Helgarpósturinn - 03.03.1988, Blaðsíða 6

Helgarpósturinn - 03.03.1988, Blaðsíða 6
Eysteinn er því mótfallinn og telur sig raunar ekki hafa til þess laga- heimiid nema fyrir iiggi samþykkt stjórnar fyrirtækisins í þá veru. Ein- hvern tíma á sl. sumri á Guðjón að hafa sett Eysteini þá úrslitakosti að reka Geir eða vera rekinn sjálfur. Að sögn Guðjóns B. Ólafssonar í Tímanum sl. þriðjudag hafi þá — eft- ir miðjan ágúst — farið að berast út alls konar gróusögur um hann. Stjórnarfundur Iceland Seafood í Reykjavík 9. nóvember er svo vendipunktur í málinu. Það er ljóst, að einn stjórnarmanna, Erlendur Einarsson, fyrrverandi forstjóri, leggur þar fram plögg, sem eiga að sýna að greiðslur Iceland Seafood til Guðjóns á forstjóratímabili hans séu langt umfram þá samninga, sem Er- lendur sem þáverandi stjórnarfor- maður hafi gert við Guðjón. Hér voru með öðrum orðum lagð- ar fram ásakanir um meintan fjár- drátt, sem síðar kom í ljós, að ætti að geta legið á bilinu 300—600.000 dollara eða frá 12—30 milljónum ís- lenskra króna. Þetta eru býsna al- varlegar ásakanir bornar fram af fyrrverandi forstjóra SÍS og stjórnar- formanni Iceland Seafood, sem hafði setið þar alla forstjóratíð Guð- jóns, farið yfir ársreikninga með stjórn sinni og undirritað þá, en uppgötvar nú allt í einu tugmilljóna umframgreiðslur, sem á tæpitungu- lausri íslensku verða ekki kallaðar annað en fjárdráttur. Guðjón and- mælti þessum ásökunum þegar á þessum fundi og kvað allar greiðsl- ur á þessu tímabili í samræmi við ráðningarsamning sinn og áriegar minnisnótur Erlendar, er sendar hefðu verið endurskoðunarfyrir- tæki Iceland Seaíood, Laventhol og Harward, og iögfræðingi þess til út- færslu. Nú gat Erlendur ekki sætt sig við þessa útfærsiu, þótt hann hefði gert það sem stjórnarformaður und- angengin 12 ár. (Minni Erlendar er annars viðbrugðið eftir yfirheyrslur í kaffibaunamálinu, en þá hafði hann glatað því með öllu.) Hélt Erlendur fast við, að þetta mál yrði að rannsaka og skoða nánar. Næsti stjórnarfundur er haldinn í endaðan desember og sitja hann all- ir stjórnarmenn, nema Guðjón B. Ólafsson. Á þessum fundi eru lagðar fram skýrslur hinna bandarísku endurskoðenda, L&H, dagsettar 30. nóvember og 7. desember, um að allar greiðslur til Guðjóns á um- ræddu tímabili séu í samræmi við minnisblöð frá Erlendi, útfærð í samræmi við amerísk lög og við- teknar viðskiptavenjur. A þennan stjórnarfund mætti einnig Eysteinn Helgason og hlýtur að hafa þar gert grein fyrir sínum málum. Síðan eru haldnir stjórnarfundir 29. janúar, 12. febrúar og 24. febrú- ar. Á fyrst talda fundinum er enn lögð fram ný skýrsla Erlendar um greiðslur til Guðjóns frábrugðin hinni fyrri og dags. 2. desember, þótt Guðjón fengi fyrst að líta hana augum nær 2 mánuðum seinna. Marteinn Friðriksson, stjórnarmað- ur frá Sauðárkróki, segir í viðtali við Tímann, að eftir fundinn 12. febrúar hafi hann talið að málið væri útrætt. En um mánaðamótin skrifaði for- maður Sambandsstjórnar, Valur Arnþórsson, bréf til stjórnar ISC og fór þess á leit að endurskoðandi SÍS, Geir Geirsson, fengi að yfirfara þau gögn, sem fyrir lægju um greiðslur til Guðjóns, og afla viðbótargagna í bókhaldi þess vestra. Ekki munu hafa verið greidd atkvæði um þessa tillögu á fundinum, en formaður og varaformaður stjórnar hafa heimil- að þetta fyrir sitt leyti að loknum fundi. Fyrir fundinn 12. febrúar kom til landsins Stanford (Sandy) Snider, yfirmaður Laventhol og Harward, og kynnti og útskýrði gögn fyrir- tækisins, sem áður höfðu verið lögð fram. Annað þeirra mun hafa verið stutt greinargerð um útreikningsað- ferðir amerísku endurskoðendanna án nokkurrar talnaútfærslu. Hitt mun hafa verið öllu bitastæðara og innihaldið