Morgunblaðið - 22.01.1953, Blaðsíða 11
Fimmtudagur 22. jan. 1953
MORGVNBLÁ9EB
11
Yfirlit um vega- og brúagerð drið 1952
í BLAÐINU í GÆB var skýrt
frá skýrslu vegamátastjára um
framkvæmdir í vegamálunum
á síðastl. ári. — Bér á eftir
fara kaflar þeir úr skýrslunni,
er fjalla um framkvarmdir í
hinum einstöku ianösfjórð-
ungum.
Á Suðurlandi var óvenjulítið
um nýbyggingar vega, en unn-
ið nokkuð víða fyrir smáupp-
hæðir í hverjum kaila. Brýr voru
byggðar á þessar ár:
Laxá í Kjós nokkru fyrír ínnan
Keynivelli.
Miðskálaá undir Eyjafjöllum.
Grenlæk í Landbroti í Skafta-
fellssýslu.
Djúpá í Fljótshverfi, allmikil
brú og eru nú aðeins 2 smáár
óbrúaðar á Suðurlanásvegi allt
austur að Skeiðarársandi. J»á var
sett ný brú á aðalkvís! Skaftár
hjá Kirkjubæjarkiaustri. Er það
allmikil brú, steinsteypt. Þar var
áður járngrindabrú, gömul og ó-
traust og hafði sligast undan
þungri umferð.
Lokið var, er kom fram á haust,
við brúargerð á Jökulsá í Lóni
©g er hún langmest þeirra, sem
byggðar voru á árinu, svo sem
áður hefur verið greirtt frá í út-
varpi og blöðunum.
Því miður var engirr fjárveit
ing úr brúasjóði til framhalds
framkvæmda að brúargerð á
Hvítá hjá Iðu, en þar var 1951
hafinn nokkur undirbúningur
brúargerðar. Fæst væntanlega
nokkuð fé til framkvæmda í ár.
Þarna er fyrirhuguð ein stærsta
og kostnaðarmesta stórbrúin, sem
nú og næstu árin verður í smíð-
um. Verður það hengibrú, yfir
100 m. löng og er hennar mikil
nauðsyn til samgöngubóta í upp-
sveitum Árnessýslu.
VESTURLAND
Á Vesturlandl var víffa tmnið
að verulegum vegabótum. Má sér
staklega nefna þessar.
Uxahryggja- og Lundarreykja-
dalsvegur var mjög endurbættur
til þess að greiða fyrir fjárflutn-
ingunum á síðastliðnu hausti. Er
sú leið nú orðin mjög greiðfær
sumarvegur um Þingvellí. Þar
sem hún er um 15 km. styttri en
fyrir Hvalfjörð, mun hún orðin
fljótfarnasta leiðin til Borgar-
fjarðar. Nokkuð- var unnið að
vegabótum í öðrum Borgarfjarð-
ardölum, sérstaklega í Hvítár-
síðu og brú var gerð á Reykja-
dalsá skammt fyrir innan Reyk-
holt og á Fitjaá innst í Skorra-
dal. Þá var og lokið við kaflann
um Álftaneshrepp á Mýrum að
Vogalæk.
★
A Snæfellsnesi miðaðí allvel
áleiðis lagningu Fróðárheiðar-
vegar og er nú komirm góður og
tiltölulega snjóléttúr vegur yfir
allan vesturhluta heíSarinnar.
Má vænta, að lokið verði vega-
gerðinni á næstú 2 árum. fíokkr-
ar aðrar umbætur voru gerðar
m. a. í Hnappadal og byggðar
þar 2 smábrýr. Er nú orðið vel
akfært að Hraunholti og mun
væntanlegur vegur um Heydal
til Skógarstrandar lagður það-
an, en ekki gagnar aS hefja þá
vegagerð fyr en um það bil, erj
góður vetrarvegur er kominn um
Skógarströndina. Á Útnesvegi
voru byggðar smábrýr á Stapagil
og Dagverðará og er nú vel ak- |
fært þangað. Eftir fá ár er vænst j
að leið þessi verði akfær vestur
fyrir Snæfellsjökul til Hellis-
sands. í botni Álftafjarðar
skammt innan við Stykkishólm
var gerð brú á Kárastaðaá ásamt
vegarspotta þar og er nú kom-
ínn allgóður Vegur þá leið til
Skógarstrandar.
Úr skýrsEu vegamélosifórQ
í Dalasýslu voru gerðar 2 smá-
brýr á Klofningsvegi innan við
Staðarfell, ennfremur brú á Búð-
ardalsá á Skarðsströnd. Bættu
brýr þessar, ásamt vegabótum í
sambandi við þær, allvemiega
leiðina fyrir Klofning tii Saur-
Geir G. Zoega
bæjar, þó eru þar enn nokkrar
óbrúaðar ár, sem væntanlega
verður bætt úr á næstu árum.
