Morgunblaðið - 04.12.2012, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 04.12.2012, Blaðsíða 18
18 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. DESEMBER 2012 Helgi Vífill Júlíusson helgivifill@mbl.is Séreignarsparnaður fer vaxandi og fleiri borga í hann, þrátt fyrir að eft- ir hrun hafi fólk mátt taka út sér- eignarsparnað sinn. Þetta segir Vil- hjálmur Egilsson, framkvæmda- stjóri Samtaka atvinnulífsins, og vitnar í tölur frá Fjármálaeftirlitinu. Fjárhæðin nam 209 milljörðum króna í árslok 2011 en var 171 millj- arður í árslok 2009. Virkir sjóðs- félagar voru 58.177 við lok árs 2011 en 51.299 í árslok 2009. Áætlað er að ríkið hafi haft um 20 milljarða í tekjur árin 2009-2011 vegna þessa. Lagt er til í frumvarpi um ráðstaf- anir í ríkisfjármálum að áfram verði heimilað að greiða út séreignar- sparnað á næsta ári. Heimild til að greiða út séreignarsparnað var sett í lög í kjölfar hrunsins, en hugsunin var að gefa þeim sem ættu í fjár- hagserfiðleikum tækifæri til að nýta sparnað sinn. Heimildin hefur verið framlengd nokkrum sinnum en hún rann síðast út 30. september. Fjármálaráðuneytið reiknar með að fá 1,5 milljarða í tekjur vegna út- greiðslu séreignarsparnaðar á næsta ári. Eigendur séreignar- sparnaðar hafa frá því að heimilað var að sækja um sérstaka útgreiðslu séreignarsparnaðar í mars árið 2009 tekið út samtals um 75 milljarða króna. „Í september síðastliðnum höfðu landsmenn tekið ríflega 60 milljarða út af séreignarsparnaði. Gera má ráð fyrir að fram til áramóta hafi eitthvað bæst við þá tölu. Úttektir á séreignarsparnaði eru skattskyldar líkt og aðrar útgreiðslur á lífeyri. Því er óhætt að áætla að ríkissjóður hafi haft allt að 20 milljarða tekjur á árunum 2009-2011 vegna þessa tímabundna úrræðis,“ segir í frétta- bréfi Júpiters rekstrarfélags. Úrræðið hefur stuðlað að aukinni einkaneyslu og þar með hagvexti. Hagstofan lækkaði í haust spá um hagvöxt á næsta ári og benti þá m.a. á í röksemdum sínum að ekki yrði heimilt að greiða út séreignarsparn- að á næsta ári. Séreignarsparnaður vex þrátt fyrir úttekt  Áfram heimilað að greiða út séreignarsparnað á næsta ári Morgunblaðið/Brynjar Gauti Hjálpað mörgum Fjölmargir hafa nýtt sér tímabundna heimild til að taka út sinn séreignarlífeyrissparnað. Ríkið hefur haft af þessu miklar skatttekjur. Úttektir » Árið 2011 voru 23,6 millj- arðar króna teknir út úr sér- eignarsparnaði af 25.716 ein- staklingum. » Árið 2010 voru það 16,5 millj- arðar af 30.481 einstaklingi. » Árið 2009 voru það 21,7 milljarðar og 40.744 ein- staklingar. » Á fyrstu 8 mánuðum ársins er búið að taka út 13 milljarða. Magnús Bjarna- son, nýr for- stjóri Icelandic Group, segir í samtali við mbl.is að félagið sé meðal þeirra áhugaverðustu á Íslands þegar kemur að al- þjóðlegum við- skiptum. Það sé meðal ástæðna þess að hann ákvað að breyta um starfsvettvang, en síðustu þrjú ár hefur hann verið framkvæmda- stjóri markaðs- og viðskiptaþró- unar Landsvirkjunar. „Icelandic er gífurlega áhuga- vert fyrirtæki með langa sögu og mikilvægt hér á Íslandi.