Morgunblaðið - 04.12.2012, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 04.12.2012, Blaðsíða 16
16 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. DESEMBER 2012 Á R N A S Y N IR util if. is DEUTER FUTURA Bakpokar MARGVERÐLAUNAÐIR BAKPOKAR, ÝMSAR STÆRÐIR. FRÁ 18.990 kr. Einstaklega vel staðsett 102,4 fm² iðnaðar- húsnæði við Askalind í Kópavogi. Húsnæðið skiptist í 82,6 fm gólflöt og 19,8 fm² milliloft. Á neðri hæðinni er skrifstofa og WC ásamt alrými með mjög góðri lofthæð. Á millilofti er vel innréttuð skrifstofa. Gluggafrontur úr skrifstofu til norðurs með góðu útsýni. Stór innkeyrsluhurð ásamt gönguhurð. Malbikað bílaplan. Góð aðkoma. Verð 19.8 millj. Til sölu Upplýsingar gefur Þorgrímur s. 892-1270 og Ólafur s. 866-0927 Ingveldur Geirsdóttir ingveldur@mbl.is Óljóst er hversu margir hjúkrunar- fræðingar sögðu upp störfum á Land- spítalanum um síðustu mánaðamót en samkvæmt aðgerðarhópi hjúkrunar- fræðinga eru þeir um 190 talsins. Sú tala er óstaðfest. Leitast var eftir að fá fjölda uppsagna staðfestan hjá mannauðssviði LSH í gær en þar fengust þær upplýsingar að það væri ekki hægt því verið væri að fara yfir uppsagnirnar eftir helgina. Samkvæmt aðgerðahópnum er stórt hlutfall þessara hjúkrunarfræð- inga með sérmenntun, s.s. skurð- hjúkrunarfræðingar, svæfingar- hjúkrunarfræðingar, gjörgæsluhjúkrunarfræðingar og barnahjúkrunarfræðingar ásamt al- mennum hjúkrunarfræðingum. Ólga hefur verið meðal hjúkrunar- fræðinga vegna stofnanasamnings við Landspítalann sem enn hefur ekki verið endurskoðaður í samræmi við kjarasamninga. Í nóvember gengu bréf á milli hjúkrunarfræðinga þar sem hvatt var til uppsagna mánaða- mótin nóvember/desember. Féll niður vegna anna ráðherra Aðgerðahópur hjúkrunarfræðinga sendi frá sér tilkynningu í gærmorg- un þar sem hann boðaði til mótmæla í tengslum við fund á milli fulltrúa hjúkrunarfræðinga og Landspítalans um kjaramálin. Ekkert varð hinsveg- ar af fundinum. Samninganefnd Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga hafði óskað eftir fundi með Birni Zoëga, forstjóra Landspítalans og Guðbjarti Hannes- syni velferðarráðherra. Fyrir helgi var stefnt að því að halda fundinn klukkan fjögur í gær en síðar kom í ljós að ráðherra hafði ekki tíma til að sitja fundinn svo honum var frestað. Elsa Friðfinnsdóttir, formaður Fé- lags íslenskra hjúkrunarfræðinga, sagði í samtali við Morgunblaðið að það hefði verið orðið ljóst á laugar- daginn að af þessum fundi yrði ekki í gær vegna anna ráðherra. „Að mínu mati höfum við mætt skilningi og það eru allir að reyna að leita leiða. Það er fullur vilji Landspít- alamegin að semja en það vantar fjár- muni og við höfum mætt skilningi fjármála- og velferðarráðherra en hverju það skilar í peningum á eftir að koma í ljós,“ segir Elsa spurð út í stöðu samningaviðræðna. Hún vonar að næsti fundur verði í þessari viku. Mörg símtöl bárust í síðustu viku til Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga frá hjúkrunarfræðingum sem voru að leita eftir ráðleggingum varðandi uppsagnir að sögn Elsu. „Það var mjög mikið um það í síðustu viku að hjúkrunarfræðingar hringdu og at- huguðu réttindi sín ef þeir segðu upp störfum.“ Hafa gildan kjarasamning „Hjúkrunarfræðingar hafa gildan kjarasamning. Það hefur ekki verið endurnýjaður stofnanasamningur af því að þeir hafa ekki viljað gera það nema að fá kjarabætur. Og það hafa hingað til ekki verið neinar kjarabæt- ur í stofnanasamningum, sem þýðir það að Landspítalinn fær enga pen- inga frá ríkinu eða fjármálaráðuneyt- inu til að ganga frá þessu. Þess vegna hefur ekki verið hægt að ganga frá stofnanasamningi,“ sagði Björn Zoëga, forstjóri Landspítalans, í sam- tali við mbl.is í gær. Hann sagði að eitthvað hefði verið um uppsagnir meðal hjúkrunarfræð- inga fyrir síðustu helgi en vildi ekki tjá sig frekar um þær. „Það eru allir að reyna að leita leiða“  Formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga segist mæta fullum vilja LSH til að semja en það vanti fjármuni Morgunblaðið/Styrmir Kári Kjaramál Frá baráttufundi hjúkrunarfræðinga í haust fyrir betri launum. Vilja hærri laun » Ólga er meðal hjúkrunar- fræðinga vegna stofnana- samnings við Landspítalann sem enn hefur ekki verið end- urskoðaður í samræmi við kjarasamninga. » Krafa er uppi um kjarabætur í stofnanasamningum. LSH hefur ekki haft fjármagn frá ríkinu til þess. Lögreglunni á höfuðborgarsvæð- inu hafa borist tilkynningar frá bankastofnunum um að notendur heimabanka hafi tilkynnt um að opnast hafi sprettigluggi meðan viðkomandi var að nota heima- bankann. Í umræddum glugga var óskað eftir upplýsingum um kreditkort viðkomandi, þar á meðal öryggis- númer og pin-númer kortsins. „Mikilvægt er að muna að bankar biðja aldrei um slíkar upplýsingar gegnum netið og því er þarna um svikastarfsemi að ræða,“ segir í tilkynningu lög- reglunnar á höfuðborgarsvæðinu um málið. Svikastarfsemi tengd heimabönkum Heimili og skóli – landssamtök for- eldra, Rauði krossinn, Ríkislög- reglustjóri og Barnaheill – Save the Children á Íslandi gerðu í gær samning við þrjú ráðuneyti mennta- og menningarmála-, innanríkis- og velferðarmála um stuðning við SAFT verkefnið til ársloka 2014. Samningurinn var undirritaður við athöfn í Langholtsskóla og snýr að rekstri SAFT-verkefnisins á Íslandi. Markmið SAFT er að reka vakn- ingarátak og fræðslu um örugga og jákvæða notkun netsins meðal barna og ungmenna, foreldra, kennara, fjölmiðla og þeirra sem starfa við upplýsingatækni. Barist er gegn ólöglegu efni á netinu og börnum og ungmennum veitt aðstoð í gegnum hjálparlínu. Mikið er lagt upp úr samstarfi við hin löndin á Norð- urlöndum og jafnframt er verkefnið hluti af netöryggisáætlun Evrópu- sambandsins sem nær til allra landa á Evrópska efnahagssvæðinu. Öfl- ugt starf er unnið á vegum SAFT á sviði forvarna og fræðslu, segir í fréttatilkynningu. Undirritun Ketill B. Magnússon, formaður Heimilis og skóla, og ráðherrarn- ir Guðbjartur Hannesson, Katrín Jakobsdóttir og Ögmundur Jónasson. Stuðningur þriggja ráðuneyta við SAFT

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.