Morgunblaðið - 02.10.1970, Page 18
18
MORGUNBLAÐH), FÖSTUDAGUR 2. OKTÓBER 1970
Húsmœður í Cul/bringu-
og Kjósarsýslu og Keflavík
Basar verður haldinn t?l ágóða fyrir orlofsheimilið í Gufudal
að Hallveigarstöðum laugardaginn 3. október kl. 3.
Þær sem ætla að gefa kökur vinsamlegast komi þeim að
Hallveigarstöðum fyrir hádegi laugardag.
NEFNDIN.
Shrifstofustúlko óskust
nú þegar. Þarf að vera vön vélritun.
Upplýsingar er greini aldur, menntun og fyrri störf
sendist afgr. Mbl. merkt: 4292".
FERSKT ÁVAXTABRAGÐ
ROYAL ávaxtahlayp
InnihaM pokkans leys-
ist ypp f 1 bollct (of
sjóScmdí vafnl. BceliS f
1 bolla af kóldu vafnr.
HelliS strax f móf.
ívaxlaMaup er íiúffengt meS þeyffum rjóma. taglS tvo ílft af ROYAl
ávaxfahlaupi. Látið stífna. SpœniS hlaupið metS skeíð og lólIS I
míslit ióg ( há glós, með þeylfum rjóma á miHt'Iaga.
BÖNSKU
skólutöskurnar
&
GLOBETRO
•raH*
STERKAR
ÞÆGILEGAR
MJÖG VINSÆLAR.
BÓKHLAÐAN HF.,
Laugavegi 47,
Sími 16031.
Hitaleiðsla liggur niðnr Selgil.
- Að Húsafelli
Framhald af bls. 17
hindurvitnum öllum og drauga-
trú og tók prestur því öllu
sæmilega. Þar kom niður ræð-
um þeirra að Magnús skoraði á
prest að sanna sér tilvist hel-
vítis. Lét prestur lítið yfir en
bað Magnús koma með sér og
gengu þeir frá bænum upp að
Draugagili. Segir Ólafur Da-
viðsson svo frá: „Þeir námu
staðar á gilbarminum, og sá
lögmaður, að hver mikill opn
aðist í gilinu, sem þeytti upp úr
sér reykjarmekki og eldsíum
með ákaflegri brennisteinsfýlu.
í mekkinum sveimuðu djöflar
með ýlfri og óhljóðum, og varð
lögmaður mjög hræddur við
þessi undur. Hann hljóp heim
að bænum sem fætur toguðu og
bað menn sina að verða sem
skjótast á brott.“
Þannig lék Snorri vantrúaða
gesti sína.
Að ganga upp Bæjargil er
undraveröld, þótt lítil sé. Lita-
dýrð berglaga og steina þar í
gilinu er fráhær. Enginn vandi
er að geta sér til hvernig mynd
af reykjamekki og eldsíum verð
ur til með því að horfa á þessa
fjölbreytni litanna.
Baga þessi getur flotið með,
en hún á að sýna Snorra prest
gera Magnúsi lögmanni sýnir
af gilbarminum:
„Helvíti opnar ægivitt.
Ymur í klettaþili.
Læðast sýnir um logahvítt
löðrið í Draugagili."
En nú er séra Snorri víðs
fjarri og sýndi okkur enga
hveri opnast í Bæjargilinu.
Öskum eftir
iðnaðarsaumavélar.
Tilboð ásamt upplýsingum
Undur náttúrunnar nægðu okk
ur, er við kjöguðum efst upp í
gilið með Gunnari Einarssyni
arkitekt og syni hans. Þar uppi
blasti svo við okkur Húsafells-
bærinn á flötinni fyrir neð-
an og yfir sér til sumarhúsanna,
Tungu og Gráhrauns þar sem
Norðlingafljót kemur fram und
an tungunni.
Á leið okkar í Bæjargil litum
við á kvíahellu Snorra. Hún er
frægur steinn til átaka. Krist-
leifur á Húsafelli fræðir okkur
á þvi að Litli-Móri eigi sér bú
setu í Bæjargilinu og þjóti
hann ofan úr gilinu í landsynn
ingi og leggist þá á heysátur
þeirra Húsafellsbænda, svo
þær fjúki ekki.
Ég hef jafnan haft gaman af
því að minnast þess, að mér á
að fylgja draugur sá er Odd-
rún nefnist og er upprunnin
frá Bjarnarnesi i Hornafirði,
þar sem bjó einn forfeðra
minna. Þótti hún skæð framan
af.
