Helgarpósturinn - 07.04.1988, Page 9

Helgarpósturinn - 07.04.1988, Page 9
var stofnað í miðjum gróandanum í fyrrasumar og hóf þá útgáfu „Bændablaðsins“, sem komið hef- ur út mánaðarlega í dagblaðsformi. Undirtektir hafa verið mjög góðar og munu áskrifendur komnir vel á annað þúsundið, enda hefur blaðið þótt skeleggt málgagn bænda og hafa tekið öðruvísi á málum og á öðrum málum en hinar steinrunnu valdastofnanir bænda og svokölluð málgögn þeirra. Nú hefur HP heyrt, að „Bænda- blaðið” sé í þann veginn að færa út kvíarnar og hefja útgáfu á öðru mánaðarblaði í svipuðu formi. Mun það koma til með að heita „Lands- byggðin" og þjóna málefnum þétt- býlisstaðanna utan höfuðborgar- svæðisins. Fyrsta tölublaðið er væntanlegt kringum 20. þessa mán- aðar. A aðalfundi „Bændasona” nk. laugardag verður tilkynnt um und- irtektir við hlutafjárútboði að upp- hæð kr. 2.000.000 og munu flest hlutabréfin seld. Blöð „Bændasona" munu því hefja göngu sína með óvenju traustan fjárhagslegan bak- hjarl, en íslenskir fjölmiðlar hafa gjarnan, eins og kunnugt er, verið reistir á sandi og ætlað að lifa á loft- inu einu saman. Starfsmenn „Bændablaðsins” á ritstjórn eru þrír: Bjarni Harðarson, ritstjóri, og Anna B. Sigurðardótt- ir og Jón Daníelsson blaðamenn. Fyrst hér er á annað borð minnst á skoðanakönnun Félags- vísindastofnunar og Stjörnuna er ekki úr vegi að geta þess að sam- kvæmt auglýsingu Stjörnunnar um hlustun á útvarpsstöðvarnar föstu- daginn 5. mars er mikill munur á því BÍLALEIGA Útibú í kringum landið REYKJAVÍK:.....91-31815/686915 AKUREYRI:.......96-21715/23515 BORGARNES:.............93-7618 BLÖNDUÓS:.........95-4350/4568 SAUÐÁRKRÓKUR:......95-5913/5969 SIGLUFJÖRÐUR:.........96-71489 HÚSAVÍK:........96-41940/41594 EGILSSTAÐIR:...........97-1550 VOPNAFJÖRÐUR:.....97-3145/3121 FÁSKRÚÐSFJÖRÐUR: . 97-5366/5166 HÖFN HORNAFIRÐI: ..... 97-8303 eftir aldurshópum hverjir hlusta al- mennt á fréttir. Þannig má lesa út úr línuritum í auglýsingunni að um 3% aðspurðra í aldurshópnum 15—24 hlusta á kvöldfréttir gamla gufuradí- ósins á meðan 41% aðspurðra í ald- urshópnum 40—60 ára hlusta á þessar sömu fréttir. Hlustun á frétta- efni almennt á öllum stöðvum virð- ist ekki eiga upp á pallborðið hjá ungu fólki því þær „toppa" ekki list- ann yfir vinsælt útvarpsefni eins og hjá hinum eldri. Það virðist því vera að almennur áhugi á þeim málefn- um sem efst eru á baugi hverju sinni sé lítill hjá þeim sem erfa munu landið. Nema auðvitað að þetta komi þegar aldurinn færist yfir . . . |k| ■ ^9 ú fer loks að hilla undir dómsúrskurð í máli Sturlu Krist- jánssonar, fyrrverandi fræðslu- stjóra Norðurlands eystra, gegn fjármálaráðherra — fyrir hönd ríkissjóðs. Við sögðum síðast frá máli þessu fyrir nokkrum vikum þegar Sverrir Hermannsson, fyrrverandi menntamálaráðherra, var tekinn í yfirheyrslu í Borgar- dómi, en það var Sverrir sem rak Sturlu með ásökunum um trúnaðar- brot og að hafa farið fram úr fjárlög- um. Um miðjan mars tók dómarinn sér frest til að afla frekari gagna í málinu og frá 23. mars fékk ráðu- neytið frest til að afla gagna. Sá frestur rann út í gær og um leið var málið endurupptekið. Kunnugir telja að dómui í þessu sérstæða máli kunni jafnvel að falla fyrir helgi.. . menn átt í deilum við Birgi ísleif Gunnarsson menntamálaráðherra vegna þeirrar túlkunar lánsjóðs námsmanna að meðlagsgreiðslur væru tekjur og bæri því að láta þær koma til frádráttar við ákvörðun námslána. Námsmenn lögðu fram það lögfræðilega álit að túlkun þessi væri ólögmæt og hefur sú ákvörðun síðan verið tekin að hverfa frá þess- ari túlkun frá og með næsta skóla- ári. Það er hins vegar óhagganleg ætlan námsmanna að leiðrétting á þessu verði afturvirk og mun menntamálaráðherra vera að íhuga þetta nú en er væntanlega ekki hrif- inn. Það heyrist hins vegar úr her- búðum námsmanna, að þeir undir- búi nú fullum fetum málsókn — láti einhverja einstæða móður fara í mál við ráðherra, á kostnað samtak- anna, til að fá leiðréttinguna aftur- virka, ef Birgir skyldi taka „ranga” ákvörðun . .. Stórhöföa, Sími671100 KERASTASE 'FRÁ L'ORÉAL PARÍS Án ÞÚ í ERFIÐLEIKUM MEÐ HÁRIÐ. LEITAÐU RÁÐA HJÁ HÁRGREIÐSLU- MEISTARANUM. SPURÐU HANN UM KERASTASE. FÆST AÐEINS Á HÁRSNYRTISTOFUM. Verð kr. 106.000,- Casino Kr. 96.000,- stgr. Verið ekta, kaupið leður! Opið laugardag kl. 10-16. Húsgagnasýning sunnudag kl. 14-17. B O’RG/i'R húsqöqn Hreyfilshúsinu við Grensásveg KLIPPINGAR, PERMANENT, LITUN KREDITKORTAÞJÓNUSTA HARSNYRTISTOFAN Dóróthea Magnúsdóttir Torfi Geirmundsson Laugavegi 24 l|. hæð 101 Reyljjavik, ®17144 APRILTILBOÐ Á VÖNDUÐUM ÞÝSKUM LEÐURHÚSGÖGNUM Verð kr. 109.000,- Bari Kr. 98.000,- stgr. Verð kr. 108.000,- Palermo Kr. 98.000,- stgr. Verð kr. 103.000,- Kr. 93.000,- stgr. Medici grænmetí HELGARPÓSTURINN 9

x

Helgarpósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.