Helgarpósturinn - 03.03.1988, Blaðsíða 7

Helgarpósturinn - 03.03.1988, Blaðsíða 7
FRÉTTASKÝRING á Ráðherrar Alþýðuflokksins, Jón Baldvin Hannibalsson, Jóhanna Sigurðardóttir og Jón Sigurðsson Jóhanna á undir högg að sækja innan ríkisstjórnar og þingflokks Alþýðuflokksins. Vangaveltur um það hvort hún segir af sér embætti ágerast innan flokks og utan. VAXANDI ANDSTAÐA VIÐ JÓHÖNNU Félagsmálaráðherra, Jóhanna Sigurðardóttir, var ekki höfð með í ráðum, þegar forystumenn Alþýðuflokksins gengu til samkomulags um efnahagsaðgerðir ríkisstjórn- arflokkanna þriggja um síðustu helgi. Henni mun hafa verið stillt upp fyrir gjörðum hlut síðla sunnudags og staðið frammi fyrir því að samþykkja verulegan niður- skurð á fjárveitingum til félagsmálaráðuneytis, eða „skaða stjórnarsamstarfið með alvarlegum hætti ella“, eins og einn þingmanna Alþýðuflokksins sagði í samtali við HP í gær. EFTIR HELGA MÁ ARTHURSSON MYNDIR JIM SMART Endurtekinn undansláttur for- ystumanna Alþýðuflokksins í mál- efnum félagsmálaráðuneytisins og í málaflokkum sem heyra undir fé- lagsmálaráðherra, Jóhönnu Sigurð- ardóttur, vekja sífellt meiri undrun. Og menn spyrja sig þeirrar spurn- ingar hve lengi Jóhanna Sigurðar- dóttir heldur það út að vera sífellt slegin niður, eða hve lengi hún líður að láta stöðugt gera samkomulag á milli flokkanna á kostnað mála sem heyra undir félagsmálaráðuneytið. LAUGARDAGSFUNDUR Félagsmálaráðherra tók ekki þátt í viðræðum fulltrúa þingfiokks Al- þýðuflokksins um aðgerðir í efna- hagsmálum, sem haldinn var sl. laugardag undir forystu formanns flokksins, Jóns Baldvins Hannibals- sonar, fjármálaráðherra. Til fundar- ins mættu, auk fjármálaráðherra, Eiður Guðnason, Karl Steinar Guðnason, Sighvatur Björgvinsson og Jón Sigurðsson. Á þessum fundi mun hafa verið tekin ákvörðun um hvar Alþýðuflokkurinn gæti gefið eftir í sambandi við þær aðhaldsað- gerðir sem í smíðum voru. Eftir því sem HP kemst næst var Jóhanna Sigurðardóttir, félagsmála- ráðherra og varaformaður Alþýðu- flokksins, ekki höfð með í ráðum. Henni mun, eins og áður sagði, hafa verið stillt upp fyrir gjörðum hlut á sunnudegi. Var þá þegar búið að ganga frá og ákveða í smáatriðum niðurskurð til byggingasjóðanna og að fresta fyrirhuguðum breytingum á verkaskiptingu ríkis og sveitarfé- laga, þvert ofan í vilja og yfirlýsing- ar Jóhönnu Sigurðardóttur. Eftir því sem heimildir HP herma er það þetta sem fyrst og fremst varð til þess að Jóhanna Sigurðar- dóttir bókaði andstöðu sína við ákveðna þætti efnahagsaðgerð- anna á ríkisstjórnarfundi sl. mánu- dag. Með bókun þessari og hugsan- legri hjásetu við af greiðslu málsins á þingi er ekki óhugsandi að sambúð félagsmálaráðherra og ráðherra og þingflokks Alþýðuflokksins kólni hratt og leiði e.t.v. til þess, að Jó- hanna hverfi úr ráðherrastóli. Kjósi félagsmálaráðherra að greiða at- kvæði gegn efnahagsfrumvarpi rík- isstjórnarinnar, eins og ætla mætti af bókun