Morgunblaðið - 04.12.2012, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 04.12.2012, Blaðsíða 29
MINNINGAR 29 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. DESEMBER 2012 ✝ Sesselja Ósk-arsdóttir fædd- ist í Oranienbaum Dessau í Þýska- landi 2. apríl 1921. Hún lést 25. nóv- ember 2012 á hjúkrunar- og dval- arheimilinu Höfða, Akranesi. Foreldrar Sess- elju voru Oskar Mai glergerðarmaður, f. 21.10. 1883, og Klara Kroll húsmóðir, f. 12.11. 1885, voru þau fædd og uppalin í Þýska- landi. Sesselja var næstyngst af níu systkinum. Eiginmaður Sesselju var Al- freð Karlsson, f. 23.1. 1913, d. fimm börn, Arndísi Hlín, Alfreð Frey, Rebekku Helen, Maren Rut, Axel og ellefu barnabörn. Helga Klara Alfreðsdóttir, f. 16.9. 1957, gift Einari Orra Dav- íðssyni. Eiga þau Tómas Orra, Önnu, Karl og þrjú barnabörn. Guðrún Birgitta Alfreðsdóttir, f. 26.1. 1961, gift Karli Sigurjóns- syni. Eiga þau Kára Rafn og Kristínu Söndru. Sesselja giftist Alfreð í Berns- dorf í Þýskalandi árið 1945 og fluttust þau þaðan til Siglu- fjarðar árið 1949 með elstu dótt- ur sína. Á Siglufirði bjuggu þau í 13 ár með börnin sín fimm. Sesselja var á þessum árum hús- móðir ásamt því að vinna við síldarsöltun. Eftir dvölina á Siglufirði fluttist hún á Akranes þar sem þau hjónin byggðu og stofnuðu sitt eigið fyrirtæki. Sesselja verður jarðsungin frá Akraneskirkju þriðjudaginn 4. desember og hefst athöfnin kl. 14. 30.7. 1978, bak- arameistari og kon- fektgerðarmaður. Þeirra börn eru Ruth Alfreðsdóttir, f. 1.2. 1947, gift Kristni Sigurðs- syni. Eiga þau þrjú börn, Alfreð, Hildi, Áslaugu og sex barnabörn. Bryndís Alfreðsdóttir, f. 14.7. 1950, gift Ingimundi Ingimundarsyni. Eiga þau dóttur, Sesselju. Frá fyrra hjónabandi á Bryndís, Katrínu og Alfreð Friðrik, og alls níu barnabörn. Karl Óskar Alfreðsson, f. 13.7. 1953, giftur Halldóru Þórisdóttur. Eiga þau Elsku amma mín, ég á eftir að sakna þín. Þú varst alltaf svo góð við mig. Alltaf svo gott að koma til þín á Suðurgötuna og svo seinna á Höfða. Alltaf varstu með konfekt í skál til að bjóða upp á. Ég er þakklát fyrir að hafa hitt þig um daginn og fengið að knúsa þig. Minning þín er ljós í lífi mínu. Þín Re- bekka Rut. Nú legg ég augun aftur, ó, Guð, þinn náðarkraftur mín veri vörn í nótt. Æ, virst mig að þér taka, mér yfir láttu vaka þinn engil, svo ég sofi rótt. (Sveinbjörn Egilsson.) Rebekka Rut. Elsku besta amma mín. Nú hefur þú fengið hvíldina og til- hugsunin um að heimsækja þig ekki upp á Skaga fyrir jólin er ansi skrýtin. Dýrmætt er þó að vita að sá tími sem þú áttir á Höfða var þér ánægjulegur enda sagðir það oft að þér liði mjög vel þar og hugsað væri vel um þig. Það gaf okkur hinum ró í hjarta. Þú sagðir líka oftar en einu sinni að þarna ætlaðir þú að deyja og þannig varð það. Þegar ég hugsa til baka um tímann sem við fjölskyldan átt- um með þér á Suðurgötunni fyllist ég miklum söknuði en mest af öllu mikilli gleði og þakklæti. Mikil tilhlökkun gerði vart við sig hjá mér og Tómasi á yngri árum þegar við vissum að förinni væri haldið upp á Akranes að heimsækja ömmu. Bakaríið þitt átti þar einnig hlut að máli og margar næturn- ar vöknuðum við eldsnemma og kíktum út í glugga til að athuga hvort