Morgunblaðið - 17.09.1977, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 17.09.1977, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 17. SEPTEMBER 1977 29 Borgarstjóri; Ekkert því til fyrir- stöðu að Melavöllur starfi enn um sinn Á siðasta fundi borgarstjórnar varö Melavöllurinn gamli aó um- ræðuefni. Alfreð Þorsteinsson hóf umræðuna og sagði, að þess hefði orðið vart að spurningar vöknuðu hjá almenningi hvað yrði um Melavöllinn þegar hin nýja þjóðarbókhlaða risi. Alfreð sagði það sína skoðun, að óskyn- samlegt væri að ieggja völlinn niður og þvi legði hann til, að völlurinn yrði starfræktur áfram sem keppnisvöllur. Hann sagðist reyndar ekki skilja þann fárán- leika að troða þjóðarbókhlöðunni inn á völlinn því nóg pláss væri fyrir hana annars staðar á Há- skólalóðinni. Borgarstjóri Birgir lsleifur Gunnarsson tók næst til máls og sagði að sá hluti þjóðar- bókhlöðunnar sem inn á völlinn kæmi myndi aðeins skerða hlaupabrautina. Þess vegna væri ekkert því til fyrirstöðu að völlur- inn starfaði enn um sinn. Hins vegar væri rétt að geta þess, að möguleiki væri þó nokkur á að færa völlinn austar og sunnar inn- an girðingarinnar í átt að gömlu tennisvöllunum. Enda hefði borg- arverkfræðingi þegar verið falið að athuga það mál. Borgarstjóri sagðist vilja minna á, að í skipu- lagi væri gert ráð fyrir að völlur- inn yrði lagður niður og Háskóii lslands fengi svæðið til umráða. Fram kom hjá borgarstjóra að rikið mun nú greiða 20 milljónir vegna valiarins i bætur og ef til vill mætti nota það fjármagn til að færa völlinn. Borgarstjóri ítrekaði að hér væri ekki ein- göngu um skipulagsmál að ræða, heldur þyrfti að leysa málið í sam- vinnu við Háskólayfirvöld. Hann lagði síðan til að málinu yrði visað til borgarráðs. Albert Guðmunds- son sagðist mundu standa með þvi, að Melavelli yrði við haldið þó ekki i þeirri niðurníðslu sem verið hefði heldur þyrfti að byggja hann upp. Völlurinn væri einstaklega vel i sveit settur á Melunum því ef málin væru at- huguð kæmi í ljós sú furðulega staðreynd, að flestir ef ekki allir íþróttavellir áðrir hefðu verið settir ofan i mýri í Reykjavik. Alfreð Þorsteinsson þakkaði stuðning við málið og síðan var samþykkt að vísa málinu til borg- arráðs. Qlafur B. Thors: Nauðsynlegt að reisa skipaverk- stöð í Reykjavík A fundi borgarstjórnar 15. sept. fluttu borgarfulltrúar Alþýðu- bandalagsins eftirfarandi tillögu: „Borgarstjórn ályktar að brýna nauðsyn beri til að hefja starf- rækslu stórrar skipaverkstöðvar i Reykjavik. Þar sem slikt fyrir- tæki verður ekki stofnsett nema til komi aðild opinberra aðila, lýs- ir borgarstjórn sig reiðubúna til þátttöku í byggingu og rekstri skipaverkstöðvar. Borgarstjórn samþykkir þvi að vinna að stofn- un félags Reykjavikurborgar, Ríkisins og annarra aðila, sem vilja sameinast um að hrinda þessu stórvirki í framkvæmd." Sigurjón Pétursson (Abl.) talaði fyrir tillögunni og sagði sögu bar- áttu fyrir skipavekstöð i Reykja- vik vera orðna langa og hana mætti rekja allt aftur til ársins 1945, en þá var gerð áætlun um þurrkví sunnan Kleppshöfða . Ræddi Sigurjón nokkuð sögu málsi'ns þ.ám. áætlun sem Svii gerði upp úr 1970 varðandi þessi mál, en hún mun hafa verið nokk- uð greinargóð. Borgarfulltrúinn sagði að þar sem mál þessi hefðu lengi legið í salti væri brýn nauð- syn til að halda áfram þvi starfi sem þegar hefói verið unnið. Fyr- irtæki sem þetta gæti orðið arð- bært fljótlega, en mikið stofnfjár- magn þyrfti til og því yrðu að koma til framlög af hálfu hins opinbera. „Nú er þvi nauðsyn á að framreikna fyrri áætlanir," sagði Sigurjón Pétursson að lokum. Olafur B. Thors (S) sagðist ekki hafa ástæóu til að bæta við sögu málsins utan þess