Morgunblaðið - 06.11.1969, Blaðsíða 20
20
MOKGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 6. NÓVEMBER 1960
Sjómannasiðan
í UMSJÁ ÁSCEIRS JAKOBSSONAR
Svarað bréfi
SJÓMAÐUR einn, sem nefn-
ir sig Bísá, skrifar Sjómanna-
siðunni langt bréf um muninn
á kjörum islenzkra og fær-
eyskra sjómanna á línuveiðum.
Hann var á grálúðuveiðum i
sumar og veiddi við hliðina á
Færeyingi. Þó að afli væri svip
aður var íslendingurinn aldrei
nema í bezta lagi hálfdrætting
ur á við færeyska sjómanninn.
fslenzki sjómaðurinn nefnir
átakanlegt dæmi um kjarahlut-
armuninn með því að taka einn
túr, sem hann segir að hafi ver-
ið íslendingnum sérlega hagstæð
ur að því er matið snertir en 61
prs. fóru í 1. fl, 37 prs. í II fl.
og 2 prs. í úrkast. Hann reikn-
ar síðan út hlutinn eftir skipta-
kjörum á báðum bátunum og fær
heldur óyndislegar tölur eða kr
16.660.51 í hlut fslendingsins en
kr. 36.510.03 hjá Færeyingnum.
Menn hafa gripið pennan af
minna tilefni Það, sem orsakar
þennan mikla mun er ekki að-
eins að fiskverðið sé hærra hjá
færeyska bátnum heldur eru
skiptakjörin betri að sögn hins
íslenzka sjómanns. Sjómaðurinn
lætur fylgja bréfi sínu töflu um
fiskverð hér og í Færeyjum og
stingur þar í augun að verð á
stórþorski veiddum á línu er hér
kr. 6.59 en í Færeyjum á kr. 11 95
en þetta er þó smáræðis munur
hjá stórlúðuverðinu en á þeim
fiski eru Fáereyingarnir með kr.
49.77 en við kr. 19.26 og er þetta
versta dæmið þó að ýsudæmið sé
einnig skuggalegt, færeyska verð
ið á henni er 16.40 en okkar 7.70
Kjaramunur ekki eins mikill og
launamunur.
Ég vil taka það fram, að ég
hef ekkert kynnt mér þetta sjálf
ur, heldur treysti mínum manni
til að fara rétt með, enda eru
möirg slík dæmin og þetta ekki
það versta. Það hrukku til dæm-
is margir við um daginn, þegar
togarinn Sigurður seldi fyrir
hálfa sjöttu milljón í næsta landi
en hefði ekki fengið nema hálfa
aðra milljón hér heima.
Síldveiðisjómennirnir okkar
eru heldur ekkert lukkulegir með
fósturjörðina um þessar mundir.
Þeir hafa verið a selja tra fyr
iir þrefalt síldarverðið hér. Mér
er sagt að brezku togarasjómenn
irniir séu komnir með hærri lág-
makstryggingu en okkar menn
fá í aflahlut og kaup, þó að vel
aflist og ég veit að það er satt,
að íslenzkur togaraskipstjóri er
minna en hálfdrættingur á við
brezkan togaraskipstjóra með
sama afla. Það er áreiðanlega
gild ástæða til að velta málinu
fyrir sér.
fslenzku sjómennimir eru ekki
eina stétt þessa ágæta þjóðfé-
lags okkar, sem kemur grátt
ledkin útúr samanburði við er-
lenda stéttarbræður um þessar
mundir, þegar borin eru saman
launin í peningum. Söngurinn í
læknum, vísindamönnum og flug
mönnum, sem ekki hafa hér nema
brot af launum starfsbræðra
sinna erlendis hljómar enn í eyr
um okkar. Verkamenn og iðnað-
anmenn eru um það bil hálf-
drættingar í kaupupphæð í sam
anburði við hliðstæðar stéttir í
nágrannalöndunum og rétt sem
ég skrifa þessar línur heyrast
mér opinberir starfsmenn eitt-
vera að jarma í útvarpinu um
að þeirra hlutur sé ekki ofgóður
í samanburði við nágrannana.
