Morgunblaðið - 04.12.2012, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 04.12.2012, Blaðsíða 8
Fjárlaganefnd hefur gefið fjármálaráðuneytinu frest til loka þessa mánaðar til að skila greinar- gerð um hvernig ráðuneytið ætli að vinna úr vanda Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins. Ríkisendurskoðun bendir á í skýrslu til fjár- laganefndar að samkvæmt tryggingafræðilegu mati þarf að hækka heildariðgjald til A-deildar Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins úr 15,5% í 19,5% til þess að ná nauðsynlegu jafnvægi. Þetta felur í sér nokkurra milljarða aukningu á árleg- um útgjöldum ríkissjóðs. Fjárlaganefnd hefur óskað eftir upplýsingum frá fjármálaráðuneytinu um hvaða vinna sé í gangi hjá ráðuneytinu til að leysa þetta mál. Starfshópur með þátttöku bandalaga op- inberra starfsmanna hefur frá því í mars 2011 fjallað um stöðu A- og B-deildar en honum er ætlað að koma með tillögur að framtíð- arlausnum á vanda þeirra. „Fjárlaganefnd telur afar brýnt að sem fyrst verði gripið til viðeigandi ráðstafana til að stemma stigu við þeim sívaxandi vanda sem felst í því að iðgjöld duga hvergi til að standa undir skuldbindingum sjóðsins. Tryggingafræðileg staða A-deildar hefur lengst af verið neikvæð án þess að tekið hafi verið á vandanum sem nú er orðinn gríðarlegur. Fjárlaganefnd hvetur fjár- mála- og efnahagsráðuneytið til að vinna eins hratt og vel að lausn þessa máls í samvinnu við Lífeyrissjóð starfsmanna ríkisins og unnt er og óskar eftir því að ráðherra skili nefndinni grein- argerð um fyrirætlanir sínar í því efni fyrir lok desember nk.,“ segir í áliti fjárlaganefndar um skýrslu Ríkisendurskoðunar um endurskoðun ríkisreiknings fyrir árið 2010. Vill greinargerð ráðuneytis um vanda LSR Morgunblaðið/Þorkell 8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. DESEMBER 2012 Það lögðu sig margir fram um aðkoma „sök“ á bankaáfalli á rétta staði. Trúlegustu aðilar og jafnvel hinir ótrúlegustu tóku sinn þátt í því. Allt var það dapurlega fyr- irsjáanlegt.    En ekkivar öll vitleysan þó eins og það er jú það sem gerir hana bærilega, og jafnvel notalega á köflum. En ekki alltaf.    Samfylkingin fann út að stjórn-arskránni frá 17. júní 1944 mætti einnig kenna um „hrunið,“ en eins og elstu menn muna fór lýðveld- isstofnunin sú öfugt ofan í suma krata.    Gömlum krötum kemur Samfylk-ingin ekki mikið við lengur. Þar slást tveir gamlir allaballar um formennsku og þriðji allaballinn átti sama draum sem varð að engu þeg- ar sá var hristur upp af værum svefni.    En þingið, sem kosið var í kjölfarpönnuglamurs og eftir að hús- ið, sem hýsir það, hafði verið nægj- anlega atað út, lét verða sitt fyrsta verk að finna út að þingmenn hefðu verið of snyrtilegir til fara við þing- störfin. Gott ef sú sundurgerð hafi ekki ýtt undir að „hér varð hrun.“    Því voru snarlega sköpuð skilyrðitil að þingmenn mættu fram- vegis vera druslulegri en áður og hafa margir þeirra brugðist vel við því.    Og nú síðast gengu þeir Lúðvíkog Björn Valur um með mót- mælaspjöld í þingsalnum gegn mál- frelsi til að færa pönnustemninguna inn í húsið. Næst mæta þeir með egg. Þetta er allt að koma STAKSTEINAR Veður víða um heim 3.12., kl. 18.00 Reykjavík 0 léttskýjað Bolungarvík 4 alskýjað Akureyri 4 skýjað Kirkjubæjarkl. 3 rigning Vestmannaeyjar 1 heiðskírt Nuuk -6 skýjað Þórshöfn 3 alskýjað Ósló -16 heiðskírt Kaupmannahöfn 2 skýjað Stokkhólmur -13 léttskýjað Helsinki -10 heiðskírt Lúxemborg 0 þoka Brussel 7 skúrir Dublin 6 léttskýjað Glasgow 2 skúrir London 7 heiðskírt París 11 skýjað Amsterdam 7 alskýjað Hamborg 2 skýjað Berlín 1 heiðskírt Vín 2 léttskýjað Moskva -5 alskýjað Algarve 15 léttskýjað Madríd 11 heiðskírt Barcelona 13 léttskýjað Mallorca 16 léttskýjað Róm 7 heiðskírt Aþena 16 léttskýjað Winnipeg 0 frostrigning Montreal 3 skýjað New York 13 heiðskírt Chicago 16 þoka Orlando 23 alskýjað Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 4. desember Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 10:55 15:42 ÍSAFJÖRÐUR 11:33 15:14 SIGLUFJÖRÐUR 11:18 14:55 DJÚPIVOGUR 10:33 15:04 Jón Ólafsson, at- hafnamaður, var í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær dæmdur til að greiða Lands- bankanum tæp- lega 2,3 milljónir punda, jafnvirði um 455 milljóna króna, í samræmi við lánssamning á grundvelli yfirlýsingar Jóns um sjálfskuldarábyrgð. Þá var Jón einnig dæmdur til að greiða Landsbankanum 2 milljónir króna í málskostnað. Deilt var um eftirstöðvar lánalínu, sem Sparisjóðurinn í Keflavík veitti félaginu Jervistone Ltd. árið 2006 til að kaupa erlend hlutabréf. Þau hlutabréf átti síðan að veðsetja til tryggingar láninu. Jervistone var skráð á Bresku jómfrúaeyjum en Jón var tilgreindur sem sérstakur fjárfestingarráðgjafi félagsins og hann gekkst í sjálfskuldarábyrgð fyrir skuldbindingum þess hjá Sparisjóðnum í Keflavík. Landsbankinn yfirtók rekstur og eignir sparisjóðsins í mars í fyrra. Dæmdur til að greiða 455 milljónir Jón Ólafsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.