Morgunblaðið - 07.03.1954, Page 9
Sunnudagur 7. marz 1954
MORCUNBLAÐIÐ
9
MINMBIVG HWL& mm l]ENEI)!KT$SöPmR
Fæddur 20. fúlí 1885 - Dáinn 26. febrúar 1954 |[yegj|||)|-g fnyflHIHllS
Sjállstæðisflokksins
Hallgrímur Benediktsson.
SÚ KYNSLÓÐ, sem hóf þátttöku
sína í athafnalífi á íslandi í upp-
hafi 20. aldarinnar var borin til
mikilla verkefna. Það var því
gaefa lands og þjóðar að á þess-
am morgni íslenzkrar endurreisn
ar komu margir vaskir menn
framá athafnasviðið.fuilír áhuga,
bjartsýni og trúar. á framtíðina,
og sina eigin möguleika til þess
að vinna þjóð sinni vel. Einn
þeirra var Hallgrímur Benedikts-
son, sem á morgun verður bor-
inn til grafar hér í Reykjavík.
Með honum er horfinn íslend-
sngur, sem óx með öldinni af
<óvenjulegri giftu og með yfir-
lætislausum glæsibrag. Hann
bófst af sjálfum sér, ruddi nýjar
slóðir á athafnasviði sínu, var
sýndur mikill trúnaður af samtíð
sinni og iauk ævistarfi sínu við
yinsældir og virðingu þjóðar sinn
ar. Ag slíkum mönnum er mikill
mannskaði. En þeirra er gott að
minnast.
t t
Hallgrímur Benediktsson var
Austfirðingur að ætt, fæddur 20.
júlí árið 1885 að Vestdalseyri við
Seyðisfjörð. Foreldrar hans voru
Guðrún Björnsdóttir frá Stuðl-
um í Viðfirði, Þorleifssonar
bónda þar. Péturssonar bónda að
Karlsskála við Reyðarfjörð og
Benedikt Jónsson smiður og
bóndi á Refsstað og Rjúpnafelli
í Vopnafirði, prests í Reykjahlíð
Þorsteinssonar. Ólst hann síðan
upp hjá frænda sínum, séra Birni
Þorlákssyni á Dvergasteini og
dvaldi þar fram til tvítugsaldurs.
Þá hugði hann á skólagöngu og
hóf verzlunarnám í Reykjavík.
En vegna féleysis stóð sú skóla-
vist aðeins árið 1905—1906. Þá
var henni lokið og hinn ungi mað
ur hvarf til starfa. Vann hann
fyrst í stuttan tíma á pósthúsinu
í Reykjávík en tók síðan að
stunda verzlunarstörf. Við þau
vann hann árin 1907—1911. En
það ár stofnaði hann sitt eigið
fyrirtæki, umboðs- og heildverzl-
un, er síðan hefur borið nafn
hans. Rak hann hana einn fyrsta
áratugínn en síðan í 19 ár í fé-
lagi við Hallgrím A. Tuliníus og
loks einn síðasta einn og hálfan
áratuginn.
Þegar Hallgrímur Benedikts-
son hóf sjálfstæðan verzlunar-
rekstur var innflutningsverzlun-
in ennþá að verulegu leyti í er-
lendum höndum. Margvislegir
erfiðleikai voru á vegi þeirra
Islendinga, sem tóku upp bar-
áttuna fyrir því að færa verzlun
ina inn í landið. En fyrirtæki
Hallgríms Benediktssonar sigrað-
ist á þeim, færði út kvíarnar og
aflaði sér trausts og álits. Heiðar-
leiki og prúðmennska eiganda
þess mótaði starf þess og öll
viðskipti.
Síðar gat þetta fyrirtæki af sér
ný iðn- og verzlunarfyrirtæki.
