Helgarpósturinn - 07.04.1988, Qupperneq 24
Eins og menn muna voru aug-
lýstar þrjár aðstoðarbankastjóra-
stöður í Landsbanka Islands í
kjölfar ráðningar Sverris Her-
mannssonar í embætti aðalbanka-
stjóra. Margir sóttu og mun á næst-
unni verða gengið frá ráðningum
þessum, a.m.k. heyrum við að
Jónasi Haralz sé mikið í mun að
gengið verði frá þessum málum áð-
ur en hann yfirgefur bankann. Segja
menn innan Landsbanka að ástæð-
an sé sú að hann vilji koma frænda
sínum Brynjólfi Helgasyni í eitt
embættanna þriggja. Ovíst er hvort
sú tillaga hlýtur stuðning í banka-
ráði, sem er æðstaráð bankans,
enda mun ráðið hafa fullan hug á að
undirbúa verk- og valdsvið aðstoð-
arbankastjóranna vel áður en þeir
verða ráðnir. Aðrirsem nefndir hafa
verið í embætti aðstoðarbanka-
stjóra eru þeir Björn Líndal, fyrr-
um frammámaður ungra framsókn-
armanna, og Jóhannes Ágústs-
son, sem ætti þá eftir öllum sólar-
merkjum að dærm að hallast að
Alþýðuflokki.. .
Þ
að vakti óneitanlega athygli
þegar Jóhanna Sigurðardóttir
félagsmálaráðherra skipaði Hall-
grím Snorrason hagstofustjóra í
sérstakan vinnuhóp sem nýlega
skilaði félagsmálaráðherra tillögum
í húsnæðismálum Bæði er Hail-
grímur einn höfunda þess iánakerfis
sem nú er lýst gjaldþrota og sömu-
leiðis sendi hann Jóhönnu tóninn
stuttu fyrir alþingiskosningarnar í
fyrra vegna skoðana sem alþingis-
maðurinn þáverandi hafði á því
lánakerfi, sem Hallgrímur lýsir nú
24 HELGARPÓSTURINN
gjaldþrota. Fyrir réttu ári gekk hann
fram fyrir skjöldu til að verja verkið.
Menn velta fyrir sér hví Jóhanna
valdi hagstofustjórann til nefndar-
starfa og hefur heyrst að ástæðan sé
sú að fjármála- og viðskiptaráð-
herra hafi lagt hart að henni að fá
Hallgrím inn í nefndina. . .
S,._ _ J,,
hlustendakönnun Félagsvísinda-
stofnunar Háskólans um daginn.
Ljóst er að þetta notfæra auglýsend-
ur sér óspart. Nú er svo komið að
ekki er lengur hlustandi á Stjörn-
una vegna þess hve mikið er af aug-
lýsingum þar. Þess vegna hlustar
maður frekar á Bylgjuna eða rás 2,
þessar „óvinsælu" stöðvar skv.
könnuninni, til þess að Iosna við
auglýsingarnar, en minna er auglýst
þar vegna þess að færri hlusta. í
næstu könnun verður því líklega
annað upp á teningnum en í þeirri
ofangreindu. Þá mun koma í Ijós að
fólk hlustar á Bylgjuna og rásina til
þess að losna við auglýsingagargan-
ið og vegna þes að fleiri hlusta, þá
fara auglýsendur að auglýsa meira á
þeim tveimur stöðvum. Þetta mun
valda því að fólk fer aftur að hlusta
á Stjörnuna o.s.frv. o.s.frv. Með tím-
anum verður líklega til einhvers
konar ferli milli vinsælda og óvin-
sælda útvarpsstöðva, þar sem aug-
lýsingar eru aðaláhrifavaldurinn.
Líkt og kennt er í líffræðinni í gaggó,
að stækkun og minnkun refastofns
á afskekktri eyju haldist í hendur
við stækkun og minnkun kanínu-
stofnsins á eyjunni. Eða þannig. . .
A
i^^^^ðalfundur Alþýðubank-
ans var ekki haldinn með neinum
látum nú fyrir skemmstu. Á yfir-
borðinu mun allt hafa verið slétt og
fellt, enda þótt mönnum sé í fersku
minni hvernig Ásmundur Stefáns-
son beitti sér fyrir því á síðasta ári
að flæma þáverandi bankastjóra,
Stefán Gunnarsson, úr embætti.
Og útkoma bankans var allt í einu
orðin prýðileg, ja'átt fyrir að Ás-
mundur og félagar létu að því liggja
fyrir ári, að Steön hefði stjórnað
bankanum illa. Uixirast menn enn í
dag aðferðir Ásmundar, sem ekki er
hægt að skilja öðru vísi en hann hafi
viljað koma vini sínum og fyrrum
samstarfsmanni, Birni Björns-
syni, í bankastjórastólinn, en hann
tók við bankanum 1. marz. Og tal-
andi um Björn; ekki er vitað til þess
að hann hafi sagt sig úr bankaráði
Seðlabanka Islands eftir að hann
tók við bankastjórastólnum, en þar
situr hann fyrir krata. Mun hann
eini bankastjóri viðskiptabanka
sem jafnframt situr í stjórn annars
banka. . .
AB DRAUMABÍLNUM ER BINGÓSPJALDiÐ ÞITT
SIÓNVARPSBIHGÓ Á STÖÐ 2
Aðalvinningur á hverju mánudagskvöldi er VOLVO
740 GL frá VELTI að verðmæti kr. 1.100.000.-
Sannkallaður draumabíll
Aukavinningar eru 10 talsins: hljómflutningstæki frá
HLJÓMBÆ, PIONEER XZL, hvert að verðmæti
kr. 50.000,-
Heildarverðmæti vinninga í hverri viku er því
1.600.000 KRÓNUR
Spilaðar eru 2 umferðir í hverjum Bingúþætti:
FYRRI UMFERÐ: Spiluð er ein lárétt lína um 10
aukavinninga
SEINNI UMFERÐ: Spilaðar eru 3 láréttar línur (eitt
spjald) um bílinn.
Þú þarft ekki lykil að STÖÐ 2 því dagskráin er send
út ótruíluð. Allt sem þú þarft er BINGÓSPJALD,
og það færð þú keypt á aðeins 250 krónur
í sölutumum víðsvegar um land.
UPPLAG BINGÓSPJALDA
ER TAKMARKAÐ,
AÐEINS 20.000 SPJÖLD
VINNINGAR ERU SKATTFRJÁLSIR
OG BER AÐ VITJA ÞEIRRA
INNAN MÁNAÐAR
STYRKTARFÉLAG
UPPLÝSINGASlMAR ERU 673580 OG 673561
AILTAF Á
MÁNUDÖGUM
KL. 20.30
í ÓTRUFLAÐRI
DAGSKRÁ
ÁSTÖD2