Helgarpósturinn - 03.03.1988, Blaðsíða 39
FRÉTTAPÖSTUR
Efnahagsaðgerðir r íkisstjórnarinnar
Ríkisstjórnin kynnti nýjar efnahagsaðgerðir í
byrjun vikunnar, í kjölfar samninga Verkamanna-
sambandsins og vinnuveitenda. Um er að ræða í
fyrsta lagi 6% gengisfellingu krónunnar og í öðru
lagi samdrátt í framkvæmdum og útgjöldum hins
opinbera. Uppsafnaður söluskattur í fiskvinnslu
og útgerð verður endurgreiddur, alls 587 milljónir
króna. Launaskattur í sjávarútvegi og samkeppn-
isgreinum fellur niður frá 1. júli, sem gera 200
milljónir króna. Skuldbreytingar eiga sér stað í
sjávarútvegi upp á 370 m.kr. Útgjöld til vegamála
lækka frá því sem ætlað var um 125 m.kr. og fram-
lag til byggingasjóða ríkisins um 100 m.kr. Jó-
hanna Sigurðardóttir félagsmálaráðherra lét bóka
mótmæli sin við þessu síðasttalda, enda var hún í
óðaönn að mæla fyrir nýju en umdeildu frumvarpi
um kaupleiguíbúðir og ekki var hún heldur ánægð
með þá ákvörðun rikisstjórnarinnar að fresta um
ár áformum um breytta verkaskiptingu ríkis og
sveitarfélaga, sem á að spara 260 milljónir. Gjald á
erlendar lántökur verður 6% í stað 3%, en fellur
niður á næsta ári, og þetta á að skila inn 290 m.kr.
Ýmislegt fleira á að gera, en i heild þýða aðgerðirn-
ar að tap fiskvinnslunnar verður 1,5% í stað 5%.
Verðbólga frá upphafi árs til enda verður 15% i stað
10% og á milli ára 25% í stað 18%.
Samningar
Samningar vinnuveitenda og atvinnurekenda
hafa nú verið bornir undir atkvæði í nokkrum fé-
lögum. Þeir hafa sums staðar verið felldir en sam-
þykktir annars staðar. Á fundi verkamannafélags-
ins Dagsbrúnar í Reykjavík voru samningarnir
samþykktir naumlega, með 240 atkvæðum gegn
217. Þegar úrslit lágu fyrir brutust út mikil mót-
mæli á fundinum og fjöldi manna gekk úr salnum.
Atkvæðagreiðslan fór fram með handauppréttingu
og hefur nú verið kærð til ASÍ þar sem þeir er sáu
um framkvæmd atkvæðagreiðslunnar eru ásakað-
ir um að hafa talið rangt.
um var gert að greiða 100.000 kr. í skaðabætur og
málskostnað. Þessi dómur er einstæður fyrir þá
sök að þetta er í fyrsta sinn sem maður er bæði
dæmdur til fangelsis- og hælisvistar hér á landi.
Ekkert hæli er til i landinu fyrir afbrotamenn.
SBIwj'V*'’1*" ; " ;.r; .7
„dvirsk»ð«dl--1S _e-
íatV
cvörðun um brottrete
.fAi Vmrft að taka f y1
Sambandsmál
Margslungin deilumál hafa risið innan Sam-
bands íslenskra samvinnufélaga. í siðustu viku
rak stjórn dótturfyrirtækis sambandsins, Ice-
landic Seafood Co., forstjóra og aðstoðarforstjóra
fyrirtækisins, þá Eystein Helgason og Geir Magn-
ússon, úr starfi vegna persónulegs ágreinings við
stjórnarformanninn Guðjón B. Ólafsson, sem jafn-
framt er forstjóri sambandsins. Einnig blandast
inn í málið krafa Vals Arnþórssonar, stórnarfor-
manns SÍS, og Erlendar Einarsonar, frv. forstjóra
SÍS, að rannsökuð verði sú staðhæfing að Guðjón
hafi fengið laun umfram samninga er hann var
sjálfur forstjóri Icelandic Seafood, en áður höfðu
bandariskir endurskoðendur staðhæft að um slik-
ar greiðslur hefði ekki verið að ræða. (Sjá nánari
umfjöllun annars staðar í blaðinu.)
