Morgunblaðið - 17.09.1977, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 17.09.1977, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 17. SEPTEMBER 1977 3 240 fulltrúar á SUS-þing í Eyjum Friðrik Sophusson, formaður SUS, setur þingið ÞING Samhands ungra sjálfstæðismanna hófst í Vestmannaeyjum síðdeg- is í gær. Friðrik Sóphus- son, formaður SUS, setti þingið með ræðu og gerði grein fyrir starfi SUS sl. tvö ár og vék að þróun stjórnmála í landinu frá því að síðasta þing SUS var haldið í Grindavík 1974. Þetta 24. þing SUS er haldið undir kjörorð- inu: Báknið hurt — gegn verðbólgu. Friðrik sagði í ræðu sinni, að naumast hefði verið hægt að tala um hrein stjórnarskipti 1974, því að þrátt fyrir stórsigur Sjálfstæðis- flokksins hefði ekki verið unnt að mynda ríkis- stjórn, sem starfaði á grundvelli sjálfstæðis- stefnunnar, því að Fram- sóknarflokkurinn hefði ekki verið reiöubúinn til að strika yfir gerðir vinstri stjórnarinnar. Frá upphafi hefði ríkis- stjórnin í gerðum sínum verið bundin af ýmsum sérhagsmunahópum. Minna bæri hins vegar á, að skeleggri stefnu væri beitt, líkt og átti sér stað við upphaf Viðreisnar- stjórnarinnar. Þingfundir í gær voru í samkomuhúsinu við Vestmannabraut. Um 230 þingfulltrúar sitja þingið. Fundarstjóri a fyrsta fundinum var kjörinn Sigurður Jóns- son frá Vestmannaeyj- um, en fundarritari Bessí Jóhannsdóttir úr Reykja- vík. Við upphaf þing- fundar ávarpaði Magnús Jónasson, formaður Fé- lags ungra Sjálfstæðis- manna í Eyjum, Eyverja, fundinn og kvað þetta vera fyrsta þing SUS sem haldið væri í Eyjum, og jafnframt fyrsta þing SUS í suðurlandskjör- dæmi. Þá ávarpaði þingið Per Arne Arvidsson, for- maður samtaka ungra hægri manna á Norður- löndum, og lýsti ánægju sinni með uppgang lýð- ræðis á Spáni hin seinni ár og í framhaldi af því lagði hann ríka áherzlu á að íslendingar stæöu vörð um lýðræðið hér á landi. Hann kvaðst vona að Sjálfstæðisflokkurinn yrði áfram við stjórnvöl- inn hérlendis, því að það tryggði lýðræðinu beztan framgang. Þá lýsti Ar- vidsson óánægju sinni með vöxt ýmissa vinstri hópa á Norðurlöndum. 1 gærkvöldi fóru fram nefndastörf og i dag er afgreiðsla ályktana þingsins á dagskrá en þinginu lýkur síðdegis á morgun, sunnudag með kosningu stjórnar og for- manns. Gylfi Gíslason með sýn- ingu í Asmundarsal A MORGUN opnar Gylfi Gísla- son, myndlistarmaður, sýningu í Ásmundarsal við Frevjugötu. Sýningin verður opin frá kl. 16.00 til kl. 22.00 í hálfan mánuð. Sýningin er á þremur stöðum í húsinu, en Gísli nefnir hana „Til- briðgði um mynd Geovanni Efrey“. I salnum eru m.a. sýnd 23 tilbrigði úr inynd Jóhannesar Kjarvals, „Fjallamjólk", sem Kjarval málaði árið 1941. I vinnu- stofunni eru uppi teikningar, sem verða notaðar til að myndskreyta harnahók Stefáns Jónssonar, „Oli frá Skuld“, sem verður endurút- gefin í vetur. Gylfi hefur mynd- skreytt handritið á svölum húss- ins, en það er rúmlega 20 metra löng mynd af umhverfinu í kring, sem sést þar frá. Flestar myndirnar á sýning- unni eru blek- og blýantsteikning- ar, sem Gylfi hefur málað i sum- ar, en hann hefur haft