Morgunblaðið - 02.04.1978, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 2. APRÍL 1978
27
Hrafnistu fyrir um 10 árum. Hann
kunni vel við sig á Hrafnistu og
þótti sérstaklega vænt um að hafa
útsýni út á hafið og yfir til
hafnarinnar. Þar til nú síðustu
mánuði var Olafur vel hress bæði
til líkama og sálar. Hann fór
daglega í gönguferðir, gekk rösk-
lega og beinn í baki og lét
ógjarnan veður aftra sér. Þá vann
hann eitthvað lengst af við áhnýt-
ingu öngla o.fl., sem að sjó-
mennsku laut.
Olafur gekk í Sjómannafélag
Reykjavíkur skömmu eftir stofnun
þess og átti lengi sæti i stjórn
þess. Vann þar sem annars staðar
heils hugar og þótti vænt um félag
sitt.
Olafur fylgdist vel með, las
mikið og hlustaði á útvarp. Hann
var fróður um marga hluti. Ólafur
var mjög heilsteyptur maður.
Hann mat mikils þær góðu dyggð-
ir að vera trúr sjálfum sér og
Framhald á bls. 39.
Fundur
um
frjálsa
fjölmiðlun
^us:
veröur í Valhöll Háaleitisbraut 1, 4. apríl n.k.
kl. 20.30.
Frummælendur
Guðmundur H. Garðarsson
alþingismaöur og Einar Karl
Haraldsson fréttastjóri.
frjálsar umræður
Allir velkomnir.
Stjórnin.
Okkur hættir við að ganga út frá
því umhverfi, sem við lifum í sem
sjálfsögðum hlut og gleymum þá
gjarnan, hve mikil saga liggur að
baki mótunar þess sem og annarra
þeirra gæða, sem við njótum í
daglegu lífi. Það er okkur því hollt
að rifja upp stöku sinnum, að við
erum í ríkum mæli að njóta ávaxta
af störfum þess fólks, sem vann
hörðum höndum langan og strang-
an vinnudag allt frá barnsaldri og
það við svo erfið skilyrði að þau
mundu ekki talin mönnum bjóð-
andi nú á tímum. Færri og færri
þekkja þann tíma, þegar hönd
þurfti að kreppa um árahlunninn
eða draga segl að húni styrkum
lófa til þess að knýja áfram báta
og skip til að afla lífsviðurværis og
draga björg í bú. Mannsaflið var
þá aðal orkugjafinn í hverju erfiðu
verki og í hörðum átökum við
náttúruöflin til sjós og lands.
Kynslóðin, sem nú er að hverfa,
þekkti þessa lífsbaráttu af eigin
raun. Hún ólst upp í hörðum skóla
lífsins og hún stóðst sín próf og
skilaði landi sínu mun byggilegra
en áður. Þegar við lítum þann
mikla arf ættum við að geta skilið,
að hann hefur kostað mikla vinnu
liðinna kynslóða og því ekki
óeðlilegt'að mörg hönd yrði knýtt
og margt bak bogið hjá erfiðis-
vinnufólki fyrri tíma.
Ólafur Árnason sjómaður var
einn þeirra manna, sem tilheyrði
þeim tíma, þegar vinnan var sá
skóli, sem fólkið nam í. Frá
fjögurra ára aldri varð hann að
ganga á milli vandalausra og varð
að vinna fyrir sér allt frá því hann
var 10 ára gamall. Ólafur var
aðeins 15 ára, þegar hann fór fyrst
á skútu og frá 17 ára aldri
stundaði hann sjóinn óslitið í 40
ár. Fyrst á skútum en síðar á
togurum og var hann á togaranum
Geir samfleytt í 23 ár við góðan
orðstír, enda hlaut hann frá því
fyrirtæki heiðursskjal fyrir frá-
bæra og trúa þjónustu. Það var
aðalsmerki Ólafs að bregðast
aldrei því starfi, er honum var til
trúað, enda mat hann mikils
trúmennsku, heiðarleika og hrein-
skilni.
Eftir að Ólafur hætti sjó-
mennsku árið 1943 stundaði hann
búskap um þriggja ára skeið og
gerðist nokkru síðar starfsmaður
hjá Bæjarútgerð Reykjavíkur og
vann þar í 19 ár eða til þess að
hann varð áttræður.
Ólafur var fæddur 5. janúar
1887 að Stóru-Býlu í Innri-Akra-
neshreppi, sonur hjónanna Vil-
borgar Pálsdóttur og Árna
Magnússonar frá Efraskarði. Börn
þeirra voru auk Ólafs 4 dætur og
var hann næst elztur. Þau hjónin
slitu samvistum, er börnin voru
enn í bernsku. og ólst Ólafur að
mestu upp hjá vandalausum og var
víða. Ávallt hafði hann góð orð um
þá, sem hann dvaldist hjá. Einnig
átti Ólafur þrjá bræður af síðara
hjónabandi móður sinnar og lifa
IILHlll
TRYGGINGAR
Síöumúla 39 / Sími 82800
Pósthússtræti 9 / Simi 17700
•^o°
Ólafur Árnason
sjómaður—Mnrning
flytur fyrst. Frá 1. apríl eru skrif-
stofur deildarinnar til húsa í nýju
og rúmgóðu húsnæði að Síðumúla
39, framtíðarhúsnæði Almennra.
í þessu nýja húsnæði erum við
betur í stakk búin að bæta
þjónustuna og sinna viðskipta-
vinum betur.
Að Síðumúla 39, á horni Síðumúla
og Fellsmúla, er nóg rými, næg
bílastæði og greið aðkeyrsla,
hvort heldur þú kemur akandi
Síðumúlann sjálfan eða Grensás-
veg og Fellsmúla.
VERIÐ VELKOMIN Á NÝJA STAÐINN
Á morgun verður til moldar
borinn Ólafur Árnason sjómaður
en hann andaðist að Hrafnistu á
afmælisdegi móður sinnar, 26.
marz s.l. Var hann rúmlega 91 árs,
er hann lézt.
hann tvær systur og einn bróðir.
Árið 1913 kvæntist Ólafur Guð-
rúnu Þórarinsdóttur ættaðri úr
Borgarfirði. Var hún mæt kona og
áttu þau myndarlegt heimili. Þau
bjuggu nær allan sinn búskap í
Reykjavík. Voru þau hjón barn-
laus en ólu upp fósturdóttur, Petru
Þóru Jónsdóttur, sem gift er Pétri
Auðunssyni framkv.stj. í Hafnar-
firði. Mat Ólafur mikils þá miklu
umhyggju, sem hún og fjölskylda
hennar sýndi honum og konu hans
alla tíð og börnin voru honum kær.
Konu sína missti Ólafur fyrir
um 16 árum og bjó hann þá um
nokkur ár með Ragnheiði systur
sinni eða þar til hann fór á
...að Siðumúla 39
Almennar tryggingar flytja nú
höfuðstöðvar sínar úr Póst-
hússtræti 9. Bifreiðadeild félagsins