Morgunblaðið - 04.12.2012, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 04.12.2012, Blaðsíða 11
Morgunblaðið/Kristinn hef alls ekki verið í góðu formi. Ég er búin að vera yfir kjörþyngd nokkuð lengi og ég veit að það er ekki gott fyrir mann. Ég er með hnéskel sem fór úr liði þegar ég var krakki þannig að hnén á mér eru ekki góð. Ef ég gekk í rúman klukkutíma fyrir ári þá var ég eins og spýtukall á eftir og þurfti að taka því rólega. Hluti af þessari hugmynd hefur nefnilega alltaf blundað í mér og það er að láta gott af mér leiða og þarna datt mér í hug að safna peningum fyrir Barna- spítalann af því að mér finnst starfið þar vera svo frábært. Þar er svo mik- il fagmennska og mér finnst ég upp- lifa svo mikla væntumþykju hjá fólki sem þarf að vera þar og það er svo greinilegt hversu vel er haldið utan um það. Það er svo þakklátt að allt sé í lagi þar, tækin, mannskapurinn og hátt þjónustustig.“ Verkirnir hurfu smám saman Ingibjörg ræddi þessa hugmynd við manninn sinn sem tók mjög vel í hugmyndina og hann gaf henni Garmin úr í jólagjöf svo hún gæti mælt vegalengdir á göngu og svo réðst hún í verkefnið á nýju ári. Ingibjörg ráðfærði sig við þaul- vant fólk úr vinnu sinni sem hvatti hana áfram og töldu í hana kjarkinn. Fyrsta gangan var 10 km löng um Kársnesið í Kópavogi og fékk hún stuðning frá eiginmanni sínu. „Svo reyndi ég bara eins og ég gat að koma þessu fyrir í þéttri dagskrá og halda vikunum réttum. Þetta eru 25 km í göngu á viku og 2,5 km í sund- inu. Það kom oft fyrir að ég var eins og hamstur í hjóli undir lok mánaðar til að ná upp kílómetrum og fór út tvisvar á dag. Ég gat ekki hugsað mér að fara inn í nýjan mánuð með hala á eftir mér. Mér hefur aldrei tekist neitt svona á ævinni. Ég hef oft útbúið lista og forgangsraðað en oft verður minna úr hlutunum en til stóð.“ Allan janúar fann Ingibjörg fyrir harðsperrum og verkjum í lík- amanum. „Svo einhvern vegin lagað- ist þetta. Maður má ekki láta ein- hverja verki stoppa sig sem eru oftast út af stirðleika og hreyfing- arleysi, þeir fara.“ Gekk austur á Hvolsvöll Það var svo einn fimmtudag í júlí sem Ingibjörg lagði upp í fjög- urra daga göngu austur á Hvolsvöll, þar sem hún er fædd og uppalin. „Þetta var hugmynd sem ég fékk og losnaði ekki við. Ég upplifði mikla gleði þegar ég lagði af stað. Þetta var helgina þar sem djúp lægð gekk yfir landið en gangan gekk ótrúlega vel. Ég hafði á tilfinningunni að það væri einhver hjúpur yfir mér. Þegar ég fór að sjá heim á Hvolsvöll þá gerðu til- finningarnar vart við sig. Þetta var einn af toppunum á árinu.“ Á skömmum tíma fór Ingibjörg að verða næmari á náttúruna, hún varð næmari bæði fyrir lykt og um- hverfi. „Ég finn að það skiptir mig engu máli hvernig veðrið er nema það sé hreinlega hríð. Mér finnst alltaf vera gott veður ef maður er í góðum galla. Það er heldur aldrei ófært í sund- laugarnar. Ég keypti mér mán- aðarkort í líkamsræktarstöð núna þegar það kom svo mikil hálka af því að ég hafði örlitlar áhyggjur af því að hnéskelin gæti gengið til ef ég myndi skrika til. Svo um daginn var ég á leiðinni þangað og þegar ég opnaði útidyrnar þá var frábært veður og ég gat ekki hugsað mér að fara inn í hús að æfa. Þá var svo hált á gangstétt- unum og ég var ekki með mann- brodda svo að ég fór bara á stóra grasflöt nálægt heimili mín. Ég var með tónlist með Garðari Cortes í eyr- unum og það voru norðurljós og stjörnubjart. Það endaði með því að mér fannst ég upplifa hugleiðslu- ástand.