Morgunblaðið - 21.07.1973, Síða 16
10 MORGUiNBLAÐIÐ — LAUGARDAGUR 21. JÚLl 1973
Otgefandi hf. Árvakur, Reykjavlk.
Framkvæmdastjóri Haraldur Sveinsson.
Ritstjórar Matthfas Johannessen,
Eyjólfur Konráð Jónsson.
Styrmir Gunnarsson.
Ritstjórnarfulltról Þorbjörn Guðmundsson.
Fréttastjórl Björn Jóhannsson.
Auglýsingastjóri Árni Garðar Kristinsson.
Ritstjóri og afgreiðsla Aðalstræti 6, simi 10-100.
Auglýsingar Aðalstræti 6, slmi 22-4-80.
Askríftargjald 300,00 kr. á mánuði innanlands.
I lausasðlu 18,00 kr. eintakið.
egar núverandi vinstri
stjóm tók við völdum,
var lýst yfir því með mörg-
um og fjálglegum orðum, að
tekin yrðu upp skipulögð
vinnubrögð í efnahags- og
fjárfestingarmálum. Handa-
hófskennd vinnubrögð áttu
að sögn ríkisstjómarinnar að
þoka fyrir skipulögðum áætl-
unarbúskap eins og sagði í
stefnuræðu forsætisráðherra.
Óhætt er þó að fullyrða, að
tveggja ára valdaferill nú-
verandi ríkisstjórnar hafi
fyrst og fremst einkennzt af
óskipulögðum og fálmkennd-
um aðgerðum í efnahagsmál-
um. Síðan hefur ríkiskerfið
verið þanið út án nokkurrar
heildarstjórnar. Skýrasta
dæmið um stjórnleysið eru
deilur ríkistjórnarinnar og
tveggja veigamikilla stofn-
ana ríkisins um byggingar-
framkvæmdir Seðlabankans.
Stjórnarflokkarnir hafa nú
með opinberri ályktun frá
Framkvæmdastofnun ríkisins
beint þeim tilmælum til
sjálfra sín í ríkisstjórn
og bankaráði Seðlabankans
að byggingarframkvæmdum
verði frestað.
Þessi opinbera ályktun er
birt aðeins fáum dögum eftir
að stjórnarflokkarnir í banka-
ráði og ríkisstjórninni ákváðu
að hefja byggingarfram-
kvæmdir á vegum bankans.
Skípaleikur af þessu tagi er
ugglaust einsdæmi, og ber
ekki vott um skipulögð
vinnubrögð ríkisvaldsins.
Samkvæmt upplýsingum
ríkisstjórnarinnar og tals-
manna hennar hafa a.m.k.
þrír aðilar vald til þess að
stöðva framkvæmdirnar. 1
fyrsta lagi hefur ríkisstjórn-
in sjálf vitaskuld vald til þess
að stöðva slíkar framkvæmd-
ir ríkisstofnunar. Samkvæmt
lögum um Seðlabankann er
yfirstjórn hans í höndum
viðskiptaráðherra, sem fer
með bankamálefni, og banka-
ráðs. Ljóst er, að ríkisstjórn-
in hefur úrslitavald í þeim
efnum, ef til ágreinings kem-
ur. f öðru lagi getur banka-
ráð Seðlabankans tekið
ákvörðun um að stöðva fram-
kvæmdirnar, ef ríkisstjórnin
mælir ekki fyrir um annað.
Stjórnarflokkarnir hafa að
sjálfsögðu meirihluta í
bankaráðinu. Loks hefur for-
maður stjórnar Framkvæmda
stofnunarinnar upplýst, að
enginn vafi leiki á því, að
stofnunin hafi ekki einungis
vald til þess að setja fram
eindregin tilmæli um frest-
un, heldur geti hún sjálf
ákveðið, að öllum banka-
byggingum í landinu verði
slegið á frest.