Fréttapunktar
• Hæstaréttardómur er fallinn i máli Steingrims
Njálssonar vegna kynferðisafbrota gegn þremur
ungum drengjum. Steingrímur var fundinn sekur
og dæmdur til 9 mánaða fangelsisvistar, auk 15
mánaða hælisvistar að fangelsisvist lokinni. Hon-
• Rannsóknarlögregla ríkisins hefur nú sent
skýrslu til rikissaksóknara vegna kæru 20 ára
Eskfirðings á hendur lögreglunni, en hann tví-
brotnaði á hægri handlegg i meðförum lögreglunn-
ar. Málið bíður nú afgreiðslu hjá saksóknara-
embættinu.
• í nýjasta hefti _ Heilbrigðistíðinda, timarits
Krabbameinsfélags íslands, kemur fram að hjarta-
og æðasjúkdómar eru langalgengustu dánarorsak-
ir á íslandi. Á árunum 1981—1985 voru að meðal-
tali um 50% dauðsfalla af þeirra völdum.
• Dómsmálaráðherra, Jón Helgason; hefur sett
190% jöfnunargjald á innfluttar franskar kartöfl-
ur en gjaldið var áður 40%. Stutt er siðan fjármála-
ráðherra, J 'm Baldvin Hannibalsson, gaf innflutn-
ing á frönskum kartöflum frjálsan en gjaldtakan
þýðir að verð kartaflnanna mun tvöfaldast.
• Greiðslur útvarps- og sjónvarpsstöðva til menn-
ingarsjóðs útvarpsstöðva voru til umræðu á Al-
þingi en mörgum þótti sem greiðslur Stöðvar 2
væru lágar miðað við þá hlutdeild sem stöðin hefði
í auglýsingamarkaðnum. Birgir ísleifur Gunnars-
son hét því að málið yrði kannað nánar.
• Jón Loftur Árnason var efstur á Reykjavíkur-
skákmótinu eftir sex umferðir og með betra tafl í
biðskák sjöundu umferðar þar sem hann tefldi við
næstefsta mann mótsins, Þröst Þórhallsson. Tefld-
ar verða ellefu umferðir á mótinu.
• Ný umferðarlög tóku gildi 1. mars. Breytingarn-
ar eru umtalsverðar, en helst er að nefna að nú á að
hafa ljósin á allan sólarhringinn við akstur og bíl-
belti framsæta spennt sömuleiðis, að viðlagðri
sekt. Nefna má að við minniháttar umferðaróhöpp
þarf ekki lengur að kalla til lögreglu, heldur útfylla
eyðublöð sem hver ökumaður á að hafa í bíl sinum.
• Frumvarp Jóhönnu Sigurðardóttur um kaup-
leiguíbúðir hefur mætt óvenjuharðri andstöðu af
stjórnarfrumvarpi að vera. Stjórnarliðar hafa gert
ýmiss konar athugasemdir við frumvarpið og
vinnubrögð ráðherra og hefur ráðherra brugðist
hart við þessum röddum og telur hugsanlegt að
verið sé að gera henni óbærilegt að gegna starfi
sinu.
Andlát
Látin er Guðrún Á. Simonar óperusöngkona, 64
ára að aldri.
GÆÐI = HAGNAÐUR
Plastkörin, vörupallarnir og aðrar umbúðir frá
Borgarplasti stuðla að auknum gæðum.
★ Fisskör, 310 - 1000 lítra.
★ Vörupallar, þrjár stærðir.
★ Línubalar, tvær stærðir.
★ Humartunnur.
★ Lýsistankar.
★ Fiskeldisvörur.
★ Fjölmörg önnur ílát.
í allar okkar vörur eru notuð efni viður-
kennd af U.S. F.D.A. undir matvæli.
Komið á bás D 101 á Sjávarútvegssýn-
ingunni og látið sannfærast.
Vörupallar
Fiskikör 660 lítrar
PÍÚIH i
Vesturvór27 200 Kópavogur, Island Sími 46966 Telex 3000 Simtex IS Símnefni: Borgarplast
HELGARPÓSTURINN 39