Helgarpósturinn - 07.04.1988, Blaðsíða 7
ERLEND YFIRSÝN
EFTIR
SMÁAÐGERÐ
HP hafa verið hugmynd fjármála-
ráðuneytisins og sjúkrahúsmanna
að 8,7 milljónir yrðu heildargreiðsla
,,á borðið" og í ráðuneytinu var ekki
fleiri krónur að fá. Ekki hefur fengist
upplýst hvaðan hin 1,7 milljóna
króna viðbót kom, enda var engar
upplýsingar að fá hjá sjúkrahús-
mönnum fyrir norðan.
MISTAKASJÓÐUR
LÆKNA?
Það er enda mál manna að mál
þetta hafi aldrei átt að koma upp á
yfirborðið og það hefur farið mjög
leynt. Formaður stjórnar FSA, Jón
Sigurdarson, forstjóri Alafoss hins
nýja, er erlendis um þessar mundir,
en varaformaður stjórnarinnar,
Björn Jósef Arnviðarson lögfræð-
ingur, vildi ekki á nokkurn hátt tjá
sig um þetta sérstaka mál. Hann
kannaðist þó við að til þessarar
aukafjárveitingar hefði komið
vegna máls sem væri sérstaks eðlis,
en kæmi rekstrarvanda sjúkrahúss-
ins ekki við.
Engu að síður er ljóst að þessar
mistakamilljónir lenda á herðum
skattborgaranna á beinan eða
óbeinan hátt — nema fjárveiting
ríkisins til FSA á þessu ári verði
beinlínis skorin niður sem þessu
nemur. Það þykir heldur ólíklegt í
ljósi þess að heilbrigðisráðherra,
Gudmundur Bjamason, er úr kjör-
dæminu og lýsti nýlega yfir áhyggj-
um sínum af tækjaeign sjúkrahúss-
ins. Önnur leið væri að gera endur-
kröfu á hendur viðkomandi lækni,
sem þykir heldur ólíklegt, en á sér
þó fordæmi.
Viðmælandi HP lýsti í þessu sam-
bandi furðu sinni á því að mistök
sem þessi skyldu óhjákvæmilega
lenda á herðum skattborgaranna.
Nefndi hann þann möguleika, að
læknastéttin færi að fordæmi lög-
fræðinga og stofnaði sjóð sem hún
greiddi í. Sjóður þessi hefði einmitt
þann tilgang að greiða þeim bætur
sem lentu í því að bíða tjón og/eða
kostnað af mistökum félaga í
Læknafélagi íslands.
INFLUENSA AÐ
ORORKU!
Fróðlegt er að rifja upp mjög svip-
aða sögu af læknamistökum sem
HP greindi frá fyrir ári (,,Varð 75%
öryrki eftir smáaðgerð", HP 15.
apríl 1987). Rúmlega fertug kona,
sem við nefndum Svölu, fór 3. febrú-
ar 1983 í aðgerð í Landspítalanum
vegna „ofvirkandi æðasamdráttar".
Henni var sagt að búast við 4—5
daga innlögn og einhverjum verk í
fótum fyrstu dagana eftir aðgerð-
ina. 1 fyrstu vírtist allt með felldu en
eftir fjóra daga jukust verkirnir
verulega og líkamshitinn hækkaði.
Hún var úrskurðuð með inflúensu.
Tólf dögum eftir aðgerðina voru
saumar teknir úr en sárin hlupu
strax upp. Önnur aðgerð var fram-
kvæmd til að hreinsa skurðina, en
verkirnir upphófust fljótlega á ný
Síðar var hún lögð inn á taugadeild
spítalans, en engin viðhlítandi
læknismeðferð fannst og í kjölfarið
fylgdi úskurður um að Svala væri
orðin 75% öryrki. Hún fór í mál og
hljóðaði skaðabótakrafa hennar í
fyrra upp á 12 milljónir króna, sem
í dag samsvarar að minnsta kosti 15
milljónum króna. Borgarlögmaður
fékk hins vegar samþykkt lögbann á
málið síðastliðið sumar til að fá
fram frekara örorkumat og mál
þetta er enn óútkljáð.