aðstöðu í Ásmundarsal til að undirbúa sýn- inguna. Þetta er fyrsta sjálfstæða mynd- listarsýning Gylfa, en hann hefur áður tvívegis tekið þátt i samsýn- ingu i Súm og einu sinni sýnt á Mokka á árunum 1971—73. Hann hefur gert töluvert að því að myndskreyta bækur og má m.a. nefna bókina „Punktur, punktur, komma, strik“ eftir Pétur Gunn- arsson sem kom út i fyrravetur. Að sögn listamannsins eru þær bókmyndskreytingar, sem eru á sýningunni, þær beztu, sem hann hefur látið frá sér. Allar myndirnar á sýningunni eru til sölu. Myndskreytingarnar á svölum hússins. Fiskmjölsverksmidjur: Áætlun í undirbúningi um endurbætur á hreinsibúnaði Nýtt verð á kolmunna og spærlingi YFIRNEFND verðlagsráðs sjávarútvegsins hefur ákveðið nýtt lágmarksverð á kolmunna og spærlmgi til bræðslu. Samkvæmt því skal verð f.vrir hvert kg. kolmunna vera 9 krónur frá 1. sept- ember til áramóta. Er þá miðað við 8% fituinnihald og 19% fitufrítt þurrefni. Ef breytingar verða á fitu- og þurrefnisinnihaldi til hækkunar eða lækkunar breytist verðið til sam- ræmis. Ákveðið var tvenns kon- ar verð á spærlingi. Frá 1. september til 15. septeni- ber skal greiða 8,80 krónur fyrir hvert kg. en eftir þann tíma til áramóta skal greiða 8,30 krónur fyrir hvert kg. Verð á kolmunna var samþykkt með samhljóða atkvæðum allra nefndar- manna. Verð á spærlingi var ákveðið af oddamanni og fulltrúum kaupenda gegn atkvæðum fulltrúa seljenda. í yfirnefndinni áttu sæti: Ólafur Davíðs- son., sem var oddamaður nefndarinnar. Guðmundur Kr. Jónsson og Jón Reynir Magnússon af hálfu kaup- enda og Ágúst Einarsson og Jón Sigurðsson af hálfu seljenda. Heilbrigðiseftirlit ríkis- ins er um þessar mundir að undirhúa erindi til heil- brigðisráðherra hvernig staðið skuli að því að koma upp hreinsibúnaði í fisk- mjölsverksmiðjunum hér á landi, að sögn Hrafns Friðrikssonar forstöðu- manns. Hrafn sagði, að til grundvallar þessu erindi yrði lögð „gula skýrslan“ sem svo væri nefnd en hún væri árangur úttektar sem eftirlitið hefði látið gera á þessum málum hér á landi og þá m.a. fengið sérmenntaðan mann til að kynna sér sérstaklega hvernig þessum málum væri háttað í Nor- egi. Niðurstaðan hefði orðið sú, a hreinsibúnaði fiskmjölsverk- smiðjanna hér, sérstaklega í þétt- býli, væri mjög ábótavant bæði hvað varðaði ryk- og lykteyðingu. Það hefði sýnt sig, að einföld skol- un i vatnshreinsiturnum væri ekki fullnægjandi aðferð og væri þá helzt til ráða að láta reisa efna- hreinsiturna en fleiri möguleikar væru þó fyrir hendi. Kvað Hrafn Heilbrigðiseftirlit- ið nú mundu vinna áfram að fullnaðarathugun þessara mála og skila tillögum til ráðherra um nauðsynlegar úrbætur, en hann treysti sér ekki til að segja nánar hvenær það gæti orðið. Hins veg- ar væri ljóst, að gera yrði áætlun um framkvæmdir í þessum efn- um, því að hér væri um að ræða mjög mikla og kostnaðarsama framkvæmd sem yrði að vinna í áföngum. Yrði að setja verkefnin sem fyrir lægju upp í forgangsröð og byrja þar sem ástandið væri verst í hreinsibúnaði hjá fisk- mjölsverksmiðjum i þéttbýli.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.