt út um allan heim og sennilega minnst á ís- landi? Hvernig hefði verið að hafa tónleika með verkum þessara manna við hlið tón- leika Jóns Nordals og Guðna Franzsonar? Svo hefði mátt bjóða íslenskum einleikara að spila með Sinfóníuhljómsveitinni á opnunar- tónleikunum, annar íslenskur einleikari hefði getað haldið einleikstónleika í Há- skólabíói og hefði mín vegna ekkert frekar þurft að spila íslenska tónlist. Svo hefði verið hægt að borga íslenskum strengjakvartett laun í nokkra mánuði, panta verk handa honum og sleppa Vínarkvartettinum, með fullri virðingu fyrir þeim ágæta flokki. Eitt- hvað í þessa áttina hefði verið hægt að gera og þar með var orðin til íslensk listahátíð en ekki bara enn ein listahátíðin, sem er alveg eins og allar aðarar listahátíðir í heiminum og alveg eins og fyrri listahátíðir hér. Með svona listahátíð er hægt að vekja verulega athygli á íslenskri list og svona listahátíð hefði skilið eftir sig varanleg spor í íslenskri menningu. Ég minni á að þegar íslensk ópera, Silkitromman eftir Atla Heimi Sveins- son, var flutt á Listahátíð, þá var hér allt fullt af erlendum blaðamönnum og gagnrýnend- um, þá vakti Listahátíð í Reykjavík athygli. Við verðum að hafa það í huga, að það er litlum fjármunum varið til listalífs að öllu jöfnu á íslandi, þess vegna er mikil ábyrgð sem fylgir því að ákveða, hvernig ráðstafa skuli fé því sem veitt er til Listahátíðar, sem er talsvert fé á íslenskan mælikvarða. Mér finnst rétt að nota stærri hluta þess en nú var gert til þess að byggja upp íslenska list, en ekki að eyða því að mestu út úr landinu. HELGARPÓSTURINN 23

x

Helgarpósturinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.