Morgunblaðið - 04.12.2012, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 04.12.2012, Blaðsíða 20
AFP Katrín, hertogaynja af Cambridge, og Vil- hjálmur Bretaprins eiga von á erfingja. „Hinar konunglegu hátignir, hertoginn og hertogaynj- an af Camebridge, eru afar ánægð að geta til- kynnt að hertogaynjan af Cambridge á von á barni,“ segir í fréttatilkynningu frá St. James höllinni. Elísabet drottning og konungs- fjölskyldan eru himinlifandi með fréttirnar, segir í tilkynningu. Vilhjálmur, sonur erfingja bresku krún- unnar, og Katrín giftu sig í apríl árið 2011 og hafa breskir fjölmiðlar síðan fjallað um hvort hjónin eigi von á barni. „Hertogaynjan var í gær lögð inn á sjúkrahús en hún hefur þjáðst af mikilli morgunógleði. Þar mun hún fá vökva og næringu til að vinna gegn slappleikanum,“ segir í tilkynningu. Þar sem Katrín er komin tiltölulega skammt á leið er búist við að hún dvelji á spítala í nokkra daga og þurfi að hvíl- ast vel í kjölfarið. Samkvæmt fréttum er Katrín ekki gengin 12 vikur en í ljósi þess að hún þurfti að leggjast inn á spítala kemur tilkynningin nú. Katrín og Vilhjálmur eru bæði þrítug en hann gengur næst föður sínum Karli Bretaprins í ríkis- erfðum. Amma Vilhjálms, Elísabet II. varð drottning Englands árið 1952 en hún varð 86 ára í sumar. Breski forsætisráðherrann, David Cameron, skrifaði á Twitter í gær að hann væri himinlifandi í ljósi fréttanna og væri viss um að þau Vilhjálmur og Katrín yrðu frábærir foreldrar. heimirs@mbl.is Kate Middleton á von á barni Gleði Vilhjálmur og Kate giftu sig í apríl á síðasta ári en þau eru bæði þrítug að aldri. Síðan hafa breskir fjölmiðlar hamast við að spá fyrir um hvenær hjónin ætluðu að eignast barn.  Breska konungsfjölskyldan himinlifandi  Hertogaynjan þjáist af mikilli morgunógleði og liggur á spítala  Vangaveltum í breskum fjölmiðlum lokið 20 FRÉTTIRErlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. DESEMBER 2012 Sýrlenski stjórnarherinn mun aldrei nota efnavopn gegn sinni eigin þjóð, að sögn fulltrúa utanríkisráðuneytis landsins. New York Times hefur greint frá því að sýrlenski herinn hafi verið að flytja slík vopn að und- anförnu. Hillary Clinton, utanrík- isráðherra Bandaríkjanna, hefur varað stjórn Assad Sýrlandsforseta við notkun slíkra vopna. „Þar draga Bandaríkjamenn línuna,“ sagði Clinton í aðdraganda Nato-fundar í Brussel í gær. Bandarískur emb- ættismaður hefur látið hafa eftir sér að litið sé svo á að vísbendingar séu um að stjórn Assads sé að undirbúa hugsanlega notkun efnavopna. Munu ekki beita vopnunum gagnvart eigin þjóð „Í tilefni af yfirlýsingu utanrík- isráðherra Bandaríkjanna, staðfest- ir Sýrland að það muni aldrei undir nokkrum kringumstæðum beita efnavopnum gagnvart eigin þjóð, ef slík vopn eru þá til,“ sagði fulltrúi sýrlenska utanríkisráðuneytisins. Hann bætti við að stjórnin væri að verja eigin þjóð með því að berjast gegn hryðjuverkamönnum tengdum Al Qaeda og sakaði Bandaríkja- menn og aðrar „þekktar þjóðir“ um að styðja uppreisnarmenn. Skemmst er að minnast þess að í byrjun október sakaði utanríkisráð- herra Sýrlands bandarísk yfirvöld um að dreifa áróðri um eign Sýr- lendinga á efnavopnum til að rétt- læta aðgerðir sínar gegn valdhöf- um. Valdhafar í Damaskus viður- kenndu í júní að eiga efnavopn og hótuðu notkun þeirra ef til innrásar erlendra þjóða kæmi, en aldrei gegn eigin þjóð. Sérfræðingar segja að efnavopnabirgðir Sýrlands hlaupi á hundruðum tonna og séu þær mestu í Mið-Austurlöndum. Varar við notkun efnavopna  Hillary Clinton varar Sýrlendinga við brölti með efnavopn  Sýrlendingar útiloka að nota slík vopn gegn eigin