Haldið var áfram vegagerð út
Skógarströnd áleiðis til Stykkis-
hólms og er þar nú að vísu sum-
arakfær vegur, en þarf mikilla
umbóta. Á Vesturlandsvegi var
lítilsháttar unnið að framhaldi í
Svínadal og sunnar í Dölum, en
mikið vantar enn á, að kominn
sé góður vegur í Svinadal og
ekki síður í hlíðunum sunnan
Gilsfjarðar, en þar er nú lak-
asti kafli leiðarinnar vestur að
ísafjarðardjúpi.
★
í Barðastrandarsýslu voru all-
miklar vegabætur. Reykhólaveg-
úr var fullgerður vestur að Stað.
Gufudalsvegur varð akfær, en þó
ekki fullgerður, út að Sltálanesi.
Allstór brú var steypt á Djúpa-
' flalsá og rutt áfram inn með
Kollafirði, að Galtará. Reiðveg-
urinn þsssa leið lá yfir Gufudals-
háls, en akvegurinn er lagður út
fyrir háls um Skálanes, meðfram
sjó og allmiklu lengri leið.
Að vestan var haldið áfram
vegagerð um Barðaströnd, bæði
fyrir vestan Haga og á Kaflan-
um frá Brjánslæk yfir Þing-
mannaheiði og varð þar akfært
nær því inn að Vattarnesi og að
vísu rutt áfram að mestu allt
inn að Skálmardalsá. Enn hefur
ekkert verið unnið í kaflanum frá
Skálmardalsá yfir Klettsháls að
Galtará við Kollafjörð, sem er
um 20 km. og eru einnig á leið
þessari allri nokkrar óbrúaðar ár.
Má því ekki vænta, að leiðin frá
Þorskafirði til Patreksfjarðar
verð; akfær fyr en eftir 3—4 ár,
þó jeppafæit verði nokkru fyr.
Sunnan Patreksfjarðar var
haldið áfram vegagerð og varð
akfært út í Örlygshöfn írá Hval-
skeii.
★
I IsafjarSarsýsium var aðallega
unnið að þessum vegum: Dýar-
fjarðarvegur komst nokkuð á-
leiðis inn með firðinum að norð-
an og er fyrirhugað, að ljúka
honum á næsta ári til Þingeyrar.
Þarf þá ekki lengur að nota ferju
frá Gemlufalli norðan fjarðarins
til Þingeyrar. Er þetta að vísu
alllöng leið á landi, um 32 km.,
en ferjuleiðin aðeins rúmlega
2 km. |
Fyrir botni ísafjarðar var hald
ið áfram vegagerð, sem fyrir-
huguð er þaðan yfir hálsinn í
Mjóafjarðarbotn og þvínæst út
með þeim firði norður að Ögri.
Ætti hún að ljúkast á næstu ár-
um og jafnframt vegur norðan
ísafjarðar út í Reykjanes. Var
nokkuð byrjað á þeim vegi.
Byggð var brú á Selá á Langa-
dalsströnd, skammt utan við
Melgraseyri. Er það allmikil brú,
steypt, 40 m. löng, enda mun
Selá stærsta vatnsfall á Vest-
fjörðum. Er þannig orðið akfært
út að Ármúla. Eftir fá ár ætti
að vera orðið akfært um alla
byggð við ísafjarðardjup allt frá
Ögri um Reykjanes inn fyrir
ísafjarðarbotn út að Ármúla og
jafnvel norður yfir Kaldalón, því
sýnt er að brúargerð þar verður
ekki mjög kostnaðarsöm.
Nokkrar endurbætur voru
gerðar á Bolungavíkurvegi og
mun svo þurfa áfram, því vatns-
rennsli og grjóthrun er þar all-
mikið fram á veginn og líklegt,
að kafli þar verði ekki hættu-
laus umferð, nema að takast megi
að gera þar nokkra umbót, sem
er í athugun. Einnig voru gerðar
umbætur á Súðavikurvegi og er
nú fyrirhugað að leggja hann
áfram inn fyrir Álftafjörð og
lengra. Var steypt smábrú á
Dvergssteinsá á þeirri leið, skamt
innan við Súðavík.
í Strandssýslu var haldið
áfram vegagerð norðan Bitru-
fjarðar og er nú kominn góður
vegur um Bitruna nokkuð út fyr-
ir Óspakseyri og yfir Bitruháls
utarlega til Kollafjarðar. Er þó
enn nokkur ógerður kafli. Norð-
an Hólmavíkur var byggð allstór
steypt brú á Staðará og haldið
áfram vegagerð sunnan Bjarnar-
fjarðarháls og á hálsinum. Verð-
ur sá vegur væntanlega fullgerð-
ur úr Staðardalnum yfir hálsinn
til Bjarnarfjarðar á næstu árum.
