Helgarpósturinn - 03.03.1988, Qupperneq 24
■
UM HELGINA
Mynd mónaöarins í Listasafni Is-
lands er að þessu sinni Sumarnótt
eftir Gunnlaug Scheving. Leiðsögn
um „Mynd mánaðarins'' fer fram i
fylgd sérfræðings alla þriðjudaga kl.
13.30— 13.45. í marsmánuði verður
Listasafnið opið alla virka daga kl.
11.30— 16.30 nema mánudaga og
um helgar er opið frá kl. 11.30—
18.00. Kaffistofa hússins hefur
mælst vel fyrir hjá gestum, en hún er
opin á sama tíma og safnið.
I gallerí Glugganum á Akureyri
stendur nú yfir sýning á verkum Har-
alds Inga Haraldssonar.
Nú stendur yfir norræn kvik-
myndahátíð í borginni Rouen í
Frakklandi. Þar er verið að sýna
nokkrar íslenskar kvikmyndir og í
tveimur þeirra fer Arnar Jónsson
með aðalhlutverkið. Þetta eru mynd-
irnar Útlaginn og Á hjara veraldar.
Arnar er að sjálfsögðu gestur á kvik-
myndahátíðinni og af þeim sökum
hefur verið gert hlé á sýningum á
Bilaverkstæöi Badda þessa vikuna.
Sýningarnar hafjast að nýju nk.
þriðjudag, 8. mars. Sjötugasta sýn-
ingin á Bílaverkstæði Badda var s I.
laugardag en fram til þessa hefur
verið uppselt á allar sýnlngar. Bíla-
verkstæöi Badda hefur verið valið
ásamt Degi vonar til að vera framlag
Islands á Norrænu leiklistarhátíðinní
sem haldin verður i Helsinki i maí.
Sýningum á verkinu lýkur hér á landi
í apríl.
Um helgina er það að gerast í
Þjóöleikhúsinu að söngleikurinn
Vesalingarnir verður sýndur á föstu-
dags- og laugardagskvöldið og síð-
an á fimmtudagskvöld í næstu viku.
Uppselt hefur verið á allar sýningar
til þessa og tekiðrer nú á móti pönt-
unum fram yfir þ^ska. Síðasta sýn-
ing á ballettverkunum Ég þekki þig,
þú ekki mig verður á sunnudags-
kvöldiö og einsíbg getið er um í
pistlinum hér að'rofan verður Bíla-
verkstæði Badda næst á fjölum Litla
sviðsins á þriöjudagskvöldiö kl.
20.30.
Á sunnudagimi 6. mars, hefst hjá
Ríkisútvarpinu tðttaröð um Einar
Benediktsson skáld. Þættirnir verða
fjórir, hver um Sig klukkustundar-
langur, og verða fluttir á sunnudög-
um klukkan 13. n Gils Guðmunds-
son samdi handritið en Klemens
Jónsson stjórnar flutningi og sögu-
maöur er Hjörtur Pálsson. Flytjendur
eru Hjalti Rögnvaldsson, Herdís Þor-
valdsdóttir, Pálmi Gestsson, Róbert
Arnfinnsson og Klemens Jónsson. í
þáttunum verður leikið og lesið og
leitast við að bregða upp lifandi svip-
myndum af Einari Benediktssyni.
í kvöld frumflytur Sinfóníuhljóm-
sveit Islands óperuna Don Carlos
eftir Verdi á áskriftartónleikum i Há-
skólabíói. Auk hljómsveitarinnar
syngur kór íslensku óperunnar
ásamt sex einsöngvurum. Stjórn-
andi hljómsveitarinnar er Þjóðverj-
inn Klauspeter Seibel, en kórstjóri
Peter Locke. Óperan Don Carlos var
frumflutt í París í marsmánuði árið
1867 og hlaut þá fremur dræmar
viðtökur. Á þriðja áratug þessarar
aldar var farið aö sýna Don Carlos í
óperuhúsum og meta verkið að
verðleikum. Þessi ópera hefur þó
aldrei verið flutt hérlendis áður í
einni heild, heldur aðeins einstaka
aríur. Tónleikarnir í kvöld hefjast
BÍÓ
Stjörnugjöf:
0 faröu ekki ★ sæmileg ** góö *** ágæt *★*★!