ráðherra í ríkisstjórn, er frumvarpið ekki lengur ríkisstjórn- arinnar allrar og víst að krafa um af- sögn kæmi fram af hálfu forsætis- ráðherra. í ÞINGFLOKKI ÁN STUÐNINGS Jóhanna Sigurðardóttir nýtur ekki mikils stuðnings í þingflokki Alþýðuflokksins. Eru það einkum Árni Gunnarsson og Jón Sæmundur Sigurjónsson sem tekið hafa undir með Jóhönnu í svokölluðum félags- málum; húsnæðismálum, trygg- ingamálum og öðrum hefðbundn- um málum jafnaðarmanna. „Jó- hanna Sigurðardóttir lagði gríðar- lega áherslu á húsnæðismál í kjölfar vasklegrar framgöngu á Alþingi þegar Alexander Stefánsson fór með þennan málaflokk í síðustu rík- isstjórn, en nú rekur hún sig á það að verða að gera málamiðlanir við samstarfsmenn í ríkisstjórn, sem eru allt annað en sáttir við þær áherslur sem hún hefur kosið í hús- næðismálum," sagði einn þing- manna Alþýðuflokksins í samtali við HP. Annar heimildarmaður HP í þingflokki Alþýðuflokksins orðaði það svo, að Jóhanna væri föst fyrir og ósveigjanleg í viðskiptum við samstarfsfíokkana. Andstæðingar hennar á Alþingi og í ríkisstjórn hefðu komið því rækilega á fram- færi að hún vildi fara sínu fram og gengi þvert á meint samkomulag í ríkisstjórn. Þetta væri farið að hafa 'áhrif inn í þingflokk Alþýðuflokks- úns og menn þar orðnir þreyttir á stímabrakinu sem ráðherrann stæði sífellt í og taldi að félagsmálaráð- herra stæði höllum fæti innan þing- flokksins. Þetta kemur heim og saman við þá staðreynd að svo virðist sem fé- lagsmálin hafi verið gerð að málum Jóhönnu Sigurðardóttur og ekki Al- þýðuflokksins, a.m.k. hafa þing- flokkurinn og hinir ráðherrarnir að því er virðist enga skoðun á hús- næðismálum, svo dæmi sé tekið, þegar málaflokkur þessi er til um- ræðu. Húsnæðismálin eru hengd á Jóhönnu Sigurðardóttur. Flokkur- inn virðist helst vilja sleppa út úr þeirri umræðu. AFGREIÐSLUKONTÓR Nánustu stuðningsmenn Jóhönnu Sigurðardóttur halda því fram í sam- tali við HP, að þingflokkur Alþýðu- flokksins starfi fyrst og fremst sem- afgreiðslustofnun fyrir nafnana Jón Baldvin Hannibalsson fjármálaráð- herra og Jón Sigurðsson dóms- og viðskiptaráðherra. Þeir hafi sitt fram athugasemdalaust, enda í góðu samstarfi við þungaviktar- menn innan þingflokksins á borð við Kjartan Jóhannsson, Eið Guðna- son og Sighvat Björgvinsson. Þau mál sem Jóhanna Sigurðardóttir leggi áherslu á séu að vísu rædd í þingflokknum, en hún hljóti þar oft- ar en ekki dræmar undirtektir við því sem hún vill gera og að með því flytji þingflokkurinn ábyrgðina af sjálfum sér og yfir á ráðherra félags- mála. Og þegar Árni Gunnarsson, þing- maður Norðurlandskjördæmis eystra, var spurður um stöðu Jó- hönnu Sigurðardóttur innan jring- flokksins þá svaraði hann: ,,Eg vil ekkert segja um stöðu Jóhönnu í þingflokknum. Jóhanna er hörð af sér og mikill vinnuþjarkur. Það er hins vegar íhugunarvert, að and- stæðingar hennar í ríkisstjórnar- flokkunum leggja sig fram um að gera lítið úr