þjóð  Birgðirnar hlaupa á hundruðum tonna Japönsk stjórnvöld hafa fyrirskipað rannsókn á jarðgöngum víða um landið í kjölfar þess að hluti Sa- sago-jarðganganna féll saman á sunnudag. Níu létust í slysinu, en Sasago-göngin eru 80 km vestur af Tókýó, höfuðborg landsins. Rann- sókn á tildrögum slyssins er hafin. Grunur leikur á að járnstykki sem héldu þiljunum saman hafi gefið sig. Forsætisráðherra landsins hefur fyrirskipað að rannsókn málsins verði hraðað eins og kostur er til þess að hægt verði að grípa til við- eigandi ráðstafana svo slys af þessu tagi geti ekki endurtekið sig. Þá hefur samgöngu- og ferðamála- ráðherra landsins fyrirskipað vega- málayfirvöldum að rannsaka jarð- göng víða um Japan. Breska ríkisútvarpið greinir frá því að sam- stundis verði ráðist í rannsóknir á að minnsta kosti 20 jarðgöngum sambærilegrar gerðar og aldurs. Níu létu lífið Staðfest hefur verið að níu manns hafi látið lífið. Líkin fundust í þremur bifreiðum sem höfðu kramist undir brakinu. Loft gang- anna gaf eftir á um 100 m kafla en göngin eru með þeim lengri í Japan eða 4,3 km. Japanskir fjölmiðlar greina frá því að fyrirtækið sem á Sasago- göngin hafi haldið uppi eftirliti með göngunum án viðgerða eða styrk- ingar innviða síðan göngin voru byggð fyrir rúmlega 30 árum. Fréttir herma að rannsókn á slysinu á sunnudaginn muni m.a. beinast að því af hverju skoðun á göngunum fyrir tveimur mánuðum leiddi ekkert óeðlilegt í ljós. Fyrirskipa rann- sókn á göngum  Níu létust er jarðgöng féllu saman AFP Hörmulegt slys Mikill viðbúnaður var við munna Sasago-ganganna. Pier Luigi Bers- ani sigraði í for- vali bandalags mið-vinstriflokka á Ítalíu. Tilkynnt var um úrslitin í gær en hinn 61 árs Bersani fékk 60% atkvæða í annarri umferð forvalsins og bar sigurorð af Flo- renzo Matteo Rensi. Bersani er þar með talinn líklegur til að verða næsti forsætisráðherra Ítalíu en kosningar fara fram næsta vor. Skoðanakannanir sýna að flokkur hans er líklegur sigurvegari í kom- andi kosningum þó ólíklegt þyki að hann nái hreinum meirihluta á þingi. Í sigurræðu sinni sagði Bersani að hann myndi setja atvinnumál á oddinn. Jafnframt sagðist hann ætla að tryggja að yngri raddir í flokknum fengju að heyrast. Að undanförnu hafa verið vanga- veltur uppi um að Silvio Berlusconi, fyrrv. forsætisráðherra landsins, ætli að snúa til baka í stjórnmálin. Hann sagði af sér í nóvember í fyrra í kjölfar hneykslismála. ÍTALÍA Bersani forsætis- ráðherraefni Pier Luigi Bersani Egypskir dóm- arar munu hafa eftirlit með þjóðaratkvæða- greiðslu um nýja stjórnar- skrá í Egypta- landi. Áður höfðu þeir gef- ið út að þeir tækju ekki þátt í ferlinu vegna þrýstings frá mótmælendum. Ákvörðun dómaranna þykja góð tíðindi fyr- ir Morsi forseta þrátt fyrir mót- mæli almennings undanfarna daga. Stjórnlagaþing landsins af- greiddi fyrir helgi umdeild stjórnarskrárdrög sem kjósa á um þann 15. desember næstkom- andi en áður hafði Morsi tekið sér aukin völd með tilskipun 22. nóvember síðastliðinn. EGYPTALAND Taka þátt í ferlinu Mohamed Morsi Ert þú frjáls? Handfrjáls höfuðtól SÍÐUMÚLA 35 - SÍMI 510 6000 - WWW.SVAR.IS Dasan Létt og þægilegt höfuðtól frá Dasan sem hægt er að teng ja með USB við tölvu eða hefðbundnu síma- tengi við borðsíma. Jabra Pro 920 / 930 - þráðlaust Þráðlaust DECT höfuðtól sem tengist nær öllum gerðum símtækja og skiptiborða. Allt að 120m drægni. Falleg og stílhrein hönnun. USB 12.900 kr. Borðsíma eða USB - 33.900 kr.Borðsíma 9.900 kr. Við bjóðum mikið úrval af handfrjálsum og þráðlausum höfuðtólum. Kíktu til okkar, við tökum vel á móti þér.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.