Þannig er sama hvar gripið er
niður. Laun eru hér lægri og oft
mikið lægri en í nágrannalönd-
unum.
Nú vita allir, að það er dýrt
að vera íslendingur og við er-
um alltaf að leika fínni menn
en við höfum efni á að vera, og
það þarf heldur ekki að tyggja
það í neinn, að við erum í öldu
dal, en þó er það nú svo, að
dæmin hér að ofan segja ekki
nema hluta sögunnar um raun-
veruleg kjör atvinnustéttanna
hér og í nágrannalöndunum.
Sem betur fer er heildarkjara-
munurinn yfirleitt ekki í neinni
líkingu við launamuninn. Dæmið
er nefnilega margþætt, ef það á
að gera upp heldarafkomu a t-i
vnnustétta í tveimur löndum.
Launin eru ekki nema einn lið-
ur þess dæmis.
Almen.nt verðiag í viðkomandi
landi er vitaskuld stór þáttur í
dæminu og ekki aðeins verðlag
á brýnustu nauðsynjum heldur
einnig á vamingi utan vísitölu
— það er dæmi um þetta, sem
ég veit að sjómenn skilja. að það
kæmi við þá að kaupa vindlinga
pakkann á 100 krónur eins og
gerist í nágraninialöndum, skattar
og aðrar opinberar álögur eru
líka mikið atriði í heildaruppgjör
inu og þá ekki síður ýmis sam-
hjálp þjóðfélagsins, sem er
kannski með líkum hætti en þó
aldre eiins í neinum tveim lönd-
um, svo sem sjúkrahjálpin, al-
mennar tryggingar, aðstoð til
náms og aðstoð til húsnæðis-
kaupa og allskyns ívilnanir eða
styrkir af hinu margvíslegasta
tagi.
í baráttu okkar við verðbólg-
una og dýrtíðina höfum við far
ið meir en aðrir inná að greiða
í hlunnindum og allskyns fríð-
indum í stað beinna launa í pen
ingum. Þegar allt dæmið er gert
upp, þá er það áreiðanlegt og
þarf ekki annað en ferðast hér
um nágrannalöndin til að full-
vissa sig um það, að afkoma ís-
lenzkra launastétta og heildar
lífskjör eru ekki eins léleg mið
að við hliðstæðar erlendar stétt
ir og launamunurinn bendir til
langt frá því.
Laun sjómannsins ákvarðast af
skiptakjörunum og fiskverðinu
(og svo auðvitað aflanum). Að
því er lýtur til fiskverðsins má
heita að sjómaðurinn eigi ein-
vörðungu við fiskiðnaðinn og
verður það rætt hér síðar, en
um skiptakjörin á hann við út-
gerðarmanninn. Afkoma hans er
því enn að verulegu leyti ná-
tengd afkomu útgerðarinnar
hverju sinini.
Nú er það staðreynd að sjáv-
arútvegurinn hér hefur allt frá
því 1926, að undanskildum stríðs
árunum, rambað á barmi glöt-
unar. Hann hefur aldrei fengið
að græða og byggjast upp með
eðlilegutm hætti, hv-ernig svo sem
verðlag eða afli hefur verið. Meg
inorsökin til þessa er sú, að sjáv
arútvegurinn er eini gjaldeyris-
öfluniaratvinnuvegur þjóðarinn-
ar og til hans sækja allar stétt-
ir og allt þjóðfélagið gjald-
eyri til kaupa á nauðsynjum
sínum. Það er því ekkert ónorm
alt við það, að það sé um stöð-
ugan þrýsting að ræða frá allri
þjóðinni í þá átt að halda niðri
verði gjaldeyrisins.
Árum saman og áratugum sam
an hafa stjórnmálamenn ekki
þorað að skrá krónuna rétt af
ótta við reiði almennings. Þeir
hafa því brugðið á það ráð, að
skammta sjávarútvegnum aldrei
meira verð fyriir þann gjald-
eyri sem hann aflaði en rétt
nægði til að hann héldist gang-
andi.