henni og tala niður til hennar á Alþingi. Þetta er óþolandi framkoma, sérstaklega vegna þess að meðferðin sem Jóhanna fær nú verður ekki rakin til annars en þess að hún er kona. Afstaðan til hennar einkennist af fordómum." Þegar Jóhanna Sigurðardóttir var spurð um vaxandi ágreining á milli ráðherra Alþýðuflokksins varðandi áherslur flokksins í félags- og hús- næðismálum vildi hún engu svara. Hún viðurkenndi hins vegar, að hún væri ósátt við að sífellt væri gert samkomulag um húsnæðismál og taldi að þrátt fyrir að mönnum ætti að vera ljós hinn gríðarlegi vandi sem þar væri við að glíma, þá væri eins og menn vildu horfa framhjá þeim vanda. Þetta gilti um ráðherra í ríkisstjórn. Aðspurð um það hvort hún myndi greiða atkvæði gegn ef nahagsf rumvarp i ríkisstjórnarinn- ar svaraði hún því til „að það ætti eftir að koma í ljós“. HVAÐ GERIR JÓHANNA — EÐA FLOKKURINN? Alþýðuflokkurinn hefur í þrígang slegið af í húsnæðismálum gagnvart samstarfsflokkunum. Þetta bitnar fyrst og síðast á félagsmálaráðherra sem einsetti sér í upphafi ráðherra- ferils síns að koma stjórn á húsnæð- ismálin eftir breytingarnar sem gerðar voru á lánamálum haustið 1986. Ástæðan fyrir undanslætti Al- þýðuflokksins í þessu máli sérstak- lega er sennilegust sú, að flokkurinn glímir enn við goðsögnina frá 1979, þ.e. forystu flokksins er mikið í mun að láta ekki á sig sannast að Alþýðu- flokkurinn hlaupi frá hálfkláruðu verki, eins og sagt er að hann hafi gert þegar hann sprengdi ráðuneyti Olafs Jóhannessonar í október 1979. Þingmenn Alþýðuflokksins sem HP hafði samband við voru sammála því, að stjórnarslitin 1979 yllu flokknum „ákveðnum erfiðleik- um í núverandi stjórnarsamstarfi", eins og einn þingmanna kaus að orða það. Jóhanna Sigurðardóttir hefur gef- ið í skyn í fjölmiðlum, að stuðnings- menn ríkisstjórnarinnar vildu e.t.v. sjá á eftir henni úr ráðherrastóli. Oðru vísi væri ekki hægt að skilja ummæli sumra stjórnarsinna. Hún vildi í samtali við HP ekki útlista nánar hvað hún ætti við í þessu sam- bandi. Aðspurð vildi hún ekkert láta hafa eftir sér um það hvort hún hefði íhugað sjálf að segja af sér ráð- herraembætti. Heimildarmenn HP í þingflokki Alþýðuflokksins telja að nauðsyn- legt sé að jafna ágreininginn um Jó- hönnu Sigurðardóttur innan ríkis- stjórnarflokkanna, að öðrum kosti gætu „hlutirnir þróast með óheppi- legum hætti", eins og einn viðmæl- andi blaðsins orðaði það. Árni Gunnarsson svaraði spurn- ingu blaðsins um hugsanlega afsögn Jóhönnu með þessum orðum: „í mínum huga kemur ekki til greina að Jóhanna víki úr ráðherra- embætti. Það væru að mínu mati slæm mistök hjá henni, og ennþá verri mistök, ef flokkurinn iætur sér koma slíkt til hugar." Alþýduflokkur gefur eftir í hús- nœöismálum Rádherra nýtur takmarkaös stuönings í þingflokki Fráleitt aö hugsa sér aö Jóhanna segi af sér, segir Árni Gunnarsson HELGARPÓSTURINN 7

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.