Helgarpósturinn - 03.03.1988, Blaðsíða 10

Helgarpósturinn - 03.03.1988, Blaðsíða 10
VETTVANGUR HELGARPÓSTURINN Ritstjóri: Helgi Már Arthursson Blaðamenn: Prófarkir: Ljósmyndir: Útlit: Framkvæmdastjóri: Anna Kristine Magnúsdóttir, Freyr Þormóðsson, Friðrik Þór Guðmundsson, Jón Geir Þormar, Jónína Leósdóttir, Kristján Kristjánsson, Ólafur Hannibalsson, Páll Hannesson. Sigríður H. Gunnarsdóttir Jim Smart Jón Óskar Hákon Hákonarson Dreifingarstjóri: Sölu- og markaðsstjóri: Auglýsingar: Áskrift: Afgreiðsia: Aðsetur blaðsins: Utgefandi: Setning og umbrot: Prentun: Birgir Lárusson Hinrik Gunnar Hilmarsson Sigurrós Kristinsdóttir, Sigurður Baldursson. Guðrún Geirsdóttir Bryndís Hilmarsdóttir er í Ármúla 36, Reykjavík, sími 91-681511. Goðgá hf. Leturval sf. Blaðaprent hf. Endataflið er eftir Forstjóri Sambandsins, Guðjón B. Ólafsson, hefur látið hafa það eftir síðustu daga að honum hafi verið hótað með fjölmiðlum ef hann endurskoðaði ekki þá ákvörðun sína að reka frammámenn fisksölufyrirtækis í Bandaríkj- unum. Forstjórinn hefur enn ekki látið uppi nöfn í þessu sambandi en það liggur í hlutarins eðli, að þeir sem geta hótað með fjölmiðlum eru ekki almennir fulltrúar hjá SÍS heldur miklir valdamenn. Getgátur hafa verið uppi um að forstjórinn eigi hér við þá Erlend Einarsson og Val Arnþórsson. En það eru getgátur. Guðjón B. Ólafsson svarar því vafalaust á næstu dögum hvað hann á við. Hitt er víst að heldur eru þetta óskemmtilegar stjórnunarað- ferðir og nýstárlegar hér á landi, að minnsta kosti ekki mikið umtalaðar fyrr en nú. Og mikill álitshnekkir er það fyrir samvinnuhreyfinguna í landinu að einmitt þar skuli slíkum aðferðum vera beitt, en auðvitað mestur fyrir þá sem halda að tilgangurinn helgi meðulin. Gagnrýnin og rógurinn um Guðjón B. Ólafsson hafa lekið út úr röðum sambandsmanna sjálfra. Merki þess að hann annaðhvort ógnar smákóngunum sem þar voru fyrir, eða hefur komið í veg fyrir að einhverjir þeirra hafi náð á tindana sem þeir hugðust klífa eftir að Guðjón B. varð forstjóri SÍS. Uppskiptin sem urðu á miðborðinu í refskákinni innan SÍS fyrir helgi þýða að nú er komið að endataflinu. Og staðan ekki jafnteflisleg. Það uppgjör innan Sambands- ins sem menn bíða nú eftir gæti haft það í för með sér að Guðjón B. Ólafsson þakkaði fyrir stuttan stans í Hvíta húsinu við Sölvhólsgötu, en líklegra þykir að hann dragi fram á vígvöllinn þá sem spjótunum stýra og máti and- stæðinginn. Eða hefur SÍS efni á að missa Guðjón B. Ólafsson úr þjónustu sinni? Ráðherra á útleið? Jóhanna Sigurðardóttir hefur ekki átt sjö dagana sæla í embætti félagsmálaráðherra. Hún tók við gjaldþrota búi í húsnæðismálum eftir Alexander Stefánsson og hefur ekki tekist að sannfæra þingmenn stjórnarflokk- anna um þann vanda sem við blasir í húsnæðismálum. Við ofurefli er að etja og það kæmi ekki á óvart þótt Jóhanna Sigurðardóttir tæki þá ákvörðun að standa upp úr ráðherrastóli, ef ekki veröur breyting á afstöðu ríkis- stjórnar og fylgismanna hennar í húsnæðismálum. Ráðherra húsnæðismála gerði sennilega þau mistök í upphafi ráðherraferils síns að endurskoða ekki strax hús- næðislánakerfið frá grunni og reyna að koma fram nýju húsnæðiskerfi strax