Hallgrimur Benediktsson varð
þannig einn af brautryðjendum
innlendrar verzlunar. A því sviði
vann hann merkilegt og þjóðnýtt
starf. Fyrir það hlaut hann einnig
traust stéttarbræðra sinna og
hins mikla fjölda viðskiptavina
fyrirtækja hans. I þágu íslenzkr-
ar verzlunar fórnaði hann veru-
legum hluta starfskrafta sinna.
t t
En þrátt fyrir fjölþætta þátt-
töku í athafnalífi þjóðarinnar
varð það jafnframt hlutskipti
Hallgríms Benediktssonar að
taka mikinn þátt í félagsmálum
og gegna fjölmörgum opinberum
trúnaðarstöðum. Hann átti sæti
í Verzlunarráði í fjölda ára og
var formaður þess í hálfan ann-
an áratug Þá sat hann í áratugi
í stjórn Vinnuveitendafélags ís-
lands, Eimskipafélags fslands og
Sjóvátryggingafélags íslands. í
mörg ár var hann í stjórn Ar-
vakurs, útgáfufélags Morgun-
blaðsins, ög formaður hennar
síðustu árin.
í bæjarstjórn Reykjavíkur átti
hann sæti á árunum 1926—1930
og öðru sinni árin 1946—1954.
Varaforseti hennar var hann ár-
in 1946—1952 en forseti frá þeim
tíma til loka kjörtímabilsins.
Á Alþingi átti hann sæti árin
1945—1949
Þess hefur aldrei heyrzt getið,
að Hallgrímur Benediktsson væri
kjörinn til opinberra starfa vegna
þess að hann hefði sjálfur sótzt
eftir þeim. Mannkostir hans og
það traust, sem hann naut hjá
samborgurum sínum ruddu hon-
um jafnan brautina til trúnaðar-
starfa og áhrifa.
t t
Hallgrímur Benediktsson var
hár maður vexti, grannur, bein-
vaxinn og vel limaður. Hann var
fríður sýnum og drengilegur í
allri framkomu. Málafylgja hans
mótaðist jafnan af hógværð og
yfirlætisleysi. Meginregla hans í
starfi hans var sú, að orðheldni
og heiðarleiki væri líklegri til
varanlegs gengis en bráðlæti í
skjótfenginn gróða.
í æsku sinni var Hallgrímur
Benediktsson einn fræknasti
íþróttamaður þjóðarinnar. Hann
vann sæmdarheitið glímukóngur
íslands á Þingvöllum árið 1907.
Árið 1912 vann hann verðlaun
fyrir glímu á Olympíuleikjum í
Stokkhólmi. Fyrir þessi afrek og
drengskap í hverjum leik, naut
hann þegar á unga aldri almennr
ar hylli.
Hallgrímur Benediktsson kom
jafnan fram eins og sannur
íþróttamaður. Hann beitti menn
aldrei brögðum eða ref jum. Fram
koma hans var hrein og bein,
mótuð góðvild og laegni. Þannig
ÞEGAR Guðmundur Ásbjörnsson,
forseti bæjarstjórnar Reykjavík-
ur, féll frá fyrir 2 árum missti
bæjarstjórnin forystumann, sem
stjórnað hafði fundum hennar í
rúman aldarfjórðung með ein-
vann hann að áhugamálum sín-
um og kom þeim fram. Samstarf
hans við aðra menn aflaði hon-
um jafnan vina, sem treystu hon-
um og mátu mannkosti hans.
t t
Hinn 6. júlí árið 1918 kvæntist
Hallgrímur Benediktsson Ás-
laugu Geirsdóttir Zoega rektors,
glæsilegri og ágætri konu. Áttu
þau fjögur börn, eina dóttur og
þrjá syni. Einn sona sinna misstu
þau hjón kornungan. Hin börn
þeirra eru Ingileif, gift Gunnari
Pálssyni framkvæmdarstjóra,
Björn forstjóri Ræsis, kvæntur
Sjöfn Kristinsdóttur og Geir bæj-
arfulltrúi og héraðsdómslögmað-
ur, kvæntur Ernu Finnsdóttur.