TEFJA FRAM í UPPGJÖF?
Annað víðfrægt mál af örlaga-
ríkum læknamistökum er mál Kar-
uels Pálmasonar. ítarlega hefur ver-
ið fjallað um hans einstæða mál,
sem einkenndist af röð mistaka er
leiddu nær til dauða hans 1985. Eftir
ítarlegar rannsóknir og fundahöld
var skaðabótamál Karvels gegn
Reykjavíkurborg (f.h. Borgarspítal-
ans) dómtekið í Borgardómi í des-
ember 1987 með bótakröfu upp á 12
milljónir króna — borgarlögmaður
hefur alfarið neitað sáttum. Borgar-
lögmaður fékk frest í málinu og fékk
því framgengt að Karvelsmálið yrði
yfirfarið af tveimur læknum upp á
nýtt og hann skoðaður enn á ný af
fjórum sérfræðingum. Síðan hefur
hvorki gengið né rekið í málinu og
var Karvel þungorður í garð lækna-
stéttarinnar þegar hann var spurður
um mál sitt í gær, miðvikudag: ,,Það
virðast vera samantekin ráð hjá
þessum mönnum að tefja svona
mál, flækja þau og þvæla á allan
hugsanlega hátt. Mér er skapi næst
að álykta að þetta sé fyrst og fremst
gert til að fólk hreinlega gefist upp
og almenningur gefi þessa leið upp
á bátinn," sagði Karvel.
Geimvarnaáætlun Reagans koðnar
niður í hans eigin höndum
Geimvarnaáætlun Ronalds Reagan Bandaríkja-
íorseta, öðru nafni kölluð stjörnustríðsáætlun, er kom-
in í ógöngur. Bæði vísindamenn og herforingjar eru
búnir að afskrifa það markmið, sem forsetinn setti
fram í ræöu 23. mars 1983, að gera kjamorkueldflaug-
ar „ónýtar ogúreltar“ meðgeimvarnakerfi, sem eyddi
þeim áður en nokkur næði í mark. Þetta veldur enn
meiri óvissu en fyrr um vilja Bandaríkjaþings til að
verja óhemju fjárfúlgum í slíkan vonarpening um
langa framtíð
EFTIR MAGNÚS TORFA ÓLAFSSON
Enn kemur það til, að gildandi
samningur risaveldanna um tak-
mörkun varnaviðbúnaðar við eld-
flaugum reisir skorður við tilraun-
um með þau vopnakerfi, sem
geimvarnaáætlunin fæst við að
smíða. Bandaríkjastjórn hefur
reynt að komast fyrir þessa tor-
færu með því að setja fram það
sem talsmenn hennar kalla ,,víða“
túlkun á samningsákvæðunum.
Sovétmenn vilja ekki við hana
kannast, og það sem meira er,
Bandaríkjaþing telur á rétt sinn
gengið með „víðu" túlkuninni.
Öldungadeildinstaðfesti samning-
Geimvopn búið rafsegulbyssu til að skjóta að eldflaugum og öðrum skot-
mörkum 2,5 til 3 kilóa skeyti með 35 km/sek. kjafthraða um 3.000 til 5.000
km vegalengd. Ein af hugmyndum geimvarnaáætlunarmanna.
Fréttamaður Washington Post,
R. Jeffrey Smith að nafni, hefur
komist yfir eintak af leynilegri
álitsgerð yfirherráðs Bandaríkj-
anna frá því á síðasta ári. Þar er á
fjórum síðum dnegin saman niður-
staða af fenginni vitneskju eftir
fimm ára rannsóknarátak, sem
kostað hefur tólf milljarða dollara.
