Helgarpósturinn - 03.09.1987, Qupperneq 31
FRÉTTAPÓSTUR
Lausn í Útvegsbankanum í sjónmáli?
XJppstokkun í bankakerfinu hefur lengi verið á döfinni
meðal stjórnmálamanna hérlendis og kemur frestun loka-
ákvörðunar viðskiptaráðherra ekki á óvart. Báðherrann tel-
ur tilboð Sambandsins og „einkageirans“ bæði í gildi og
jafnrétthá. Sú hugmynd hefur komið fram, í samningavið-
ræðum um sölu hlutafjár ríkisins í Útvegsbankanum, að
Búnaðarbanki og Landsbanki kaupi hlutaféð. Síðan yrði
bönkunum tveimur breytt í hlutafélag og þeir seldir. Með
því móti yrði bönkum fækkað, viðskiptabankar í eigu ríkis-
ins seldir og markmiði ríkisstjórnarinnar þannig náð. En
ný útgönguleið virðist vera að opnast fyrir rikisstjórnina í
sölumálunum. Starfsfólk og viðskiptamenn Útvegsbankans
íhuga nú möguleika á hlutafjársöfnun á breiðum grund-
velli. Viðskiptaráðherra útilokar ekki sameiginleg kaup
þeirra aðila sem hafa sýnt áhuga á Útvegsbankahlutabréf-
unum og framundan eru samræður þeirra um lausn á Út-
vegsbankamálinu.
Fréttapunktar
• Meira um bankamál. Frá og með 1. sept. hækkar há-
marksupphæð sú sem bankar og sparisjóðir ábyrgjast ef
greitt er með tékkum og bankakorti framvísað, úr 3.000
krónum í 10.000 krónur.
• Mikill skortur virðist nú vera á innlendu vinnuafli í fram-
leiðslugreinar hér á landi. Þegar er farið að ráða útlendinga
til starfa og eru þeir væntanlegir á næstu vikum og mánuð-
um. Jafnvel hefur komið fram hugmynd hjá aðila í sjávarút-
veginum um þegnskylduvinnu í fiskverkuh til að tryggja
vinnuafl!
• Mikill skortur er enn á fóstrum og öðru starfsfólki á dag-
heimili Reykjavíkur og viðar. Allt útlit er fyrir að draga
þurfi úr starfsemi nokkurra heimila á næstunni.
• Mikill kennaraskortur er nú í skólum landsins. Það hefur
leitt til þess að æ fleiri réttindalausir kennarar taka til
starfa nú í haust. Menntamálaráðuneytinu hafa þegar bor-
ist beiðnir um undanþágu fyrir á fjórða hundrað leiðbein-
endur, en það verður framvegis starfsheiti réttindalausra
kennara.
• Svavar Gestsson, formaður Alþýðubandalagsins, gefur.
ekki kost á sér til endurkjörs á landsfundi flokksins í haust.
Með þessari ákvörðun vill hann halda sig við endurnýjunar-.
reglur flokksins, sem gera ráð fyrir að formenn sitji ekki
lengur að völdum en í sex ár. Ennfremur telur hann að þeir
sem eru hvað mest markaðir af innanflokksátökum eigi að
láta af störfum til þess að auðvelda endurskipulagningu
innan forystunnar.
• Hreyfing Græningja skýtur víða rótum. Nýstofnuð sam-
tök þeirra á íslandi munu sem önnur Græningjasamtök
berjast fyrir umhverfis-, friðar- og jafnréttismálum.
• Ríkisstjórnin hefur ákveðið að halda áfram hvalveiðum i
visjndaskyni.
• Á þingi landssambands sjálfstæðiskvenna um síðustu
helgi var Þórunn Gestsdóttir endurkjörin formaður sam-
bandsins.
• Borgarráð hefur ákveðið að skilja að innheimtu Hitaveitu
Reykjavíkur og Rafmagnsveitu Reykjavíkur, að sögn til þess
að hitaveitan geti veitt viðskiptamönnum sínum nægilega
góða þjónustu.
