Dagblaðið Vísir - DV - 14.03.1997, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 14.03.1997, Blaðsíða 10
10 FÖSTUDAGUR 14. MARS 1997 Spurningin Lesendur Er líf á öörum hnöttum? Ólafur Jónas Signrðsson nemi: Ég gæti trúað þvi að það sé tilfellið. Brynjar Steinbach nemi: Það get- ur ekki annað verið. Snæbjöm Guðbjartsson verktaki: Það hlýtur að vera. Guðrún Þorláksdóttir húsmóðir: Já, ég trúi á líf á öðrum hnöttum. Ásta Erla Jakobsdóttir á leik- skóla: Nei. Auglýst eftir hjálp! - ofsóknir sem engan endi virðast hafa Guðrún Jóhannsd. skrifar: Fyrir einu og háifu ári gafst ég endanlega upp á sambýlingi mínum sökum óreglu og geðríkis, og á stundum ofbeldistilhneigingar. Við eigum tvö börn saman. Hann var það sem kalla má þröskuldarsam- býlismaður. Þetta voru eilífðarlæti og alltaf átti áfengið stóra sök. Þess- ir síðustu átján mánuðir hafa verið hreint helvíti fyrir mig og bömin mín. Ég sé einfaldlega engan veginn fyrir endann á þessu. Maðurinn er alitaf útúrdrukkinn með hótanir eða óþverraskap í síma. Ég er búin að kæra hann fyr- ir innbrot, en það mál hafnaði á háalofti RLR. Símaónæðiskærurnar eru fleiri en ég man. Ég hef haft Víkingasveitina inni á heimilinu að næturlagi vegna síendurtekinna morðhótana, en það versta af öllu er að þessum manni þarf ég að af- henda börnin mín aðra hverja helgi. Manni sem ég treysti ekki fyrir hús- hom, honum þarf ég að treysta fyr- ir bömunum. Maðurinn er fárveikur. Það má heita að nánast allir sem ég um- gengst hafi orðið fyrir einhvers kon- ar ónæði og ofsóknum. Fleiri hafa kært en ég, en allt til einskis. Hringi ég á lögregluna, þá er mér bent á að það eina sem ég geti gert sé að láta Þessir síðustu átján mánuðir hafa verið hreint helvíti fyrir mig og börn- in mín, segir bréfritari m.a. hengja upp línuna! Hlægilegt. Það hefur ekki sýnt sig að það gagni mikið. Hvers vegna er ekki hægt að taka svona fólk í geðrannsókn? Allar kærur em merktar „beðið gagna“, hvað sem það nú þýðir. Því virðist enginn geta svaraö. Svona menn virðast geta lifað á kostnað skattborgaranna í formi félagsmála- stofnana, verið marg gjaldþrota, búið í eigin húsnæði með óþinglýst- um kaupsamningi og haft lögheim- ili i öðmm bæjarhlutum, svo að ekki sé hægt að fínna þá. Það er kaldhæðnislegt að eftir því sem maður vinnur meira og borgar meira í opinber gjöld, þá er maður að leggja svona vesældómi meira lið. Maður er, strangt til tekið, að borga óþverraskapinn. Lifibrauðið er ekki merkilegt, framfleytt af al- mannafé og tekjumar drýgðar með landasölu. En þetta virðist ekki nægja til að vekja áhuga lögregl- unnar. Ég hef það á tilfinningunni að áherslur þeirra séu á öðrum sviðum: drukknum ökumönnum, árekstram og dópi, sem auðvitað eru líka alvarleg mál. Kannski er þetta bara þannig, að enginn hafi vald til að gera neitt. Varla er litið á svona ástand sem eðlilegar heimiliserjur, eftir eins og hálfs árs stríð? Ég er ráðalaus. Lög- reglan vita gagnslaus. En ef einhver kann ráð, þá er hér með auglýst eft- ir svari, sem vonandi yrði birt í þessum dáikum DV. Framtíðarsvæði höfuð- borgarinnar Hildur skrifar: Borgaryfirvöld em í viðræðum við sveitarfélögin á Hvaifiarðar- svæðinu. Hafa borgarbúar reynt að líta áratugi inn í framtíðina og ímyndað sér hvemig borgin muni líta út með mörg stóriðjuver í tún- fæti íbúðabyggðar, steinsnar frá úti- vistarsvæði íbúanna? Þetta mun blasa við borgarbúum grípi þeir ekki í taumana og stöðvi það stórslys sem verða mun, ef stjómvöld gera alvöru úr þeirri ákvörðun sinni, að gera Grundart- anga að stóriðjusvæði. Sá nokkur fyrir sér þegar áburðarverksmiðjan var reist, að hún myndi lenda svo nærri heimilum borgarbúa? Höfuðborg landsins á að vera stolt okkar allra og vonandi berum við gæfu til að umvefia hana ekki mengandi stóriðju. Nóg er mengun- in fyrir vegna útblásturs frá bifreið- unum. Launþegaforingjar VR og Rafiönaöarsambandsins ganga á fund forsætisráöherra til aö hlýða á skattaútspil ríkis- stjórnarinnar. Skammsýnir samningar og skammarlegir Guðjón Ólafsson skrifar: Nú hafa fyrstu samningarnir í þessari kjarasamningalotu séð dags- ins ljós. Tveir verkalýðsforingjar riðu á vaðið og vora tilbúnir til að samþykkja nánast ekki neitt, eftir þung orð þeirra sjáifra um að ekki yrði sæst á neitt sem ríkisstjómin hrifsaði svo aftur að undirskrift lok- inni. Einmitt