sl. haust í stað þess að freista þess að lappa upp á kerfi VSÍ og ASÍ til þess eins að lengja biðrað- irnar hjá Húsnæðisstofnun ríkisins. Alþýðuflokkurinn lagði mesta áherslu á húsnæðismál — kaupleiguíbúðir — í kosningabaráttunni fyrir síðustu kosningar. Síðan hefur flokkurinn slegið af kröfum sín- um um byltingu í húsnæðismálum og vandræði í þeim málaflokki aukist síðustu mánuði í stað þess að minnka. Það er því ekki aðeins um framtíð Jóhönnu Sigurðardótt- ur að tefla í þessu sambandi. Menn spyrja um trúverðug- leika Alþýðuflokksins. Alþingismenn eru um fimmtugt að meðaltali. Það kann að vera skýring á því áhugaleysi sem þeir sýna hús- næðismálum. Kannski er skýringin sú að vandamálið sé of stórt — að það vaxi alþingismönnum svo mjög í aug- um að þeir horfi framhjá því. Vilji ekkert af því vita. Eða biðröðinni, sem mun telja á þrettánda þúsund manns um komandi áramót. 10 HELGARPÓSTURINN Bíladella tryggingafélaganna Nú barma Iryggingafélögin sér. Þau eiga sér sameiginlegan uelt- vang sem þau nefna ,,Samstarfs- nefnd íslensku bifreidatryggingafé- laganna" (kallast hér SAMTRYGG- !NG) og hefur þessi nefnd sent frá sér fréttatilkynningu þess efnis, ad í bif- reiöatryggingunum hafi félögin tap- aö hundruöum milljóna á liönu ári, sem gerir um 30% af iögjaldatekj- um félaganna. ,,Veröi iögjöldin ekki fœrö til samrœmis viö kostnaö og áhœttu er gjaldþoli einstakra félaga stefnt í hœttu og munu tjónþolar þá ekki fá tjón bœtt," hóta félögin. Og Tryggingaeftirlitiö tekur heils- hugar undir ákallið, en hlutverk þess er að fylgjast með afkomu tryggingafélaganna og halda uppi neytendaþjónustu fyrir viðskipta- vini þeirra. Tryggingaeftirlitið fær gögn frá SAMTRYGGINGU - ein- hliða — og hefur úrskurðað að grunntaxtar lögboðinna ábyrgðar- trygginga þurfi að hækka um 60% að meðaltali, fyrir utan hækkun vegna nýrra umferðarlaga. Rétt er það, að afkoman í bifreiða- tryggingunum hefur farið síversn- andi hin síðustu ár. Árið 1986 var gjaldþoli Ábyrgöar, tryggingafélags bindindismanna, stefnt í voða og þurfti félagið að auka hlutafé um 20 milljónir króna til að uppfylla sett skilyrði. Bifreiðatryggingarnar voru að auki reknar með tapi hjá Bruna- bót, hjá Samvinnutryggingum og hjá Hagtryggingu, en síðan hefur Sjóvá reyndar tekið síðasttalda fé- lagið upp á arma sína. Og í fyrra var sem sagt svo komið að tapið nam hundruðum milljóna króna, enda hefur bílum stórlega fjölgað og tjón gerast æ kostnaðarsamari. Ekki hjálpar til að samkvæmt SAM- TRYGGINGU hafa iðgjöldin verið of lág miðað við tjónakostnað og um- ferðarlögin nýju setja nýtt strik í reikninginn. Eiga þá bíleigendur ekki bara að vera hæstánægðir með að iðgjöldin skuli ekki hækka enn meira? Er ár- leg óánægja þeirra með hækkun ið- gjalda óþörf með öllu? Eða eru til önnur ráð en einblína á hækkun ið- gjalda? Samkvæmt ársskýrslum Trygg- ingaeftirlitsins hefur tjónakostnað- ur aukist verulega hin síðari ár. Það reiknaði út að á föstu verðlagi mið- að við neysluvöruvísitölu hefðu reiknuö tjón sjö bifreiðatrygginga- félaga af átta hækkað úr 470 millj- ónum króna árið 1979 í 774 milljón- ir árið 1986 eða um 65% að raun- gildi. Að á þessu átta ára tímabili, 1979—1986, hefðu