Regnboginn Síðasti keisarinn (The Last Emperor) ★*** Morð í myrkri (Mord i mprke) *** Örlagadans (Slam dance) *★
Háskólabíó Hættuleg kynni (Fatal Attraction) ***
Laugarásbíó Öll sund lokuð (No Way Out) *** Hrollur 2 (Creepshow 2) 0
Bíóhöllin Spaceball *★*
Bíóborgin Wall Street ★*
Stjörnubíó Roxanne ***
klukkan 20.00 og verða endurfluttir í
Háskólabíói á laugardaginn 5. mars
kl. 14.00.
Daöi Guöbjörnsson opnaði á
fimmtudaginn var sýningu í Gallerí
Borg viö Pósthússtræti. Sýning
Daða er opin fram á þriðjudag, 8.
mars, og er opið í Gallerí Borg virka
daga kl. 12—18 og kl. 14—18 um
helgar. Nú er vika eftir af sýningu
Belindu Hughes sem haldin er í List-
stofu Bókasafns Kópavogs en þar
sýnir Belinda grafík- og vatnslita-
myndir og myndir unnar með bland-
aðri tækni. i FÍM-salnum við Garöa-
stræti opnaði Eyjólfur Einarsson
sýningu á oliuverkum og vatnslita-
myndum síðastliðinn laugardag.
Sýningin stendur yfir til 13. mars.
Háskólakórinn verður með sína
árlegu tónleika i Langholtskirkju
klukkan 21.00 á sunnudagskvöldiö.
Efnisskrá tónleikanna erfjölbreytt en
þar verða sungin nokkur lög úr
Disneyrimum eftir Árna Haröarson,
stjórnanda kórsins, en Árni hefur
samið tónlist viö samnefndar rímur
Þórarins Eldjárn. Háskólakórinn
mun síðan flytja Disneyrímur í heild
sinni á síðustu dögum marsmánað-
ar. Þá mun kórinn syngja á þessum
tónleikum Waka eftir Jonas Tómas-
son, Tvö smálög eftir Karolinu
Eiríksdóttur og lög úr „Röddum á
hvarfdögum" eftir Kjartan Ólafs-
son. Að auki verða sungnir madrigal-
ar og stúdentalög.
Beinum aðeins aftur athyglinni að
Ríkisútvarpinu. Á mánudaginn, 7.
mars, hefst á rás 1 lestur nýrrar mið-
degissögu, „Kamala" sögu frá Ind-
landi, eftir Gunnar Dal. Sunna Borg
les og hefst lesturinn klukkan 13.35.
Kamala kom fyrst út áriö 1976 og er
eina saga íslensks höfundar sem
gerist á þessum slóðum, en Gunnar
Dal dvaldi í Indlandi á yngri árum og
hefur ritað margt um indverska
heimspeki. Á þriðjudagskvöldiö
verðurflutt leikritið Jaröarberin eftir
Agnar Þórðarson i leikstjórn Gísla
Alfreðssonar. Leikritið gerist á heim-
ili fjölskyldu í Reykjavík á tíu ára af-
mæli dótturinnar. Gestirnir eru ný-
farnir þegar kona nokkur ber að dyr-
um. Koma hennar veldur uppnámi á
heimilinu með ófyrirsjáanlegum af-
leiðingum. Leikrit þetta varfrumflutt
árið 1980.
Ein dagskrárbreyting er nú á ferð-
inni. Og ekki á Stöð 2 þótt markvert
megi teljast. Umrædd breyting er á
dagskrá Ljósvakans (FM 95,7!) á
sunnudaginn klukkan 17.00. í tilefni
flutnings Sinfóníuhljómsveitar ís-
lands undir stjórn Pauls Zukofsky á
strengjakvartett í cís-moll op. 131
eftir Beethoven á fimmtudag í
næstu viku, 10. mars, ætlar Hulda
Birna Guðmundsdóttir að kynna
verkið í flutningi Fílharmóníuhljóm-
sveitar Vínarborgar. Stjómandi á
þeim tónleikum var Leonard Bern-
stein. Klukkan 17.50 hefst svo Ijúf
tónlist úr öllum áttum eins og áður
var kynnt.
Þaðeralltaf sama meiriháttar fjör-
ið í Lækjartungli, byrjar í kvöld með
því að Svarthvítur draumur kemur
fram (það er hljómsveit, ekki það að
draumar rætist. Og þó. Hver veit
nema draumar einhvers rætist í
Lækjartungli, one never knows,
does one?). Þessir rokktónleikar
standa yfir frá tíu til eitt. Á laugar-
dagskvöldið koma Geiri Sæm og
Hunangstunglið fram í 45 minútur
og á sunnudagskvöldið kemur Gaui
fram á sínum fyrstu stórtónleikum.