Þetta er megin ástæðan til þess
að sjávarútvegurinn hér hefur
verið, er og verður ævinlega í
kröggum.
Fleiri og fleiri hallast að þeirri
skoðun að sjávarútvegurinn
losni aldrei að gagni úr þessari
sjálfheldu meðan hann sé eini
útflutningsatvinnuvegurinn.
Ef fleiri stéttiir fara að hafa
hagsmuna að gæta í útflutningi
og þá réttri skráningu krónunn
ar, þá myndi þessum þrýstingi
létta af einhverju leyti af sjáv-
arútvegnum, en það er nú önn-
ur saga.
Önnur ástæða til þess, að sjáv
arútvegur okkar er í meiri og
jafnari kröggum, því að hann sér
aldrei til lofts, en útvegur ná-
gnannalandanna, er vtaskuld sú,
að þetta er einn af meginatvinnu
vegum þjóðarinnar og það er því
ekki hægt að sleppa honum við
gjöld og álögur til dæmis út-
flutningstoll og þess háttar, en
það geta nágrannalöndin.
Þetta stanzlausa hallæris-
ástand hjá útveginum bitnar vita
skuld á sjómönnunum þeir vita
það og er þess skemmst að minn
ast frá í vetur, að þeir gáfu eft-
ir hluta af því fiskverði, sem
myndaðist við gengisfellinguna
og þeim að réttu bar.eins og öðr
um útveigsmön.num. Tekjur þeirra
höfðu á tveimuir árum rýmað
stórlega vegna aflabrests. Almenn
ingur ærðist yfir verðhækkun-
um vegna gengisfellingarinnar,
en hvað hefði þá sjómaðurinn
ekki mátt segja þar, sem hann
varð ekki aðeins að taka á sig
verðhækkanir eins og aðrir, held
ur hurfu tekjur hans af öðrum
orsökum um leið allt að tveimur
þriðju.
Vegna áðurnefndrar eftirgjaf-
ar, gerðri af hreinni þjóðholl-
ustu, fær sjómaðurinn ekki fullt
fistkverðið, sem fiskiðnaðurinm
borgar, heldur rennur hluti af
því til útgerðarinnar einnar. Sjó
menn nágrannalandanna afturá
móti fá að fullu það fiskverð,
sem fiskiðnaður landa þeirra get
ur borgað og einnig eru skipta-
kjör þeirra hagstæðari af sömu
ástæðu. — Þannig er fenginn
hluti af skýringunni á því, af
hverju okkar sjómenn búa við
vemri skiptakjör ög lægra fisk-
verð en nágrannar þeirra. Því
veldur samfellt hörmungar-
ástand hjá íslenzka útvegnum.
Þó að þeim prósen.tum
sem að útgerðin fær ein í
sinn hlut af fiskverðinu, sé bætt
við fiskverðið til sjómannsins bá
nægir það ekki til þess, að fisk-
verð það sem íiskiðnaður okkar
borgar sé jafnhátt því, sem ger-
ist í nágrannalöndunum.
Nú verkum við talsvert á dýr
asta markað, Bandaríkjamarkað,
og yfirleitt ekki á neinn mark-
að labari en keppinautar okkar
og hráefnið hér er það bezta
sem þekkist, það er því von að
sjómaðurinm spyrji:
— Af hverju getur fiskiðnað-
ur okkar ekki greitt sama verð
og fiskiðmaður nágrannaland
anna?
Þessu má svara stutt og lag-
gott:
— Það gerir sósíaliisminin í hon
um.
Það e>r alkun.n.a að við höfum
í nærri fjóra áratugi hrærst á
milli hins kapitaliska og sosíal-
iska hagkerfis og leitað eftir
millivegi milli gróðasjónarmða
í reksfcr og félagslegra sjónar-
miða Okkur hefur gengið mis-
jafnlega að rata þennan milli-
veg og oft lent í ógöngum og
vegleysum.
