Morgunblaðið - 02.10.1970, Side 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 2. OKTÓRER 1970
— Assec var byggt með þvi
að gleypa smærri fyrirtæki, var
það ekki?
— Já. Að mestu leyti á síðasta
áratug hinnar aldarinnar og svo
í lok heimsstyrjaldarinnar sið-
ari.
— Voru ðll þessi fyrirtæki
yfir sig heiðarleg?
Sally hugsaði sig ofurlitið um.
— Ég býst við þvi. Þetta voru
flest stór fyrirtæki i góðu áliti.
En vitanlega þekki ég ekki þetta
eins vel og hann Michael.
-— Hvað um þetta Pollards ?
— Já, það var fyrirtækið hans
Ricks. Mark kinkaði kolli
— Jú, Pollards var fullkom-
lega heiðarlegt, að þvi er ég
bezt veit. Framleiðir aðallega
ljósaperur.
30.
um bil alveg viss um, að það
gerði hann ekki. Assec hefur allt
af verið yfir sig heiðarlegur.
Maðurinn, sem stofnaði það var
þræltrúaður og félagi hans kom
frá Curwens — vixlafyrirtæk-
inu, þú veizt. Það hefur alltaf
verið jafn öruggt og Sankti Páls
kirkjan. Michael varð beinlínis
hissa á þvi, hve grandvart fyrir-
tækið hafði verið að koma aldrei
nærri neinu vafasömu, hversu
lítið sem var.
— En hvað þá um Maaskir-
che? Mark athugaði svipinn á
Sally gaumgæfilega.
— Hvað um hvað ? Hún hleypti
brúnum, eins og hún fylgdist
ekki með.
— Maaskirche. Hefurðu
aldrei heyrt það nefnt?
— Aldrei. Er það í Hollandi?
— Já.
— Assec hefur vitanlega hol-
lenzk sambönd. En Maaskirche
held ég ekki að ég hafi nokkurn
Skiptafundur
Framhald skiptafundar í þb. Sigurðar B. Sigurðssonar, sem
frestað var 25. f.m., verður í II. dómssal borgarfógetaem-
bættisins að Skólavörðustíg 11, föstudaginn 2. október kl.
13,30.
Skiptaráðandinn i Reykjavík 1. október 1970
Unnsteinn Beck.
VETRARFRAKKAR
og REGNFRAKKAR
mikið og fallegt úrval.
GEísiP
Fatadeild.
Hrúturiim, 21. marz — 19. apríl.
Ágætur dagur, þrátt fyrir ýmsar smátafir.
Nautið. 20. apríl — 20. maí.
Nú skaltu ráðast á öll þau verkefni, sem þú hefur verið að fresta
að undanförnu.
Tvíburarnir, 21. maí — 20. júní.
Reyndu að losa þig við letina og gerðu eitthvað.
Krabbinn, 21. júní — 22. júli.
Mánuðurinn byrjar vel. Þú getur gert ýmislegt smálegt með
góðum árangri. Heimilislifið hlýtur að batna.
Ljónið, 23. júlí — 22. ágúst.
Þú varst á réttri leið. Haltu áfram, þvi þú færð nóga aðstoð þegar
takmarkið er þekkt.
Meyjan, 23. ágúst — 22. september.
I»ú átt auðvelt með að einbeita þér í dag.
Vogin, 23. september — 22. október.
Talaðu hærra, greiðarnir bíða eftir því að þú biðjir um þá.
Sporðdrekinn, 23. október — 21. nóvember.
Endurvektu gamlan vinskap og áhrifamikil sambönd.
Bogmaðurinn, 22. nóvember — 21. desember.
Láttu uppi hinar raunverulegu tilfinningar þínar, segðu frá áform
um þínum.
Steingeitin, 22. desember — 19. janúar.
Bíddu frekari upplýsinga, áður en þú tekur miklar ákvarðanlr.
Vatnsberinn, 20. janúar — 18. febrúar.
í dag er gott að Ieggja áherzlu á smáatriðin.
Fiskamir, 19. febrúar — 20. marz.
Reyndu að vera þú sjálf(ur) í batnandi vinnuaðstöðu.
tima heyrt nefnt. En þó kynni
eitthvað um það að vera í minnis
greinunum hans Michaels.
— Hvaða minnisgreinar eru
það?
— Þessar, sem hann gerði fyr-
ir Herbrand lávarð.
— Hvar eru þær?
— Herbrand lávarður hefur
þær. Mark kinkaði kolli með upp
gjafarsvip. — En ég hef laus-
legt uppkast að þeim heima.
— Það langar mig að sjá,
Sally. Raeburn hallaði sér
snöggt fram yf ir borðið.
— Jæja . . . Sally roðnaði ofur
lítið. — En þær eru nú trúnaðar
mál, Mark.
— Ég vil skjóta þér heim núna
strax. Og ég vil sjá þetta upp-
kast tafarlaust. Sally hikaði
ekki nema augnablik. Um leið sá
Mark fyrir augum sér myndina
af afmynduðu andlitinu á Edith
Desmond taka á sig lögun í huga
hennar.
— Gott og vel, sagði hún lágt.