“ Hvatning í fyrirmynd Aðspurð segist Ingibjörg ætla að halda áfram að hreyfa sig reglu- lega þó að hún eigi eflaust eftir að draga eitthvað úr fjölda æfinga. Ingibjörg segir málefnið hafa haldið sér gangandi allt árið. „Ég myndi aldrei geta beðið um þennan pening nema ég væri að standa mig.“ Um haustið 2011 var Ingibjörg sett á blóðþrýstingslyf en hún er laus við þau í dag. Hún segir það hafa hjálpað sér mikið í byrjun að eiga sér fyr- irmynd en í hennar tilfelli var það Haraldur Örn Ólafsson pólfari. „Þeg- ar ég þurfti að bæta við nokkrum kílómetrum til að klára vikuna eða mánuðinn þá hugsaði ég um Harald Örn einan á Norðurpólnum og þá gat ég alltaf gengið lengra. Svo áttaði ég mig á því að ég sagði skilið við hann í vor. Þá gat ég þetta alveg sjálf.“ Dýrmæt heilsa – dýrmæt börn Á árinu 2012 hefur Ingibjörg Birna Ólafsdóttir gengið 1.200 km og synt 120 km. Hún safnar fyrir Barnaspítala Hringsins og mun afhenda söfnunarupphæðina þann 12. 12. 2012 Fyrir þá sem vilja leggja Ingibjörgu og málefninu lið: Reikningur: 0536-05-121212 (kt. 580612-0910) Söfnunarsímanúmer: 901 5012 (1.200 kr.) 901 5024 (2.400 kr.) 901 5036 (3.600 kr.) Gott málefni Ingibjörg vildi með átaki sínu sameina það sem henni er dýrmætast, heilsuna og börnin. Hún gengur og syndir til að efla sjálfa sig og safnar pen- ingum fyrir veik börn í leiðinni. DAGLEGT LÍF 11 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. DESEMBER 2012 Framundan er blessuð aðventan með öllu sínu góðgæti og við endann á henni jólin sjálf með öllum þeim krás- um sem fylgja. Það er sjálfsagt að leyfa sér nokkrar smákökur, heitt súkkulaði á sunnudegi og auðvitað veislumatinn. Á móti er samt ágætt að muna líka eftir safaríkum mand- arínum og eplum. Hafa morgunmat- inn í hollari dúr og fá sér létta súpu og salat inn á milli hlaðborða. Það léttir svolítið á veislumaganum. Hollusta í magann Morgunblaðið/Valdís Thor Epli Gott að grípa í inn á milli. Góðar mand- arínur og epli Það er ekki úr vegi að hugleiða nú á aðventunni þegar nóg er að gera. Orkustöðvajöfnun, hugleiðsla með Höllu Himintungl, kallast geisla- diskur sem nú er útkominn með tón- list eftir Friðrik Karlsson. Hugleiðslan er samin til að orkujafna orkustöðvar líkamans en þær geta farið úr jafn- vægi við allskonar aðstæður. Tónlist Friðriks hentar vel bæði til hugleiðslu og slökunariðkunar. Halla er mennt- aður dáleiðslutæknir, bowen-með- ferðaraðili, reikimeistari og stjörnu- spekingur. Hún starfar sem dáleiðari og heilari bæði hérlendis og erlendis. Hún er einnig eini söludreifingaraðili QCB-steina á Íslandi. Hugleiðsla Orkustöðvar í jafnvægi AFP Hugleiðsla Halla Himintungl og Friðrik Karlsson gefa út geisladisk. Starfið er margt, en eitt er bræðra bandið, boðorðið, hvar sem þér í fylking standið, hvernig sem stríðið þá og þá er blandið, það er: Að elska, byggja og treysta á landið. Þá mun sá Guð, sem veitti frægð til forna, fósturjörð vora reisa endurborna. Þá munu bætast harmasár þess horfna, hugsjónir rætast. Þá mun aftur morgna. (Úr Íslandsljóðum Hannesar Hafstein sem hann flutti fyrst á nýjársdag 1901 á Ísafirði, þá sýslumaður þar) Lýðhvöt að vestan

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.