Nú ætla ég ekki að gera upp
á milli þessara tveggja hagkerfa
í heild, og vonandi er milliveg-
urinn rétta leiðin þrátt fyrir að
okkur hafi gengið illa að finna
hann, en hitt fullyrði ég, að hin
sjónarmið hafi ráðið langt um of
miklu í ýmsum rekstri hérlendis
Það voru þessi sjónarmið —
hin félagslegu — sem réðu því
að hér var á fjórða áratugi ald
airinnar efnt til margvíslegrar
starfsemi í þeim ágæta tilgangi
einum að skapa hér atvinnu og
þessu höfum við haldið áfram
öðrum þræði síðan. Rekstrarlegu
sjónarmiðin — hin kapitölsku —
hafa verið litin homauga og
þeirra stundum alls ebki gætt.
Iðnaður okkar er að nokkru
leyti svonta til'kominn og ékki
sízt figkiðniaðurinini. Það va>r
byggt frystiíhús, vinnsliustöð eða
verkgmiðja hér og þar í atviinniu
skyni og öðrum félaigsleigum
ástæðum. Að þeissum fyrirtsekj-
um var sa-fnað forstjórum eftir
pólitískum lit fremur en dugn-
aði og vinnufólkið var margt af-
lóga fólik, sem ekki nýttist til
róðra eða búska.par. Sú tíð er
fullorðnum sjómöninum í fersku
minni, að verkalýðsfélögiin voru
að pín.a hálfóvinnutfæru fólki inn
í fiskvinnisliuina til að fá eitt-
hvað handa þvi til að gera og
einniig miuna men.n þann styrr,
sem um þetta stóð og sjómenn
voru á þeim tírn.a alveg klárir
á því, á hverjum þetta bitnaði.
Það er enn að gerast að fisk-
urinn, sem sjómaðurinn flytuir
að landi sé notaður til atvinnu-
bóta fyrst og fremist.
Frystilhúsin og vininslustöðvar
nar eru notaðar fyrir skólafólk
á sumirum og húsimæður, sem
vil'ja skreppa í fisk tíma og tíma.
og hreppsn>efnda>rfyrstihúsafor-
stjórar eru enn margir.
Fiskiðnaður í atvinnubótaskyni
Auðvitað eiga allir rétt á
vinn'U, en það er ekki til lan>g-
f.rama hægt að reka heilan at-
vinnure'kstur í atvinnuibótaskyni
fyrst og fremst og það á alls
ek'ki að nota afla sjómannsins
til a.tvinnuibóta fyrir unigliinga og
ígripafólk og oft aflóga fólk,
nema bæta honum það. Með
þessu lagi gkapaat aldrei nægj-
aníeg harka í iðnaðinum til að
mæta samkeppni á erlendum
mörkuðum. Fyrir hvað balda
land smenn að sjómaninastéttin
beri af öðrurn í afköstum? Það
er fyrst og fremst veigna þess að
þar gilti harkan sex. Það tók
enginn skipstjóri í mál að manna
skip sitt út frá félagsleigu sjón-
armiði. Hann valdi sér fólk eft-
ir dugnaði og um borð mynd-
aðist því vinnuihraði og afköst,
sem gerði sjómannaistéttina okk
a>r afkasta mestu sjómamnaistétt í
heiimii.
Það er táknrænt og sjómenn
ættu að veita því athyglá hvað
félagslegu sijónarmiðin eru ríkj-
andi, að í öllum þeim umræðium,
sem eiga sér nú stáð um skipa-
smáði og aukinn útveg, heyrast
sjómenn varla nefndir — það á
ekki að byggja skipin fyrir þá,
beldur til að skapa lamdverka-
fólki, iðnaðarmönnum og skóla-
fólki og atvinnuleysingj'um a>l-
miennt atvinnu, Þetta er megin-
sjónarmiðið í umræðiunum. Það
er vairla að nokkur nefni rekstr
arlega sjónarmiðið. Bjargráðið
við atvinnulteysi er eins og áður
að senda sjómanninn út eftir at-
vimnuibótabútungi. Það er ekki
hægt endaliauist að ætlast til að
menn rói í kristilegum tilgangi.