Öll eru börn þeirra hjóna mann-
vænlegt og drengilegt fólk. Hafa
synirnir tekið mikinn þátt í at-
vinnurekstri föður þeiira síðustu
árin.
t t
Hallgrímur Benediktsson var á
69. aldursári er hann lézt 26.
febrúar s.!. En hann var ungur
í anda og útliti fram til hinztu
stundar. Hans er nú sárt saknað
af eiginkonu, börnum og öðrum
ástvinum hans. í hugum fjöl-
menns vinahóps geymist einnig
minningin um vaskan mann og
góðan dreng, sem gekk heill að
starfi sínu, Jauk miklu dagsverki
og gaf gott fordæmi. Hallgríms
Benediktssonar væri þá vel
minnst ef íslenzk æska festi sér
í minni þær meginreglur, sem
hann starfaði eftir og sköpuðu
hamingju hans og lífsgengi.
Morgunblaðið og starfsfólk
þess vottar ástvinum hans og
skylduliði einlæga samúð í sorg
þess um leið og það þakkar starf
hins látna drengskaparmanns.
stakri prúðmennsku, háttvísi og
réttsýni.
Hallgrímur Benediktsson tók
við starfi Guðmundar og var
forseti bæjarstjórnar um
tveggja ára skeið. Það kom strax
HALLGRÍMUR Benediktsson var
á 69. aldursári þegar hann féll
frá. Vinir hans vissu að hann
, hafði um nokkurt áraskeið kennt
i
| hjartabilunar og höfðu því í raun
j inni óstæðu til að óttast, að hann
i gæti horfið af sjónarsviðinu hve-
! nær sem væri og án fyrirvara.
Samt sem áður tókst dauðanum
enn að fcoma flestum á óvart.
Veldur bar um mest, að miðað
við aldur var Hallgrímur hverj-
um manni unglegri, glæsilegri og
glaðari og karlmennskan, sem
einkenndi hann öðrum fremur,
var söm og óbreytt. Hallgrímur
vakti því vitund um líf og bar-
óttu en ekki um dauða og hvíld.
Ég kynntist Hallgrími Bene-
diktssyni í byrjun aldarinnar.
Var í æsku meðal heitustu að-
dáenda íþróttakappans og hefi ég
engan afreksmann á því sviði dáð
til jafns við Hallgrím. Síðan hafa
leiðir okkar alltaf legið saman,
bæði á sviði athafnalífsins og
stjórnmálanna. Við höfum ekki
alltaf verið sammála um allt en
alltaf um flest og oftast um allt,
sem máli skipti. Einhver áhrif
kann þetta að hafa á mat mitt
á Hallgrími Benediktssyni, því
venjulega sjáum við betur kosti
samherjanna en andstæðinganna.
En sem vinur Hallgríms get ég
líka alveg unað dómi annarra
um hann. Ég get jafnvel falið
andstæðingunum einum að
dæma, því sú gifta hefur æfin-
lega fylgt Hallgrími, að hann
hefur flestum fremur notið rétt-
dæmis og sannmælis nærri allra,
sem honum kynntust. Er þetta
fremur fátítt í návígi íslenzkrar
baráttu og ekki sízt um menn,
sem verið hafa í fylkingarbrjósti
og oftast þar sem bardaginn var
harðastur. En furðulegast er
þetta bó þegar haft er í huga,
að Hallgrímur var alla tíð mikill
ofurhugi, kappsamur og fylginn
sér og sóknharður ef því var að
skipta.
Að Hallgrímur samt sem áður
naut svo óvenjulegra vinsælda,
jafnt samherja sem andstæðinga,
stafaði fyrst og fremst af því,
að hann barðist jafnan drengi-
í ljós, að Hallgrímur fetaði dyggi-
lega í fótspor fyrirrennara síns
um alla fundarstjórn. Óhaggan-
leg réttsýni hans og háttvísi, sam-
fara tillitssemi, var einkennandi
fyrir allan forsetadóm hans.
Ég veit, að ekki aðeins við sam-
herjar hans í bæjarstjórninni,
heldur einnig fulltrúar minni-
hluta flokkanna, eru á einu máli
um það, að fundarstjórnin hafi
farið honum frábærlega vel úr
hendi. Var það jafnan auðfundið,
hvilíka virðingu bæjarfulltrúar
báru fyrir Hallgrími og hvert
traUst hann hafði hjá þeim um
fullkomið réttlæti í stjórn og úr-
skurðum.