Honum til aðstoðar verða Bjöm
Erlingsson og Þorkell Atlason, ásamt
fleirum. Ef einhver vill lenda í útvarp-
inu getur sá hinn sami mætt í
Lækjartungl á laugardagskvöldið
því þá verður Stjarnan með beina
útsendingu þaðan.
Annað kvöld sýnir Ríkissjónvarp-
ið bíómynd frá árinu 1955. Hún heitir
Skelfingarstundir og með aðalhlut-
verkið fer enginn annar en
Humphrey Bogart. Þessi mynd er
gerð eftir sannsögulegum heimild-
um og fjallar um strokufanga sem
heldur fjölskyldu sinni í helgreipum
óttans. Sýning myndarinnar hefst
klukkan 22.25 og stendur yfir til
klukkan tuttugu mínútur yfir tólf á
miðnætti. Á sunnudagskvöldið
mæta ísfirðingar og Héraðsbúar í
þátt Ómars Ragnarssonar, „Hvað
heldurðu?" og keppast við að svara
sem réttast.
Unglingar, unglingarl Verið vel
undirbúin fyrir útvarpsupptöku á
föstudagskvöldið. Að minnsta kosti
ætlar útvarp Rót að vera með þátt á
sunnudagskvöldiö einhvern tíma
um kvöldmatarleytið sýnist mér, þar
sem „spjallað er við unglinga í mið-
bæ Reykjavíkur á föstudagskvöldi".
Eins gott að engin rúðubrot heyrist í
þeim þætti, þá veröur ykkur ennþá
frekar kennt um það sem miður fer í
miðbænum!
Klukkan fjögur á sunnudaginn
verða haldnir tónleikar í Norræna
húsinu. Þar verða flutt verk eftir Karl
Ó. Runólfsson, Björgvin Guðmunds-
son, Schubert, Beethoven o.fl. og
flytjendur verða Sigurður P. Braga-
son, bariton, og Þóra Friöa Sæ-
mundsdóttir, píanó. Möller-bræöur
(Karl og Jón) veröa í Heita pottinum
um kvöldið. I íslensku óperunni
verður Litli sótarinn klukkan 16 og
klukkan 20 Don Giovanni.
Breyting á dagskrá Stöðvar 2 í
kvöld. Bítlar og blómabörn lengist
umlOminútur, stenduryfirfrá 21.20
til 22.00 i staðinn fyrir 21.50 eins og
kynnt er í Sjónvarpsvísi. Að loknum
nostalgíuþættinum verður frum-
sýnd á Stöð 2 kvikmyndin Blóö og
sandur, sem er ein af gömlu róman-
tísku myndunum þar sem segir frá
ungum nautabana sem heillast af
failegri hefðarkonu, en inn í myndina
kemur æskuástin hans og við það
myndast hinn eilífi ástarþríhyrning-
ur. Bíómyndin Forsetaránið hefst
síðan á miðnætti. Mér sýnist svo á
öðru breytingablaði að þátturinn um
Alice Cooper, sem kynntur er kl.
13.30 á sunnudaginn, falli niður og í
staðinn komi þátturinn Rokk í
Evrópu. Annars skil ég þetta varla.
Fyrsta hefti tímarits Móls og
menningar er komið út. Þar kennir
margra grasa, m.a. er grein eftir
Helgu Kress um Timaþjóf Steinunn-
ar Sigurðardóttur, viðtal við frönsku
skáldkonuna Daniéle Sallenave,
ádrepa Einars Más Guðmundssonar
og fjöldi ritdóma um íslensk skáld-
verk og fræðirit.
Rekstur Gluggans
í járnum
Rœtt viö Harald Inga, sem sýnir í Glugganum,
um sýninguna og starfsemi gallerísins.
Um þessar mundir stendur yfir í Gallerí Glugganum á
Akureyri sýning á verkum Haraldar Inga Haraldssonar
Hann er innfæddur Akureyringur, stundaði nám við MHÍ
og síðar í Amsterdam en settist svo að á æskustöðvunum
þegar því var lokið. Sýningu Haraldar lýkur 6. mars og
HP sló á þráðinn til hans og innti hann eftir sýningunni
og sömuleiðis hvernig rekstur Gluggans hefði gengið.
