Dagblaðið Vísir - DV - 14.03.1997, Blaðsíða 11
FÖSTUDAGUR 14. MARS 1997
*í
-jM
lennmg
n
t
I
Vegvísir Jóns
Tónleikar í rauðri tónleikaröð Sinfóníu-
hljómsveitar íslands voru haldnir í gærkvöld.
Á efnisskránni voru þrjú verk, Bjarkarmál eft-
ir Jón Nordal, Inngangur og allegro op. 47 eft-
ir Elgar og Veni, Veni Emmanuel eftir James
Macmillan. Hljómsveitarstjórinn, Jerzy
Maksymiuk, er tónleikagestum að góðu kunn-
ur. Einleikaranum, sem aftur kemur hingað i
fylgd hans, getur enginn gleymt sem einu
sinni hefur upplifað. Evelyn Glennie er snilld-
ar slagverksleikari sem alla töfrar með göldr-
um sinum.
Tónlist
Sigfríður Björnsdóttir
Verkin þrjú á efnisskránni eru öll sérkenni-
lega persónulegir merkisberar síns tíma. í
verkinu eftir Elgar, sem samið er 1905, má
greina svolítið ráðvillt afturhvarf til fortíðar.
Burðarstoðir tónlistarinnar eins og hún hefur
hljómað árhundruðum saman, hanga á þess-
um tíma uppi eiginlega bara á lyginni. Það
þarf aðeins að blása á spilaborgina og þar með
hrynur hún. Eða það héldu menn. Margir
horfðu því, eins og Elgar, með trega til fortíð-
ar og voru með sumum verka sinna meira að
kveðja það sem áður hafði verið en að endur-
vekja það.
Um það bil fimmtíu árrnn síðar skrifar Jón
Nordal hins vegar verk sitt Bjarkamál og þar
Einleikaranum getur enginn gleymt ... Evelyn
Glennie á æfingu með Sinfóníuhljómsveit Is-
lands. DV-mynd EÓI.
má heyra það sem Elgar vissi ekki, en það er
að hefðin lifir! Ekki kunnugleg í tregahland-
inni íhaldssemi heldur sem grunnur nýrra
tíma og breyttra verka. í Bjarkamálum Jóns er
haldið utan um frumlegan og sérstæðan efni-
viöinn með aðferðum sem eiga sér í raun ræt-
ur í heiðríkju klassíkurinnar. Rökleg fram-
vinda og þétfleiki úrvinnslunnar bera framúr-
skarandi tónlistargáfum vitni. Hinn ungi Jón
á grundvelli þessa verks mögulegur spámaður
í eigin fóðurlandi. Ekki vannst tími til að
fletta upp samtimaumsögnum, en líklegt verð-
ur að teljast að menn hafi nefnt áhrifavalda
eins og Bartók þar. Verkið er íslenskt, stund-
um um of ef það er hægt. Síðasti hlutinn stend-
ur ekki alveg undir hlutverki sinu, en í heild-
ina er verkið sterk og persónuleg smíð -
sem vísar inn í bjarta framtfð fagurrar \
óhlutbundinnar tónlistar í sinni hreinustu '
mynd. Vegvísir fyrir alla sem vildu gegn-
um þoku niðurrifs og tilrauna.
Macmillan er barn þess tíma þegar mörk 1
afþreyingarefnis og tónlistar sem listgreinar
eru að þurrkast út. Veni, Veni Emmanuel,
sem frumflutt var árið 1992, stóð ekki undir
þeim vonum sem fyrri kynni af verkum hans
höfðu vakið. Verkið er óneitanlega skemmti-
legt á köflum, með grípandi hrynmynstrum
sínum og dansáhrifum, en það er ekki nóg.
