Morgunblaðið - 17.09.1977, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 17.09.1977, Blaðsíða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 17. SEPTEMBER 1977 Reknetin koma innfvrir og afiinn eykst |>Att enn sé árla morguns. Húmar að kveldi og sólin sfgur á bak við Breiðamerkurjökulinn. Einn var á spili... Arnór losar hér einn belgstrenginn af kaplinum. Á útleiðinni gerðu Erlingur og Kristmundur hristarann kláran. Aflanum iandað á bflpall. Kristmundur Ingibjörnsson stýrimaður lekur á móti hverju málinu af öðru og fljótt fyllist pallurinn. Krist- mundur er úr Keflávík, kom lii Hafnar fvrir ári. Sagðist hann kunna vel við sig á Ilöfn, hvergi væri betra að vera. Það var um sexleytið siðastlið- inn fimmtudag að lagt var 1 rek- netatúr frá Höfn. Þetta var annar túrinn sem farinn var á Gissuri hvíta á þeirri reknetavertíð sem var nýhafin, því báturinn hafði verið i slipp i Reykjavik. Þeir fengu rúmar 70 tunnur af sild eftir nóttina í fyrsta túrnum, og nú var að sjálfsögðu vonazt eftir meiri afla. Það er eftirminníleg stund, útsiglingin, því einn af öðr- um í halarófu héldu bátarnir á miðin, 18 á sömu 15 rpínútunum. Haldin var einföld röð út ósinn, en er honum sleppti var sett á full og sigldu sumir bátanna svo til samhlíða sem um jafna kappsigl- ingu væri að ræða. Hann tjáði mér, karlinn, að framundan væri um þriggja tíma stím á miðin, í nótt hefði hún, síldin, verið rúm- ar 20 sjómilur undan Stokksnes- inu. Við höfðum ekki silgt lengi þeg- ar kokkurinn var tilbúinn með næringuna, en svo nefndu skip- verjar máltiðir sínar. Yfir hinum ágæta kosti spáðu menn i hvernig fiskast mundi þennan túrinn, hvort hún kæmi upp undir yfir- borðið með nættinu eða hvort vax- andi aldan mundi halda síldinni á meira dýpi. Að sjáifsögðu komust menn ekki að neinni niðurstöðu, enda ekki meiningin, og eftir að vömbin hafði verið kýld hélt ég á ný til brúar með skipstjóranum, Guðmundi Kr. Guðmundssyni. Sólin var farin að nálgast Breiðamerkurjökulinn 1 vestri þegar lóðningar fóru að koma fram á „asdikinu" og dýptarmæl- inum, en það voru bara „púnktar" langleiðina niður undir botn sem var rúmum 30 föðmum undir. Því neðar sem sólin gekk og dýpið jókst þá færðust lóðningarnar nær yfirborðinu, en lengi vel var þetta bara „ryk“ eíns og karlinn orðaði það. A stíminu aðhöfðust menn mis- jafnlega. Kokkurinn stóð í kabyssunni og sá um að hafa til reiðu ýmis matföng, sumir höll- uðu höfðinu i koju, og enn aðrir undirbjuggu nótahristarann und- ir næsta drátt. Skipstjórinn sat auðvitað við stjórnvölinn. Nægur tími gafst þvi til að spjalla um landsins gagn og nauðsynjar, en uppáhalds umræðuefni sjómanna er auðvitað fiskveiðimál og því ekki nema eðlilegt að mest væri um þau mál spjaliað, þött dans- húsamenning í höfuðborginni og þviumlikt slæddist inn á milli. Karlinn sagði að svo virtist sem sildin væri á réttri leið. „Það hef- ur verið farið skynsamlega í hlut- ina á undanförnum árum, og er um að gera að halda áfram á svipaðri braut. Manni sýnist sem torfurnar séu alltaf að aukast og sildin að þéttast með ári hverju, og því held ég að jafnvel sé óhætt að auka á veiðina á hverju ári, þótt við verðum að sjálfsögðu að vera gætnir i þeim efnum,“ sagði Guðmundur m.a. Hann sagði að einnig virtist sér sem síldin yrði hlutfallslega stærri og feitari með árunum, og því stefndi alít í rétta átt. Við vorum hættir keyrslu rétt um klukkan níu að kvöldi, og þá komnir um 25 sjómílur suðvestur af Stokksnesinu og nú voru tíg- uleg fjöllin við Hornafjöró horfin þvi sólin var setzt á bak við Breiðamerkurjökulinn og myrkur skollið á. Löðningawiar voru nú komnar uppundir kjölinn, en torf- urnar voru dreifðar og, að því er virtist á mælitækjunum, ekki mjög stórar. 