Yfirherráðið ályktar af vitneskj-
unni sem yfirstjórn geimvarna-
áætlunarinnar hefur látið í té, að
yfirlýst markmið forsetans, að
gera borgir Bandaríkjanna óhult-
ar fyrir árás með ddflaugum bún-
um kjarnorkuvopnum, virðist
ekki framkvæmanleg, bæði vegna
tæknivandkvæða og óyfirstígan-
legs kostnaðar. Hins vegar telur
herráðið framkvæmanlegt að
komið verði upp varnarkerfi á
jörðu niðri, semnægi til að afstýra
eyðingu herstjórnarstöðva og
kjarnorkuvopnabyrgja Bandaríkj-
anna á landi með skyndiárás.
Kemst yfirherráðið að þeirri
niðurstöðu, að þetta varnarkerfi
fyrir hernaðarmátt landsins gæti
komist upp frá ogmeð árinu 1996.
Kostnaður við það yrði 150 millj-
arðar dollara á núverandi verð-
gildi. En bandarískar borgir yrðu
jafnberskjaldaðar og áður. Her-
stjórnin telur að kerfiö sem hún
mælir með gæti skotiö niður 30 af
hundraði eldflauga, sem beint
yröi að Bandaríkjunum í sovéskri
stórárás.
Þetta þýðir, samkvæmt útreikn-
ingi sem rannsóknarhópur við
Princeton-háskóla hefur unnið og
byggir á líkönum gerðum í land-
varnaráðuneytinu í Washington,
að landslýð er dtir sem áður búið
gífurlegt afhroð í kjarnorkustyrj-
öld. Við það að 3.500 kjarnorku-
sprengjur lentu í námunda við
helstu hernaðarskotmörk í Banda-
ríkjunum yrði eftir útreikningun-
um mannfall þegar í stað frá 13
milljónum upp í 34 milljónir og 64
milljónir manna myndu sæta stór-
felldum áverkum.
Nú koma Reagan og mönnum
hans í koll fyrri fyrirheit um
óbrigðult varnarkerfi, sem fengist
með geimvarnaáætluninni.
Forsetinn hét því sjálfur, að áætl-
unin skyldi aldrd vera „bara önn-
ur aðferð til að verja eldflauga-
byrgi“ og önnur hernaðarleg skot-
mörk. Og James A. Abrahamson
hershöfðingi, yfirmaður geim-
varnaáætlunarinnar, hnykkti á
sömu meiningu fyrir ári: „Þetta er
ekki það sem fyrir okkur vakir.
Alls ekki.“
Richard N. Perle, aðstoðarland-
varnaráðherra öryggismála frá
1981 til 1987, er nútekinn að áfell-
ast fyrri samstarfsmenn í ríkis-
stjórninni, „sem halda að eina
leiðin til að viðhalda meðal al-
mennings stuðningi við geim-
varnaáætluninasé að lofa getu til
aö vernda fólk... Viö slíkt veröur
aldrei unnt að standa". Þetta sagði
Perle nýlega í ræðu í Brookings-
stofnuninni.
Að sögn R. Jeffrey Smith í
Washington Post vex hjá banda-
rískum hernaðarsérfræðingum efi
um að geimvarnaáætlunin tóri
lengi eftir að Reagan víkur af
forsetastóli. Það er hann sem knú-
iö hefur fjárveitingarnar í gegnum
tregt þing, og þá dnatt meö fyrir-
heitum sem nú erstaöfest aö ekki
reynist unnt aö uppfylla. Albert
Carnesdale, reyndur sérfræðingur
í afvopnunarmálum, lét nýlega
svo um mælt, að þar sem geim-
varnaáætlunin nyti hvorki fylgis
bandamanna Biuularíkjanna né
öflugs atbeina hergagnaiðnaðar
eða herstjórnar í landinu sjálfu,
væri vandséö hvaðan þrýstingur
ætti aö koma henni til framdráttar,
eftir að Reagans nyti ekki lengur
við.
