Helgarpósturinn - 17.06.1987, Qupperneq 17

Helgarpósturinn - 17.06.1987, Qupperneq 17
SIGURLAUG BJARNADÓTTIR FRÁ VIGUR ræðir við hana þeim mun auðveldara á maður með að skilja hvers vegna hún kaus að gera þá uppreisn sem hún gerði á Vestfjörðum í kosning- unum 1983. „Þegar þessir menn höfðu ítrekað komið í veg fyrir prófkjör og liðin voru heil 12 ár frá því próf- kjör hafði síðast verið haldið á Vestfjörðum, einu kjördæma, þá var sérframboð einfaldlega óumflýjanlegt. Það varð ekki komist hjá sér- framboði. Sjálf átti ég ekki frumkvæðið, en ég iðrast einskis. Þetta var stríð á meðan á því stóð og við svipaðar kringumstæður myndi ég end- urtaka það. VONA AÐ SJÁLFSTÆÐISMENN SAMEINIST — Hvað sýnist þér um ástandid í Sjálfstœdis- flokknum og tilkomu Borgaraflokksins? ,,Það er nú erfiðara að spá um framtíð Sjálf- stæðisflokksins en margt annað í dag. Eins og fleirum hefur mér þó fundist flokkurinn vera að þróast í átt til meira flokksræðis. Mér finnst ég finna að það hafi einkum verið fólk sem á minna undir sér sem fór yfir til Borgaraflokksins, fólk sem ekki telst til hinna breiðu baka í þjóðfélag- inu. — livad um hugsanlega sameiningu? „Auðvitað vona ég að menn sameinist á ný, en þá verður líka forysta Sjálfstæðisflokksins að breyta talsvert um vinnubrögð og reyna að höfða meira til venjulegs fólks. Einhvern veginn hefur forystumönnum flokksins tekist verr en oft áður að virkja hinn almenna flokksmann. Ég vil samt alls ekki afskrifa Þorstein Pálsson. Að- staða hans hefur verið nokkuð erfið. Hann kom upphaflega úr þessum frjálshyggjuhópi. Nú verður hann að gæta þess að sigla byr beggja. Þorsteinn kemur mjög skyndilega inn í þetta og það er mikið álag á ekki eldri og reyndari mann.“ Við Sigurlaug ræðum um síðustu þingkosn- ingar og ég spyr hana m.a. hvort hún hafi ekki verið svolítið hrifin af Þjóðarflokknum. „Jú, ég hafði mikla samúð með Þjóðarflokkn- um. Vestfirðingar, ekki síst vestfirskar konur, hefðu átt að sjá sóma sinn í að kjósa efsta mann- inn á lista hans, Jónu Valgerði Kristjánsdóttur." VANTAR EITTHVAÐ í ÞÁ ÍSLENDINGA — Hefdir þá gert þaö? „Já, alveg hiklaust. Ég er óánægð með fram- gang Sjálfstæðisfiokksins í byggðamálum og finnst hugsjón flokksins um jafnvægi í byggð landsins heldur farin að daprast. Ég tel mikla hættu steðja að landsbyggðinni. Byggð á íslandi er ákaflega viðkvæm. Þetta er ekki eingöngu spurning um arðsemi heldur alla okkar þjóð- menningu. Sveitir landsins eru í mikilli hættu og mér finnst hreinlega að það vanti eitthvað í þá Islendinga sem láta sér afdrif þeirra í léttu rúmi liggja“ — Að lokum Sigurlaug. Megum við eiga von á að sjá þig í slagnum á ný? „Nei, það er ekkert sem bendir til þess að svo verði. Væri ég tuttugu árum yngri hefði ég ör- ugglega ekki lagt árar í bát. En í dag finnst mér nóg til af ungu og hæfileikaríku fólki sem full- fært er um að taka við.“ Við þökkum Sigurlaugu fyrir spjallið og óskum henni góðrar ferðar í stúdentsafmælið á Akur- eyri. HÉLGARfÓeRHiðíHW 17 viðtal Garðar Sverrisson mynd Jim Smart

x

Helgarpósturinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.