1 talstöðinni heyrð- ust samtöl annarra báta sem voru alit, i kring. Virtust þeir fæstir vera á miklum lóðningum en einn og einn hafði þó kastað svona í tilraunaskyni. Við keyrðum nú nokkuð fram og aftur í leit að stórum torfum, en lengi yel virtist sem tíðindaiítið væri. En allt í einu komu koisvartar breiður fram á mælunum og karlinn ræsti. Þær virtust myndarlegar, þéttingarnar á mælunum, og ofar- lega voru þær, allt upp undir kjöl, sagði karlinn. Klukkuna vantaði korter í tíu þegar karlinn ræsti og voru menn komnir á dekk að vörmu spori, tilbúnir til að ,,fýra“ út trossunni, sem lá tilbúin við borðstokkinn á bakborða. Við Einn var á spili, fj órir við blökk og þrír stóðu Það var hvorki þrútið loft né þungur sjór né þoku drungað vor þegar Gissur hvíti SF 55 lagði úr vör í Höfn til reknetaveiða í síöustu viku. Öðru nær, það var næstum spegilsléttur sjór, fá ský á lofti og glampandi sólskin þegar land- festar voru leystar og stefnt suðvestur af Stokksnesinu að lokinni króksiglingu í Hornafjarðarósnum. Þegar ósnum og rjómalogninu sleppti tók við létt báran og smá veltingur, sem þaulvönum sjómanninum þykir lítt til koma þótt blaðamaður Mbl., sem slóst með í þennan túr, væri ekki sérlega vanur hon- um. þurftum að snúa 180 gráður til að ná aftur torfunni góðu sem kom á mælana, og strákarnir biðu róleg- ir eftir skipun karlsins. Þarna kom það, „lagó“ galaði Guðmundur, og baujunni var varpað fyrir borð. Belg fyrir belg og stein fyrir'stein leið trossan örugglega út og lóðningin var þétt, þó gloppur virtust myndast við miðbik trossunnar sem var 75 net að lengd. Það tók ekki langa stund að leggja, aðeins um 20 mínútur. Var nú haldið í kabyss- una því þar beið enn ein hressing- in áður en haldið skyldi til koju. 1 lúkarnum sagói karlinn mér aö enn væri lögð út ein löng trossa og aðeins einu sinni, en þegar á vertíðina liði yrðu færri net lögð og þá dregið oftar yfir nóttina. Sagði hann einnig að nú yröi látið reka í nokkrar klukkustundir og yrði ræst um klukkan hálf fimm að morgni. Enn var spáð í hvernig veiðin yrði. Sagði karlinn að þött vel lóðaðist þá þýddi það ekki endilega að vel veiddist. Karlinn sagði mér að fara í sina koju, sjálfur mundi hann hola sér einhvgrs staðar í vistarverum undirmannanna. Eg var kominn í koju um hálf ellefu, en sofnaði ekki strax því veltingur var mikill á minn mælikvarða, upp og niður og út á hlið. En sú stund virtist fljót að koma þegar karlinn ræsti því svefninn var langþráður og því fljótur að líða. Menn voru með stírur í augum þegar skyrið og eggin voru inn- byrt, en það var næringin áður en nótin var dregin. Það var helzt kokkurinn sem virtist hress. Það var rétt farið að birta þegar fyrsti belgurinn kom inn fyrir borðstokkinn, en bið var á að sól- in risi upp fyrir sjóndeildarhring-

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.