Tíminn - 29.07.1983, Blaðsíða 20

Tíminn - 29.07.1983, Blaðsíða 20
Opið vtrka daga 9-19. Laugardaga 10-16 H hedd Skemmuvegi 20 Kopavogi Simar (91)7 75 51 & 7 80 30 Varahlutir Mikiö úrvai Sendum um land allt Ábyrgö á öllu Kaupum nýlega bíla til niðurrifs SAMVINNU TRYGGINGAR & ANDVAKA ARMULA3 SIMI 81411 i w abriel HÖGGDEYFAR Hamarshöfða 1 UGJvarahlutir .sTmiaesTó: CÍ'TOÍtm Ritstjorn 86300- Augfysingar 18300 - Afgreiðsla og askrift 86300 - Kvöldsimar 86387 og 86306 Þegar liggur Ijóst fyrir ad kartöfluuppskera verður slærh í ár: FÖSTUDAGUR 29. JÚLÍ 1983 UPPSKERAN GÆTl ORMD ERKI NEIN EF EKKISNARBREYTIR UM HMRFAR — segir Ingvi Markússon kartöflubóndi f Þykkvabæ ■ „Útlitið með kartöfluupp- skeru í haust er afskaplega dökkt. Sprettan er orðin að minnsta kosti þrem vikum á eftir miðað við meðalár. Það liggur þegar orðið Ijóst fyrir, að upp- skeran getur ekki orðið nema léleg, en einhver gæti hún þó orðið ennþá verði ágústmánuður með afbrigðum góður. Ef það snarbreytir ekki um tíðarfar á næstu dögum - hlýnar og þornar - þá getur uppskeran ekki orðið nein, tíminn er að líða frá okkur“, sagði Yngvi Markússon í Oddsparti í Þykkvabæ, spurður um útlitið með kartöfluuppskeru nú í haust. En um 2/3 kartöflu- uppskerunnar á landinu koma venjulega úr Rangárvallasýslu. Yngvi kvað það áralanga reyn- slu á Suðurlandi, að kartöflu- uppspretta verði aldrei góð í rigningatíð. Það sé fyrst og fremst sólin sem skapi sprettuna. Auk votviðrisins bætist við að meðalhiti júlímánaðar hafi lík- lega verið um 3 gráðum undir meðallagi það sem af er, sem hafi veruleg áhrif og allt hafi þetta komið í framhaldi af því að ekki reyndist unnt að setja niður fyrr en 1-2 vikum síðar í vor en venja er. Sjálfur er Yngvi með blandað- an búskap, en margir Þykkbæ- ingar eru eingöngu í kartöflu- ræktinni. Útlitið hlýtur því að vera óglæsilegt fyrir þá? „Ég veit ekki hvernig í veröldinni þeir menn eiga að komast fram úr þessu - ég segi það satt. Þetta kemur í framhaldi af fremur lélegri uppskeru á síðasta úthaldi og síðan gífurlega háu áburðar- verði s.l. vor. Ég kann því ekki að hugsa þá hugsun til enda, miðað við núverandi útlit, hvern- ig á að vera hægt að kjúfa þetta,“ sagði Yngvi. Hann kvað því dauft yfir mönnum í Þykkvabæ og víðar á Suðurlandi, sem varla er að undra miðað við framan- sagt. - HEI Fiskiðjusamlag Húsavlkur: VILL KAUPfl VERKSMIÐJU SR I BÆNUM ■ „Við höfum lengi haft áhuga á að kaupa verksmiðjuna svo- lciðis að þessi hugmynd er ekki ný af nálinni í sjálfu sér,“ sagði Tryggvi Finnsson, forstjóri Fisk- iðjusamlagsins á Húsavík, sem nú hefur skrifað ríkisstjórninni brcf og óskað eftir að fá verk- smiðju Síldarverksmiðja ríkisins á Húsavik keypta. Tryggvi sagði að verksmiðjan væri mjög lítil og í rauninni væri jekki unnið í henni annað hráefni en það settt kemur frá Fiskiðju- samlaginu, það er að segja úr- gangur frá fiskverkunarhúsum samlagsins. „Okkur finnst eðlilegt að vinna okkar afurðir sjálfir og ef ekki takast samningar um kaup á verksmiðjunni kemur vel til greina að kaupa vélar og reisa nýja verksntiðju," sagðiTryggvi. Hann kvaðst ekki hafa gert sér neinar hugmyndir um kaupverð - enda engar samningaviðræður komnar í gang ennþá. Sjó. Verksmiðja SR í Húsavík. ■ „Það hafa verið gífurlega miklir hitar hér að undanförnu,“ sagði Halldóra Guðmundsdóttir fararstjúri Úrvals á Mallorca á Spáni í samtali við Tímann í gær. Á miðvikudag mældist mesti hiti í heimi á Mallorca, 39,8 stig á Celcíus í forsælu, og því heitara en á Nýju Delhi