Morgunblaðið - 04.12.2012, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 04.12.2012, Blaðsíða 44
ÞRIÐJUDAGUR 4. DESEMBER 339. DAGUR ÁRSINS 2012 VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 399 ÁSKRIFT 4390 HELGARÁSKRIFT 2750 PDF Á MBL.IS 4190 I-PAD ÁSKRIFT 4190 1. Kennari fékk dóm fjarlægðan 2. Vanmeti ekki Jón Gnarr 3. Röng notkun getur verið hættuleg 4. Kannast einhver við manninn? »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM  Furðustrandir eftir Arnald Indr- iðason og Horfðu á mig eftir Yrsu Sigurðardóttur eru tilnefndar sem best þýddu spennusögurnar sem komið hafa út í Svíþjóð á árinu 2012 að mati Svenska Deck- arakademin. Arnaldur og Yrsa tilnefnd í Svíþjóð  Ásgeir Trausti er tilnefndur fyrir plötu sína Dýrð í dauða- þögn og Retro Stefson fyrir samnefnda plötu til Nor- rænu tónlist- arverðlaunanna í ár. Alls eru tólf plötur tilnefndar frá fimm lönd- um. Hinn 14. febrúar á næsta ári verður tilkynnt hvaða plata telst besta plata ársins af þeim sem gefnar hafa verið út á Norðurlönd- unum í ár. Ásgeir Trausti og Retro Stefson bestir  Kvartett saxófónleikarans Sigurðar Flosasonar leikur á KEX Hosteli í kvöld kl. 20.30. Auk Sigurðar skipa hljómsveitina Kjartan Valdemarsson á píanó, Valdimar K. Sig- urjónsson á kontrabassa og Einar Scheving á trommur. Þeir munu flytja djassstand- arda og frum- samda tónlist í bland. Að- gangur er ókeypis. Kvartett Sigurðar Flosasonar á KEX Á miðvikudag Suðaustan 13-18 m/s og rigning sunnan- og vestantil og síðar slydda eða snjókoma, en mun hægara og bjart- viðri norðaustantil. Lægir heldur og rofar til undir kvöld. SPÁ KL. 12.00 Í DAG Hæg suðlæg eða breytileg átt og dálítil él sunnan- og vestanlands, en annars bjartviðri. Hvessir vestanlands með slyddu seint í kvöld. Frost 0 til 7 stig, minnst syðst og vestast. VEÐUR Knattspyrnumaðurinn Matthías Vilhjálmsson var orðinn órólegur yfir því hve lengi það dróst að Start í Noregi næði samningum við FH um kaup á honum. Í gær gekk það síðan upp og Matthías sagði við Morg- unblaðið að þungu fargi væri af sér létt. „Ég hef aldrei verið jafn spenntur fyrir undirbúningstímabili,“ sagði Matthías sem skoraði 18 mörk fyrir Start í ár. »1 Matthías var orðinn órólegur Sævar Birgisson hefur náð lágmarki í sprettgöngu fyrir vetrarólympíuleik- ana sem fara fram í Sochi í Rússlandi árið 2014. Ekki er langt síðan Sævar var nánast hætt- ur æfingum og keppni vegna hrygggigtar en hann missti rúm tvö ár úr af þeim sök- um. »4 Missti úr tvö ár en náði lágmarki fyrir ÓL 2014 Hrafnhildur Skúladóttir, fyrirliði ís- lenska kvennalandsliðsins í hand- knattleik, segir að liðið geti vel unn- ið firnasterkt lið Svartfjallalands í fyrsta leiknum í úrslitakeppni Evrópumótsins í Serbíu í dag. Hún segir að lykilatriðið sé að spila agaðan sóknarleik og forðast hraðaupphlaup Svartfellinga eins og heitan eldinn. »3 Getum vel unnið Svartfjallaland ÍÞRÓTTIR Skannaðu kóðann með símanum þínum og fylgstu með veðrinu á Þórunn Kristjánsdóttir thorunn@mbl.is Unglingar á vegum félagsmið- stöðvar í