Morgunblaðið - 22.01.1953, Side 12
MORGUN BLAÐJÐ
Fimmtudagur 22. jan. 1953
í 12
— Frú HeSen ÞórhalSsson
Framhald af bls. 7
skólar ætlaðir til húsmæðra-
fræðslu. Einr.ig er handavinna og
matreiðsla kennd í unglingaskól-
um og í menntaskólunum er heim
ilishagfræði á meðal námsgrein-
anna, sem nemendur mega velja
um til undirbúnings undir há-
skólanám.
MEIRA SAMSTARF Á MILLI
FORELDRA OG SKÓLA
— Standa félagssamtök kvenna
í Kaliforníu með miklum blóma?
—- Eitthvað álika og á íslandi,
get ég ímyndað mér. Hins vegar
er þar mikiu meira um samtök
og samstarf foreldra og skóla.
Kennarar og aðstandendur nem-
enda koma iðulega saman á fundi
til að ráða ráðum sínum og til
eru mjög öflug félagssamtök hið
svokallaða „Samband kennara og
foreldra", sem vinna mikið og
þarft starf á þessu sviði. Hefur
það m.a. átt sinn þátt i þeirri ráð-
stöfun, að nemendur í öllum
amerískum skólum fá heita mál-
tíð í skóianum um hádegið, svo
að þau þurfa ekki að fara heim
í matarhléinu.
— Hafið þér séð mikið af ís-
landi?
— Nei, fremur lítið. Ég hef
farið að Gullfossi og Geysi, aust-
ur að Laugavatni og einu sinni
norður til Akureyrar. Ég held,
að mér hafi hvergi þótt eins fal-
legt eins og að Miðdal í Laugar-
dal, skammt frá Laugavatni.
MARGT BETRA UM ÍSLAND
— SUMT LAKARA
— Og unið þér yður bærilega
hér norður á hjara heims?
— Því get ég svarað játandi.
Ég er á góðri leið með að verða
að Islendingi og sætti mig algjör-
lega við orðinn hlut. Fyrst eftir
að ég kom leiddist mér hræði-
lega, svo að ég hélt, að ég myndi
ekki geta búið hér til lengdar,
fór aftur til Ameríku og dvaldi
þar í eitt ár en var samt ekki ná-
lægt því eins ánægð með lífið
þar eins og ég hafði búizt við,
að ég yrði, svo að ég sneri til ís-
lands aftur og nú orðið kann ég
ágætlega við mig. Maður verður
að taka hlutunum eins og þeir
eru — segir frú Helen að lokum
— þó að ég sakni ýmislegs að
heiman, þá er samt margt, sem
mér finnst betra um ísland held-
ur en Ameríku, sumt hins vegar
lakara — helzt hvað snertir mat-
inn og — stundum veðrið.
sib.
— Mafseðillinn
Framhald af bls. ?
smátt og smátt. Hita súpuna aft-
ur, en má ekki sjóða.
Flauelssúpa.
IV2 1. mjólk.
45 gr. hveiti,
30 gr. smjörlíki.
30 gr. rúsínur.
25 gr. sykur, salt.
Nokkuð af mjóikinni er hitað í
suðu. Hveitið er hrært út með
því sem eftir er. Jafningnum
hrært út í, rúsínur, sykur og
smjörlíki sett í um leið. Soðin
5—10 mín., söltuð eftir smekk.
Fiskbollur.
400 gr. saxaður fiskur.
IV2 msk. hveiti.
1 msk. kartöflumjöl.
2 tsk.. salt.
Ve tsk. pipar.
1 litill laukur.
2—3 dl. mjólk, ca. 100 gr.
smjörl. að steikja úr.
; Fiskurinn er flakaður og roð-
flettur, saxaður 4 sinnum ásamt
láuknum. Lát fiskinn í skál og
þlanda hveiti, kartöflumjöli,
Salti og pipar saman við. Hrærið
mjólkinni smátt og smátt í. —
Slfiæft þar til það er vel samfellt.
