Helgarpósturinn - 31.07.1986, Qupperneq 27
er æðisleg sálfræði að eiga við hár.
Meðan ég var enn að læra hugsaði
ég stundum: Guð minn góður, nú er
ég búinn að fá nóg! En á seinni árum
hefur hver dagur verið öðrum
skemmtilegri. Eg bíð eftir því að
komast í vinnuna og get ekki hugs-
að mér að fást við neitt annað. Og
Elsa er alveg sérstök. Hún hefur al-
gjörlega alið mig upp í faginu.
Hún er mjög strangur skóli. t>að
eru margir sem halda að nafnið á
hárgreiðslustofunum, Salon V.E.H.,
sé einhver sérviska eða útlenska. En
þetta eru bara upphafsstafir Elsu því
hún heitir fullu nafni Valborg Elsa
Haraldsdóttir. En hún verður alveg
brjáluð ef maður kallar hana í gríni
frú VEH!
Hún veitir stafsfólki sínu mjög
góða þjálfun, og alltaf þegar hún fer
út á námskeið eða sýningar tekur
hún einhvern með sér á sinn kostn-
að. Enda segir hún að það sé
strembnara að fylgjast með hártísk-
unni en fatatískunni. Ef maður fer
ekki út a.m.k. tvisvar á ári dettur
maður út.“
Starf I París
I næsta mánuði fer Simbi í sumar-
frí: Fyrst í tvær vikur á Ibiza en síð-
an ætlar hann á hágreiðslusýningu
í París og að öllum líkindum einnig
í London. ,,Ég get aldrei verið alveg
í fríi frá starfinu", segir hann. „Bæði
stirðnar maður alveg ótrúiega í
puttunum á þremur fjórum vikum,
og svo verður maður að nota tæki-
færið og fylgjast með tiskustraum-
um þegar maður fer til útlanda."
Þar fyrir utan segist Simbi vera
Parísarsjúklingur og fyrir rúmu ári
vann hann reyndar um tíma hjá
þekktum hárgreiðslumanni í París,
Jean Pierre Eudes, aðallega við
tískumyndatökur. ,,En Eudes er
með stofu á George V, rétt hjá
Camps Elysées, og þar vann ég líka
um tíma,“ segir Simbi. „Þangað kem-
ur mikið af gömlum kerlingum í
Chanel- eða Dior-drögtum. Þær eru
margar svo nískar að þær koma
með lagningarpeninga sína inn-
vafða í plastpoka! Greyin.
Frönsku viðskiptavinirnir þekktu
reyndar ótrúlega mikið til Islands.
Ein konan átti son sem safnaði ís-
lenskum bókmenntum á íslensku
sem hann skildi sama sem ekkert í.
„Guð minn góður, ekki tala um ís-
land!“ sagði þessi kona stundum við
mig. „Sonur minn er sírugiandi og
bullandi um þessar íslendingasög-
ur!“ “
— Þaö hefur ekki freistaö þín að
vera lengur í París?
„Ekki í svipinn. En það er ofsa-
lega gott að vita að maður á þarna
inngrip. Og mér þykir mjög vænt
um fastakúnnana mína á Salon
V.E.H. Yfirleitt kynnist maður ætt-
um þeirra og vinum. Það skapast
náin tengsl milli míii og þeirra og
þau skipta mig jafn miklu máli og að
„gera gott hár“."
Ekki hægt að
breyta endalaust
„Það veitir mikið sjálfsöryggi að
vera með gott hár. Sumar konur
vilja koma viku eftir viku, og biðja
alltaf um gjörbreytingu. Það er aftur
á móti ekki hægt að verða við þeim
óskum. Ein kona kom t.d. í hverri
viku, bara vegna þess að hún fílaði
sig svo vel á stofunni. Samt bað hún
alltaf um breytingu. Þá varð mér
einu sinni á að segja við eina sam-
starfskonu mína: Hvað á maður að
gera við kúnna sem kemur svona
oft? Þá brotnaði vesalings konan al-
veg niður. Það var greinilega eitt-
hvað að hjá henni. En það er bara
ekki endalaust hægt að skapa eitt-
hvað úr engu.“
— Eru einhver verkefni í sérstöku
uppáhaldi hjá þér?
„Því er erfitt að svara. En hingað
koma t.d. margar eldri konur sem
vilja hafa stíl og línu í hárinu, en í
samræmi við sinn aldur. Það finnst
mér t.d. mjög skemmtilegt verkefni,
því víða rekst maður á konur sem
ientu í „lagningartímabilinu" svo-
kallaða, og hafa aldrei kynnst
neinni línu í hárskurði. Sumar
þeirra, einhvers staðar á fimmtugs-
aldri, eru enn fastar í formleysinu en
fíla sig alltaf jafn smart."
Þegar ég kveð Simba fjórum tím-
um síðar og þakka fyrir spjallið og
meðferðina er ég gjörbreytt mann-
eskja, og fíla mig alveg rosalega
smart. .. Sannkallaður bjargvættur
í hárinu!
FREE
STYLE
FORMSKUM
LOREAL
nrrr'ri r . 1 ^gningarskúmið
SKÚM í hánfi? ** ^oreah
l UUI og hárgrnislan verður
leikur einn.
ÞÓRSMÖRK
(Verslunarmannahelgin)
Af gefnu tilefni skal það
tekið fram að Húsadalur í
Þórsmörk er öllum opinn.
Næg tjaldstæði og skála-
pláss fyrir hendi. Verið
velkomin.
SÍMI 622666
Þórsmerkurvökur
Laugavegi18A Sfmi622 666.
3. ACt/ST
*»**/ 4
;%Ét§m>
Wffl
mm
TÓNLElKAR
lau9a,dagog.unnua„
--sr”
Lótus
BjarniTrYggva
oa hVÍttldónGústalsson ogAbd
Hátfðardagskrá
sunnudag
Danssýningar Siggi Sigurjóns.
Bardagasýningar Karl Agúst Úlfsson
fþróttir og örn Árnason
Tónlist meðléttgrin
Hátíðarræða
Jón Gústafsson
:rkJdsTú°íö
a,,a he/g/na
'Mk*$&&&***
áro M-
Ip W ^ |N Aðgöngumiðav
SÆTAFERÐIR FRÁ BSl. AOEINS kf. 20C
SÆTAFERÐIR FRÁ BSÍ.
Aðgöngumiðaverð
AÐEINS kr. 2000.-
HELGARPÖSTURINN 27