ljósin hefðu verið kveikt. Þar gerðum við innrás og fylgd- umst með Kalla frænda und- irbúa daginn með brauðbakstri og allskonar bakkelsi sem við fengum svo að gæða okkur á. Volgur kleinuhringur og kókó- mjólk fannst okkur ansi góð blanda svona snemma morguns. Ég minnist þess líka að oft leyfðir þú okkur að velja bíó- mynd til að horfa á og úr stóru safni gátum við valið. Þú áttir ófáar spólurnar og hafðir sjálf mjög gaman af að horfa á góða bíómynd eða þáttaröð. Bros- andi rifja ég svo upp þegar ég var orðin eldri og við mamma komum í heimsókn til þín, þá gátum við horft saman og spjallað um Guiding Light eða The Bold and the Beautiful, enda á þeim tíma báðar vel inn í sápuóperunum. Það sem einkenndi þig, elsku amma, var gjafmildi, hjarta- hlýja og vinnusemi, ásamt mörgu öðru. Á seinni árum var líka gaman að fylgjast með hve stutt alltaf var í húmorinn hjá þér. En núna ertu loksins búin að hitta afa Alfreð eftir langan að- skilnað og veit ég vel að hann hefur tekið vel á móti þér. Einnig trúi ég því að afi hafi vakað yfir þér með okkur þessa seinustu daga sem við áttum með þér. Fannst mér hann láta vita af sér þegar spiladósin þín fór allt í einu að spila eina kvöldstundina. Nú kveð ég þig, elsku besta amma mín, með tár í augum og mun alltaf hugsa til þín með hlýju í hjarta. Þín, Anna. Elsku hjartans amma mín, nú hefur þú kvatt þessa jarðvist og haldið á vit nýrra ævintýra. Núna er ekkert sem stoppar þig. Þú getur hjólað eins og þú gerðir alltaf áður, heklað og spjallað við afa. Ég veit að afi hefur tekið vel á móti þér, amma mín, það er huggun í harmi að vita að þið séuð sam- einuð. Við áttum oft góða tíma saman hér áður fyrr. Þegar ég var lítil stelpa fórum við í úra- búðina við Akratorg, þú sagðir að ef ég gæti sagt hvað klukkan á veggnum væri skyldir þú gefa mér úr. Það tókst og fyrsta úrið mitt var frá þér. Við eyddum saman mörgum tímum í að horfa saman á myndir og borða eitthvað gott. Þér fannst alltaf mikið atriði að myndirnar væru með góðum leikurum. Ég er svo þakklát fyrir allar góðu minningarnar sem ég á með þér. Við áttum margar skemmtilegar stundir saman. Ég er svo heppin að þú ert amma mín, engin gæti átt betri ömmu. Þú varst alltaf svo mjúk og svo góð lykt af þér. Þú varst sko snillingur í matargerð, og meðan heilsan leyfði eldaðir þú eitthvað girnilegt í hádeginu. Á milli okkar var alltaf sér- stakt samband. Ég á eftir að sakna þín, amma mín. Jóladag- ur verður aldrei eins og áður, en flest alla jóladaga höfum við verið saman fjölskyldan. Ég er ánægð með að hafa náð að snúa lífi mínu við. Ég veit að þú hafðir oft áhyggjur af mér hér áður fyrr. Það eru forréttindi að vera ömmubarnið þitt. Það var erfitt að vera hjá þér síð- ustu stundirnar, en samt ómet- anlegt að hafa fengið að vera hjá þér og halda í hönd þína. Mjúku ömmuhöndina. „Ich liebe dich Oma“. Ég kveð með þessu fallega ljóði. Hvernig er hægt að þakka, það sem verður aldrei nægjanlega þakkað. Hvers vegna að kveðja, þann sem aldrei fer. Við grátum af sorg og söknuði en í rauninni ertu alltaf hér. Höndin sem leiddi mig í æsku mun gæta mín áfram minn veg. Ég veit þó að víddin sé önnur er nærveran nálægt mér. Og sólin hún lýsir lífið eins