— Við skulum þá koma okkur
af stað, sagði hann. Þau töluðu
ekkert fyrr en þau voru komin
aftur upp í bílinn og óku fram
með ánni undir trjánum, á leið
til London.
— Þetta hefur verið yndisleg
ur dagur, sagði Mark, — jafnvel
hjá mér. Ég hef verið að þræl-
ast á kunningja mínum, sem var
of veikur til þess að geta tekið
á móti. Ég ætlaði að láta þetta
kvöld verða þér til huggunar,
en nú hef ég eyðilagt það fyrir
yður. Það var gremja í rödd-
inni. Sally hailaði sér að honum
og snerti handarbakið á honum
léttilega með fingurgómunum.
— Nei, það var ágætt, sagði
hún. — Ég hef skemmt mér svo
ágætlega. Ég var svo niðurdreg-
in, en þú hefur hresst mig við
aftur. En ég skil, hvernig þetta
er hjá þér. Þau óku áfram í
þægilegum hljóðleika sveitarinn
ar og gegnum útborgirnar, mílu
eftir milu. Loksins staðnæmdust
þau við hús Guests. Langa húsa-
röðin var stór og þögul. — Mark
leit á úrið sitt og sá, að klukkan
var stundarfjórðung yfir eitt.
Þau gengu inn þegjandi, Sally
föl og guggin í gráa kjólnum
sínum og silfurlitu kápunni. Þeg
ar ljósið kom upp í stofunni,
pírðu þau augunum hvort fram-
an í annað, sem snöggvast. Stof-
an var snyrtileg, en þó lágu
þarna einir nælonsokkar á gölf-
ábreiðunni, sem Sally hafði far-
ið úr, og baðsloppur lá á stól-
baki. Þetta var eitthvað svo við-
kunnanlega vistlegt, og ómögu-
legt annað en þeim fyndist þau
vera hjón að koma heim, eftir að
hafa verið úti að skemmta sér
um kvöldið. Það var skjalaskáp
ur úr stáli í einu horninu. Sally
náði í lykii i skúffu, opnaði
skápinn og rétti Mark nokkur
þykk skjalabindi.
— Þetta eru uppköstin að
minnisgreinunum hans Michaels,
sagði hún. — Ég ætla að hita
okkur kaffi. Mark tók skjöiin
og settist. Fljótt á litið voru þau
viðvaningslega vélrituð, liklega
af Michael sjálfum, en öll greind
sundur og þeim raðað skipulega.
Þetta voru mikil viðbrigði eftir
alla óreiðuna i eftirlátnum skjöl
um Edith Desmond. Eitt bindið
var merkt: „Frumrit til 1875“ og
annað: „1875—1900“. Þau gat
hann strax lagt til hiiðar. Hin
tók hann að athuga, einkum þó
sambandið við Pollards og Maas
kirche. Sally kom inn með kaff-
ið. Nú var hún með svuntu með
einhverjum frunsum á og enn
greip Mark þessi tilfinning, að
þau væru eins og hjón. En hún
hvarf strax aftur og hann sneri
sér að skjölunum. Hann dreypti
á kaffinu meðan hann fletti blöð
unum, en Sally sat í hægindastól
andspænis honum. Tíu mínútum
seinna fann hann, sér til furðu,
að kaffið var orðið iskalt. Hann
Ieit á úrið sitt — klukkuna vant
aði tuttugu mínútur í þrjú. Það
voru ekki tíu mínútur sem liðn-
ar voru, heldur næstum níutíu.
Sally hafði hringað sig í stóln-
um, steinsofandi og annar skór-
inn hafði dottið á gólfið. Lokkur
af ljósu hári hékk niður fyrir
augu á henni og munnurinn var
dálítið opinn. Brjóstin á henni
sigu og stigu, hægt og reglu-
lega. Það virtist fara vel um
hana, en það var orðið talsvert
neOex
2500 klukkustunda lýsing
við eðlilegar aðstæður
(Einu venjulegu perurnar
framleiddar fyrir svo
langan lýsingartíma)
NORSK ÚRVALS
HÖNNUN
Heildsala Smásala
Einar Farestveit & Co Hf
Bergstaðastr. 10A Sími 16995
Iðnuðarhúsnæði ósknst
um 50x100 ferm., helzt á jarðhæð í Reykjavík.
Upplýsingar í síma 21090.
Meinatœknar óskast
Meinatækna vantar nú þegar í Landsspítatann.
Laun samkvæmt úrskurði kjaradóms.
Umsóknir ásamt upplýsingum um aldur, nám og fyrri
störf sendist stjórnarnefnd ríkisspítalanna, Klapparstíg 26,
strax og eigi síðar en 9. október n.k.
Reykjavík, 30. sept. 1970.
Skrifstofa rikisspítalanna.
VIÐ EIGUM
STRIGASKÓ I ÖL1.UM STÆRÐUM.
LEIKFIMISBUXUR MARGA LITI OG STÆRÐIR.
IÞRÓTTABÚIVIIMGA Á AL.LA FJÖLSKYLDUNA.
jjl
SP0RTVAL
HLEMMTORGI.