Nóttina eftir að við gengum í
Bæjargil gerði landsynning og
var hvasst. Við höfðum læst
sumarhúsinu, sem við bjugg-
um í og sváfum vært þótt Kári
gnauðaði úti. Skyndilega vakna
ég við að hurðin á húsinu, sem
snýr til vesturs og er því í
skjóli fyrir landsynningnum,
hendist upp á gátt. Fer ég fram
og loka á ný og læsi. Gerðist
svo ekki meira og varð þetta
engum til tíðinda nema mér.
Varð af þessu baga svohljóð-
andi:
„Berst hún ofan Bæjargil,
blíðan yndishóta.
Oddrún Móra æsir til
ástastefnumóta."
uð kuupu
um tegund og ástand sendist
Næsta dag gengum við svo í
Selgil, sem er nokkru ofar en
Húsafellsbærinn. Þar er ekki síð
ur um sögufræga staði að ræða.
Ævintýrin gerðust þar upp til
selja, og sum með ömurlegum
endi. Þetta kvöld, eða síðdegi,
sem ð héldum inn í Selgil tvö
ein saman, óð sólin í skýjum og
annað veifið dró langa skugga
yfir gilið, er sólin brauzt fram
úr regnbólstrum vesturhvolfs-
ins. 1 Selgili er ægifagurt og er
mér næst að halda að þar sé
heil náma fjölbreytilegra berg-
tegunda. Annars frábið ég mér
alla jarðfræðiþekkingu og
kann ég því ekki að gera skil
öllu því litskrúðuga grjóti, sem
þar getur að líta. En það hefir
til að bera öll þau litbrigði, sem
ég fæ greint, allt frá tinnu-
syörtu að hreinhvítu. Mikið ber
á rauðum og fjólubláum litasam
setningum og þar eru ótal græn
ir litir í berginu og skriðunum.
Langt inni í gilinu er hvamm
ur, norðanvert við ána, og stóð
þar selið, þar sem systumar
dvöldust er báru út börn sín,
sem talin eru valda útburðar-
væli því er oft heyrist í gil-
inu, og glöggt mátti heyra
þetta kvöld, er vindsveipir
sleiktu gnípur gilsins milli þess
sem regnúða lagði yfir okkur
og sólstafir mynduðust ofan við
hina djúpu skugga.
Gegnt selhvamminum er Teits
gil, en þar var veginn einn
Hellismanna, er Teitur hét. Hell
ismenn voru, sem kunnugt er,
útilegumannahópur er dvaldist
i Surtshelli. Eru margir stað-
ir þarna um slóðir kenndir við
Hellismenn, og þá flestir þar
sem þeir náðust og voru vegn-
ir. Einn Hellismanna var sem
kunnugt er Eiríkur sá er Ei-
ríksjökull er við kenndur og
Eiríksgnýpa. I Teitsgili er jarð-
hiti sá, sem vermir upp sumar
húsin að Húsafelli. Þaðan ligg-
ur leiðsla, sem er 2,8 km á
lengd, niður í skóginn. Kemur
vathið í hana 60 gráða heitt,
og út úr henni í skóginum 40
gráður. Gnægð er þarna vatns.
Og enn getum við sett um
þetta ofuriitla þögu.
„Grúfir lágt í giljum hér
grimmdin örlaganna.
Veldur langri vöku mér
vælið útburðanna."
Hér skal nú ekki fleira rætt
um drauga eða útburði, enda
geri ég ekki ráð fyrir að marg-
ir fari um Húsafellsland með
þjóðtrúna í vegarnesti. Þama
er einn friðsælasti staður á
landi hér og þarna má gera
hvað sem hugurinn girnist,
skoða náttúru og dýralíf, njóta
fegurðar landsins og ilms skóg
arins, þar sem vindurinn syng
ur hljóðlátt kvöldljóð við dyra
þrepið hjá þér.
vig.
afgr. blaðsins fyrir 6. október merkt: „Saumavélar — 4744".
f Hagahverfinu
Til sölu er 4ra herb. íbúð á hæð í húsi í Hagahverfinu.
Ibúðin er 1 stofa, 3 svefnherbergi, eldhús með borðkrók, bað,
sérþvottahús á hæðinni o. fl. fbúðin selst tilbúin undir tréverk,
húsið frágengið að utan og sameign inni fullgerð. Afhendist
vorið 1971. Suðursvalir .Teikning til sýnis á skrifstofunni.
ARNI STEFANSSON, HRL.,
Málflutningur. Fasteignasala.
Suðurgötu 4. Sími: 14314.
Kvöldsími: 34231.