Vegna þess að það stendur á veikum gnmni
hvað varðar hljóma og linur þá verður fram-
vindan tilbúningur, verkið situr á mikilvæg-
um stöðum eins og fast í sjálfu sér. Tilbreyt-
ingin ein skapar ekki samhengi sem þolir tim-
ans tönn og það gera hljóða-„effektar“ ekki
heldur. Ef heldur fram sem horfir endar hinn
að maður hélt hæfileikamikli Macmillan sem
kvikmyndatónsmiður, ekki slæm staða en allt
önnur en sú sem hann virtist stefna á.
Flutningur var í gærkvöldi mjög góður.
Ákefð stjómandans og innlifun hins snilldar-
lega einleikara var smitandi og þess nutu bæði
hljóðfæraleikarar og hlustendur.
Hjá „góðu" fólki
Á Herranótt Menntaskólans i Reykjavík er
hefð fyrir því að hugsa stórt og leggja mikið í
sýningar. Uppfærslan á Andorra eftir Max
Frisch er þar engin undantekning og greini-
lega liggur óhemjuleg vinna að baki þegar ár-
angurinn loks birtist fyrir augum áhorfenda.
í smáríkinu Andorra, sem höfundurinn Max
Frisch tekur skýrt fram að eigi ekkert sameig-
inlegt hinu raunverulega Andorra nema nafn-
ið, ríkir friður og íbúum finnst sjálfum að þar
þrífist gott mannlíf. En þegar betur er að gáð
kemur ýmislegt annað í ljós.
Leikritinu er ætlað að verka sterkt á áhorf-
andann og það er þrungið margvíslegum skila-,
boðum, sem flétta leikritsins afhjúpar smátt og
smátt.
Rétt eins og fuglar sem hópa sig saman að
hausti hefúr „samlitt" fólk tilhneiginu til að
þjappa sér saman, en sá sem ekki fellur inn í
hópinn er tekinn fyrir.
Tískuorðið „einelti“ á vel við um efni og
inntak leikritsins, sem sýnir hvemig tilfinn-
ingakuldi og afskiptaleysi um hag náungans
geta verið allri grimmd verri og leitt til ógæfu.
Það eru einmitt þessi skilaboð sem hitta beint
í mark, burtséð frá tima og umhverfi. í kjama
verksins stendur svo hin ótrúlega aðlögunar-
hæfni mannskepnunnar, sem sér aðeins það
sem hún vill sjá og er svo undrafljót að hvít-
þvo sjálfa sig af allri sök sé þess kostur.
Leikendurnir standa sig í heildina tekið
prýðilega, og augljóst að leikstjóri hefur lagt
rækt við hvert og eitt. Þaö er auðvitað ekki
hægt að æflast til þess að menntaskólanemar
nái utan um persónulýsingamar i leikriti eins
Leiklist
Auður Eydal
og Andorra en þama má sjá þokkalegustu
frammistöðu einstakra leikenda. Af þeim má
nefna Ólaf Egil Egilsson, sem er í nokkrum
sérflokki, Svein Kjarval í hlutverki Andra,
Sunnu Mímisdóttur, Ester Talíu Casey, Sól-
veigu Guðmundsdóttur, Hlyn Pál Pálsson,
Finn Þór Vilhjálmsson og Baldvin Þór Bergs-
son.
Þó að verkefnið sé erfitt hefur hópnum tek-
ist að vinna úr því sjálfum sér og áhorfendum
til þroska og umhugsunar. Og það er varla
hægt að biðja um meira.
