Morgunblaðið - 17.09.1977, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 17.09.1977, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 17. SEPTEMBER 1977 11 Gissur hvfti SF-55 við bryggju á Höfn. handan hristarans inn, en það var eftirminnileg sjón þegar að kom. Það voru greini- lega vel skipulögð vinnubrögð sem notuð voru við drátt nótar- innar, því hver maður var vel nýttur, einn var á spili, fjórir tóku við nót úr blökk meðan þrír stóðu handan hristarans og lögðu þar nótina niður svo hún yrði sam- stundis klár fyrir næstu lögn, sem yrði næsta kvöld ef veður gæfi til sjós, en sumir áttu von á brælu. Það var byrjað að hffa klukkan fimm að morgni. Dráttur gekk vel og síldin var jafndreifð um nót- ina. En undir lokin var komin hálfgerð flækja á nótina, lausa enda hennar hafði rekið hraðar en bátinn og sett flækju á. „Það er bara að tosa þetta í sundur“, sagði skipstjórinn, „eða þá að gösla þessu öllu upp á kílsinn ef það nægir ekki", bætti hann við. Maður hafði áhyggjur af að fram- undan ættu skipverjar í basli með flækta trossu og yrðu ef tilvill að greiða úr öllu saman með berum höndunum. En þá var að biðja og vona að úr rættist, því nógu lengi voru skipverjar búnir að standa og innbyrða netin eitt af öðru. Stöðugt slettist á þá síldarhreistr- ið og margiyttuslitrur, en mikið var af henni í trossunni og sveið menn sárt undan. Ailt gekk að óskum og greitt var úr flækjunni með þvi að slá tói um trossuna og toga !. Það var nú orðið litið eftir af trossunni utan borðstokksins og því tók dráttur brátt endi, en þá var klukkan á slaginu níu, sem sagt það hafði tekið nákvæmlega fjórar klukku- stundir að draga. Skipstjórinn hætti nú vinnu á dekki og brá sér i brúna og setti þegar á ferð og tók stefnuna á land. En hinir skipverjarnir, að kokkinum undanskildum, settu nú aflann í lest og tóku til við að hreinsa á Og að löndun lokinni þurfti að sjálfsögðu að spúla dekkið og stfu- borðin úr lestinni. Það hlutverk le.vsti Björgvin fagmannlega og vel af hendi. Er trossan fór f gegnum blökkina slettist hreistur og marglyttuslitrur á þá Benedikt (tv.) og Erling en á svipnum má sjá ýmugust þeirra á marglyttunni en þeim er hreistrið að skapi. dekki. Það voru uppi getgátur um hve mikill aflinn væri, en helzt voru menn á að veiðzt hefðu um 60 tunnur. í talsstöðinni höfðum við heyrt að aðrir bátar hefðu fengið mismikið, allt frá 15 tunn- um og upp í 110. Það kom á dag- inn að tæpar 800 tunnur hefðu borizt á land út þessari veiðiferð, og var afli Gissurar hvíta því yfir meðallagi, eins og menn taka til orða i hagfræðinni. „Heldur var það rýrt sögðu sumir yfir kaffibolla að loknum drætti, en aðrir létu í ljósi bjart- sýni á að aflinn færi brátt að glæðast. Eftir að kastað hafði verið ihuguðu menn nokkuð hvort vera blaðamanns. um borð yrði til að fæla burt síldina, en nú, og eftir að hafa heyrt af afla- brögðum annarra báta, virtist sem hann væri tekinn í sátt. Enn var spjallað um hin ýmsu málefni þjóðfélagsins, en mikill timi fór í að lýsa fyrir skipverjum, sem voru mjög fróðleiksfúsir, hvernig starfi blaðamanns væri háttað og hvernig fjölmiðill sem Morgun- btaðið yrði til, hvernig fréttaöflun færi fram, o.s.frv. Sólin var komin hátt á loft þegar við sigldum inn Hornar- fjarðarósinn og morgunninn var fegurri en sá fegursti sem blm. gat munað í Reykjavík i sumar. Margir bátarnir voru komnir inn og höfðu lokið löndun og kom- umst við því strax að bryggju og innan skamms var aflinn kominn á vörubíl sem flutti hann í söitun- arstöðina. Talsverðrar sjóriðu gætti' hjá blm. fram eftir degi, en hún virtist ekki valda skipverjum neinum erfiðleikum. Þótt þeir væru allir ungir að árum voru þeir reyndir sjómenn og þekktu öllu meiri velting heldur en var í þessari ferð. Þeir voru átta á i þessum túr og svo skildi vera út reknetavertíðina. Auk skipstjór- ans, sem er einn eigenda bátsins, voru á Erlingur Ragnarsson, Einar Sigurðsson og Björgvin Bragason hásetar, Benedikt Sigurbergsson 2. vélstjóri, Krist- mundur Ingibjörnsson stýrimað- ur, Arnór Kristjánsson 1. vélstjóri og Helgi Helgason kokkur, en hann er einnig meðeigandi að bátnum. Hefur Helgi verið á Giss- uri hvíta í 13 ár, var reyndar seldur með bátnum,' eins og ein- hverjir skipverja komust að orði. Karlinn í brúnni á útleiðinni. Kvöldstemmning á útsiglingu. Sjálf er fleytan orðin um 22 ára og hefur á þessum tíma aflað mikils gjaldeyris í þjóðarbúið. Ekki ber báturinn þó utan á sér né að innan þennan aldur, því hann er allur hinn fegursti og snyrtilegasti og greinilega má sjá að nostrað hefur verið við hann. Nostur við bátana er nauðsynlegt, segja sjómennirnir, umhirðuleys- ið getur haft í för með sér slæman móral um borð og haldið fiskinum fjarri. Bátarnir héldu út Hornafjarðarós ( halarófu og þegar ósnum sleppti hófst hálfgerð kappsigling á miðin og var lengi vel Ktið bil á milli bátanna.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.