“ Magnús hefur verið búsettur og starfað bæði í Kína og Bandaríkj- unum þar sem hann starfaði bæði fyrir utanríkisþjónustuna og í einkageiranum, meðal annars hjá Glitni og Capacent Glacier ráð- gjafafyrirtækinu. Aðspurður hvort ráðning hans sé til marks um frekari sókn á þessa markaði sagði hann að ekkert væri ákveð- ið í slíkum efnum og að næstu vikur hjá honum myndu fara í að skoða bæði fyrirtækið og mark- aðinn nánar. Áherslan yrði áfram á Evrópu- og Asíumarkað, þar sem fyrirtækið hefði starfs- stöðvar. Nánar á mbl.is Ráðinn forstjóri Icelandic  „Gífurlega áhuga- vert fyrirtæki“ Magnús Bjarnason Helgi Vífill Júlíusson helgivifill@mbl.is Ólafur M. Magnússon, stjórnarfor- maður DV, segir að komið sé vilyrði fyrir nánast öllum þeim 30 milljón- um sem fyrirtækið sé að leita að í aukið hlutafé. Vilyrðin komi frá nú- verandi hluthöfum og nýjum fjár- festum. „Þetta hefur gengið vonum fram- ar. Það hefur verið meiri áhugi á hlutafjáraukningunni en við áttum von á,“ segir hann í samtali við Morgunblaðið. Ætla að upplýsa um nýja hlut- hafa þann 14. desember Stefnt er að því að ganga frá hluta- fjáraukningunni á stjórnarfundi þann 14. desember nk. Þá verði upp- lýst um hvaða fjárfesta sé að ræða og hve stór hlutur þessar 30 milljónir verði í fjölmiðlinum. Í september greindi Fréttablaðið frá því að útgáfufélag DV hefði skuldað 76 milljónir króna í opinber gjöld í júlí en félagið samdi við Toll- stjóra um greiðslur á skuldinni. „Ég á von á að við munum ljúka uppgjöri við Tollstjóra fyrir áramót,“ segir Ólafur. „Við höfum lækkað þessa skuld við Tollstjóra um um það bil helming.“ „Rekstur blaðsins er kominn á góðan rekspöl. Það er að verða sjálf- bært. Reksturinn hefur gengið betur en áætlanir okkar gerðu ráð fyrir og er fjárþörfin minni en við áttum von á. Ég hugsa að DV verði í fyllingu tímans sá fjölmiðill sem skuldar minnst,“ segir hann. Stærsti hluthafi DV er Lilja Skaftadóttir Hjartar með 26,9%, Reynir Traustason ritstjóri á 24,7% og Umgjörð ehf. í eigu Ástu Jóhann- esdóttur á 18,64% hlut, að því er fram kemur á heimasíðu DV.  DV eykur hlutafé og er komið með vilyrði fyrir nánast allri fjárhæðinni Ólafur M. Magnússon Reynir Traustason Vilyrði fyrir næstum 30 milljónum ● Vegna fréttar í Morgunblaðinu 1. des- ember sl. þar sem fullyrt var að upp- bygging 4G fjarskiptakerfis mundi kosta Vodafone 3 milljarða á næstu ár- um vill fyrirtækið koma eftirfarandi á framfæri: „Ýmsar leiðir eru mögulegar við slíka uppbyggingu og eru þær allar til skoð- unar. Kostnaður við uppbyggingu ræðst af því hvaða leið verður valin, hvaða tæknilegu útfærslur verða fyrir valinu og hvað uppbygging tekur langan tíma. Getgátur um heildarkostnað Vodafone vegna 4G uppbyggingar eru því ótíma- bærar. Á kynningarfundum með fjárfestum undanfarnar vikur hefur Vodafone upp- lýst að kostnaður vegna mögulegrar 4G uppbyggingar mun rúmast innan hefð- bundinna fjárfestingaáætlana félags- ins.“ Segja kostnað við 4G ekki liggja fyrir ● Sala á nýjum bílum í Frakklandi dróst saman um 19,2% í nóvember frá því í október og um 13,8% fyrstu 11 mánuði ársins. Þetta kemur fram í tölum sam- bands franskra bílaframleiðenda sem gerðar voru opinberar í gær. Sambandið á von á því að samdrátt- urinn muni nema 14% milli áranna 2012 og 2011. Sala á frönskum bílum dregst einna mest saman. Salan á PSA Peugeot Citroën, annars stærsta bílaframleið- anda Evrópu, hefur dregist saman um 22,9% og hjá Renault um 33,5%. 19,2% samdráttur Samdráttur Salan hjá Renault hefur dregist saman um 33,5% á árinu. Stuttar fréttir…                                           !"# $% " &'( )* '$* +,-., ,/+./0 +,1./, ,+.211 ,,.+10 +2.2/0 +3-.,1 +.-,44 +0,.34 +13.+4 +,-.- ,/+.-2 +,1.30 ,+.03 ,,.,34 +2.214 +3-.14 +.-,20 +0,.0+ +13.1 ,,4.121, +,-.2 ,/,./5 +,1.51 ,+.004 ,,.,00 +2.0+0 +31./, +.-334 +03.42 +14./1 Skannaðu kóð- ann til að sjá gengið eins og það er núna á FOR COOL PEOPLE ONLY FÆST Á HÁRsnyrtistofUM

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.