Helgarpósturinn - 17.06.1987, Page 12

Helgarpósturinn - 17.06.1987, Page 12
ALNÆMI Á ÍSLANDI: FÆRRISÝKTIR EN SPÁÐ VAR ÁRANGUR ÓTRÚ- LEGUR SEGIR SIGURÐUR BJÖRNSSON. SÉRFRÆÐINGAR ÖSAMMÁLA. MARGRÉT: 80% VÆNDISKVENNA SÝKT. ÓSSKAR: GLEÐI- KONUR ERU EKKI ÁHÆTTUHÓPI Á íslandi greinast árlega 600 ný krabbameinstilfelli. Starfandi krabbameinslæknar á íslandi eru 8-10. Fram til þessa hafa 32 einstaklingar greinst með Aids-veiruna, fjórir þeirra haldnir alnæmi á lokastigi og af þeim eru tveir látnir. Við beinar rannsóknir á alnæmi starfa 6 manns. eftir Önnu Kristine Magnósdóttur 12 HELGÁRPÓSTURINN í fljótu bragði virðist mörgum sem verið sé að sóa of miklum fjármun- um í rannsóknir á Aids. Þegar betur er að gáð virðast hins vegar flestir sammála því að verja fé til þeirra rannsókna: „Ég álít að þeim fjármunum sem varið er til rannsókna á Aids sé mjög vel varið," sagði Sigurdur Björnsson krabbameinslæknir í samtaii við HP. „Ég held að aldrei hafi komið fram sjúkdómur sem á jafn skömm- um tíma hefur verið eins vel unninn upp og þessi sjúkdómur. Aids er erf- iður sjúkdómur og vírusinn er svo breytilegur, hann fer undan í flæm- ingi og er sífellt að breyta sér og fleiri atriði að finnast. Það hefur gíf- urleg bylting orðið á undanförnum fimm árum og þó okkur finnist kannski ekki nóg hafa verið að gert, vegna þess að Iækning hefur ekki fundist, þá er með ólíkindum hversu mikið hefur áunnist á stuttum tíma. Ekki bara fyrir Aids, heldur líka aðra vírussjúkdóma, smitsjúkdóma og einnig krabbamein. Mér finnst ekki hafa verið eytt of miklum fjár- munum í þessar rannsóknir. Það hillir nú undir það sem menn þorðu ekki að vona, bæði lyf til að með- höndla þá sem eru sýktir og eins hillir undir bóluefni á næstu fáu ár- um. Þetta er hræðilegur sjúkdómur sem á ekki að spara peninga til að rannsaka og ná sem mestum árangri í. Við á íslandi höfum ekki hellt okkur mikið út í þessar rann- sóknir því svörin koma frá stóru löndunum sem geta eytt í rannsókn- irnar gífurlegum fjármunum og hafa framúrskarandi mannskap í þessu, og mér finnst fyllsta ástæða til að við tökum þetta mjög alvar- lega." ÓTTINN VIÐ AIDS FER MINNKANDI Murgrét Guðnadóttir prófessor er ein þeirra sem sátu nýlega ráðstefnu um Aids í Washington. Hún segir ógerlegt að rekja í stuttu máli allt það sem fram kom á ráðstefnunni, enda stóð hún yfir í viku og skýrt var frá 1.250 verkefnum: „Það eru allar línur að skýrast núna í sam- bandi við svo margt. Þessi ótti sem greip um sig í fyrstu hefur farið minnkandi því fólk er farið að botna meira í sjúkdómnum en áður. Það. sem mér fannst merkilegast á þessu þingi var það hversu vel þekkt veir- an er orðin. Veiran hefur verið könnuð ákaflega vel á þessum fáu árum frá því hún fyrst fannst og það vekur sérstaklega athygli, að minnsta kosti hjá eldra fólki í veiru- fræði, hvað það hefur verið komist að miklu um hana á svo stuttum tíma. Þessa þekkingu eigum við mikið því að þakka að til var tækni sem áður hafði verið beitt á skyldar veirur." Veiran er orðin það vel þekkt, all- ur hennar ferill, hvernig hún ný- myndast og erfðaefnið í henni, eggjahvítuefniðsem hún hefur utan um sig og gerð hennar, þannig að það eru víssir „veikír biettir" á henni, ef svo má að orði komast, sem hægt er að verka á með efnum. Nú er verið að prófa efni á hana sem virðist gefast ágætlega. Það eru ýmsir að prófa sig áfram og ég veit um efni sem verið er að reyna á sjúklingum og kallast AZT. Það er komin nokkurra mánaða reynsla á það efni, en það er ekki reynt nema á fársjúku fólki, og það lengir greini- lega líf sjúklinganna og bætir ástand þeirra heilmikið. Þetta virkar þó þannig að það dofnar heldur yfir mergnum þannig að þurft hefur að taka suma af því. Það er alltaf spurn- ing um að finna iyf sem heldur veir- unni niðri, ekki lyf sem iæknar hana alveg. Eftir að sýking hefur einu sinni orðið nær enginn veirunni burtu úr þeim frumum sem hún er sest að í.“ FÍKNIEFNANEYTENDUR ÁHYGGJUEFNI — Er það rétt að Bretar og Banda- ríkjamenn séu ekki sammála um hvernig alnæmi smitast? „Slíkt verður aldrei gert með sam- þykktum. Veirur liafa sína lifnaðar- hætti. Þær eru eins og hverjar aðrar lífverur, þær breyta sér svolítið í náttúrunni og þær reyna að lifa eins og allar lífverur. Það er þeim eigin- legt og það er ekkert útséð um það hvernig þessi veira berst eða hvern- ig hún kom í upphafi, þetta eru hlut- ir sem eru ekki þekktir ennþá. Menn þekkja auðvitað þær leiðir sem eru mest áberandi eins og er, hvernig hún berst með samförum fólks og byrjar í þröngum hópum eins og kunnugt er. Homosexual- hóparnir eru þeir fyrstu sem verða fyrir henni, en það sem mér heyrist er að báðum megin Atlantshafsins sé aðaláhyggjuefnið hvernig hún hefur breiðst út hjá fíkniefnaneyt- endum, bæði með nálum og kyn- mökum þeirra. Þetta er oft á tíðum ungt fólk sem stundar vændi til að aflasér fjár til fíkniefnakaupa. Þetta er sú leið sem er hvað erfiðust núna og ekki gott að ná til þessa fólks. Þetta eru þeir hópar sem fæða göll- uð börn, annaðhvort stúlkur sem hafa verið eða eru í vímuefnum eða makinn er, eða hefur verið, stungu- efnaneytandi. Þá berst veiran í gegnum fylgjuna yfir í fóstrið og það er talið að það gerist í annarri hverri þungun, svona u.þ.b. Nú hafa fæðst nokkur hundruð börn í Bandaríkjunum með veiruna í sér. Blóðgjafareftirlitið virðist .hins veg- ar hafa tekist vel í flestum löndum, en svo eru iönd sem hafa ekki fjár- magn til að láta líta eftir blóðbönk- unum, eins og Afríkulöndin. Þó þetta sé tiitölulega auðveld og ódýr aðferð hafa þeir ekki peninga til að kanna blóðbankana þannig að þar er enn gefið sýkt blóð og í þessum löndum er langhæsta tíðnin. Ástandið þar er minna þekkt en á Vesturlöndum og sýkingin miklu útbreiddari." W — Erum við að eyða of miklum fjármunum í rannsóknir á alnæmi? „Nei, það finnst mér ekki. Mér finnst mjög gott sem fræðimanni hversu mikið hefur áunnist á stutt- um tíma. Ég er mjög bjartsýn eftir þettaþing að við fáum meðferð sem hægt er að nota á fólk sem hefur smitast þannig að það haldi heilsu í langan tíma þótt það hafi smitast af veirunni." — Er eitthvað sem ástæða er til að vara við á þessum tíma? „Já, það er fyllsta ástæða til að ítreka það að vœndiskonur eru ekki undir heilbrigðiseftirliti. Þess mis- skilnings hefur gætt að það sé heil- brigðiseftirlit með vændiskonum hvað þennan sjúkdóm snertir. Það er ekki