Tíminn - 16.06.1965, Blaðsíða 1
VER2LUNAR MANNA
ÁSKRIFTARSÍMI
16688 18888 18688
HANDBÓK
VERZLUNARMANNA
ÁSKRIFTARSÍMI
teeoo 18800 16688
l
I
f
i
SKÓLASUT í 119. SINN
Bærínn segir báðum upp!
FB-Reykjavík, ÞriSjudag.
Um síðustu áramót hófst al-
þjóðlegur vatnafræðilegur ára
tugur. Eitt aðalrannsóknarverk
efni Jöklarannsóknarfélagsins
á þessum áratugi verður að
rannsaka vatnabúskap Tungnár
jökuls og finna stærð hans.
Þáttur í þessum rannsóknum er
að kanna ákomuna og hafa ver
ið sett niður snjómöstur til
þess að mæla hina árlegu snjó
söfnun, en af nákvæmni stað-
setnmgu þeirra verður einnig
xmnt að sjá, hver hreyfing jök-
ulsins er og skriðstefna. Annað
aðalverkefnið er að mæla leys-
ingu á jöklinum í nánd við
jökuljaðarinn.
Undanfarið hafa nokkrir
rannsóknarleiðangrar verið
farnir upp á jökulinn, sá fyrsti
í maí-lok undir stjórn Sigurðar
Þórarinssonar, eins og skýrt
hefur verið frá í fréttum. Um
hvítasunnuna fóru svo Magnús
Hallgrímsson og Þorbergur Þor
bergsson með átta manna hóp
upp á jökulinn og mældu snið
á milli fjallstindanna Kerlingar
og Pálsfjalls. Var sama mæling
framkvæmd fyrir nokkrum ár-
um, svo hægt verður að sjá,
hvaða breytingar hafa átt sér
stað í millitíðinni, þegar nið-
urstöður þessara mælinga liggja
fyrir.
Þá fóru þeir Sigurjón Ríst
og Páll Pálsson upp á Tungnár
jökul nú fyrir skömmu og
settu þar upp þrjú snjómöstur
í mismunandi hæð og mælingar
flokkur þeirra Magnúsar og
Þorbergs mældi Þau inn. í fram
tíðinni verður komið að þeim
haust og vor til þess að mæla
ákomu og hreyfíngu á jöklin
um. 125 cm millibil er á milli
hringanna á möstrunum svo
hægt verður að athuga þau úr
flugvélum, þegar flogið er yfir.
og hringirnir eru taldir Þá
settu þeir Sigurjón upp þrjár
Framhald á l4 síðu.
Hér er verið að setja upp snjó-
mastrið á jöklinum. (Ljósm. SR).
BÞG—Reykjavík, þriðjudag.
Menntaskólanum í Reykjavík
var sagt upp í 119. sinn í dag,
og fór athöfnin fram í Háskóla-
bíói. Salurinn var þéttskipaður
og bar að sjálfsögðu mest á
hvitu kollum stúdentanna. Rekt
or skólans, Kristinn Ármanns-
son, flutti skólaslitaræðuna,
gerði grein fyrir starfsemi skól
ans og ávarpaði nýstúdenta.
Þá skýrði hann frá því, að þetta
væri í síðasta sinn, sem hann
útskrifaði stúdenta.
Brautskráðir voru 164 stúd-
entar, en nemendur alls í upp-
hafi skólaárs voru 930 í 41
bekkjardeild. Kennarar voru
um 70. Hæstu einkunn á stúd-
entsprófi hlaut Borghildur
Einarsdóttir, ágætiseinkunn,
9.41. Næst hæstu einkunn hlaut
einnig stúlka, Sigrún Helgadótt
ir, 9.32, og er það í fyrsta sinn
að stúlka hlýtur hæstu einkunn
í stærðfræðidoild við stúdents-
próf.
í upphafi ræðu sinnar gat
rektor þess, að þetta væri í
þriðja sinn, sem óhjákvæmilegt
hefði verið að láta skólaslitaat
höfnina fara fram utan skól
ans, vegna skorts á húsrými í
Menntaskólanum. Vék rektor
síðan að byggingamálum skól-
ans, og gat þess merka áfanga,
er náðist á skólaárinu, er ný-
byggingunni við gamla skóla-
húsið var að mestu lokið. Sagði
hann, að miðað við fólksfjölda
í Reykjavík, þyrftu að vera þar
Framhald á '4 sítip *
Deila slökkviliðsstjoranna í Hafnarfirði:
nýstúdentar setja upp hvítubúfurnar sínar, en rektor skólans horfir á
ýr ræSustól. (Tímamynd GE).
TUNGNARJÖKUU
milli slökkviliðsstjóra og vara-
slökkviliðsstjóra, er unnið var að
því að slökkva eld í vinnuskúr á
Arnarnesi 25. maí s. 1. Endaði sá
ágreiníngur með því, að slökkvi-
liðsstjórinn lét fjarlægja vara-
slökkviliðsstjóra af brunastað,
vegna þess að hann neitaði að
fara eftir fyrirmælum yfirmanns
síns og gaf skipanir þvert ofan í
ákvarðanir hans.
Bæjarstjórinn raktí málið á
fundinum og las upp greinargerð
ir um atvik þetta frá báðum aðil
um, en þar kom fram, að vara-
slökkviliðsstjóri hafði, þrátt {yr-
ir margendurtekið bann slökkviliðs
stjóra farið með aðalslökkviliðs-
bifreið bæjarins út fyrir bæjar-
mörkin, og á umræddan brunastað
neitað að hlýða fyrirskipunum yf
irmanns síns. Kom fram í greinar
gerð varaslökkviliðsstjóra að hann
gerði þetta vegna þess, að hann
taldi síg ráða, en ekki slökkviliðs-
Framhald á 15. síðu
EJ-Reykjavík, þriðjudag.
Á fundi í bæjarstjóm Hafnar-
fjarðar í dag var samþykkt með
7 atkvæðum gegn 2 tillaga frá
borgarráði, sem felur í sér, að
slökkviliðsstjóri og varaslökkvillðs
stjóri Hafnarfjarðar verði settir
af, en embættí slökkviliðsstjóra
verði síðan auglýst laust til um
sóknar. Var þetta gert vegna þess
ágreinings, sem risið hefur upp
milli þessara tveggja manna, vegna
þess, að varaslökkviliðsstjóri hef
ur oftsinnis neitað að hlýða skip
unum yflrmanns síns og jafnvel
skipanlr, sem voru í and-
stöðu við ákvarðanir slökkviliðs-
stjóra. Samþykkti bæjarstjórnar-
meirihlu.tinn að ráða í starf slökkvi
liðsstjóra iðn- eða tæknimenntað
an mann, en áður hefur þessi
starfsmaður alltaf verið
fræðingur, og jafnframt að ráða
engan varaslökkviliðsstjóra fyrst
um sinn.
Eíns og fram hefur komið hér
í blaðinu, kom upp ágreiningur
SAKADUR SÉRSTAKLEGA
RANN-