„Ja, sko — ég var með einkasýn-
ingu í Reykjavík í fyrra, stóra sýn-
ingu, og þessi er svona í svipuðum
dúr. Það er 31 verk á sýningunni og
það er kannski skemmtilegt að
segja frá því að þegar ég var að tala
við aðra fjölmiðla var ég með í koll-
inum að sýna verk frá síðustu þrem-
ur árum. Bara fara með þau inn í
galieríið og sjá hvernig það kæmi
út, en þegar upp var staðið úr öllum
þessum æsingi þá var það bara lygi,
í raun og veru. Þetta urðu verk frá
síðasta ári plús þrjú frá árinu áður.
Ég átti ansi góða törn fimm mánuði
í fyrra, fékk gott næði, og verkin frá
þeim tíma reyndust það samstæð að
ég gat ekki annað en freistast til að
sýna þau saman, akkúrat núna.
Þannig að sýningin er allt öðruvísi
en hún átti að vera.“
— Hvað ertu að mála? Skrímsli?
Ég sá að Þjóðlíf titlaði þig skrímsla-
fræðing...
„Já, þeir eru eitthvað að leika sér
að frösum. Ég ætla að skrifa fyrir þá
einhverja pistla um þessi efni. Svona
í léttari kantinum í framtíðinni. Ég
pæli mikið í þessum hlutum, bæði
frá íslandi og öðrum löndum, og
vissulega má segja að þó svo ég sé
alls ekki að myndskreyta neitt for-
söguiegt þá heillast ég af tilfinning-
unni sem er í þjóðtrú og þjóðsögum.
Kannski leita ég eftir svipuðum til-
finningum í myndunum."
— Segðu mér annað, þú ert í for-
svari fyrir Gluggann ásamt fleirum
er það ekki?
„Jú, ég er einn af hluthöfum í
Glugganum, rétt er það."
— Segðu mér aðeins um hvernig
gengur.
„Það gengur raunar alveg ágæt-
lega. Hins vegar má segja að það
sem við erum að burðast með í dag
sé stofnkostnaðurinn. Aðsóknin
hefur þó verið góð og sala á verkum
af sýningunum sömuleiðis góð. Við-
brögð fjölmiðla og listamanna hafa
verið góð líka en okkur sýnist samt
að þurfi að koma til meiri opinber
stuðningur við þetta fyrirbæri ef
það á að ganga í framtíðinni. Við
ætlum hins vegar að halda þessu
áfram í eitt ár eins og upphaflega
var áætlað, við látum ekki deigan
síga."
— Mér finnst ég hafa lesið ein-
hvers staðar að ykkur hafi verið
neitað um styrk frá bænum.
„Það var nú ekki alveg svoleiðis,
við fengum 100.000 krónur úr at-
vinnumálanefnd. Reyndar þegar
núverandi meirihluti tók til starfa
voru menn þar fullir af góðum
ásetningi en það hefur eitthvað
breyst. Bærinn hefur ekki gert það
sem við vonuðumst til að hann
myndi gera. Sem stendur vantar
okkur peninga til að brúa bilið fram
á næsta haust. Það er hins vegar
enginn hörgull á sýnendum, hér er
flott prógramm fram á vor, Kristján
Steingrímur, Gunnar Örn og fleiri og
fleiri. Það er greinilegt að það vilja
allir hafa svona sal, ef menn vildu
sýna utan miðbæjar Reykjavíkur þá
þurftu þeir að fara til útlanda. Og að
auki þá er þetta góður salur, við
höldum því fram að hann sé einhver
sá besti á landinu, og mikið verið í
hann lagt.“
— Þetta er í fyrsta sinn í hvað
mörg ár sem einhver stendur fyrir
reglulegu sýningarhaldi fyrir norð-
an?
„Ja, ég man það ekki. Ætli það
hafi nokkuð verið síðan Rauða hús-
ið var og hét. Það lagðist af fyrir ein-
um fimm, sex árum. Menn hafa ver-
ið að sýna í anddyrum og golfskál-
um og ég veit ekki hvar. Um leið er
þetta mikilvægt tækifæri fyrir fólkið
í bænum að sjá myndlist reglulega
og það hefur skilað sér í góðri að-
sókn.“
— Eitthvað um sýninguna að lok-
um.
„Ja — þetta er svona fantasíu-
heimur sem ég er að mála og ég
ferðast um hann eins og menn ferð-
ast um hvunndagsheiminn. Þetta er
landslag innan við augun...þetta hef
ég nú sagt áður."
KK
24 HELGARPÓSTURINN