útreikninga, þótt ekki muni það geta orðið nein undir- staða endurskoðunar endurskoð- andans á amerísku endurskoðend- unum. Enn bíður endurskoðandinn eftir gögnum að vestan til að geta hafið starf sitt. Að loknum fundinum báru endurskoðendurnir saman bækur sínar um framhald málsins. Á síðast talda fundinum, 24. febr- úar, töldu Sigurður Markússon, framkvæmdastjóri sjávarafurða- deildar SÍS, og Marteinn Friðriks- son, framkvæmdastjóri Fiskiðjunn- ar á Sauðárkróki, að nægar upplýs- ingar væru komnar fram um greiðslur til Guðjóns frá Icelandic Seafood, og að þær væru í fullu sam- ræmi við gerða samninga við Erlend Einarsson, þáverandi stjórn- arformann. í framhaldi af því var samþykkt að víkja Eysteini Helga- syni og Geir Magnússyni þegar í stað frá störfum, enda töldu frysti- húsamenn SÍS aðkallandi að bæta úr því ófremdarástandi, sem þeir töldu orðið ríkja í fyrirtækinu vestra og stefndi hagsmunum þeirra í voða. Samþykkti fundur sambands- frystihúsanna fullt traust á Guðjón, honum til styrktar í aðgerðum fram- undan. Þann 26. febrúar fljúga þeir Guð- jón B. og Sigurður Markússon vestur um haf, taka stjórn verksmiðjunnar í eigin hendur, setja sölustjórann, Marty Finkelstein, forstjóra til bráðabirgða og hefjast handa um að endurreisa móralinn hjá starfsfólk- inu, sem þeir segja hafa verið í mol- Eysteinn Helgason á blaðamannafundi um brottreksturinn. Fullyrðir að hafa verið rekinn að ástæðulausu. Segist engan þátt eiga í umræð um um launamál Guðjóns B. Ólafssonar. um, svo og traust viðskiptavinanna, sem þeir segja hafi verið hartnær þorrið. Og nú hefst sannkölluð fjölmiðla- hátíð. Hver frétt endist naumast nema fram að næsta fréttatíma eða næsta blaði, þegar hún er yfir- skyggð af næstu frétt. Á sunnudag birta báðar sjónvarpsstöðvarnar frétt byggða á ónafngreindum heim- ildum, sem kveða mismun þeirra upphæða, sem raunverulega eru greiddar Guðjóni, og þeirra, sem Erlendur telur ha.fa átt að greiðast samkvæmt samningum sínum við hann, nema 600 þúsundum dollara á 5 árum, sem önnur stöðin reiknar sem allt að 30 milljónir króna, en hin sem 24 milljónir. í DV daginn eft- ir er upphæðin orðin 12 milljónir á 12 árum, eða ca. 300 þúsundir doll- ara. Á mánudag fékk Eysteinn Helga- son útvarps- og sjónvarpstíma af blaðamannafundi sínum, eins og þjóðhöfðingi hefði verið að stíga af stóli út af kvennafari. Eftir helgina fer að heyrast frá Guðjóni svo um munar: „Fljótlega eftir að ég hafði látið mín- ar hugmyndir um það sem hér þyrfti að gera (reka Geir Magnússon, síðar einnig Eystein Helgason) í ljós fóru að berast fyrstu gróusögurnar um mín fjármál. Þær mögnuðust og svo fór, að mér var gefið til kynna aftur og aftur, að ef ég héldi mig við að segja þessum mönnum upp þá yrði farið í fjölmiðla á íslandi með þessar gróusögur." (DV, þriðjudag.) „ „Ef ég ekki hætti við þessi áform, þá yrði þetta eða hitt gert að blaðamat á Islandi. Þessi þrýstingur fór vaxandi og svo kom að nýlega gerði ég mér ljóst, að ef ég endur- skoðaði afstöðu mína til þess að mennirnir hættu hér störfum, þá væri boðið upp á, að þessi spurning um greiðslur yrði úr sögunni." Hann vildi ekki nefna neina aðila sérstak- lega í sambandi við þetta atriði, en svona hefðu málin verið lögð fram.” (Tíminn þriðjudag.) „Guðjón sagði, að eins og allur málatilbúnaður væri í sambandi við launamál sín væri engu líkara en að hér væri um skipulagt samsæri að ræða.