Nokkuð var unnið að Selstrand-
arvegi, byggð smábrú á Birgisa
skammt innan við Dranganes-
þorp, og haldið áfram vegagerð
þaðan áleiðis til Kaldrauaness.
í sumar verður væntanlega
byggð brú á Ósá ákammt utan við
Hólmavík og þá jafnframt lok-
ið við smá vegarkafla um Kálfa-
nesflóá. Flytst þá aðalleiðin norð-
ur frá Hólmavík þangað, en
leggst niður mjög stirður kafli
milli Hólmavíkur og Ósa.
NORDURLAND
í Húnavatnssýsltt var haldið
áfram vegagerð um Vatnsnes, og
má nú telja þar sæmilega akfært
frá Hvammstanga út að Tjörn og
inn í Vesturhóp að austan, en
þarf þó enn nokkurra endurbóta
á köflum. Einnig var unnið tals-
vert í Vatnsdalsvegi, og er hann
nú orðinn vel góður inn að Ás-
brekku. Hinsvegar er enn mjög
stirður vegur inn dalinn austan
ár.
Fyrirhugað er að byggja á
sumri komandi brú á Vatnsdalsá,
skammt utan við Grímstungu.
Nokkuð var unnið í Skaga-
strandarvegi fyrir norðan kaup-
túnið og í Norðurárdal á leiðinni
til Sauðárkróks.
ik
í Skagafjarðarsýslo var haldið
á-fram vegagerð inn Tungusveit
og er nú kominn allgóður vegur
inn undir Goðdali. Unnið var
nokkuð í Siglufjarðarvegi að
kaflanum hjá Höfðahólum, og
gerðar npkkrar endurbætur í Við
víkursveit og á Sauðárkróksbraut
til öryggis veti-arumíerð.
★
I Eyjafjarðarsýslu var að heita
má lokið Laugalandsvegi inn að
Möðruvöllum og hafin vinna við
mjög aðkallandi endurbætur á
elztu köflum þessa vegar og
Eyjafjarðarbrautar, sem þarf hið
fyrsta að hækka allvíða til þess
að ekki teppist í fyrstu snjóum
eins og nú vill verða. Ný smábrú
var steypt á Krossastaðaá á Þela-
mörk og lokið við stöpla hinnar
nýju brúar á Glerá milli Akur-
eyrar og Glerárþorps, en þar er
fyrirhuguð mjög veruleg breyt-
ing á aðalveginum frá Akureyri
út í Kræklingahlíð, til þess að
rétta úr beygjum og taka af snjó-
sæla kafla. Verður Glerárbrúin
væntanlega fullgerð á næsta
sumri.
Á veginum frá Akureyri til
Dalvíkur er nær 50 ára gömul
hengibrú á Hörgá hjá Möðruvöll-
um. Er hún orðin mjög ótraust,
og þolir alls ekki umferð þá, sem
' þar er nú. Standa vonir til að fé
í fáist til þess að byggja þar nýja
I brú í sumar, enda er þess mikil
þörf.
★
f Þingeyjarsýslum var lokið
við Ljósavatnsskarðsveg og unn-
ið fyrir smáupphæðir í mörgum
vegaköflum, svo sem í Reykja-
hverfi, á Tjörnesi í Mývatnssveit
einnig nokkuð í Kelduhverfi, í
Raufarhafnarvegi og í Hólsfjalla-
vegi á sj’ðsta kaflanum frá Detti-
fossi til Axarf jarðar. Þá var hald-
ið áfram vegabót á Austurlands-
vegi skammt fyrir sunnan Gríms-
staði. Brú var byggð á Sandá í
Axarfirði. Lokið var við nýja brú
52 m. langa, steyptan boga og
landbrýr á Laxá hjá Laxamýri,
en 1951 var sett ný brú á Mýrar-
kvísl, sem er þar all nærri. Tals-
veiðar endurbætur voru og gerð-
ar á nokkrum öðrum brúm og
veginum frá Húsavík að orku-
verinu nýja. Voru umbætur þess-
ar nauðsynlegar nú þegar, vegna
i flutninga Laxárvirkjunarinnar,
enda er svo til ætlazt að virkj-
! unin beri verulegan hluta kostn-
aðarins. ^
’K, •
<v
AUSTURLAND
Á Austurlandi var mjög víða
unnið, en yfirleitt þar eins Og
annars staðar fyrir smáupphæð-
ir í hverjum kafla.
í Bakkafirði var byggð brú á
Bakkaá og er nú orfíið sæmilega
akfært frá Þórshöfn til (Hafna-
kauptúns, en brú er ógerð á
Staðará og er vappzt. að hún verði
byggð í ár. Þegar lokið er vega-
bótum í Bakkafirði ásámt nokkr-
um ógerðúm smábrúm þar, er
fyrirhugað .áð hefja vegagerð
úm Sandvíkurheiði til Vopna-
fjarðar og myncli þá fást mikil
bót samgangna í þessu víðáttu-
rhikla. en strjálbyggða héraði.
