Morgunblaðið - 26.10.1980, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 26.10.1980, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 26. ÓKTÓBER 1980 37 Sigurður Halldórs- son bóndi - Minning Alltaf er maður óviðbúinn dauð- anum, ekki síst þegar hann kemur skyndilega, og gerir engin boð á undan sér. Þó er hann það eina sem við vitum fyrir víst að kemur til okkar allra, því á þessari jörð er okkur skammtaður tími til dvalar, bara misjafnlega langur. Margar myndir frá liðnum ár- um komu fram í huga minn, þegar ég frétti Iát eins æskufélaga míns og fermingarbróður Sigurðar Halldórssonar bó,nda á Efri- Þverá í Vesturhópi, er varð bráð- kvaddur þann 21. júlí, 65 ára gamall. Hann var fæddur á Efri- Þverá 12. sept. 1915, sonur hjón- anna Pálínu Sæmundsdóttur og Halldórs Sigurðssonar. Þau voru annáluð dugnaðar- hjón, Pálína var ljósmóðir í Þver- árhreppi á meðan hún átti þar heima og naut mikils trausts í starfi sínu, var til þess tekið hvað hún var dugleg að ferðast í slæmri færð og vondum veðrum. Sigurður tók við búi á Efri-Þverá af foreldr- um sínum, og keypti jörðina síðar, og bjó þar allan sinn búskap, eða þar til hann var svo skyndilega burt kallaður. Jörðina bætti hann mjög, bæði með ræktun og bygg- ingum. Sigurður var góður bóndi, hafði aldrei stórt bú, enda jörðin frekar lítil, en hann fór vel með skepnur sínar og hafði þessvegna af þeim góðan arð. Hann vann oft utan heimilisins, aðallega í byggingar- vinnu, enda mjög vel verki farinn, og mátti segja að öll störf færu honum vel úr hendi og var hann eftirsóttur til vinnu af öllum sem hann þekktu. Þegar Sigurður var á æsku- skeiði var hann talinn óvenju tápmikill, enda fór hann snemma að vinna'öll algeng sveitastörf sem þá útheimtu mikið þrek, vélarnar voru ekki komnar til að létta störfin. Sigurður var næstelstur af fimm systkinum, sem öll voru myndarleg og vel gefin. Þau voru þessi, talin eftir aldri: Guðlaug, Sigurður, Hólmfríður, Pétur og Sigríður. Þrjú af þeim eru nú látin, á lífi eru Hólmfríður og Sigríður. Sigurður var mikill félags- hyggjumaður og tók þátt í félags- málum, m.a. var hann í stjórn kaupfélags Vestur-Húnvetninga um árabil, einnig voru honum falin ýmis trúnaðarstörf innan sinnar sveitar. Hann stundaði nám við héraðsskólann í Reykholti og var það honum gott vegarnesti. Sigurður var mjög músikalskur enda góður söngmaður og spilaði á orgel. Hann var góður félagi og tryggur vinur vina sinna, einnig var hann umhyggjusamur heimil- isfaðir, og lagði oft á sig mikla vinnu til þess að geta séð heimili sínu farborða. Eg minnist margra ánægjustunda frá æskudögum okkar, þegar við störfuðum saman í ungmennafélaginu heima í sveit- inni, fórum saman í útreiðartúra, eða skemmtum okkur á annan hátt, við áttum líka mörg sameig- inleg áhugamál, sem við ræddum oft okkar á milli. Það má segja að skammt sé stórra högga á milli innan fjöl- skyldunnar, því Halldór faðir Sig- urðar lést í hárri elli í apríl sl. og voru aðeins þrír mánuðir á milli þeirra feðga. Sigurður kvæntist Hólmfríði Magnúsdóttur frá Vatnsdalshól- um, hinni ágætustu konu, sem var honum ómetanlegur lífsförunaut- ur, og voru þau hjónin samhent að skapa það heimili sem öllum þótti gott að koma á, þar ríkti hin sanna gestrisni, hver sem í hlut átti. Þau hjón eignuðust átta börn, fimm dætur og þrjá syni, allt mesta myndarfólk, og flest eru þau búin að stofna eigin heimili. Þótt leiðir okkar Sigurðar lægju ekki oft saman á seinni árum, þá rofnaði aldrei vinátta okkar frá æskuárunum. Þessar fátæklegu línur mínar eiga að vera þakkarorð til hans og jafnframt ósk um góða heimkomu á eilífðarlandið. Ég votta konu hans og börnum og öðrum aðstandendum innilega samúð okkar hjóna. Dýrmundur Ólafsson. + Innilegar þakkir fyrir aösýnda samúö og vlnarhug viö andlát og útför MARÍU FINNSDÓTTUR, Austurkoti, Vogum. Hallveig Arnadóttir, Magnús Ágústsson, Ása Árnadóttir, Eiöur Sigurösson, Helga Árnadóttir, Jón Bjarnason, barnabörn og barnabarnabörn. t Innilegt þakklæti tll allra þeirra er sýndu okkur samúö og vinarhug vlö andlát og jaröarför LOFTS G. HJARTAR, húsasmiós, Barmahlíö 11. Guörún Á. Hjartar, Steinunn Hjartar, Stefón B. Stefónsson, Dóra Hjartar, Kristín Hjartar. + Eiginkona mín, móöir okkar, tengdamóöir og amma, GUÐRUN HANSDÓTTIR fró Þúfu í Landsveit, sem andaöist á Hrafnistu 15. október sl., veröur jarösungin frá Dómkirkjunni í Reykjavík, mánudaginn 27. október kl. 1.30. Póll Þorsteínsson, Gunnar H. Pólsson, Sesseljn G. Kristinsdóttir, Sigrún S. Pólsdóttir, Guömundur I. Ingason, og barnabörn. ITALSKIR | KVENSKÓR Austurstræti 10 sínii: 27211

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.