Sá til'ganiguir er eins og allir vita
ágæfcur á sunnudögum en óbrúk
legur hvuin.ndags ekki sízt í sjó-
sókn og fiskiðnaði.
Útgerðarmenn, sem refca vil'ja
í ábataskynii, neita að koma ná
lægt gkipakaupum. Sjómaðurinn
gæti gert það með sama réttL
Hamn ber ékkert meira úr být-
um á atvinnuibótaskipum framtíð
arinnar en hann gerir nú á þeim
a.tvinnubótafleytum, sem fyrir
lamdi eru, nema viðhorfin breyt
ist. Hann verður að sfcetfna að
því að útgerðin fái að græða og
fiskiðnaðurimn sé rekinn einmáig
í gróðaskyni. Hann verður að
krefjast þess að þjóðfél'agið
finni eimhver önnur ráð við at-
vimnuleysi en þau, að reka frysti
hús og fiskvinnslustöð<var fyrst
og fremst fyrir atvinmulieysimgja.
Fiskiðnaðuirinn þarf að standast
harða samibeppni erlendis og get
uir ekki notað nema úrvaisfólk
og alls ekki fleira fólk en þörf
er á hverju sinnii.
Þá er að ræða þá orsökina,
ssm mörgum er augljósust fyrdr
því, að fiskiðnaður okkar gefcuir
ekki greitt sama verð og hlið-
stæður iðnaður nágrannaland
anmia og það er meðferðin og þar
af nýtingin á aflianum, sem sjó-
.mað'urinn leggur á land.
Þarna á sjómiaður sjálfur
nokkra sök með metamorkum sín
um en það er samt staðreynd,
að hann lieggur þó meir.a á la-nd
af öndvegishráefmi em nokkur
annar sjómaður en því er spillt
í tandi og er það ekkert laun-
ungam.ál. í grein, sem óg sfcrifaði
fyrir Frost, blað fiakiðnaðarins,
nakti ég meðferðina á fiskinum
ítarlega og geri það því ekki hér,
en það er gtaðreynd, að hún er
sliæm. Löndunarberfið er úrelt,
svo sem þessi hroðalegi aksbur
og geymislur húsanna fl'estra eru
afl'eitar.
Að því er lýtur að fiskiðnað-
inum, afköstum í honum og með
ferð afllanis á sjómaðurinn
nokkra vörn, ef hanm vill beita
sér og gefur sér tima til þess
frá hefðbundnum sl'aigsmálum við
likið af útgerðarmamninum.
Hann getur gerbreytt vinmu-
brögðumuim og aðferðunum í
krafti samtaka sinna og aðstöðu
í rauninnii bíður fisikiðnaðurinn
og ölfl þjóðin eftir þrýstimgi frá
sjómaminimum í þessu efni. Sjó-
maðurinn verður þarna að hatfa
forystuna. Hamn er eini aðil'iinn,
sem hefur bolmagn til að knýja
fram verulega breytimgu og hon
um er það skyldast og nauð-
synilegast
Ég tel mig nú hafa svarað
Bísá, þegar hann spyr af hverju
laumikjör íslenzkra sjómianna séu
lakari en nágrannamna. og sam-
andreigið sva.r mitt er þetta:
Heildarkj aramumur ísilenzkra
sjómannias'téttar og ná.grainna
sjómanna er ekki eina rnikil
og laumamumurinn (eða fisk-
verðið) bendir til.
2. Útvegurinn, sem sijómaðurdnn
rær á, er alltaf á barmi gjald
þrots og það bitnar á sjómann
inum.
3. Fiskiðmaður.inm er rekin sem
atvinnubótaatvinnuvegur að
veruleigu leyti og þar eru af-
köstin léleig, nýtingin léleg
og hagræðingin lél'eg og hann
er ekki samkeppmisfær og get
ur því ekki borgað sama verð
og fiskiðnaður niágramma land
amna.
Skrifstofustarf
Stúlka, sem getur skrifað ensk og dönsk verzlunarbréf óskast
til starfa hálfan daginn, helzt eftir hádegi.
Skrifleg umsókn sendist afgr. Mbl. merkt: „Heildverzlun — 9".