tjónin alls hljóð- að upp á 4.950 milljónir króna. Á sama tíma hafa iögjöld ársins hins vegar hækkað úr 753 milljón- um króna árið 1979 í 976 milljónir árið 1986 eða um „aðeins" 30% á móti 65% hækkun tjóna. Á þessum árum hljóðuðu iðgjöld upp á alls 7.000 milljónir króna á móti tæplega 5.000 milljóna króna tjónum og að því leyti lítur dæmið þokkalega út. En á hitt er að líta að á sama tímabili nam liðurinn ,,kostnaöur og umboöslaun" alls 1.860 milljónum króna, sem nær brúar bilið þarna á milli á tímabil- inu. Á síðasta ári tímabilsins hljóð- uðu tjónin, kostnaðurinn og um- boðslaunin alls upp á 1.025 milljónir króna en iðgjöld ársins upp á 976 milljónir og tapið því 50 milljónir samkvæmt þessu, tap sem á síðasta ári var komið upp í „hundruð millj- óna" samkvæmt SAMTRYGGINGU. Árið 1986 var liðurinn „kostnaður og umboðslaun" einmitt 50 milljón- um króna hærri hjá þessum félög- um en 1979. Vitað er að bifreiðatryggingarnar eru kostnaðarsamasti þátturinn í rekstri tryggingafélaganna. Áðan kom fram að Ábyrgð og Hagtrygg- ing stæðu einna lakast þessara fé- laga, enda eru þetta þau þeirra sem byggja í rekstri sínum mest á bif- reiðatryggingum. Þannig má sjá í gögnum Tryggingaeftirlitsins að á meðan kostnaður og umboðslaun voru 17,4% af iðgjöldum ársins hjá Tryggingamiöstööinni 1986 og 22,2% hjá Almennum tryggingum var samsvarandi hlutfall 37,3% hjá Hagtryggingu og 28,8% hjá Ábyrgð. Við stöndum frammi fyrir öðrum valkosti en að hækka eilíft iðgjöldin um tugi og hundruð prósenta. Hann er sá að fækka þeim tryggingafélög- um sem sjá um bifreiðatryggingar og draga um leið úr vaxandi rekstr- arkostnaði og umboðslaunagreiðsl- um. í gögnum Tryggingaeftirlitsins kemur skýrt fram, að á Norðurlönd- um hefur þróunin verið sú á undan- förnum áratugum, að félög hafa runnið saman í tiltölulega stórar einingar, en ísland hefur þá sér- stöðu, að hér eru tiltölulega mörg félög miðað við fólksfjölda. 1985 var staðan þannig að hér var eitt skaðatryggingafélag á hverja 34 þúsund íbúa, en í Svíþjóð og Finn- landi eitt á hverja 300 þúsund íbúa og í Danmörku eitt á hverja 120 þús- und íbúa. Norðmenn voru með eitt slíkt félag á hverja 87 þúsund íbúa. Samruni félaga á Norðurlöndum hefur einmitt átt sér stað í því skyni „að treysta fjárhag félaga og til að spara rekstrarkostnað, sem oft á tíð- um hefur verið forsenda áframhald- andi starfsemi vegna krafna um fjár- hagslegt öryggi og í samkeppni milli félaganna", svo vitnað sé í Trygg- ingaeftirlitið. Hér á landi hefur Sjóvá gleypt Hagtryggingu, sem á sínum tíma var einmit stofnað af Fé- lagi íslenskra bifreiðaeigenda vegna óánægju með iðgjaldaþróunina! Hvernig væri að Benedikt Sveins- son, Björn Hallgrímsson og Ingvar Vilhjálmsson í Sjóvá, Guöfinnur Einarsson, Jón Ingvarsson og Sig- uröur Einarsson í Tryggingamið- stöðinni, Hjalti Geir Kristjánsson, Gunnar S. Björnsson og Davíö Scheving Thorsteinsson í Almenn- um tryggingum og bindindismenn- irnir í Abyrgð settust nú að samning- um til að forða félögum sínum frá þó ekki væri nema hluta af þessum „hundruðum milljóna" sem bif- reiðatryggingafélögin nú eru að tapa? Friðrik Þór Guðmundsson

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.