— Sjóðið eða steikið bollur til
reýnslu. Bollurnar eru síðan
Rádning manna
mótaðar með skeið og steiktar
móbrúnar. Steiktar áfram við
lítinn hita í 8—10 mínútur.
Heilagfiskisúpa.
IV2 kg. heilagfiski.
2 1. vatn.
2— 3 tsk. salt.
1 msk. edik.
3— 4 lárviðarlauf.
50 gr. smjöriíki.
40 gr. hveiti.
1 egg.
soðnar sveskjur.
Heilagfiskið er hreinsað og
skorið í sneiðar.Soðið méð salt-
inu, lárviðariaufinu og edikinu,
unz beinin eru laus og fiskur-
! inn hvítur í gegn. Súpan síðan
bökuð upp. Eggið hrært í súpu-
skálinni ásamt sykrinum og súp-
unni, smáhellt þar í. Krydduð
eftir smekk.
Rúllusíld.
3—4 saltsíldar.
Síldin er afvötnuð og flökuð.
Lögð í edikslög í 3—4 klst. Hvert
flak er þerrað. Svolitlu karrýi
stráð á. Flakið síðan rúllað upp
og skorið í 2—3 sneiðar. Raðað á
fat og lítil lauksneið lögð ofan á
hverja sneið. Borðað með heitum
kartöflum og lauksósu ef vill.
Brauðsúpa.
375 gr. rúgbrauð.
2 1. vatn.
1 dl. saft.
100 gr. sykur.
1 sítróna, safinn og guli
börkurinn.
1—2 dl. rjómi.
Brauðið lagt í bleyti yfir nótt
og soðið Vz—1 kist. Sítrónubörk-
urinn soðinn með. Brauðið síðan
saxað í söxunarvél eða marið
gegnum sigti. Hituð aftur og saft
og sykur sett í. Sítrónusafinn er
settur í um leið og súpan er tekin
af. Þeyttur rjómi er settur ofan
á súpuskálina eða borinn með.
a
ir
Framhald af bls. 10
sem keppendum á öllum meiri
' háttar mótum, þótt ekki sé alltaf
hægt að þiggja boð um þátttöku
vegna fjárskorts.
Samt er það höfuðskilyrðið,
að beztu skíðamennirnir fái
sem oftast að sækja erlend
skíðamót og reyna sig við
beztu menn í hinum ýmsu
greinum. Við skulum vona að
allt haldi áfram á sömu braut,
þótt hægt gangi, og sérstak-
lega að vandað verði til und-
irbúnings næstu Ólympíu-
leika, sem fram fara á Ítalíu.
R.
MÁLFLUTNINGS-
SKRIFSTOFA
Einar B .Guðmundsson
Guðluugur Þorláksson
Guðmundur Pétursson
Austurstræti 7.
Símar 3202, 2002.
Skrifstofutími:
kl. 10—12 1—5 ■
Keflavíkurflugvelli
BLAÐINU hefir borizt eftirfar-
andi tilkynning frá Féiagsmála-
ráðuneytinu:
Að gefnu tilefni tilkynr.ir fé-
lagsmálaráðuneytið hér með, að
ráðningarstarfsemi sú, til varn-
arliðsins og amerískra verktaka
á Keflavíkurflugvelli, sem fram
hefur farið á vegum ráðuneytis-
ins að undanförnu, mun hér eft-
ir verða með þeim hætti, að
starísmaður frá ráðuneytinu —
Sigmundur Símonarson — mun
verða til viðtals í sérstakri skrif-
stofu á Keflavíkurflugvelii kl.
2—6 hvern virkan dag, nema
laugardaga (sími 329 Keflavík-
urflugvelli).
^ftirleiðis ber því öllum þeim,
er ætla að leita sér atvinnu hjá
varnarliðinu eða amerískum
verktökum á Keflavíkurflugvelii
að snúa sér til starfsmanns þessa
á skrifstofutíma hans og tekur
hann við umsóknum og veitir
nauðsynlegar upplýsingar um þá
vinnu, sem þar verður að fá.