á Indlandi sem vanalega er í fararbroddi á þessu sviði. Halldóra sagði að hitabylgjan að undanförnu væri sú mesta sem þar hefði komið síðan 1862. Um eittleytið í gær var þó farið að kólna svolítið og þá mældist hitinn 33 stig. „Það má segja að maður nái nú loks andanum," sagði Hall- dóra, og kvað veðurspár benda til þess að rigningarveður og lægra hitastig væri framundan. í gær rigndi gífurlega í norðurhé- ruðum Spánar, og var því al- menn fagnað eftir þurrkana að undanförnu. „Annars hefur verið alveg yndislegt hérna, og fólk hefur baðað sig í sjónum sem er góður," sagði Halldóra. - GM Veskja- þjófnaðir fvöxt íslendingar í hitabylgju á sólarströnd Spánar: MESTI hiti í meira EN ÓLD Á MALLORCA ■ Veskjaþjófnaðir eru að verða nokkuð algengir á höfuðborgarsvæðinu. í fyrra- d^g hvarf brúnt kvenveski af endurskoðunarskrifstofu við Suðurlandsbraut en í þvf voru 500 krónur í peningum og persónuskilrtki. Á þriðjudag hvarf veski úr jakka sem hafði verið lagður á stólbak í skrif- stofu í Sundaborg. í veskinu voru um 200 krónur í pening- um, ávísanahefti og skilríki. Að sögn rannsóknarlögregl- unnar er þó nokkuð um að veski hverfi úr yfirhöfnum á skrifstofum og öðrum stofnun- um ef þær eru lagðar hirðu- leysislega á stóla eða aðra staði og er því fuil ástæða til að vara fólk við þessu. - GSH Innbrot í Árbæjar- markaöinn í fyrrinótt ■ Innbrot var framið í Ár- bæjarmarkaðinn í fyrrinótt. Þar var brotinn gluggi á norðurhlið og hurð fyrir innan spennt upp. Þar var stolið tæp- um 1600 krónum og einhverju magni af sígarettum. Innbrotið var kært til lög- reglunnar morguninn eftir en ekki hefur tekist að hafa upp á þjófnum. - GSH dropar Brækurnar hennar Gunnu... ■ Þar sem verslunarmanna- helgin er nú aö ganga í garö cr viðeigandi að hafa Dropana í léttara lagi í dag. Við skuium byrja á því að renna yfir eina tilkynningu úr Fióamarkaði Þjóðviljans sem birtist í því blaði í gær: „Guðrún! Iilsku Gunna þú gleymdir brókinni í beddanum hjá mér. Elsku besta komdu í Friðargönguna 6. ágúst - og ég skal skila þér brókinni og gefa þér samloku með hangiketi og salati. -Jón Ólafsson." Konan mín óútreiknanleg ■ Þessi er fenginn að láni úr Sjómannablaðinu Víking og einnig sá næsti: „Þau brostu hvort til annars yfir þveran veitingasalinn. En áður en maðurinn gat fylgt sigri sínum eftir, fraus brosið skyndilega á vörum konunnar og hún lét sem hún sæi hann ekki. Sá vonsvikni sneri sér að manni sem stóð nálægt borði hans og var að kveikja sér í vindli. „Kvenfólk er sannar- lega skrítið, finnst þér ekki? Þessi fallega kona þarna hinu- megin í salnum var að daðra við mig rétt áðan, en nú er hún að sjá eins köld og ísklumpur.“ „Já,“ samsinnti hinn. - „Konan mín er afar óútreikn- anleg.“ Fleiri karl- menn brjálaðir ■ „Hagskýrslur sýna, að fleiri karlmenn verða brjálaðir en konur“, sagði eiginkonan. „Já“, sagði maður hcnnar, „en hver gerir þá brjálaða?“ Albert til sölu? ■ Sjálfsagt hefur ekki farið fram hjá neinum undanfarnar vikur að Albert Guðmunds- son, fjármálaráðherra, er mik- ill áhugamaður þess að sem flest ríkisfyrirtæki verði seid hið hráðasta. Stundum hittir vel á vondan, og ekki verður betur séð af þessari smáauglýs- ingu úr DV en að sjálfur fjár- málaráðherran sé nú til sölu: „Til sölu málverk af Albert Guðmundssyni ráðherra mál- að 1979 með egg-tempera og olíulitum á Gesso-panel. Stærð 55x75 cm.“ Krummi ...er að velta því fyrír sér hvað fengist fyrír Alberti! HBHHHHB

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.