Sam Nunn, formaöur land-
varnanefndar öldungadeildar
Bandaríkjaþings og mestur áhrifa-
maður um hemaðarmálefni í
flokki demókrata, hefur þegar lagt
til að geimvarnaáætlunin verði
lögð fyrir róða og í staðinn hefjist
rannsóknir, sem miði að því að
koma upp á jörðu niðri viðbúnaði
til að verjast þeirri hættu sem
hann telur raunverulegan mögu-
leika, eldflaugaskoti af slysni eða
frá fjandsamlegu kjarnorkuveldi
meðal þriðja hdms ríkja.
Herstjórnin bandaríska horfir
fram á þverrandi fjárveitingar á
komandi árum vegna óstæðilegs
fjárlagahalla og skuldabyrði frá
stjórnartímabili Reagans. Hún er
því ekki líkleg til að reynast mikill
bakhjarl fyrir þá peningahít sem
geimvarnaáætlun yrði, jafnvel í
þeirri mynd sem talin er fram-
kvæmanleg í leyniskjali herstjórn-
arinnar frá í fyrra Fé bandaríska
landvarnaráðuneytisins til rann-
sóknaþarfa rann að 23 hundraðs-
hlutum til geimvarnaáætlunarinn-
ar árið 1984. í fjárlögum næsta árs
er gert ráð fyrir að þetta hlutfall
verði komið upp í 48 af hundraði.
Með sama áframhaldi kemur
kyrkingur í alla aðra vopnaþróun
en ótrausta geimvarnaáætlun.
inn, og sættir sigekki við að síðari
ríkisstjórn taki að breyta túlkun
hans á sitt eindæmi. Því eru nú-
gildandi fjárveitingar til geim-
varnaáætlunarinnar bundnar því
skilyrði af þingsins hálfu, að fariö
verði stranglega dtir fyrri túlkun
samningsins viö allar tilraunir.
Ljóst er að Sovétstjórnin gerir
sér grein fyrir hvaðan vindurinn
blæs í Bandarikjunum gagnvart
geimvarnaáætluninni, og hefur
því ekki eytt á hana miklu púðri aö
undanförnu. Sovétmenn eru að
því er virðist farnirað gera ráð fyr-
ir að þetta tiltæki Reagans falli um
sjálft sig án mikils tilverknaöar af
þeirra hálfu.
Á fundi Reagansog Gorbatsjoffs
í Washington í fyria var notað loð-
ið orðalag um túlkun á gagneld-
flaugasamningnum. Það bindur í
raun hendur Bandaríkjastjórnar,
vegna þess hver afstaða þingsins
er í málinu.
Lengi vel hefur bandaríska land-
varnaráðuneytið streist gegn því
að rætt væri við Sovétmenn um
hvað væri heimilt og hvað óheim-
ilt í vopnatilraunum samkvæmt
gagneldflaugasamningnum, vildi
halda fast við sínaeinhliða „víðu"
túlkun.
Nú er landvarnaráðuneytinu
ekki stætt á þessu lengur. Á fundi
utanríkisráðherra risaveldanna í
Washington í fyrri viku kynnti
George Shultz af hálfu Bandaríkja-
stjórnar Eduard Shevardnadse
hugmyndir, semsoðnar höfðu ver-
iö saman í Washington með mikl-
um harmkvælum að sögn frétta-
manna. Ein er á þá leið að koma
fyrir úti í geimnum skynjurum til
að fylgjast með skoti og ferli eld-
flauga. Sovétmain eru sagðir hafa
talið þetta koma til greina, fengju
þeir að kynna sér skynjarana áður
en Bandaríkjamenn skytu þeim
upp. Seint er stjórn geimvarna-
áætlunarinnar líkleg til að vinna
slíkt til. Þar við situr.
HELGARPÓSTURINN 7