sem gerst hefði síðustu ár. Full ástæða væri til að leggja áherslu á frumkvæði Reykjavíkurborgar varðandi mál þessi, m.a. hefði hann á árinu 1975 flutt tillögu sem snerti þetta. Ölafur sagði, að fyrri hluta árs 1976 hefði farið fram verðkönnun á skipalyftu og áfangaskiptingu við stækkun. A miðju ári 1976 hefði síðan byrjað á vegum nokk- urra aðila könnun á skipaviðgerð- um -hérlendis. Borgarfulltrúinn sagði, að nú hefðu nokkrir aðilar sýnt málinu áhuga, m.a. fyrirtæk- ið Stjörnustál h.f., en það er sam- steypa nokkurra fyrirtækja i málmiðnaði. Fyrirtæki sem störf- uðu við vesturhöfnina hefðu sýnt áhúga, t.d. Stálsmiðjan. Ölafur B. Thors sagði nokkra möguleika hafa verið rædda. Þar á meðal að bæta aðstöðu á núverandi svæði skipaviðgerða i vesturhöfninni eða að flytja alla viðgerðaraó- stöðu inn í Kleppsvík. Athugun hefði verið gerð á að efla aðstöð- una i vesturhöfninni og viðræður hefðu farið fram en því miður hefði ekki enn fengist niðurstaða hjá þeim aðilum sem þar ættu hlut að máli. Nú væri beðið eftir skriflegu svari frá þeim. Þá fengi borgarráð skýrslu um viðræður við forráðamenn Stjörnustáls h.f. þegar þár að kæmi. Ólafur sagði að svo mjög sem hann væri sam- mála þvi að nauðsyn bæri til að reisa skipaverkstöð i Reykjavík, þá teldi hann það tillitssemi við fyrrgreinda aðila að borgarstjórn byndi ekki hendur borgaráðs áð- ur en niðurstöður viðræðnanna lægju fyrir. Ólafur sagði að sér fyndist dálitið ankannalegt hjá Sigurjóni að samþykkja viðræó- urnar i borgarráði en flytja svo tillögu um málið hér á þessu stigi. Ólafur sagði það augljósa stað- reynd, að nú á siðustu mánuðum hefði málinu þokað meir en á löngum tima áður og því legði hann til að hinkrað yrði um stund og málinu yrði vísað til borgar- ráðs og hafnarstjprnar, en ipnan fárra daga mun niðurstaða liggja fyrir. Ólafur sagði að málefnum skipaviðgerða mætti ekki drepa á dreif og tillaga sin væri ekki til að draga úr framkvæmd málsins heldur til að bíða niðurstaðna við- ræðnanna. „Málið er brýnt og ég vona, að áður en ár þetta er á enda þá munum við geta samein- ast um stórbætta aðstöðu til skipa- viðgerða í Reykjavík,“ sagði borg- arfulltrúinn að lokum. Kristján Benediktsson (F) kvaðst sam- mála umræddri málsmeðferð en ágætt væri að tillagan hefði kom- ið fram. Nú bæru menn ugg i brjósti varðandi undirstöðuat- vinnugreinarnar i Reykjavík og þetta væri ef til vill fyrsta sporið til bóta. Kristján sagði nauðsyn bera til að kanna frekar áhuga þeirra aðila sem til greina kæmu varðandi málið. Sigurjón Péturs- son tók aftur til máls og kvaðst sammála málsmeðferð. I máli hans kom fram, að lausleg áætlun segði, að kostnaður við skipaverk- stöð yrði vart undir 10—12 millj- örðum króna. Samþykkt var að visa málinu til borgarráðs og hafnarstjórnar með öllum greidd- um atkvæðum. FRA BORGAR- STJÓRN Brldge umsjóií ARNÓR RAGNARSSON Síðasta kvöld sumarspila- mennskunnar hjá B.Á.K. var spilað sl. mánudag. Úrslit urðu Þessi: A-riðill 12 pör 1. Ármann J. Lárusson Haukur Hannesson 195 2. Gunnlaugur Kristjánsson . Sigurður Sigfússon 187 3. Einar Guðlaugsson Sigríður Rögnvaldsdóttir 185 B-riðilI 12 pör. 1. Einar Þorfinnsson Sigtryggur Sigurðsson 2. Þorfinnur Karlsson Steingrímur Jónasson 3. Sævar Þorbjörnsson Bragi Hauksson FRA BRIDGEFELAGI KÓPA- VOGS: Urslit i tvímennings- keppni þann 15/9, voru eftirtal- in pör efst, en spilað var í ein- um 16 para riðli: Sverrir Armannsson — Guðmundur t rnarson 262 stig Sigurður Thoraren,- eii — Jóhann Bogason 257 stig Sigurður Sigurjónsson — Einar Guðlaugsson 249 stig Bjarni Pétursson — Sævin Bjarnason 247 stig Georg Sverrisson — Friðrik Guðmundsson231 stig MEÐALSKOR: 210 stig. Fimmtudaginn 22/9 n.k. verður