“ (Morgunblaðið miðvikudag.) Þannig standa málin í dag. Það er járn í járn. Annars vegar ásakanir Erlendar um „ofgreiðslur”, sem á venjulegu máli verður að kalla fjár- drátt. Hins vegar frá Guðjóni um ógnþvinganir („blackmail"). Þjóðin stendur agndofa. Samvinnuhreyf- ingin, 46 þúsund manna fjöldahreyf- ing, eins og það heitir í hátíðarræð- um, heimtar spilin á borðin. Guðjón kemur heim í dag. Eysteinn er á för- um aftur. Hvað gerist næst? (fnn í þessa tilraun til atburðaskip- unar í tímaröð vantar að mestu Vals þátt Arnþórssonar. Hann neitaði að láta hafa nokkuð eftir sér. Sömuleið- is Geir Magnússon.) KEDJUSPRENGING ERLENDAR GÆII TORTÍMT SÍS Maöurinn, sem í nœstsídasta HP var uppmálud hógvœrdin og lítillœtid, stendur nú á midju svidi og badar sig í skini kast- Ijósanna. Hann hefur reynst vera lykilpersónan í því ógnþrungna drama, sem leikid hefur veriö eins og framhaldsópera í öllum fjölmidlum landsins síðustu vikuna: „Sláturtíö I SÍS-moU". Skúrkur eða skírlífisseggur? Það er of snemmt að svara því. Þetta er auðvitað Erlendur Einarsson, sem fyrir hálfum mánuði „vildi ekkert tjá sig um málefni SÍS og neitaði að svara spurningum Helgarpóstsins um átök og óánœgju innan fyrirtœkisins. „Ég vil ekki blanda mér beint í málefni Sambandsins, ég er hœttur að starfa þarna, og má ekki sem fyrrverandi forstjóri fara að blanda mér í þessi mál. Þú veröur aö tala viö einhvern annan en mig." “ Svo reyndist hann vera maöurinn, sem haföi komiö sprengjunni fyrir á leiksviöinu miöju, gert hana virka, tímasett gangvirkiö og búiö hana þeirri nœmni aö hver, sem reyndi aö fitla viö hana til aö aftengja hana, hlaut sjálfur aö farast! Hér er auövitaö átt viö greinargerð Erlendar, sem hann lagöi fram á stjórnarfundi Icelandic Seafood Corp. (ISC) 9. nóvember síöastliöinn um „ofgreiöslur” til Guöjóns B. Ölafssonar miöaö viö þá samninga, sem Erlendur haföi sjálfur viö hann gert sem stjórnarformaöur. Mörgum finnst undarlegt aö Erlendur skuli nú fyrst aö lokinni stjórnar- formennsku hafa „upplýsingar" sem honum hafa ekki veriö tiltcekar áöur. Menn hljóta aö skipa þessu í samhengi viö þaö, sem á undan er gengiö: Hótun um brottrekstur forstjóranna Eysteins og Geirs. Flestir munu álykta, sem svo: Þegar menn finna aö sér þrengt sjá þeir um aö koma upplýsingum af þessu tagi úr bókhaldi fyrirtœkisins á framfœri viö hliöhollan mann og túlka þœr einhliða sér í hag. Þessar nýju upplýsingar, sem Erlendur kom aldrei auga á í stjórnarformennskutíö sinni, hljóta aö hafa veriö tilreiddar t Harrisburg af þeim Geir eöa Eysteini eöa báðum og a.m.k. með vitund beggja. Þessu þver- Erlendur Einarsson neitar Eysteinn. Erlendur hljóti allt í einu aö hafa fariö aö yfir- vega reikningana meö meira innsœi en áöur og hafi byggt sinn málatilbúnaö allan upp sjálfur. Er hann einn? Eru fleiri? Er þetta samsœri? Um hvaöa kosti átti Guöjón aö velja eftir aö þessi tímasprengja var gangsett? Þiggja friö um fjár- mál stn gegn því aö hrófla ekki viö mönnunum, sem hann var sannfœröur um aö vœru aö fara meö óskabarn hans og eftirlœti, ISC, til fjandans. Þaö mundi svo fylgja honum eins og skuggi allan feril hans, aö þarna heföi veriö eitthvað meira en lítiö grunsamlegt á feröinni, þótt góö- viljaöir og þcegilegir menn heföu hjálpaö honum að krafsa yfir þaö til aö skaöa ekki fyrirtœkiö. Þvœla máliö án afgreiöslu á annan hvorn veginn. Eöa kostinn, sem hann tók. Halda sínu striki og fá mannorö sitt sprengt í tœtlur í fjölmiölum. Undir öllum kringumstceöum hlaut SÍS aö stórtapa, bíöa mikinn álitshnekki, sem erfitt yröi og tímafrekt aö vinna upp aftur. Svo mikiö er víst aö SIS veröur ekki samt aftur. Hver sem ber efri hlut í endataflinu veröur aö endurskipuleggja og opna þetta risaveldi viöskiptanna, leita endurnýjaös trausts félaganna, sýna fram á að þetta er ekki risi á brauöfótum, heldur samkeppnishœft og trúveröugt fyrirtœki, sem lifaö getur af sjálfu sér. Annars mun þessi Erlendar- sprengja enda í keöju- sprengingum, sem tortíma því. 6 HELGARPÓSTURINN

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.