Sveinn Kjarval og Sunna Mímisdóttir f
hlutverkum sínum. DV- mynd Hilmar Þór
Á Herranótt M.R. í Tjarnarbíói:
Andorra
Höfundur: Max Frisch
Þýöing: Þorvarður Helgason
Leikstjórn: Magnús Geir Þórðarson
Listræn hönnun: Sigurður Kaiser Guðmunds-
son
Tónlist: Ólafur Björn Ólafsson
Óheppinn píanósnillingur
Píanóleikur í kvikmyndum er oft ósannfær-
andi. Leikarinn er þá með hendumar á kolvit-
lausum stað á hljómborðinu miðað við það sem
heyrist og setur um leið upp klisjukenndan
væmnissvip sem enginn alvömpíanóleikari sést
gera. Sem betur fer hafa aðstandendur kvik-
myndarinnar Shine, eða Undrið eins og hún
nefhist á Islensku, ekki fallið í þessa gryfju. Það
er nánast eins og Geoffrey Rush - sem leikur
ástralska píanósnillinginn David Helfgott - sé
að spila á píanóið í alvöru. Og hvílikur píanó-
Tónlist
Jónas Sen
leikur! David Helfgott spilar sjálfur verkin sem
heyrast í myndinni og verður örugglega ein af
skærastu stjömum tónlistarheimsins.
í örstuttu máli gallar Undrið um undra-
bamið Helfgott sem var rekinn áfram af föður
sínum. Sá síðarnefndi var reyndar ekki með
öllum mjalla, þvi þegar sonur hans skyldi
halda til náms í annarri heimsálfu trylltist
hann af afbrýðisemi. Hinn ungi David fór samt
til London til frekara náms, og varð það til
þess að sá gamli afheitaði syni sínum. Olli það
auðvitað miklum sálarkvölum, og mörgum
árum seinna, rétt eftir að Helfgott hafði leikið
Noah Taylor leikur David Heifgott ungan - þann
sem spilar Rachmaninoff á lokaprófinu.
þriðja pianókonsert Rachmaninoffs á loka-
prófstónleikum sínum, fékk hann taugaáfall og
var settur á geðdeild. Þar var hann í tíu ár án
þess að snerta hljóðfæri - svo kynntist hann
góðri konu og í kjölfarið fór hann aftur að
koma fram á tónleikum, við trylltan fógnuð
áheyrenda.
Skemmst er frá því að segja að þetta er frá-
bær mynd. Geoffrey Rush er mjög sannfær-
andi sem hinn stórskrýtni, síblaðrandi píanó-
snillingur - og hann er ekki með neinn Ric-
hard Clayderman-svip á andlitinu þegar hann
spilar. Myndin sýnir á áhrifaríkan hátt hversu
erfitt er að vera undrabam og konsertpíanó-
leikari, og eiga heimskan foður. Því miður
stígur það mörgum foreldram til höfuðs að
eiga snilling fyrir son eða dóttur og freistast
margir til að troða baminu fram í sviðljósið
áður en nægur þroski er fyrir hendi.
Píanókennarinn Cecil Parkes - sem leikinn
er af John Gielgud - á nánast grunsamlega
náin samskipti við nemanda sinn, Helfgott. En
þegar betur er að gáð á þetta sínar skýringar:
Parkes véir mikilhæfur píanóleikari en hafði
verið svo óheppinn að veikjast með þeim af-
leiðingum að hann gat ekki lengur stundað list
sína. Parkes segir Helfgott að hann hafi líka -
áður en hann veiktist - leikið þriðja píanó-
konsert Rachmaninoffs fyrir Rachmaninoff
sjálfan, sem dó árið 1943. Parkes er því á viss-
an hátt að framlengja hlutverk fóðurins ógur-
lega - sem einnig var misheppnaður hljóð-
færaleikari og vildi að sonurinn léki þennan
konsert strax á barnsaldri. Það er því ekkert
skrýtið að David skyldi brotna saman.
Þriðji píanókonsert Rachmaninoffs er
hræöilega erfiður og hefur hvflt þungt á mörg-
um píanóleikaranum í gegnum tiðina. Undir-
ritaður hefúr það eftir áreiðanlegum heimild-
um að Vladimir Ashkenazy hafi eitt sinn
dreymt draum þar sem hann var að spila þetta
verk á píanó á hliðinni - á lóðrétt hljómborð -
fyrir fullu húsi. Það er sko martröð í lagi...