og sólin sem lýsti frá þér. Þegar að stjörnurnar blika á himnum finn ég bænirnar, sem þú baðst fyrir mér. Þegar morgunbirtan kyssir daginn, finn ég kossana líka frá þér. Þegar æskan spyr mig ráða, man ég orðin sem þú sagðir mér. Vegna alls þessa þerra ég tárin því í hjarta mínu finn ég það, að Guð hann þig amma mín geymir á alheimsins besta stað. Ótti minn er því enginn er ég geng áfram lífsins leið. Því með nestið sem amma mín gaf mér, veit ég að gatan hún verður greið. Og þegar sú stundin hún líður að verki mínu er lokið hér. Þá veit ég að amma mín bíður og með Guði tekur við mér. (Sigga Dúa.) Þín, Katrín Ósk. Elsku hjartans amma og langamma, nú er komið að kveðjustund. Er hryggur í hjarta að horfa á eftir þér amma mín. Það var svo gaman að heimsækja þig á Suðurgöt- una í ömmuhús þegar ég var yngri. Ég á eftir að segja Bryndísi Emblu frá þér þegar hún stækkar. Því miður hittust þið aldrei. Þú sást hana á mynd og hafði á orði hvað hún væri fín. Það var gott að geta verið þér við hlið síðustu dagana. Ég veit að afi hefur nú umvafið þig ást og kærleika, þú ert ekki ein. Þangað til næst, amma. Amma kær, ert horfin okkur hér, en hlýjar bjartar minningar streyma um hjörtu þau er heitast unnu þér, og hafa mest að þakka, muna og geyma. Þú varst amma yndisleg og góð, og allt hið besta gafst þú hverju sinni, þinn trausti faðmur okkur opinn stóð, og ungar sálir vafðir elsku þinni. Þú gættir okkar, glöð við undum hjá, þær góðu stundir blessun, amma kæra. Nú hinstu kveðju hjörtu okkar tjá í hljóðri sorg og ástarþakkir færa. (Ingibjörg Sigurðardóttir.) Þinn, Alfreð Friðrik og fjölskylda. Elsku amma mín ég trúi ekki að það sé komið að kveðju- stund. Það er svo margt sem kemur upp í hugann. Margar minningar, allt frá því ég var lítil og fékk að koma upp að leika meðan mamma og pabbi voru að vinna niðri í bakaríinu. Ég man hvað dótakassinn þinn var spennandi og seinna þegar ég eignaðist börn urðu þau jafnspennt í dótakassann þinn. Ég man hvað það var gaman að fara fyrir þig í búðina áður en þú fluttir upp á Höfða og sjá hvað þú ljómaðir við að fá eitt- hvað nýtt og spennandi. Það var líka gaman að sjá þegar ég kom með eitthvað sem þér þótti óspennandi því þú varst alltaf svo skemmtilega hreinskilin. Ég man að eins mikið og ég samgladdist þér að flytja inn á Höfða þar sem þér leið svo vel og þú varst svo hamingjusöm, þá saknaði ég þess að snúast fyrir þig. Það er sérstaklega erfitt að kveðja þig núna á þessum árs- tíma þar sem svo margt minnir á þig. Margt af þínu uppáhalds tengist jólunum eins og mandarínur og jóla- ljósin. Þú ljómaðir eins og lítill krakki þegar jólaljósin voru komin upp og sagðir mér sögur og æskuminningar þínar af jól- unum. Það sem huggar mig núna er að loksins ertu búin að fá hvíld- ina og farin til afa sem þú sakn- aðir svo mikið og ég veit að hann hefur tekið vel á móti þér. Hvíl í friði elsku amma. Ég sendi þér kæra kveðju nú komin er lífsins nótt, þig umvefji blessun og bænir ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því, þú laus ert úr veikinda viðjum þín veröld er björt á ný. Ég þakka þau ár sem ég átti þá auðnu að hafa þig hér, og það er svo margs að minnast svo margt sem um hug minn fer, þó