Þó að stjórnarflokkarnir
hafi þannig á þremur stöð-
um vald til þess að stöðva
umræddar framkvæmdir ger-
ist ekkert, nema það eitt, að
gefnar eru út yfirlýsingar um
nauðsyn þess að draga úr
þeirri þenslu í efnahags- og
fjárfestingarmálum, sem leitt
hefur af stefnu ríkisstjórnar-
innar. Stjómarandstaðan hef-
ur margsinnis ítrekað nauð-
syn þess að draga úr opin-
berum framkvæmdum í
þessu skyni. Af þeim sökum
töldu fulltrúar hennar, að
eðlilegt gæti verið að fresta
byggingu nýs Seðlabanka-
húss. En þeir gátu vitaskuld
ekki tekið þátt í þeim skrípa-
leik, sem stjómarflokkarnir
hafa sett á svið varðandi
þetta mál.
Ráðherramir og stjórnar-
blöðin kepf>ast nú við að
skella sökinni hver á annan.
Hver stjórnarflokkurinn um
sig ætlar að njóta góðs af
kröfunni um stöðvun. Enginn
þeirra þykist því bera ábyrgð
á verkinu.
Ritstjóri dagblaðsins Tím-
ans segir í forsíðufrásögn sl.
fimmtudag, að eindregnum
tilmælum Framkvæmdastofn
unarinnar sé fyrst og fremst
beint til Lúðvíks Jósepssonar,
sem fari með yfirstjórn þess-
ara mála lögum samkvæmt.
Tíminn heldur áfram í for-
ystugrein í gær að beina
spjótum sínum að Lúðvík
Jósepssyni. Þannig segir mál-
gagn Ólafs Jóhannessonar,
forsætisráðherra, að Lúðvík
Jósepsson eigi að hafa vald
til þess að stöðva fram-
kvæmdirnar. Og Tíminn
skorar á ráðherrann að
stöðva þær þegar í stað og
skylda Seðlabankann til þess
að koma lóðinni í samt lag á
nýjan leik.
Lúðvík Jósepsson hefur á
hinn bóginn þvertekið fyrir
að hafa þetta vald á sínum
höndum og bendir á fulltrúa
st j órnarflokkanna í banka-
ráði Seðlabankans. Formaður
Alþýðubandalagsins reynir
einnig að bera í bætifláka
fyrir Lúðvík Jósepsson og
gefur í skyn, að ríkisstjórnin
hafi ekkert vald í þessum
efnum. En hann telur þó lík-
legt, að ríkisstjórnin muni
álykta eitthvað um málið.
Ríkisstjórnin er með öðrum
orðum svo magnlítil í augum
formanns Alþýðubandalags-
ins, að á hennar valdi er að-
eins að senda frá sér einhvers
konar ályktanir.
Fátt hefur því fremur
varpað dulunni ofan af
stjórnleysi og handahófs-
kenndum vinnubrögðum
vinstri stjórnarinnar en ein-
mitt sá sjónleikur, sem settur
hefur verið á svið vegna
þessa máls.
SJONARSPIL VINSTRI
STJÓRNARINNAR
KltAK'.V
Endurskipurlagning skák-
starfseminnar í Sovétríkjunum
EÍNGINN þarf að fara í graf-
götur með það, að Sovétimenn
tóku sér missi heimisimeistara-
titilsins í skák mjög nærri.
Þetta kemur ef tiil vitl gLeggst
fram í þeim tilraumum, sem
undanfarið hafa verið gerðar
til þess að endurskipuleggja
skájkstarfsemina og fyrir-
komulag keppna í Sovétrikj-
unum. Þar ber fyrst að nefna
deildaskiptinguna, sem er í
líkingu við það, sem við
þefckjum úr deildaskipulagi
knattspyrnukeppna á Vestur-
löndum. 1 fyrstu deild skulu
keppa allir beztu skákmeist-
ararnir, í annarri deild þeir
næstu o. s. frv. Og ekki nóg
með það. Nú verða menn að
gjöra svo vel og teflla eða
byrja upp á nýtt að vin,na sig
upp ella. Þá hefur sú regla
verið sett, að stórmieisitara-
jafntefli eru óleyfileg. Barizft
skai af fullum krafti og eng-
um er heimilt að semja jafn-
tefli fyrr en eftir þrjátíu leiki
nema leyfi skákstjóra komi-
til. Verður vafailaust fróðlegt
að fylgjast með þróun þess-
ara mála í náinni framtíð.