• Utanrikisráðherra Kína, Zheng Tuobin, var i opinberri
heimsókn hér á landi um mánaðamótin. Auk viðræðna við
ráðamenn spilaði hann golf á Grafarholtsvelli í grenjandi
rigningu og lét vel af. Hann telur að kínverskir golfarar geti
margt lært af íslendingum um rekstur golfvalla.
• Löngun til þess að takast á við ný störf og breyta til varð
til þess að hagfræðingur ASÍ sl. 7 ár, Björn Björnsson, sló til
og gerðist aðstoðarmaður Jóns Baldvins Hannibalssonar
fj ár málaráðherra.
• Hörð gagnrýni á stjórn VMSÍ kom fram á formannafundi
sambandsins á dögunum. Stjórninni er borið á brýn að sýna
ekki nægilega hörku og dugnað í hagsmunabaráttunni.
• Bæjarfógeti Hafnarfjarðar, Már Pétursson, telur ólíklegt
að höfðað verði meiðyrðamál á hendur ríkisútvarpinu vegna
ummæla í frétt sjónvarpsins af svokölluðu Svefneyjamáli.
• IJm síðustu helgi náði ofbeldisgleðin hámarki á landinu.
Reykvíkingur var skorinn á háls í miðborginni, Dalvíking-
ur var stunginn í brjóst og í Njarðvík var ungur maður
stunginn til bana. Það er vonandi að útrásinni sé nú lokið.
• Ný útvarpsrás verður opnuð á Bylgjunni á næstu mánuð-
um. Dagskrárstjóri nýju rásarinnar hefur verið ráðinn Jón-
as R. Jónsson.
• Millilandafargjöld hjá Flugleiðum hækkuðu um 7,5—9%
um síðustu mánaðamót.
• Frammarar urðu sigurvegarar Mjólkurbikarkeppninnar
eftir leik kattarins að músinni, er þeir unnu Víði í Garðimeð
5 mörkum gegn engu.
• Feðgarnir Jón Ragnarsson og Rúnar Jónsson unnu
öruggan sigur í Ljómarallinu. Þeir höfðu forystu allan tím-
ann og komu 23 mínútum á undan næsta bil í mark.
1/ið hefjum starfsemina með rómantiskum argentinskum tangó.
Stutt, hnitmiðað námskeið (7,—12. sept.), kennari: Charles Leuthold frá Sviss.
Morgun- og hádegistímar í leikfimi, teygjuleikfimi og dansleikfimi
fyrir konur og karla hefjast einnig 7. sept. Aðrir tímar hefjast 14. sept.
Aðal kennari vetrarins er Bandaríkjamaðurinn Cle’ H. Douglas.
KRAMHÚSIÐ býður fjölbreytt úrvai vandaðra námskeiða.
. „„ tejett - afrocarabianjass - stepp.
,ss-n—tíW ^
Kennari: S'griður Eyþórsdótt"9
~ teuyÍu,eikfimi - dansleikfimi. Rokk’n ’ Roll.
ennarar. Hafdis - Eíisabet — Bryndís. Kennari: Didda Rokk.
Kennari:
Gestakennari Kramhússins:
Cle’ H. Douglas
Menntun:
Ballett: Boston Ballet Theater. - Royal Ballet, Montreal.
Modern: Boston Ballet Theater. - Horton Technique, Alvin Ailey Dance Center New York.
Graham Technique, Gramham School of Modern Dance, New York.
Jass: Fred Benjamin - New York. Harlem School of Dance, New York.
La Choreographique Jazz de Paris.
Afro: Jamaica National Dance Theater, Jamaica. - Trinidad New Dance Studio, New York.
Yarburough Dance Theater, Haiti.
Innritun hafin!
Pantiö strax!
Símar 15103 og 17860.
Dans og leiksmiðja v/Bergstaðastræti.
S
X
s
N
HELGARPÓSTURINN 31