Morgunblaðið - 17.09.1977, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 17.09.1977, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 17. SEPTEMBER 1977 33 félk í fréttum Sýnast ykkur þeir ekki býsna sigurstranglegir þessir kappar? Þetta ísknattleikslið er skipað tveim bjarndýrum og fimm simpansöpum. Það er þýskur sirkus sem á þá og þeir hafa æft ísknattleik í fjóra mánuði. Það fylgdi ekki sögunni hverjir mótherjarnir verða í væntanlegri keppni. + Sundstjarnan fræga IVIark Spitz sem vann sjö gullverð- laun á Ólympíuleikunum í Miinchen 1972 hefur nú tekid konu sína, Suzy Weiner, i sátt aftur. Þau giftu sig stuttu eftir leikana en hjónabandið var stormasamt. Mark fékk ótal tilboó ba'öi frá kvikmyndafé- lögum og sjónvarpsstöóvum en þegar til kom þótti hann léleg- ur leikari og tilboðunum fækk- aði fljótt. En konu hans gekk betur og hún fékk mörg freist- andi tilboð, um leik í kvik- myndum og þau Suzy og Mark skildu. Þau hafa nú tekið sam- an á ný og farið í brúðkaups- ferð númer tvö. Þau ætla nú bæði að fara að leika í kvik- mynd, þó ekki bæði í sömu myndinni. Þau hafa einnig leikið í sjónvarpsþáttum í Bandaríkjunum við miklar vinsældir. I orkusnauðum heimi kemur sér vel að vera uppfinningasamur og deyja ekki ráðalaus þótt bensínverð rjúki uppúr öllu. Hér má sjá eina lausnina, en þá verða menn að láta sér nægja eitt hestafl. o Gídeon samkoma Gídeon.félagar kynna starf sitt á samkomu í Fíladelfíu Hátúni 2 sunnudaginn kl. 20 00. Aðalræðumaður verður Lars Dagson umdæmis- stjóri fyrir Mið-Evrópu og Afríku. Auk þess kórsöngur og einsöngur. Tekið verður á móti gjöfum til kaupa á Biblíum. Allir hjartanlega velkomnir. Gídeonfélagar á Islandi Bátavélar LISTER bátavélar 10 til 200 hestafla. Höfum nú fyrirliggjandi í vörugeymslu vélar af stærðum 18, 45 og 88 hestafla. Rafstöðvar Útvegum allar stærðir rafstöðva. Þungbyggðar, slit sterkar til langtimakeyrslu. Léttbyggðar, ódýrar sem varastöðvar. Einnig flytjanlegar stöðvar innbyggðar í hús. Höfum fyrirliggjandi heimilisrafstöðvar i stærð- um 3’/z kw og 7 kw. (Lister). Væntanlegar 25KVA al-sjálfvirkar vararafstöðvar. Til leigu i styttri eð lengri tima rafstöðvar 2V2 kw, 3’/2 kw og 7kw. Hjálparvélar LISTER hjálparvélar fyrir- liggjandi. Stærðir miðað við 1500 snún. /mín.: 6,12,18,32 og 65 hestöfl. Vélasalan h.f. Garðastræti 6, S. 15401 — 16341.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.