þú sért horfinn úr heimi ég hitti þig ekki um hríð, þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sigurðardóttir) Rebekka Helen Karlsdóttir. Sesselja Óskarsdóttir Kæri Felix Við sitjum öll með sorg í hjarta og ástæðan er sú að farinn ert þú frá okkur það ekki skiljum nú. Að hress og kátur öðlingur sem lífið blasti við með öllum sínum væntingum þær hurfu burt með þér. Ólafur Felix Haraldsson ✝ Ólafur FelixHaraldsson fæddist á Patreks- firði 14. október 1970. Hann lést af slysförum 20. októ- ber 2012. Útför Felix fór fram frá Patreks- fjarðarkirkju 3. nóvember 2012. Að sitja hér og hugsa um guð og hans mikla mátt fá ei neinu ráðið um hvað jörðu gerist á. En við treystum öll á það að aftur hittumst já þá ég lofa skal þér því við höldum partí. Far í friði fagri sveinn með öllum fríðum englunum þú núna getur flogið einn á þínum fögru örmum. Samúðarkveðjur. F.h. fjölskyldunnar Mýrum 9, Patreksfirði, Sigríður Erlingsdóttir. HJARTAVERND Minningarkort 535 1825 www.hjarta.is 5351800 ✝ Okkar ástkæri SIGURÐUR GUNNARS SIGURÐSSON viðskiptafræðingur, Skildinganesi 12, Reykjavík, lést sunnudaginn 25. nóvember. Útför hans fer fram frá Neskirkju föstudaginn 7. desember kl. 13.00. Þeim sem vilja minnast hans er bent á blóðlækningadeild Landspítalans og Hjartaheill. Helga Margrét Ketilsdóttir, Árni Sigurðsson, Guðný Lilja Oddsdóttir, Helgi Grétar Sigurðsson, Rosalie Sarasua, Bjarni Árnason, Rakel Karlsdóttir, Árni Þór Árnason, Harpa Hrund Pálsdóttir, Alysha Sarasua, Alexander Snorri Sigurdsson, Benjamin Joseph Sigurdsson, Sara Björk og Tristan Bjarki. ✝ Ástkær móðir mín, tengdamóðir, amma og langamma, ÞURÍÐUR ÁRNA JÓHANNESDÓTTIR, Dvergholti 15, Hafnarfirði, andaðist á Landspítala, Fossvogi, þriðjudaginn 20. nóvember. Útförin hefur farið fram. Sigurður Þór Sigurðsson, Kristín Kjartansdóttir, Kjartan Sigurðsson, María Sverrisdóttir, Sigurður B. Sigurðsson, Kristín Þ. Guðmundsdóttir og barnabarnabörn. ✝ Ástkær eiginmaður, faðir og bróðir, ERNST P. DANÍELSSON, M.D., lést á heimili sínu í Dunnegan, Missouri, Bandaríkjunum, föstudaginn 30. nóvember. Jarðsett verður í Dunnegan. Susie Danielsson, Martha Ernstdóttir, Sveinn Ernstsson, Bryndís Ernstdóttir, Brendan Daníelsson, Abigail Danielsson, Heather Barbor, Hákon Daníelsson, Helgi Daníelsson, barnabörn, tengdabörn og aðrir vandamenn. Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og bróðir, JÓHANNES S. KJARVAL arkitekt, Grenimel 32, lést á líknardeild Landspítalans laugardaginn 1. desember. Gerður Helgadóttir, Þóra Kjarval, Sveinn Kjarval, María Björk Jónsdóttir og systkini hins látna. ✝ Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir og amma, UNA GUÐMUNDSDÓTTIR, Fjarðargötu 19, Hafnarfirði, lést á líknardeild Landspítalans mánudaginn 26. nóvember. Útför hennar fer fram frá Akraneskirkju föstudaginn 7. desember kl. 14.00. Sérstakar þakkir færum við Örnu Dögg Einarsdóttur lækni. Linda Björk Svansdóttir, Svanur Pétursson, Hrafnhildur Svansdóttir, Guðmundur Rúnar Skúlason, Guðmundur Rafn Svansson, Guðrún Adolfsdóttir, Arnar Svansson, Jenný Þórkatla Magnúsdóttir, Halla Svansdóttir, Jóhannes Þór Harðarson og barnabörn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.