En það er ekki nóg
að skik'ka stórmeistarana til
keppni, ungu mennina verður
lika að herða í baráttu við
hina reyndari. í lo'k april fór
fram í Moskvu keppni, þar
sem segja má, að þessiu nýja
skipulagi hafi verið hrundið
í framikvæmd. Þetta var
sveitakeppni og áttust þar
við þrjár Skáksveitir, hver
sveit var skipuð tiu mönnum
og var tefld tvöföld umferð.
Til leiks mættu: Sveit 1. deild-
ar, sveit 2. deildar og ungl-
ingasveit. Til þess að gefa
nokkra hugmynd um styrk-
leika þeirra, sem hér áttust
við, skulu liðsmenn 1. deildar
taldir upp í þeirri röð, sem
þeim var raðað á borð:
1. Spassky, 2. Petrosjan,
3. Tal, 4. Kortsnoj, 5. Smysl-
ov, 6. Geller, 7. Poulugaj-
evsky, 8. Stein, 9. Keres,
10. Savon. Á fyrsta borði í
2. deild tefldi Taimanov og
á 1. borði unglingaliðsins
Karpov. Úrslit urðu þau, að
1. deild sigraði, hlaut 23% v.
af 40 mögulegum, ungling-
arnir urðu i öðru sæti með
18% v. og 2. deild rak lestina
með 18 v. En lítum nú á eina
snaggaralega skák úr keppn-
imni.
Hvitt: M. Tal (1. deild).
Svart: D. Bronstem (2. deild).
Pirc-vörn.
1. e4 — d6, 2. d4 — Rf6, 3. Rc3
— g6, 4. Bgo — c6,
(Ekki 4. — Bg7 vegna 5.
e5!, t. d. dxe5, 6. dxe5 —
Dxdlf, 7. Hxdl — Rg4,
8. Rd5 — Bxe5, 9. f4 — Bd6,
10. Bxe7! og hvítuir vínnur).
5. Rf3
(Hér kom einnig sterklega
til greina að leika 5. Dd2
Michail Tal
og siðan f3 og stefna
þannig að framrás peðanma
á kóngsværngnum).
5. — Bg7, 6. Dd2 — Bg4 (?),
(Frumlegui' en nokkuð
hæpinin leikur. Hér var trú-
lega bezt að leika 6. — Rbd7
ásaimt Dc7 og b5. Svartur
gat hins vegar tæplega
leyft sér að hróka í stöð-
unni vegma 7. Bh6 ásamt h4
og h5).
7. 0-0-0 — h6, 8. Be3 — b5,
9. Bd3 — a6, 10. Hdel
(Stefnir að framrás é-peðs-
ins. Svartur á nú þegar í
erfiðleikum með liðskipan
siina).
10. — Rfd7, 11. e5!? — d5?,
(Vilji menn sýna fram á
óréttmæti liðsfórna eir ein-
faldast að þiggja þær.
Bronstein hefði þvi senni-
lega gert bezt með þvi að
leiika 11. — Bxf3 og síðan
12. — dxe5. Nú yerður sákn
hvíts ástöðvandi).
12. Rh4 — cð,
(Svörtu mennimir standa
he'ldur óhöndiuglega, en
Brcmstein reynir engu að
síður að ná mótspili, en ..).
13. Rxg6!
(Hvítur viinnur þrjú peð
fyrir manninin, auk þess er
svarta staðan í rúst).
13. _ fxg6, 14. Bxg6f — Kf8,
15. Rxd5 — Rc6, 16. f3 — Be6,
17. Rf4 — Bg8, 18. Dd3 (?)
(Bnniþá sterkara var 18.
Bh5! og svartiur er varnar-
la-us gegn hrtuninni 19.
Rg6t).
lg. — e6, 19- De4 — Re7,
20. Hdl — Db8, 21. Rh5
(Hótar 22. Df4t. Þrátt fyrir
mistök hvíts í 18. leik er
svartur gjörsamilega varnar-
laus eftir sem áður).
21. — Rd5, 22. dxc5 — Dxe5,
(Eða 22. — Rxe5, 23. Rxg7
— Kxg7, 24. Bd4 og vimn-
ur).
23. Bd4 — Dd5f, 24. f4
og svartur gafst upp.
Jón Þ. Þór.