Morgunblaðið - 04.12.2012, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 04.12.2012, Blaðsíða 14
14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. DESEMBER 2012 BAKSVIÐ Andri Karl andri@mbl.is „Ég á óljósar minningar um þennan dag,“ sagði Halldór Halldórsson, við- skiptastjóri á fyrirtækjasviði Glitnis í febrúar 2008, við aðalmeðferð yfir þeim Lárusi Welding, fyrrverandi forstjóra Glitnis, og Guðmundi Hjaltasyni, fyrrverandi fram- kvæmdastjóra fyrirtækjasviðs bank- ans, í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær. Minnisleysið varð einkennandi eftir hádegið, þegar teknar voru skýrslur af starfsfólki Glitnis en þeir Lárus og Guðmundur voru oftar vissir í sínu sakleysi. Ástæða þess að Halldór Halldórs- son er tekinn út fyrir sviga er sú að augljóst var á dómurum í málinu, en dómurinn er fjölskipaður, að þeir hefðu gjarnan viljað að Halldór gæti rifjað meira upp frá föstudeginum 8. febrúar 2008, þeim örlagaríka degi. „Þessi föstudagur er greinilega í ákveðinni þoku, kannski út af tíma- lengdinni,“ sagði Símon Sigvaldason dómsformaður þegar hann spurði Halldór spjörunum úr. „Þetta rifjar ekkert upp í þínum huga, símtalið. […] Þig rekur ekkert minni til hvað þarna er í gangi.“ Ástæðan er sú að Halldór hafði töluvert mikla aðkomu að málinu og er í lykilstöðu til að upplýsa um þátt annarra. Og reyndar má skynja af spurningum verjenda Lárusar og Guðmundar að þeir vilja þátt Hall- dórs meiri en sérstakur saksóknari. Og kannski er það ekki að ósekju. Halldór var sá eini sem með beinum hætti bendlaði þá Lárus og Guðmund við eitthvað misjafnt við aðalmeðferð- ina í gær. Til að rekja það byrjum við á spurningu saksóknara til Halldórs: „Tókst þú ákvörðun um að lána Milestone?“ „Nei.“ Hverjir tóku þá ákvörðun? „Líklegast er að það hafi verið yfir- maður minn og forstjóri bankans.“ Þess ber þá að geta að yfirmaður Halldórs var téður Guðmundur Hjaltason. En málið er flóknara en svo. Óhægt er að rekja það í stuttu máli en það snýst um 102 milljóna evra, um 10 milljarða króna, lán sem áhættunefnd bankans var búin að samþykkja til fé- lagsins Vafnings. Lánið átti að nota til að greiða skuld félagsins Þáttar við bandaríska bankann Morgan Stanley. Veð bandaríska bankans voru hluta- bréf í Glitni og Milestone bar ábyrgð á skuldbindingum Þáttar. Og Morgan Stanley gjaldfelldi skuldina og krafð- ist greiðslu fyrir miðjan dag 8. febr- úar, föstudaginn örlagaríka. Rétt eftir klukkan þrjú umræddan dag barst greiðsla til Morgan Stanley. En Glitnir lánaði ekki Vafningi eins og samþykkt var í áhættunefnd held- ur Milestone og ekki var um hefð- bundið lán að ræða heldur peninga- markaðslán. Og peningamarkaðs- lánið var sannarlega ekki afgreitt á hefðbundinn máta. Lánasamningur við Vafning var tilbúinn og með honum fylgdi svo- nefnt ádráttarskjal. Á það skjal hrip- aði hins vegar Halldór Halldórsson niður greiðslufyrirmæli um að greiða ætti Milestone peningamarkaðslán. Og hann staðfesti skrift sína. Og hann staðfesti rödd sína í símtali þar sem hann spurði miðlara hvort þetta væri gerlegt og að hann kæmi skjölum til hans. Undir þetta skjal skrifuðu bæði Lárus og Guðmundur. Neituðu að hafa séð skjalið Ef við drepum aðeins niður í skýrslutökurnar að nýju. Saksóknari spyr og Halldór svarar: „Varst þú viðstaddur þegar ákærðu skrifuðu undir skjalið?“ „Ég man það ekki.“ Getur verið að þú hafir tekið það upp hjá sjálfum þér að breyta efni skjalsins eftir að þeir skrifuðu undir eða höfðu vitneskju um það?“ „Nei.