Þá ber einnig því starfsfólki
hjá ofangreindum aðilum, sem
leita þarf sérstakra upplýsinga í
sambandi við starf sitt, eða telur
sig hafa undan einhverju að
kvarta hvað starfskjör og aðbún-
að snertir, að snúa sér til hans
og munu þá kvartanir þess tekn-
ar til athugunar og úrlausnar af 1
réttum aðilum.
Samkvæmt framansögðu verða
því hér eftir engar upplýsingar
varðandi ráðningar eða starfs-
kjör á Keflavikurflugvelli látnar
í té í félagsmálaráðuneytinu og
er því tilgangslaust að snúa sér
þangað í þeim erindum.
Ohlin ræðst á siæma f|ár>
máEast|óm sænskra
fafnaðarmanna
Einkaskeyti til Mbl. frá Reuter-NTB.
STOKKHÓLMI, 20. jan. — Formaður sænska Þjóðfiokksins, Bertil
Ohlin, réðist harkalega á fjármálastjórn sænsku jafnaðarmanna-
stjórnarinnar, þegar umræður hófust í dag um fjárlagafrurn-
varpið.
Sagði hann, að veilurnar í fjár-
j lagafrumvarpinu væru afleiðing-
1 ar af illri og heimskulegri fjár-
málastjórn jafnaðarmannastjórn-
arinnar.
SOFANDI RÍKISSTJÓRN
j Einnig sagði hann, að nauðsyn-
j legt væri að safna svo miklum
gull- og gjaldeyrisforða í góðær-
um, að hægt væri að mæta erfið-
leikunum, þegar þeir berðu að
dyrum. En þetta kvað hann rík-
isstjórnina ekkert hafa íhugað
hvað þá farið eftir þcssari meg-
inreglu.
Formaður Hæg'ri flokksins,
Iljalmarson, sagði við þessar um-
ræður, að sérstaka áherzlu þyrfti
að leggja á varnir landsins og
kvað nauðsyn þess, að útbúa
sænska herinn öllum nýtízku
vopnum.
Bsndarísk verkalýðsfélög mé
mæla Gyðingaofsóknum Rússa
Þ@ir saka aSra um kynþátfaofséknir,
en haida þeim uppi sjáifir
WASHINGTON. — Samband iðnverkamanna í Bandaríkjunum
(CIO) hefur lýst því yfir, að með handtöku 9 lækna og ásökunum
gegn þeim um að hafa valdið dauða háttsettra forvígismanna
kommúnista, hafi stjórn Ráðstjórnarríkjar.na gerzt sek um ofsóknir
gegn Gyðingum.
Truman atvinnulaus
CINCINNATI, 21. jan. — Tru-
man, fyrrv. forseti, er á leið með
járnbrautarlest til fæðingarborg-
ar sinnar, Independence, Hann
sagði blaðamönnum í dag, að
hann hefði ekki afráðið hvaða
starf hann hyggist að taka sér
fyrir hendur. — NTB
Heimta að hald
verði Sagt
á olðusia
LONDON, 21. jan. — Fréttir
hafa borizt af því að ítalska tank
skipið Miriella hafi lagt úr höfn
í Abadan, Persíu með 5000 smá-
lestir af hráóTíu. Er ferðinni Héit-
ið til Genúa. Bréíar hafa sent
ítölsku stjórninni orðsendingu,
þar sem þeir staðhæfa að olía
þessi sé eign brezk-persneska
olíufélagsins óg því beri' að
leggja hald á farminn, ef hann
kemur til ítaliu.___—NTB
Viðskipti Finna óg Ungverja.
HELSINGFORS, 21. jan. — í dag
voru undirri-taxlir viðskiptasamn-
ingar milli Finnlands og Ung-
verjalands. Gert er ráð fyrir að
viðskiptin aukist á árinu.
Allan S. Haywood, varafor-
seti ClO-sambandsins lét þess
getið, að „sú mikla áherzla, sem
Sovétforingjarnir leggi á Gyð-
ingaætterni þessara fórnardýra,
sýni hvað hér liggi á bak við.