spilaður eins kvöld tvimenn- ingskeppni og eru allir vel- komnir. Spilað er í Þinghóli og Stigakeppni sumarsins lokið og urðu úrslit þessi: 1. Sverrir Ármannsson 2-3 Einar Þorfinnsson 2-3 Sigtryggur Sigurðsson 4. Guðmundur P. Arnarson 20 Stóð aðalbaráttan milli þess- ara fjögurra en ajls hlutu um 80 manns stig. 189 hefst keppnin kl. 20 stundvis- lega. 185 Bridgefélag Breiðhoits hóf 179 vetrarstarf sitt 13. sept. með eins kvölds tvímenning. er Urslit urðu þessi: 1. Pálmi — Tómas 174 26,5 2. Bragi —Hreinn 170 22 3. Gunnar—Heiðar 167 22 Þriðjudaginn 20. sept. verður byrjað á léttri spilamennsku en um kl. 9.30 mun aðalfundur fé- lagsins hefjast með venjulegum aðalfundarstörfum. BRIDGEFELAG Reykjavíkur hefur nú ákveðið vetrarstarf sitt og mun það verða eins og hér segir: Spilastaður verða hin ágætu salarkynni í Domus Medica. Og spilað verður á miðvikudögum. En þó með þeirri undantekn- irigu að i fyrstu viku hvers mán- aðar flytjum við okkur á þriðju- daga. Meðfylgjandi keppnisyfirlit skýrir sig sjálft. Farnar eru að mestu troðnar slóðir en keppnir þó styttar frá því, sem verið hefur undanfarin ár. Og brons- stig Bridgesambands Islands verða snarari þáttur og veiga- meiri en verið hefur. Fyrsta meiriháttar keppnin verður „Butler“-tvímenningur, sem hefst þann 4. október með því að dregið verður í riðla, sem verða óbreyttir meðan keppni þessi stendur yfir. Spiluð verða sömu spil í riðlunum og þeir reiknaðir út sameiginlega. Þann 1. nóvember verður frjálst kvöld. Skipulagður verð- ur tvimenningur fyrir þá sem vilja, en einnig verður aðstaða til keppni sveita. En kvöld þetta munu tvö efstu pörin úr hverjum riðli ,,Butler“- keppninninnar spila sérstaka úrslitahríð. Þann 9. nóvember hefst siðan þriggja kvölda hrað- sveitakeppni, en þann 30. nóv- ember verður aftur tekið til við tvímenning. Þrjú kvöld og átta efstu pörin fá rétt til þátttöku i meistaratvímenningnum, sem spilaður verður i marz. Ákveðið hefur verið, að sam- tala bronsstiga . nmtán beztu kvölda spilara og para á yfir- standandi spilaári hjá félaginu þann 1. marz, ráði átta lausum sætum, af sextán alls, í hinni árlegu meistaratvimennings- keppni. Þannig mun sérstök keppni ráða helmingi þátttak- enda í þeirri keppni, en árang- ur 21. sept. til 1. marz hinum helmingnum. Meistarakeppni i sveitum verður siðasta keppni spilaárs- ins og verður framkvæmd hennar kynnt sérstaklega i byrjun október. Þrir spilarar verða heiðraðir sérstaklega i lok spilaársins. Verða það þeir, sem ná mestum fjölda bronsstiga B.S.I. á spila- kvöldum félagsins i vetur. Einnig verður veitt sérstök viðurkenning því pari, sem beztum árangri nær á fyrsta spilaári sínu hjá félaginu. Er þá átt við spilara, sem eru 25 ára ogyngri. Páll Hjaltason mun stjórna spilakvöldum félagsins í vetur. Keppnisgjöld verða kr. 600 á kvöldi, en ekki verður svokajl- að skyldukaffi. Og spila- mennskan mun hefjast kl. 20 stundvíslega. 1 stjórn Bridge- félags Reykjavíkur eru nú Páll Bergsson, formaður, simi 19847. Þorfinnur Karlsson, varaformaður, sími 82486. Stefán J. Guðjohnsen, gjald- keri, sími 44984. Baldur Kristjánsson, ritari, sími 11474. Ólafur H. Ólafsson, fjármálarit- ari, sími 13821. Keppnisyfirlit 21. scpt., miðvikudagur Tvínu nningskcppui 28. scpt., miðvikudagur Tvímcnningskcppni 4. okt., þriðjudagur 12. okt., miðvikudagur 19. okt., miðvikudagur 26. okt., miðvikudagur 1. ncSv., þriðjudagur 9. nóv., miðvikudagur 16. nóv., miðvikudagur 23. nóv., mið\ikudagur 30. nóv., miðvikudagur 6. dcs., þriðjudagur 14. dcs., miðvikudagur Butlcr-tvímcnnings- kcppni í riðhmi { Frjálst kvöld ásamt | úrslitum Butlcrsins Hraðsvcitakcppni Tvímcnningur

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.