þessi orð viðhafði for- maðm- Rafiðnaðarsambandsins. Nú er að koma í ljós að þessir samningar em nánast einskis virði fyrir obbann af launþegum í land- inu, því það eru engin viðmiðunar- mörk sett um að launin verði ekki tekin af þeim hvenær sem er. Engin „rauð strik“, engin vísitölubinding og kaupmenn, ríkið og aðrir þjón- ustuaðilar geta auðveldlega, og munu liklega, eins og ávallt áður, hækka vörur og þjónustu að vild. Með því að núverandi rikisstjóm sleppti því gullna tækifæri sem hún hafði til að afnema tekjuskattinn að fullu í einu vetfangi, hefur hún lítið svigrúm á öðram sviðum til að koma til móts við launafólk í land- inu. Málamyndaskattalækkun, mn 4% á þremur árum er svo sem ekki neitt neitt og skiptir fólk engu. Ein- hvem tíma munu núverandi ráð- herrar eða þingmenn skrifa um það, að árið 1997 hafi verið hægt að gera átak með afhámi tekjuskatts eins og sífellt hafði verið stefnt að, a.m.k. af stærsta flokki landins. Kjarkinn vantaði. Það var dæmigerð mynd sem birt var í Degi-Tímanum sl. þriðjudag, er sýndi foringja Rafiðnaðarsam- bandsins og Verslunarmannafélags Reykjavíkur ganga á fúnd forsætis- ráðherra. Það var undarlegur svip- ur á launþegaforingjunum. Mér kom í hug mett ljónynja og hýenan sem ávallt kemm til að njóta leif- anna. Þetta er nú bara minn hugar- burður, og hefm líklega enga merk- ingu. - En kjarasamningamir 1997 era í vaskinum, hvemig sem á þá er litið. DV Meira uppi í ermi Davíðs Ásbjöm hringdi: Eftir því sem málin hafa þró- ast í samningaviðræðum undan- farið, sýnist mér að stjórnvöld hafi haft hug á að nýta mögu- leika til skattalækkunar að vera- legu leyti. Eða hvers vegna skyldi forsætisráðherra hafa nefnt þessa 4% skattalækkun til sögunnar yfirleitt? Þau nægja þó ekki, að mati glöggra manna, sem þekkja inn í efnahagslíf hér á landi. Ég tel líka einsýnt að Davíð hafi meira uppi í erminni hvað skattalækkanir snertir en þessi 4%. Óleyst era mál hinna lægst launuðu og Verkamanna- sambandsins og þá kemur vænt- anlega í ljós hve mörgum pró- sentum Davíð bætir við til að skattalækkunin teljist viðun- andi. Upplausn sýni- leg í Evrópu Gísli Jónsson skrífar: Ótrúlegt er að nú skuli svo komið að í einu landa Evrópu skuli böm niður í 6 ára aldur ganga um götur með hríðskota- byssur og láta dólgslega. Þetta er annað ríkið í Evrópu sem verður upplausn að bráð. í fyrram Júgóslavíu er engin endanleg lausn heldur á borðinu. Og nú er það Þýskaland sem nánast berst fyrir lífi sínu og áframhaldandi forystuhlutverki í álfunni. Auk- ið atvinnu- og vonleysi og minnkandi framleiðsla. Ég sé ekki annað en upplausn sé ört vaxandi á meginlandi Evrópu. Vikartindur og skráningin Öm Sigurðsson hringdi: Margir hafa velt fyrir sér nafn- inu „Vikartindur“ á strandaða skipinu við Þjórsárósa. Aila vega óvenjulegt nafn á þýsku skipi. Varla er skip skráð á tveimur stöðum samtímis? Það gæti þó verið verið hentugt við ýmsar uppáfallandi aðstæður. Ekkert hefur komið fram um að svo sé ástatt um Vikartind. En ég minnist þess ekki heldur að hafa heyrt um hvar það skip er skráð og hvemig staðið er að slíkum skráningum. Aukið vinnuá- lag og yfirvinna K.S. skrifar: Aukið vinnuálag ætti skilyrð- islaust að greiðast sem yfir- vinna. Því miður hefur það færst í vöxt að fólk á ýmsum vinnu- stööum er látið vinna störf annnarra sem era t.d. í veikinda- eða vetrarfríi, án þess að það fái aukagreiðslu fyrir. Þetta á sér stað t.d. á sjúkrahúsunum og hjá einu þeirra opinberu fyrirtækja sem nýlega var gert að hlutafé- lagi. Fólk fær frí af ýmsum ástæðum, en þeir sem vel mæta verða sí og æ að bæta á sig miklu vinnuálagi án nokkurrar greiðslu fyrir. Svona mál ættu stéttarfélögin að kanna. Litla stúlkan í strætó Sólveig Ólafsdóttir hringdi: Sl. þriðjudag um kl. 15 varð ég vitni að því að lítil stúlka, á að giska 10-11 ára kom inn í SVR- vagn, leið 11C, við Ármúiastoppi- stöð. Hún var á annarri leið og spm-ði vagnstjórann hvar hún gæti náð leið 3. Hann tók stúlkunni svo einstaklega vel og þægilega að mér finnst ástæða til að geta þess. Hann sagði henni að taka annan vagn sem kæmi henni á rétta leið og hafði samband viö annan vagn til þess arna, og sá um að hún skildi vel allar leiðbeiningar. Kvaddi hana svo með þeim orðum að fara gætilega. Svona era góðir vagn- stjórar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.