Þetta eru sömu Gyðingaofsókn-
irnar og Hitler framdi og Stalin
hefur nú hafið á nýjan leik.
Yfirlýsing Haywoods kom út
skömmu eftir að Tass-fréttastof-
an rússneska tilkynnti opinber-
lega, að 9 rússneskir læknar
hefðu verið handteknir, sakað-
ir um morð tveggja rússneskra
íorvígismanna og banatilræði
við aðra forystumenn kommún-
ista.
VERKALÝÐSSAMBÖND
LÝÐRÆÐISLANDANNA
MÓTMÆLA
Þessir 9 læknar, sem flestir
eru Gyðingar, voru sakaðir um
að hafa gefið rangar sjúkdóms-
lýsingar og beitt röngum lækn-
ingaaðferðum. Voru þeir sér í
lagi ákærðir fyrir dauða Ancírei
A. Zadhanov, sem var einn æðsti
meðlimur Politburos allt þar til
hann lézt á árinu 1948, og Alex-
anders S. Scherbakov, sem var
foringi framkvæmdaráðs rúss-
neska hersins og dó árið 1945.
Haywood sagði ennfremur, að
„hinn siðmenntaði heimur og
verkalýður lýðræðislandanna
fylltist viðbjóði við þessar hiá-
legu ásakanir og mótmælir ein-
dregið þessu mannúðarleysi og
ofsóknarbrjálæði einræðisfor-
ingjanna.
Hin frjálsu verkalýðssam-
tök lyðiæðislar.danna ganga
á undan í því að mótmæla
slíku óréttlæti og augsýnileg-
um kynþáttaofsóknum Sevét-
stjórnarinnar.
Ánægjulepr full-
veldlsfagnaður
„Suomis"
FINNLANDSVINAFELAGIÐ
„Suomi“ hafði kvöldfagnað í
Oddfellowhúsinu s.l. sunnudags-
kvöld til að minnast 35 ára full-
veldis Finnlands. Jens Guðbjörns
son, form. félagsins setti skemmt
unina og stjórnaði henni.
Eiríkur Leifsson, aðalræðismað
ur Finnlands flutti ávarp, sýnd
var ný, mjög falleg kvikmynd
frá Finnlandi í eðlilegum litum,
sem Erik Juuranto aðalræðismað
us fslands í Finnlandi hafði sent
hingað í tilefni afmælisins, en
myndin er eign utanríkisráðu-
neytis Finna. Guðm. Einarsson
frá Miðdal flutti skemmtilegt er-
indi um Lappland og ferðalag
sitt þar um slóðir á s.l. hausti.
Gunnhild Lingqvist Ingimundar-
son las finnsk ættjarðarkvæði og
að lokum var stiginn dans.
Meðal gesta félagsins á fagn-
aðinum var Ludvig Andersen,
stórkaupm., fyrrv. ræðismaður
Finna á íslandi, en hann gegndi
því starfi um 20 ára skeið.
Skemmtunin fór hið bezta
fram.
^INALLV ,THE VELLOW WATERS
OP THE COLORADO CLOSE OVER
t-IIM/ f
M A R K Ú S Eftir Ed Dodd *
HOLD *ER STEAP'.I l/AKK.,
BOV... 1 PSTCM HIM ! ■
JYn POUNOINS HEARTS MARk
'OHNNV WATCH AS ANDY
9 PLUNISES POWNWARD/
1) Markús og Jonni horfa
j skelkaðir á það að Andí kastar
sér af klettanibb.unni. ofan í
fljótið.
✓ 6 ' -áé'T-i,:
ÍSZkz&MÉ&Má
2) Andi fellúr ofan í fljótið og | 3) — Við verðum að ná hon-
skollitað vatnið lykst yfir hann. um. Verðum að bjarga honum
áður en straumurinn tekur hann
■ I niður flúðirnar.
4) — Vertu viðbúinn. Ég stekk
fyrir borð til að bjarga honum.