Ottó nashyrningur
Sagan um Topper, Viggó, töfrablýant-
inn og stóra og klunnalega nashyming-
inn eftir vinsæla danska bamabókahöf-
undinn Ole Lund Kirkegaard var kvik-
mynduð fyrir alla fjölskylduna og mynd-
in verður sýnd í Norræna húsinu á
sunnudaginn kl. 14. Ókeypis inn.
Óbó í einleikshlutverki
Okkur gefst ekki oft tækifæri til að
heyra heila tónleika þar
sem óbó er í einleikshlut-
verki, en það gerist á
mánudagskvöldið í
ierðarsafni í Kópavogi.
>á halda tónleika Ey-
dís Franzdóttir óbó-
leikari og Brynhildur
Ásgeirsdóttir píanó-
leikari. Á efiiisskrá
eru verk eftir
Michael Head,
Paul Hindemith,
QBtýí'""0 J.W. Kaliwoda,
Antal Doráti, Carl Niel-
sen og Camille Saint-Saens.
Tónleikamir hefjast kl. 20.30.
Leikhústónlist í Lista-
kjallara
A mánudagskvöldið veröur Söngskól-
inn í Reykjavík með dagskrá í Lista-
klúbbi Leikhúskjallarans þar sem Nem-
endaópera skólans flytur valda kafla úr
tveim efnisskrám sem fluttar hafa verið
undanfarið við miklar vinsældir.
í fyrri hluta dagskrárinnar flytja
söngvaramir ungu útdrátt úr Leður-
blökunni eftir Johann Strauss, um það
bil klukkustundar langan, undir stjóm
Iwonu Jagla og Garðars Cortes. Til að
punta upp á veislu Orlofskys verða
skemmtiatriði úr Carmen og Ævintýr-
um Hoffmans.
í seinni hluta dagskrárinnar er tónlist
úr íslenskum leikritum og bandarískum
söngleikjum undir stjóm Magnúsar
Ingimarssonar. Meðal annars verða flutt
lög eftir Jón Múla og Jónas Ámasyni,
Flosa Ólafsson og Magnús Ingimarsson.
Einnig verða fluttar syrpur úr söngleikj-
unum Carousel og Show Boat.
Alls koma fram 26 nemendur óperu-
deildar Söngskólans, og sögumaður er
Helga Kolbeinsdóttir. Húsið veröur opn-
að kl. 20 en dagskráin hefst kl. 21.
Síðasta heimsókn Guðríð-
ar á Snæfellsnes
Á sunnudagskvöldið kl. 20.30 verður
leikritið Heimur Guðríðar - Síðasta
heimsókn Guðríðar
Símonardóttur i
kirkju Hallgríms -
eftir Steinunni Jó-
hannesdóttur
sýnt í Ólafsvík-
urkirkju í til-
efni af þrítugs-
afmæli kirkj-
unnar á þessu
ári. Leikritiö
var frum-
sýnt á
Kirkjulista-
hátíð í Heiga _
Reykjavík G“óríöar
i júní ' '
í
1995 og hefur
verið sýnt í fjölmörgum
kirkjum víða um land síðan. Aðal-
hlutverk leika Helga E. Jónsdóttir og
Þröstur Leó Gunnarsson.
Á mánudagskvöldið kl. 20.30 verður
verkið sýnt í Grundarfjarðarkirkju.
Sallenave í heimsókn
Á mánudagskvöldið kl. 20.30 verður
haldið bókmenntakvöld til heiðurs
franska rithöfundinum Daniéle Sallena-
ve hjá Alliance Fran?aise við Ingólfs-
torg. Þar munu Guðrún Kristinsdóttir
og Ásta Ingibjartsdóttir lesa úr verkum
Daniéle og texta eftir hana verður dreift
í þýðingu Friðriks Rafnssonar. Torfi
Tulinius túlkar.
Umsjón
Silja Aðalsteinsdóttir
■n