Nokkuð miðaði áleiðis vega-
gerð frá Úthéraði um svonefnt
Vatnsskarð til Njarðvíkur og
Borgarfjarðar. Eru þar enn ólagð
ir nær 9 km. til Njarðvíkur, en
þaðan til Borgarfjarðar er mjög
ófullkominn en jeppafær vegur,
um 9 km. Hætt er við, að enn
talci 4—5 ár, þar til vegur þessi
verður fullgerður. Nokkrar end-
urbætur voru gerðar á Austur-
landsvegi i Jökuldal og lítilshátt-
ar haldið áfram vegi, sem fyrir-
hegaðtit "e? ifitffi'ílátlomkStErtSar’
og Valþjófsstaðar inn fyrir Lag-
arfljot um brúna á Jökulsá í
Fljótsdal, sem gerð var 1951. Verð
úr það mjög gagnleg og falleg
leið, en mikið er þar enn ógert.
Haíin var brúargerð á Keldúá í,
Fljótsdal og mun verða fullgerð
í ár. í Jökuldal er nú orðið ak-
fært, frá Skjöldólfsstöðum inn að
Brú og verður væntanlega sett
þar brú á Jökulsá í ár. Ópnast þá
leið til Hrafnkellsdals, en sú
byggð hefur verið mjög einangr-
uð. Brýr voru byggðar á Þórisá
og'Geitá í Skriðdal og er nú orð-
ið akfært um Skriðdal beggja
megin Grímsár um Geitárbrúna
nýju og brúna á Múlaá hjá Þing-
múla, sem byggð var fyrir fá-
um árum. Lokið var við veginn,
yfir hábungu Fjarðarheiðar millí
Héraðs, og Seyðisfjarðar, en þarf
en nokkrar vegabætur í heiðar-
brekkuaum að aústan, sem vænt-
anlega verður lokið á næstu 2—3
árum. Allvel miðaði áfram vega-
gerð sunnan Reyðarfjarðar áleiðisr
til Fáskrúðsfjarðar, en áður und-
anfarin 2 ár hafði vætutíð mjög
tafið framkvæmdir. Hæpið er þp
að f járveitingin í ár nægi til þess
að fært verði um þann smákafla,
sem enn er ógerður. Nokkrar ár
eru þar óbrúaðar, en vænta má,
að Sléttuá, sem er stærst þeirra,
verði brúuð í ár og jafnvel einnig
einhverjar minni árnar. Nokkuð
var unhið að yegagerð milli
Stöðvarfjarðar og Fáskrúðsfjarð-
ar, en munu þó enn nokkur ár,
þar til akfært verður allá þessa
leið. í Bréiðdal voru byggðar 2
smábrýr og er nú orðinn allgreið-
fær vegur um neðri byggðina Og
suður til Berufjarðarbotns. Hald-
ð var áfram vegabótum" súnnán'
Berufjarðar og er nú jeppafært
bá leið til Djúpavogs og verður
•æntanlega sæmilcga akfær veg-
ur eftir nokkur ár. Unnið var
aokkuð að vegagerð á Lónsheiði’
ag mS telja, að vegur sé fullgerð-
ur úr Lóni upp á háheiði, en
baðan er illa akfær' vegur áust-
ur yfir til Alftafjarðar og 'mun
verða unnið að vagabótum þar
á iiæstu árum. Er það langversti
kaílinn á ailri aðalleiðinni úm‘
Austurland og ásarnt kaflanum
;unn,an Berufjarðar einú farar-
tálmar venjulegum bifreiðuní á
langleiðinni urn Austurland til
Hornafjarðar að sumarlagi. Á
þeirri leið er einn veikur hlekk-
ur, sem óhjákvæmilegt verður
að bæta úr á næstu árum. Það
er brúin yfir LagarfSjót. Hún er
nú orðin nær 50 ára, timburfeýú
með járnbitum, orðin ótraúist,
timbrið farið að feykjast, burð-
arþol of lítið og brúin of mjó
fyrir umferðina, sem nú er orðin.
Verður ekki komizt hjá að bygjjja
þarna nýja brú á næstu árum,
en hún er 300 m. löng, lengkta
brú hér á landi og árbotninn
gljúpur niður úr öllu valdi, svo
nýja brúin verður mjög kostnáð-
arsamt mannvirki.
Annað stórfljót er óbrúað á:’
þessari leið, Hofsá í Álftafirði,
sem væntanlega fæst bráðlega fé
til að brúa.
BEZT AÐ AVGLYSA
I M ORG LI'kBLAÐHSU