“ Báðir Lárus og Guðmundur neituðu að hafa séð umrætt skjal fyrr en hjá sérstökum saksókn- ara. Þeir könnuðust við undir- skrift sína en útilokuðu ekki að því hefði verið breytt eftir að þeir skrifuðu undir. Þokukenndur dagur í febrúar 2008 Morgunblaðið/Styrmir Kári Handaband Guðmundur Hjaltason og Lárus Welding heilsast áður en aðalmeðferð yfir þeim hófst í gærmorgun.  Aðalmeðferð hafin yfir fyrrverandi forstjóra Glitnis banka og fv. framkvæmdastjóra fyrirtækjasviðs  Einkenndist af góðu minni þeirra tveggja en minnisleysi um margt hjá öðrum starfsmönnum Glitnis Ákæran » Lárus Welding og Guð- mundur Hjaltason eru ákærðir fyrir að hafa misnotað aðstöðu sína og stefnt fé Glitnis í stór- fellda hættu með tíu milljarða króna lánveitingu til Milestone í formi peningamarkaðsláns. » Þeir hafi sem meðlimir í áhættunefnd bankans veitt lánið án trygginga eða ábyrgða og andstætt reglum Glitnis um lánveitingar og markaðs- áhættu um hámark heild- arlánveitinga til einstaks aðila og aðila honum tengdum. Upplýst var við aðalmeðferðina í gær að fjármálastjóri Glitnis var í febrúar 2008 svo gott sem búinn að setja stopp á allar nýjar lánveit- ingar, sérstaklega í erlendum gjald- eyri. Stopp þar til aðstæður á efna- hagsmarkaði löguðust. Saksóknari spurði nokkuð út í þessa staðreynd og hvort aðstæður hefðu snarlega lagast 8. febrúar 2008, þegar samþykkt var að lána 102 milljónir evra út úr bankanum. Hér skulu rifjuð upp svör banka- stjórans og fjármálastjórans við þeim spurningum. „Það er ekkert launungarmál að þetta var lánveiting sem bankinn kaus ekki að fara út í. Þetta var klárt hagsmunamat og það var rétt fyrir bankann,“ sagði Lárus Welding, þá- verandi banka- stjóri Glitnis.. „Mat okkar var að það væri það illskásta í stöð- unni,“ sagði Alex- ander K. Guðmunds- son, fjár- málastjóri Glitnis. Klárt hagsmunamat bankans ILLSKÁSTI KOSTURINN AÐ SAMÞYKKJA LÁNVEITINGU Lárus Welding Á R N A S Y N IR util if. is MIKIÐ ÚRVAL SPORTBAKPOKAR FRÁ 4.990 kr. MARGIR LITIR. Fátt er betra fyrir meltinguna á aðventunni en 3PRÓGASTRÓ DDS PLÚS® Þessi vara er laus við: Mjólk Glúten Sykur Soja Rotvarn- arefni 10 0% NÁ TTÚRULEGT • 100% NÁTTÚRULE GT • P R E N T U N . I S Fáanlegt í flestum apótekum, heilsubúðum og heilsuhillum stórmarkaðanna 2 hylki af PRÓGASTRÓ fyrir stóra máltíð getur létt á meltingunni. PRÓGASTRÓ inniheldur hinn öfluga asídófílus DDS1 sem bæði gall- og sýruþolin. www.gengurvel.is Góð jólagöfhanda þeimsem allt eiga. Góða melting um jólin! Björgunarsveitin Hérað á Egils- stöðum hefur undanfarið oftsinn- is verið kölluð út undanfarið til að aðstoða ferðamenn á veginum um Breiðdalsheiði. Engin vetrar- þjónusta er á veginum, sem hefur verið ófær undanfarna tvo mán- uði. Lögreglan á Egilsstöðum segir að útköll af þessu tagi ber- ist oft í viku hverri, fyrst og fremst frá erlendum ferðamönn- um. Á vefsíðu Vegagerðarinnar er vegurinn um Breiðdalsheiði merktur með rauðum lit, sem þýðir að hann er ófær. Að auki hefur stóru skilti verið komið fyr- ir á leiðinni frá Egilsstöðum, þar sem ástand vegarins er ítrekað, en það virðist ekki hamla för fólks. Ökumaður lítils fólksbíls slapp ómeiddur er bíll hans valt á veg- inum um Fagradal um klukkan þrjú í gær. Samkvæmt upplýs- ingum frá lögreglunni á Egils- stöðum var slæm færð á veginum, hálka, hvassviðri og slabb. Öku- maðurinn var einn í bílnum, sem skemmdist nokkuð við óhappið. Ferðamenn oft í vandræðum og óska aðstoðar á lokaðri Breiðdalsheiðinni

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.