Hallgrímur Benediktsson átti
sæti í bæjarstjórn Reykjavíkur
í þrjú kjörtímabil samtals. Fyrst
árin 1926—1930 og síðan 1946—
1954. Þessi störf voru einn af
ótal þáttum í starfi Hallgríms
Benediktssonar fyrir Reykjavík-
urborg. Með þingmennsku sinni,
forgöngu um mörg þjóðþrifafyr-
lega. Menn fundu í Hallgrími
margt af því, sem þeir mátu mest
hjá kappanum, sem sagði:
„Hvat ek veit hvárt ek mun
því óvaskari maðr, enn aðrir
menn, sem mér þykir meira fyr-
ir. en öðrum mönnum at vega
menn.“
Menn skildu að það var líkt
um Hallgrím og Gunnar á"Hlíð-
arenda, að báðir kunnu vel til
víga en vildu þó lifa í friði við
alla menn. Á ég hér ekki við,
að Hallgrímur væri ræðusnill-
ingur eða beitti andans brandi af
sama afli og leifturhraða sem
Gunnar atgeirnum. Þvi fór að
mínum dómi fjarri. En hann
hafði hlotið i vöggugjöf eða
þroskað með sér flest annað —•
og það er margt — sem mestu
skiptir í baráttu líðandi stund-
ar. Farsælar gáfur hans, örugg
dómgreind, festa, þrautsegja og
kjarkur, virðuleg framkoma og
glæsileiki skópu honum traust
annarra og leiddu hann víða til
öndvegis. En góðgirni hans og
drengskapur voru honum svo ör-
uggur leiðarvísir, að enda þótt
hann væri geðríkur og flestum
mönnum kaþpsamari, tókst hon-
um að sanna réttmæti þess
trausts, sem samherjarnir báru
til hans og öðlast jafnframt virð-
ingu og hlýhug gagnaðila.
Aðrir munu segja hér marg-
þætta og merka sögu Hallgríms
Benediktssonar. Ég læt nægja að
færa honum þakkir allra Sjálf-
stæðisrhanna fyrir ágæt störf
hans í þógu flokksins og þjóðar-
innar. Það eru menn eins og
Hallgrímur Benediktsson og hans
líkar, atgerfismenn, sem af eigin
rammleik öðlast mannaforráð,
auð og vcld en varðveita þó þjón-
ustulund sína óspilta, sem því
valda að Sjálfstæðisflokkurinn
nýtur svo mikils trausts alls al-
mennings, sem raun ber vitni um.
Hallgríms Benediktssonar verð
ur mikið saknað af mörgum.
Reykjavík er fátæklegri eftir
hvarf hans, a. m. k. í augum
eldri kynslóðarinnar.
irtæki, og umsvifamiklum at-
vinnurekstri, átti Hallgrímur
Benediktsson sinn drjúga þátt í
velgengni Reykjavíkur.
Persónuleiki Hallgríms var á
marga lund óvenjulegur. Einstök
samvizkusemi og hyggindi ein-
kenndu allt hans starf. Prúð-
mennskan, háttvísin og dreng-
skapurinn báru svo af, að Hall-
grímur skar sig úr meðal flestra
samferðamanna sinn. Hann sam-
einaði í framkomu sinni og starfi
á óvenjulegan hátt margt hið
bezta úr eðli Islendingsins, bæði
úr kristnum og h'eiðnum sið.
Hreysti og harðfengi, drengskap-
ur, mildi og kærleiksandi héld-
ust þar jaínan í hendur.
Á sinni tíð var hann afburða
maður í íþróttum og kunni flest-
um betur stjórn á sér í þeim efn-
um. Eins hafði hann öruggt
vald á sinum innra ínanni, og
þótt vinir hans yrðu þess stund-
Framh. á bls. 10.
Reykjavíkurbær stendur
é stórri þakkarskuld við
Hallgrím Benediktsson
Ólafur Thors.