rétt. Það eru harðar stað- reyndir að menn slysast inn á værid- ishús og það má benda á að þar er mikil hætta á sinitun. Um 80% þeirra sem stunda vændi, bæði inni á vændishúsum og götum úti, eru sýkt" ÓSKYNSAMLEGT AÐ FARA ÚT í RANN- SÓKNIR HÉR En það eru önnur sjónarmið ríkj- andi en þau hvort of miklu sé eytt í rannsóknir á alnæmi. Óskar Arn- bjarnarson lœknir segir sitt mat að ekki sé varið of miklum fjármunúm til Aids-rannsókna í heiminum, ,,enda er það ævintýri líkast hvernig tekist hefur á skömmum tíma að komast að orsökum sjúkdómsins og finna mótefnapróf gegn veiruqni. Þá virðist sem áhrifaríkt bóluefni muni verða framleitt á næstunni auk þess sem svo virðist að fram sé komið lyf sem verði alnæmissjúkl- ingum til hjálpar. Að þetta skuli hafa gerst á sex árum er ævintýri líkast og þetta hefði ekki tekist nema miklurn fjármunum hefði verið var- ið til Aids-rannsókna. Hvað ísland varðar er mér ekki kunnugt um að neinar grundvallarrannsóknir fari fram á Aids-veirunni. Ég mundi í fljótu bragði ekki telja skynsamlegt að íslendingar færu út í rannsóknir þar sem þeir fjármunir sem við get- um eytt til slíkra rannsókna eru svo litlir að þeir myndu aldrei nýtast. Það sem við gætum frekar lagt til markanna til þekkingar manna yfir- leitt á alnæmi er útbreiðsla þess á eyju úti í Atlantshafinu, hvernig það byrjar og breiðist út. Þær rannsókn- ir sem fara fram á íslandi á alnæmi virðist mér vera fyrst og fremst mót- efnamælingar og mér er ekki ennþá Ijóst að hve miklu leyti þær eru vís- indalegar til að kanna útbreiðslu al- næmis í litlu, einföldu samfélagi, sem er öðruvísi samansett en flest samfélög í kringum okkur, hvað varðar bæði notkun fíkniefna sem gefin eru í æð og vændi. Mér er ekki Ijóst hversu mikið af þessum rann- sóknum er aðeins liður í rannsókn eða að hve miklu leyti þær eru hugs- aðar til að hefta útbreiðslu sjúk- dómsins. Hins vegar veit ég ekki hversu miklum fjármunum er varið til rannsókna á Aids á íslandi og get því ekki svarað þeirri spurningu hvort of miklu sé eytt til þeirra hér á landi." ALNÆMISH RÆÐSLAN „Hins vegar eru fleiri vandamál í sambandi við alnæmi en rannsókn- ir og fleiri vandamál en sjúkdómur- inn sjálfur. Það er komið upp nýtt vandamál, sem er alnœmishrœösl- an. Þar er nýtt vandamál sem þarf að bregðast við og ég tel að á ísiandi hafi menn ekki verið nógu varkárir þegar umræðan um ainæmi fór af stað. Hún einkenndist of mikið af hræðslu. Útbreiðsla á alnæmi á ís- landi er afskaplega lítil. Það eru aðeins rúmlega 30 manns sýktir af veirunni, adeins fjórir hafa sjúk- dóminn alnœmi og aðeins tveir hafa dáið. Þótt þetta sé auðvitað mikil sorg fyrir þá sem fyrir þessu hafa orðið er þetta ekki þjóðfélags- vandamál. Þetta er í rauninni af- skaplega lítið heilsuvandamál enn sem komið er. Það sem menn óttast er að þetta veröi vandamál. Það sem allt málið snýst um er: Hvernig er líkiegt að alnæmi breiðist út á ís- landi? Eg tel persónuiega að út- breiðsla alnæmis verði hægari en gert hefur verið ráð fyrir og það er afskaplega ánægjulegt tii þess að vita að enn sem komið er virðist al- næmi á Vesturlöndum ekki hafa breiðst út fyrir áhættuhópana og að líkur til þess að maður