frístundamiðstöð Gufu- nesbæjar í Grafarvogi standa fyrir góðgerðarviku í Grafarvogi. Hún hefst í dag með kaffihúsakvöldi og lýkur með dansiballi, föstudaginn 7. desember. Í ár hafa ungling- arnir ákveðið að styrkja fjölskyldu Davíðs Arnar Arnarssonar. Hann lést á afmælisdaginn sinn nýverið eftir baráttu við krabbamein. „Hann var Grafavogsbúi og vann mikið með krökkunum í hverfinu í skólanum og í fé- lagsstörfum. Hann tengdist því krökkunum úr hverfinu og mjög margir þekktu hann,“ segir Kol- beinn Hringur Einarsson, annar tveggja fjölmiðlafulltrúa góðgerðarráðs Grafarvogs. Fundarhöld og skipulagning Tólf unglingar skipa góðgerðar- ráðið og koma úr öllum skólum Grafarvogs. Þau hafa lagt töluvert á sig við að skipuleggja atburði í góðgerðarvikunni. Þau eru þó sammála um að vinnan hafi verið í alla staði skemmtileg. „Við höfum eytt miklum tíma í skipulagningu og fundahöld og þetta hefur gengið rosalega vel,“ segir Erna Kristín Jónsdóttir, hinn fjölmiðlafulltrúi góðgerð- arráðsins. Kolbeinn Hringur tekur í sama streng og segir það hafi gengið nokkuð vel að fá styrki en nokkur fyrirtæki hafi ekki svarað. Erna Kristín segir að þegar viðburðirnir sem þau skipuleggja snúist um að styrkja „þá verður þetta miklu betra“. Þau eru bæði í áttunda bekk og eru því í fyrsta skipti í góðgerð- arráði og líkar vel. Bæði voru þau sammála um að ekkert mál hefði verið að fá lista- menn til að gefa vinnuna sína og eru mjög þakklát fyrir það. Kaffihúsakvöld verður í kvöld í félagsmiðstöðinni Fjörgyn. Þar koma fram tónlistarmenn og grín- istar, m.a. Ari Eldjárn og Geir Ólafs. Aðgangseyrir er einungis 300 kr. og happdrættismiðar á 200 kr. Föstudaginn 7. desember verð- ur haldið ball fyrir unglingana í 8. til 10. bekk. MC Gauti og Unn- steinn í Retro Stefson munu troða upp. Allir listamenn sem koma fram gefa vinnu sína og allur ágóðinn rennur óskiptur til fjölskyldu Dav- íðs. Þau setja markið hátt og ætla að safna ríflegri upphæð fyrir fjöl- skylduna. „Við hvetjum alla til að koma,“ segir Erna Kristín. Góðgerðarvika í Grafarvogi  Gjafmildir og framkvæmda- glaðir unglingar Morgunblaðið/Árni Sæberg Góðgerðarmál Fjölmiðlafulltrúar góðgerðarráðs Kolbeinn Hringur Einarsson og Erna Kristín Jónsdóttir. Góðgerðarráðið hefur starfað ötullega í tvo mánuði við að framkvæma og skipuleggja tvo stóra viðburði í góðgerða- vikunni, í samstarfi við starfsfólk félagsmiðstöðvanna: Dregyn, Fjörgyn, Púgyn og Sigyn. Þetta er í sjöunda sinn sem unglingar í Grafarvogi efna til góðgerðaviku. Hugmyndin var sjálfsprottin á sínum tíma og henni hrint í framkvæmd af miklum hug. Davíð Örn Arnarsson bjó alla tíð í Grafarvogi og voru foreldrar hans meðal fyrstu íbúa þar. Hann starfaði lengi með börnum og unglingum í hverfinu. Hann lætur eftir sig konu og tvær dætur. Þeim sem ekki hafa tök á að mæta á kaffihúsakvöldið er bent á að hægt er að leggja inn á styrktarreikning: 0544-05-402441 kt. 111177-4819. Safna fyrir fjölskyldu Davíðs GRAFARVOGSBÚINN SEM ALLIR ÞEKKTU Davíð Örn Arnarsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.