sem ekki er í áhættuhópi fái alnæmí eru hverf- andi litlar og nánast engar. Og það eru líkur til þess að þetta breytist ekki á næstunni. Mér hefur stund- um virst sem það hafi verið farið óvarlega með áróður um hættuna sem almenningi stafar af alnæmi á íslandi. Til dæmis hefur því verið haldið fram að ungt fólk sem „gjarn- an geri tilraunir í kynlífi og fíkni- efnaneyslu" sé í sérstakri hættu. Það er enginn aldurshópur í þjóðfélag- inu, hvorki á íslandi né á Vestur- iöndum, sem er í eins lítilli hœttu á að fá alnæmi og unglingar. Ástæðan er sennilega sú að þeir nota ekki lyf og stunda ekki þá tegund homo- sexual kynlífs sem hefur átt mestan þátt í að breiða sjúkdóminn út í Evr- ópu og Bandaríkjunum. Mér finnst ekki rétt að hræða unglinga á þenn- an hátt því líkurnar á að unglingur sem ekki er í áhættuhópi fyrir al- næmi smitist af alnæmi á íslandi í dag eru hverfandi iitlar eða nánast engar. Mér finnst einnig að ieggja eigi meiri áherslu á að útskýra fyrir fólki hverjir eru í áhættuhópi og hverjir ekki. Gleðikonur eru til dæmis ekki í áhættuhópi þeirra er fá alnæmi, hvorki í Bandaríkjunum né í Evrópu. Nýlegar rannsóknir á u.þ.b. 100 gleðikonum í London sýndu að engin þeirra var með al- næmi. Jafnframt var svona rann- sókn gerð í París á 100 konum, eng- in þeirra reyndist sýkt af alnæmis- veirunni, og af 400 gleðikonum í Núrnberg var engin þeirra með al- næmisveiruna. Hitt er annað mál að auðvitað eru margar gleðikonur sem hafa aðra áhættuþætti fyrir al- næmi, nota annaðhvort fíkniefni sjáifar eða búa með mönnum sem hafa aðra áhættuþætti. Faraldurs- fræði sjúkdómsins á Vesturlöndum er mjög vel þekkt og við vitum mjög vel hvaða fólk er í áhættuhópum almennt. Þess vegna er ekki rétt að tala um „svokallaða áhættuhópa" — þetta eru áhættuhópar. Faraldurs- fræði alnæmis á Vesturlöndum er vel rannsakað mál.“ — Hvað um það atriði að Banda- ríkjamenn og Bretar séu ósammáia um hvernig alnæmi smitast? „Þessu verður að svara í tvennu lagi. í fyrsta lagi er það spurningin um faraldursfræði alnæmis. Eins og áður sagði er faraldursfræðin mjög vel þekkt. Það er vitað að alnæmi smitast viö kynmök, viö sameigin- lega notkun ódauöhreinsaöra sprautunála, viö blóögjafir og frá móöur til barns, en ekki á annan hátt. Það er því alveg ljóst faraldurs- fræðilega hvernig alnæmi smitast. Hins vegar vantar þó nokkuð á líf- fræðiiega þekkingu manna á því hvernig veiran berst frá einum ein- staklingi til annars og þeirri spurn- ingu verður ekki svarað með meiri- hlutasamþykktum á þingum eða með rökræðum, heldur aðeins á grundvelli frekari vísindalegra rannsókna. Ég vissi ekki sjálfur að það væri munur á þekkingu og skoðunum manna eftir löndum. Hins vegar er talsverður ágreining- ur um það við Afríkumenn hver far- aldursfræði alnæmis er í Afríku en því hefur verið hreyft að hluti af þeim ágreiningi sé pólitískur, þ.e.a.s. að yfirvöld í vissum Afríkuríkjum vilji ekki viðurkenna að útbreiðsla alnæmis sé eins mikil þar og vís- indamenn álíta. En þeirri spurningu verður auðvitað líka aðeins svarað með áframhaldandi rannsóknum, sem eru mjög erfiðar í Afríku."

x

Helgarpósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.